Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 2
2 — ÞRIÐJUDAGUR 1 3 . J A N Ú A R 1 9 9 8 FRÉTTIR Hólmfriður Gísladóttir ættgreinir: Manntaiið 1910 er fyrsta aiísienska manntal/ð og hefur að geyma miklar uppiýsingar sem fengur er i. Hvað £erði mótor- istinn í MerJdsteini? Hvað gerðu langafi og langamma þín árið 1910? Manntalið getur sagt þér það og hvaðan þau komu og í hvemig húsnæði þau hjuggu og hvenær þau giftust... Árið 1910 bjó í þurrabúðinni Merki- steini í Eyrarbakkasókn Brynjólfur Vig- fússon, mótoristi og snikkari, 53 ára, ásamt konu sinni Þóreyju Sveinsdótt- ur, 52 ára húsmóður og dóttur þeirra Rósu Maríu 14 ára. Þau áttu þá fjögur börn á Iífi, en þrjú höfðu þau misst. Þau höfðu flutt suður frá Hólalandi í Norður-Múlasýslu 1891, en Brynjólfur fæddist annars í Skaftafellssýslu. Dóttirin Rósa María átti aðeins 7 ár ólifuð, en Þórey dó 1929 og Brynjólfur 1937, áttræður. Hvort þetta aldamóta- fólk hafi lifað hamingjuríkri ævi kemur ekki fram, en í Manntali Arnessýslu 1910 má alténd finna ýmsa fróð- leiksmola sem gagnast vel í ýmisskonar grúski, ekki síst ættfræði. Ættfræðifélag íslands gefur út Manntalið 1910 og er þriðja bindið, Arnessýsla, nýkomið út. Hólmfríður Gísladóttir, ættgreinir og félagsformað- ur, segir að ákvörðun um að gefa út manntalið 1910 hafi verið tekin 1988. En er ártalið 1910 ekki full nærri nú- tímanum fyrir ættgrúskara? Góður upphafspunktur fyrir unga fólldð „Við tókum þessa ákvörðun og töldum hana mjög heppilega, ekki síst fyrir unga fólkið í dag, sem er að byrja að leita. Það finnur þarna afa og ömmur sínar og langafa og langömmur sínar. Við hin sem eldri eru höfum yfirleitt eldri ártöl í huga og í manntölum er viss eyða á tímabilinu 1845 til 1910. Það er Iangt bil sem þarf að brúa,“ seg- ir Hólmfríður. Hólmfríður bendir á að manntalið 1910 var fyrsta manntalið sem íslend- ingar gera sjálfir og þar er að finna miklar upplýsingar sem ekki eru í eldri manntölum. „Auk þess að getað lesið um stöðu og störf fólksins í manntal- inu er að finna þar t.d. lýsingar á bæj- arhúsum og getið um eigendur jarða eða húsa. Fólk getur lesið um hvað fólkið gerði á heimilinu, t.d. hvort það stundaði tóvinnu eða annað." Hólmfríður vildi að fram kæmi að margir hafi komið að útgáfunni á manntalinu, en að mesta heiðurinn ætti Eggert Th. Kjartansson skilið fyrir mikla vinnu við að samræma, leiðrétta og lesa prófarkir. - FÞG í heiía pottinum eru nienn að ræða unt próf- kjörsbaráttuna hjá R-listanum sem nú er hafin með formlegum hætti. Það er ekki síst unga fólkið sem komið er af stað, enda telur það sig eiga á brattann að sækja vegna þess að borgar- fulltrúamir núvcrandi hafi umtalsvert forskot. Þannig opnaði Hrannar B. Amarson (Alþýðu- flokkur) fonnlcga prófkjörsmiðstöð sl. föstu- dagskvöld og Sigrún Elsa Smáradóttir (Alþýðu- bandalag) hefur keypt sér augiýsingaeyra á for- síðu Dags. Pottverjar segja þetta til marks uin að hjá A-flokkunum ætii unga fólkið að taka próf- kjörið mjög föstum tökum... Óskar Bergsson. En baráttan er líka byrjuð hjá framsókn en á laugardaginn hélt Óskar Bergsson opnunar- hóf fýrir nýja prófkjörsinið- stöð scm hann hefur opnað í Síðumúlanum. Það vakti at hygli pottvcrja hversu margir mættu hjá Óskari en hátt í 300 manns munu hafa komið í Fáksheimilið, þar á meðal ýmsir forastumenn úr Framsóknarflokknum. Hins vegar var eftir þvl tekið að engir keppinaut- ar Óskars úr framsókn voru á staðnum og túlk- uðu menn það þannig að Óskar hafi ekki viljað deila sviðsljósinu með þeim. Fjölmemiið hjá Óskari er talið vera til marks uin að hann muni koina sterkur inn í baráttuna... En