Dagur - 09.01.1998, Page 5
FÖSTUDAGVR 9 . J AN Ú A R 1998 - 21
LÍFIÐ t LANDINU
LEIKHUS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Þjóðleikhúsið frumsýnirá
stóra sviðinu á sunnudaginn
ævintýraleikinn Yndisjríð og
ófreskjan.
I stórri ævintýrahöll býr ófreskja nokkur
ásamt kostulegu þjónustuliði sínu. Dag
einn í aftakaveðri villist þangað kaupmað-
ur á ferðalagi og nýtur gestrisni ófreskj-
unnar. Ofreskjan lætur hann heita því að
færa sér eina af dætrum sínum þremur.
Yndisfríð, yngsta dóttir kaupmannsins,
býður sig fram til ferðarinnar, því að öðru-
vísi verður ekki lífi föðurins bjargað.
Ofreskjan er í rauninni skelfilega ein-
mana og óhamingjusöm en við komu Ynd-
isfríðar í ævintýrahöllina breytist margt.
Og ekki er allt sem sýnist.
Stuðst við enska leikgerð
Bæði börn og fullorðnir kannast við þetta
sígilda ævintýri enda er það að finna í
flestöllum sögubókum og ættu því allir að
hafa gaman að leiknum og sjá uppsetn-
inguna í Þjóðleikhúsinu. Eins og áður
segir verður verkið frumsýnt á sunnudag-
inn en það byggir á samnefndu sígildu
ævintýri af frönskum uppruna, „La Belle
et le Bete“, sem hefur verið uppspretta
ótal skáldsagna, ævintýra og leikrita. I
uppfærslu Þjóðleikhússins er stuðst við
nýja enska leikgerð. Leikendur eru Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir og Sigrún
Waage, sem skipta með sér hlutverki Ynd-
isfríðar, Örn Árnason leikur Ófreskjuna,
Arnar Jónsson, Halldóra Björnsdóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Valur Freyr
Einarsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir og
Gísli Rúnar Jónsson.
Þórarinn Eldjárn þýddi verkið og samdi
söngtexta, dansahöfundur er Hany Hana-
ya, tónlistin er eftir Jóhann G. Jóhanns-
son, tónlistarstjóra Þjóðleikhússins, og
Siguijón Jóhannsson er höfundur bún-
inga og leikmyndar. Leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir. -GHS
/ stórri ævintýrahöll býr ófreskja nokkur ásamt þjónum sínum. Kaupmaður villist þangað og lætur ófreskjan hann færa sér eina dóttur. Yngsta dóttirin býður sig fram en
ekki er allt sem sýnist.
HELGIN FRAMUNDAN HVAÐ ER I BOÐI?
Aímæli í
Nýlistasafni
Ótrúlegt en sattl Tutt-
ugu áreru liðinfrá
stofnun Nýlistasafns-
ins og erþví blásið til
afmælisárs með öflugri
sýningardagskrá.
Fyrstu sýningar ársins verða
opnaðar á laugardaginn og sýna
þá verk sín þrír erlendir gestir,
hjónin Matjaz Stuk og Alena
Hudocovicoca frá Hollandi og
Englendingurinn Chris Hales.
Stuk og Hudocovicoca kalla inn-
setningu sýna „Kortaherbergi
GúIIivers". Hales sýnir sjö marg-
miðlunarkvikmyndir í Svarta sal.
Á sama tíma opna opna þrír
íslenskir listamenn sýningar í
Nýlistasafninu, Pálína Guð-
mundsdóttir frá Akureyri er með
málverk, Hildur Bjarnadóttir
sýnir textílverk sín og Einar
Garibaldi Eiríksson landslags-
málverk.
Sýningarnar eru opnar dag-
lega (nema mánudaga) frá 14-
18. Þeim lýkur 25. janúar. Að-
gangur er ókeypis. -GHS
Þrir erlendir listamenn og þrír íslenskir
sýna verk sín i Nýtistasafninu i Reykjavik.
Meðal annars kemur Pálina Guðmunds-
dóttir með málverk sín frá Akureyri.
Fjallað verður um Hallgerði langbrók og
karlmennina i lífi hennar i Listaklúbbi
Leikhúskjallarans.
Eiginmenn og elskhug-
ar. Á mánudagskvöldið
verður dagskrá Lista-
klúbbs Leikhúskjallar-
ans tileinkuð einni um-
deildustu sögupersónu
Njálu, Hallgerði lang-
brók. Forvitnileg sýn-
ingfyrirforvitiðfólk.
Ærið
fögur
ermær
sjá...
Jón Böðvarsson og Kristján Jó-
hann Jónsson íslenskufræðingar
tala um Hallgerði langbrók og
samband hennar við karlmenn-
ina í lífi hennar í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans á mánudags-
kvöldið. Leikararnir Sigrún
Gylfadóttir og Stefán Sturla Sig-
urjónsson lesa valda kafla úr
Njálu og flytja atriði úr leikriti
Hlínar Agnarsdóttur, Galleri
Njála, sem sýnt er í Borgarleik-
húsinu. Ef tíminn leyfir verða
umræður á eftir.
Dagskráin hefst kl. 20.30 en
húsið verður opnað kl. 19.30.
Miðasala er við innganginn.