Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 13
 l’RIDJUDAGUR 13. JANÚAR 1998 - 13 ÍÞRÓTTIR Þruiminevgur Þórð- ar tryggði ÍA titilmn Kampakátir fyrirlidar BreiðabHks og Akraness sem hömpuðu um helgina íslandsmeistaratitlum i innanhússknattspyrnu 1998. - mynd: bg Akranes og Breiðablik tryggðu sér Islandsmeistaratitilinn í innan- hússknattspyrnu um síðustu helgi eftir spennandi úrslitaleiki í Laugardalshöll á sunnudaginn. Keflvikingar, sem tættu í sig KR-inga í síðari hálfleiknum í undanúrslitunum og unnu 5:2 sigur, byrjuðu úrslitaleikinn vel. Gunnar Oddsson skoraði fyrsta markið á fjrstu mínútu, en eftir það má segja að Skagamenn hafi ráðið ferðinni. Þeim gekk þó illa að koma knettinum framhjá Bjarka Guðmundssyni og það var ekki fyrr en undir lok hefðbund- ins leiktíma að Jóhannes Karl Guðjónsson stýrði knettinum í markið af stuttu færi. Þórður Þórðarson, markvörður ÍA, tryggði síðan liði sínu titilinn í framlengingu þegar þrumuskot hans rataði út við stöng. „Keflvíkingarnir spiluðu mjög góða vörn og markvörður þeirra varði vel og í raun vorum við heppnir að vinna í lokin. Mér fannst leikurinn gegn Þrótti, sem voru með eitt allra besta liðið í keppninni, sitja í okkur, en við notuðum hópinn okkar vel og stóðum uppi sem sigurvegarar," sagði Steinar Adolfsson, fyrirliði Skagamanna. Sá þriðji í röð hjá Blikiun KR-ingar voru heldur beittari en Breiðablik, í daufum úrslitaleik í meistaraflokki kvenna. Segja má að þáttaskil hafi orðið í leiknum á lokasekúndum fyrri hálfleiks, þegar Sigríður Pálsdóttir, mark- vörður þeirra, fékk að líta rauða spjaldið fyrir að handleika knött- inn utan teigs. Edda Garðars- dóttir tók stöðu hennar og þó hún verði ekki sökuð um mörkin, þá var ekki sama öryggi yfir leik KR- inga í síðari hálfleiknum. Margrét Ólafsdóttir skoraði fyrsta markið f)rir Blika, en Edda markvörður jafnaði metin um hæl. Margrét var síðan aftur á ferðinni stuttu fyrir leikslok og það er ljóst að bikarinn verður áfram í Kópavogi, þar sem hann hefur verið sl. tvö ár. „Þetta var tvímælalaust okkar erfiðasti leikur í mótinu og það mátti finna fyrir því að bæði liðin voru stressuð," sagði Margrét Ólafsdóttir, markaskorari Blikanna. Giggs sá um Spurs Manchester United heldur áfram sigur- göngu sinni á Old Trafford. Redknapp skoraði bæði mörk Liverpool og Ruud Gullit skellti sér inn á á móti Coventry í enska boltanum um helgina. Ryan Giggs skoraði bæði mörk United í frekar öruggum sigri á Tottenham á laugardag. United hefur þægilegt forskot í efsta sæti deildarinnar og eru speking- ar á Englandi allir sammála um það að fátt getur komið í veg fyr- ir að enn einn meistaratitill fari á Old Trafford. Nicola Berti spil- aði sinn fyrsta leik fyrir Spurs og átti hann ágætan Ieik og kemur til með að styrkja slaka miðju liðsins. Redknapp meö tvö Jamie Redknapp sá um Wimbledon með tveimur bomb- um í síðari hálfleik. Þetta er í annað sinn í 14 leikjum þessara liða sem Liverpool sigrar en út- litið var ekki bjart framan af. Robbie Fovvler átti afleitan leik og várðist sjálfstraust þessa frá- bæra sóknarmanns vera á lægsta stigi þessa dagana. Chelsea liðið fór ekki í gang gegn Coventry fyi r en stjóri liðs- ins, Ruud Gullit, skipti sér inn á á 59. mín. Chelsea, sem er í harðri baráttu við að halda í við United, var lengst af undir í leiknum þar til táningurinn Nicholls skoraði tvívegis á 5 mínútna kafla í síðari hálfleik. Gianfranco Zola og Mark Hugh- es byrjuðu Ieikinn í framlínu Chelsea en áttu báðir arfaslakan dag og var þeim báðum skipt út af snemma í síðari hálfleik. George Graham, stjóri Leeds mætti aftur á gamlar slóðir þegar liðið heimsótti Highbury um helgina. Það er óhætt að segja að Marc Overmars hafi reddað sínu liði, hann skoraði bæði mörk liðsins og var Iangbestur í frekar daufu liði Arsenal. Derby kom í veg fyrir að Black- burn næði öðru sæti deildarinn- ar á sunnudaginn með góðum 3:1 sigri á heimavelli. Dean Sturridge var frábær í framlínu Derby og áttu þeir sigurinn skil- inn. Þetta þýðir að Man. Utd. er komið með sjö stiga forskot í