Dagur - 09.01.1998, Síða 1

Dagur - 09.01.1998, Síða 1
3Kifr1 yKv_J&>■ B r; H \- ■ ET~- Btay--,' il Listakonan Æja á vinnustofu sinni við Sogaveg í Reykjavík með jólakortið, sem hún kallar Vernd. Sjálf átti hún I erfiðleikum með að fá eintak, en tókst um siðir að verða sér úti um nokkur kort. mynd: þúk. Hún á metsölujólakort íslands! Listakonan Æja gafverk sitt á jólakort Hríngsins eftir að dóttir hennarfór á bamaspítalann þar sem beturfóren á hor- fðist. Kortiðhennar seldist Í8S þúsund eintökum! Æja, eða Þórey Bergljót Magnús- dóttir er 37 ára Akureyringur, sem býr í dag að Sogavegi 190 í Reykjavík og stundar þar list sína. Svo virðist sem kortið hafi selst upp og farið í 85 þúsund eintökum. Kortið mun hafa borist til flestra fjölskyldna í landinu, í einu eða fleiri eintök- um. Æja sagðist í samtali við Dag vissulega vera ánægð með þessar ótrúlegu viðtökur, ekki síst í Ijósi þess hve málefnið væri gott. Hún sagði verkið sem hún kallar „Vernd“ tjá samkennd og samleið frumefnanna fjögurra, en að öðru leyti skýrði verkið sig sjálft. Kynntist sjálf þörfiimi fyrir bamaspítala Æja er borinn og barnfæddur Ak- ureyringur, gaf þá skýringu á þessu óvenjulega listamanns- nafni ,/Eja“ að það væri í raun ekki listamannsnafn. Systir hennar hafi hins vegar kallað hana þessu nafni fyrsta árið eftir að hún fæddist, og það haldist sem gælunafn. Ung hélt Æja suður og stundaði nám í Fjöl- braut í Breiðholti og síðar Mynd- Iista- og handíðaskólanum. Hún selur list sína hjá Elfsu í List í Skipholti og við Skólavörðustíg og hefur vakið mikla athygli und- anfarin ár. „Ég er auðvitað yfir mig ánægð að þetta gekk svona vel að selja kortið. Það skipti miklu máli að kortið var fallega prentað. Þetta málefni, Barnaspítalasjóður Hringsins, er afar þarft málefni. Ég þekki það af eigin raun, því stelpan mín var einmitt á spítal- anum, það gekk allt vel með hana, miklu betur en á horfðist. Mér fannst það alveg sjálfsagt að aðstoða Hringskonurnar og gaf þeim þetta verk, Vernd, til að nota á jólakortið," sagði Æja. „Það er nú þannig að þetta kem- ur öllum til góða, allar fjölskyld- ur þurfa einhvern tíma á því að halda að snúa sér til barnaspítal- ans. Ég vona bara að kortasalan hjálpi til við að reisa nýja barna- spítalann." Æja hefur haldið einkasýningu í fjögur skipti og þrisvar verið með á samsýningum. Meðal ann- ars hefur hún sýnt hjá EFTA í Brussel þar sem hún var með einkasýningu. Núna síðast sýndi hún í sóknarkirkju sinni, Bú- staðakirkju. EFTA keypti af henni verk, og það hafa Flug- málastjórn og Bústaðakirkja ein- nig gert. Altaristalla í Skorradal Um þessar mundir vinnur Æja að gerð altaristöflu fyrir Fitja- kirkju í Skorradal í Borgarfirði, dalinn sem svo mjög er í fréttun- um um þessar mundir. Það er 100 ára gömul kirkja. Æja segir að kirkjulist sé afar spennandi viðfangsefni og höfði sterkt til sín. Spítali fyrir bömin „Þetta gekk mjög vel, en ég þori ekki að segja hvort allt hafi selst. Það er einhver kostnaður við þetta, en allir velviljaðir gagnvart okkar starfsemi. Okkar kort hafa alltaf selst vel, en trúlega aldrei eins og núna,“ sagði Elísabet Hermannsdóttir, formaður Hringsins, í gær. „Það eru allir jákvæðir gagn- vart því að byggður verði nýr spít- ali fyrir börn. Barnaspítali Hringsins inni á Landspítalanum var ekki byggður með börn í huga. Vonandi er allt komið í gang með að heíja framkvæmdir við alvöru barnaspítala," sagði Elísabet Hermannsdóttir. -JBP Nvtt simanúmer « SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA Skipagata 9 • Pósthólf 220 • 602 Akur Veitum hagstæð lán til kaupa á landbúnaðarvélum Reiknaðu með 'SlB SP-FJÁRMÖGNUN HF Vegmúli 3 • 708 Reykjavik • Sími 588-7200 • Fax 588-7201

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.