það er víðar pólitískur titringur vegna upp- stillingar en í Reykjavik. Á Akureyri bíða fram- sóknarmenn nú með að stilla upp sínum lista. Ástæða biðarinnar mun ekki vera sú að uppstill- ingamefnd sé 1 svo miklum vandræðum mcð að velja fólk, heldur það að Þórarinn EgiII Svein- son, forseti bæjarstjórnar, er stcrklega orðaður við embætti forstjóra Osta- og smjörsölunnar en uinsóknarfrestur um þá stöðu rennur út núna 15. jaiiúar. Þar til skýrist mcð það mál geta framsóknamicnn ekki ákvcðið listann, segja menn í lieita pottinum... FRÉTTA VIÐTALIÐ Þómrinn Tyrfingsson yfirlæknir SÁÁ. Það er verið að hvarfla frá þeirri aðhaldsstefnu sem fylgt hefur verið í landinu í áfengismálum. Auðvitað er það áliyggjuefniþeim sem líta svo á að áfengi sé ekki venjuleg neysluvara. Það er verið að £efa eftir áfeiigisinahmi — Fortnadur stjómar ÁTVR boðar t' við- tali við Dag sl. laugardag úhuga sinn á aukinni vínkynningu í fjölmiðlum og víð- ar. Hvert er þitt álit á því efÁTVR fer út { aukna vínkynningu? „Þetta er bara áframhald á þeirri megin stefnu sem fylgt hefur verið undanfarin ár, sem er aukið frjálsræði með áfengi. Það birtist í fjölgun útsölustaða ÁTVR og að auðveldara er en áður að fá vínveitingaleyfi. Þá hafa víninnflytjendur stöðugt aukið óbeinar auglýsingar, sem fara ekki fram hjá neinum. Öll umræða um vín með mat og í matargerð hefur aukist. Allt er þetta auðvit- að markaðssetning á áfengi. Með þessu er verið að búa til nýja markhópa og selja áfengi eins og hverja aðra vöru.“ - Er þá verið að gefa eftir í þessunt mál- um í landinu? „Það er augljóst. Það er verið að hvarfla frá þeirri aðhaldsstefnu sem fylgt hefur ver- ið í landinu. Auðvitað er þetta áhyggjuefni þeim sem líta svo á að áfengi sé ekki venju- Ieg neysluvara. Ekki síst er þetta áhyggju- efni þeim sem koma að heilbrigðisþætti málsins vegna þess hve áfengi veldur mildu líkamlegu og andlegu heilsutjóni. Það vita heilbrigðisstarfsmenn manna best. Þess vegna hljóta þeir að hafa áhyggjur af því þegar áfengi er svona mikið í umræðunni og svona mikil áhersla lögð á að markaðssetja það.“ - Þýðir þetta að lögin setn banna vín- auglýsingar halda eklti eða eru þau göll- uð? „Áfengislögin eru í sjálfu sér ágæt ef farið væri eftir þeim. Það má benda á að vínveit- ingaleyfi eru háð ákveðnum skilyrðum og ef farið væri eftir áfengislögunum og þess gætt að þeir sem mega ekki drekka áfengi væru ekki inn á þessum stöðum væri það strax spor í rétta átt. Lögin segja ekki allt heldur hvernig þeim er framfylgt. Undanfarinn er að markaðssetja áfengi og síðan vilja menn drekka oftar og meira og þá um leið er slak- að á Iögunum. I lýðræðisþjóðfélagi þykir það ekki gott að gera eitthvað sem fólkið vill ekki.“ - Stingur það ekki í stúfef opinbert fyr- irtæki eins ogÁTVR vill auka kynningu á vínum á satna tíma sem heilbrigðisráðu- neytið er að veita milljónum ltróna í for- vamarstarf? „Það er svo sem ekkert nýtt í því. Þannig hefur þetta alltaf verið. Segja má að þetta sé ef tíl vill meira áberandi nú en stundum áður vegna þess að þeim sem ræða mikið um áfengi hefur vaxið fiskur um hrygg. Það þykir eðlilegra nú til dags að ræða opinber- Iega um áfengi en var hér áður fyrr. Enda má segja að menn hafi ekkert komist upp með það þá. Vissulega veldur þetta aukna frjálsræði, í þessum málum, mörgum áhyggjum, ekki síst vegna þess að það sama er að gerast í umræðunni um kannabisefni. Undanfari aukinnar kannabisneyslu er sá að kannabisefni séu hættulaus og það þurfi að nota þau sem lyf o.s.frv. Þetta allt veldur okkur vaxandi áhvggjum." -S.DÓR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.