deildinni. Harmasaga Newcastle heldur áfram og liðið á í miklum erfið- Ieikum með að skora. Liðið tap- aði fyrir Sheffield Wednesday um helgina og var það Norðmað- urinn Petter Rudi í Iiði Wednes- day sem átti frábæran dag. Kenny Daglish, stjóri Newcastle, getur ekki beðið þangað til fram- herjar liðsins, Alan Shearer, og Faustino Asprilla, byrja að spila með liðinu á ný. West Ham tók nýliða Barnsley í kennslustund í markaskorun og þegar yfir lauk höfðu heima- menn skorað sex mörk en gest- irnir ekkert. Lið West Ham hef- ur einungis tapað einum Ieik á heimavelli í vetur og Barnsiey einungis unnið einn útileik og því komu þessi úrslit ekki á óvart. Dvöl Barnsiey í elstu deild mun sennilega enda eftir þetta eina ár og svo gæti farið að liðin tvö, C. Palace og Bolton sem fylgdu Iiðinu upp, fylgi liðinu einnig niður. Bolton gerði markalaust jafntefli gegn Sout- hampton á heimavelli og voru leikmenn gestanna 10 frá því á 30. mínútu er Francis Benali fékk að Iíta rauða spjaldið. C. Palace tapaði á heimavelli fyrir Everton og hefur Palace liðið enn ekki sigrað á heimavelli á þessu tímabili. Úrslit leikja Derby-Blackburn 3:1 - Sturridge 14. 40, Wanchope 87 - Sutton 86 Man.Utd-Tottenham 2:0 - Giggs 44, 68 Arsenal-Leeds 2:1 - Overmars 60, 72 - Hasselbaink 69 Aston Villa-Leicester 1:1 - Joachim 86 - Parker vsp. 53 Bolton-Southampton 0:0 C. Palace-Everton 1:3 - Dyer vsp.17 - Barmby 3, Ferguson 12, Madar 34 Liverpool-Wimbledon 2:0 - Redknapp 71, 84 Sheff.Wed-Newcastle 2:1 - DiCanio 1. Newsome 51 - Tomasson 20 Chelsea-Coventry 3:1 - Nicholls 65,70, di Matteo 78 - Telfer 30 Staða efstu liða: Man. United 22 15 4 3 51:16 49 Chelsea 22 13 3 6 49:22 42 Blackhurn 22 11 8 3 39:24 41 Liverpool 21 12 4 5 38:19 40 Arsenal 21 10 7 4 37:24 37 Derby 22 10 5 7 37:29 35 Leeds 22 10 5 7 31:25 35 West Ham 22 11 1 10 34:32 34 Leicester 22 7 8 7 26:22 29 Aston Villa 22 7 6 9 26:28 27 Newcastle ' 21 7 5 9 22:27 26 Sheff. Wed. 22 7 5 10 34:45 26 Southampton 22 7 4 11 25:30 25 Wimbledon 21 6 6 9 21:26 24 Everton 22 6 5 11 23:32 23 Coventry 22 5 8 9 21:31 23 Crystal Pal. 22 5 8 9 21:31 23 Bolton 22 4 10 8 19:33 22 Tottenham 22 5 5 12 19:39 20 Barnsley 22 5 3 14 19:57 18 A is&J Kópavogsbær Gjábakki Staða móttökuritara, 75%, í Félagsheimili eldri borgara Gjábakka er laus til umsóknar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Góð almenn menntun og færni í mannlegum samskiptum áskilin. Umsóknum skal skilað í afgreiðslu félagsmálastofnunar Kópavogs, þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi, fyrir 19. janúar nk. Upplýsingar veitir forstöðumaður Gjábakka í síma 554 3400. Starfsmannastjóri. A Kópavogsbær Lausar stöður við leikskóla Laus er 75% staða í leikskólanum Arnarsmára v/Arnar- smára, síðdegis. Staðan er að hluta til vegna stuðnings. Óskað er eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða öðrum uppeldismenntuðum starfsmanni. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Brynja Björk Kristjánsdóttir, í síma 564 5380. Einnig eru lausar tvær heilar stöður leikskólakennara í Kópa- hvoli v/Bjarnhólastíg, tímabundið vegna barnsburðarleyfa. Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Magga Hrönn Árnadóttir, í síma 554 0120. Einnig gefur leikskólafulltrúi upplýsingar í síma 5541988. Starfsmannastjóri. Húsbréf Innlausn húsbréfa Frá og með 15. janúar 1998 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1991 - 24. útdráttur 3. flokki 1991 - 21. útdráttur 1. flokki 1992 - 20. útdráttur 2. flokki 1992 - 19. útdráttur 1. flokki 1993 - 15. útdráttur 3. flokki 1993 - 13. útdráttur 1. flokki 1994- 12. útdráttur 1. flokki 1995 - 9. útdráttur 1. flokki 1996 - 6. útdráttur 2. flokki 1996 - 6. útdráttur 3. flokki 1996 - 6. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu, þriðjudaginn 13. janúar. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. C^G HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKiSINS LJ HÚSBRÉFA0EI10 • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 569 6900

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.