Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 7
ÞRIOJUDAGUR 1 3 .JANÚAR 1998 - 7
ÞJÓÐMÁL
Samstarf á norðurslóðiun -
samspil nýtingar og vemdar
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
UTANRÍKIS-
RÁÐHERRA
SKRIFAR
Spakur maður, erlendur, komst
svo að orði fyrir löngu, að Island
væri á mörkum hins byggilega
heims. Oll vitum við raunar bet-
ur en nokkur útlendingur að
landið er harðbýlt, um Ieið og
það er svo ægifagurt að ekkert
fær rofið sterkar taugar okkar til
þess. Framfarir á ótal sviðum
hafa styrkt okkur í glímunni við
hina óblíðu náttúru og þannig í
ýmsu tilliti gert landið vænlegra
til búsetu en nokkru sinni fyrr.
Nú sem fyrr ræðst framtíðin af
því að við stöndum hyggilega að
málum og nýtum okkur margvis-
lega möguleika sem auðlindir,
þekking og hugvit bjóða upp á.
Skynsamleg nýting auðlinda og
umhverfisvernd á norðurslóðum
er einn mikilvægasti lykillinn að
þeirri framtíð.
Norðurskautsráðið orðið að
veruleika
Til að stuðla að skynsamlegri
þróun á hinu víðfeðma svæði
norðurslóða tókum við íslend-
ingar þátt í því fyrir rúmu ári að
stofna Norðurskautsráðið. Að
ráðinu standa ríkin sem með
landssvæðum sínum og hafsvæð-
um umlykja norðurpólinn og ná
suður fyrir heimskautsbaug. Eru
þetta allar norrænu þjóðirnar
ásamt Kanadamönnum, Banda-
ríkjamönnum og Rússum. Sam-
tök inúíta, sama og fleiri hjara-
búa skipa sérstakan sess í sam-
starfinu. Þá er gert ráð fyrir
áheyrnaraðild bæði ríkja utan
svæðisins, samtaka ríkja eða
þingmanna og áhugamannasam-
taka sem talið er að geti Iagt mál-
inu lið.
Lok kalda stríðsins sköpuðu
skilyrði til svo umfangsmikillar
samvinnu. Fjölmargir landkönn-
unar- og vísindaleiðangrar sem
farnir voru á 19. og 20. öld hafa
lagt góðan grundvöll vaxandi al-
hliða rannsókna sem nú er byggt
á, þ. á m. könnunarferðir Vestur-
Íslendingsins dr. Vilhjálms Stef-
ánssonar er varði nær áratug ævi
sinnar á nyrstu slóðum og ritaði
margar bækur um lífshætti þar.
Umhverfisjnál í ðndvegi
Oll málefni norðurslóða sem
varða ríkin sameiginlega, að her-
málum einum undanskildum,
má taka til meðferðar í Norður-
skautsráðinu. Þegar haft er í
huga að starfssvæðið nær yfir
nálægt 40 milljón ferkílómetra
eða um áttunda hluta hnattarins
verður strax ljóst að miklu getur
skipt hvernig tekst til um þetta
samstarf. Fyrst og fremst keppir
ráðið að því að nýting auðlinda
eigi sér stað án þess að náttúr-
unni sé spillt, m.ö.o. að sjálf-
bærri þróun.
Þetta sldptir fáa jafnmiklu og
okkur Islendinga svo háðir sem
við erum auðlindum hafsins.
Mengun sem þar ríkir eða þaðan
berst getur einnig skaðað okkur
stórlega. Aukin þekking á norð-
ursvæðunum er loks vís til að
leiða í ljós nýja möguleika sem
fýsilegt kann að verða fyrir okkur
að nýta, nýja starfsemi sem við
kunnum að tengjast með ýmsum
hætti og orðið getur til atvinnu-
sköpunar fyrir íslensk byggðar-
lög. Vaxandi nýting mikilla auð-
Iinda norðurslóða leiðir augljós-
lega af sér auknar siglingar og
krefjast þjónustu. Þá má ætla að
skemmtisiglingar með ferða-
menn og viðkomur þeirra hér-
lendis verði sífelt tíðari. — Hag-
kvæm lega lands okkar getur því
haft mikla þýðingu og að sama
skapi brýnt að við séum vakandi
um að hagnýta slíka möguleika.
Samstarfsvettvangur átta
ríkja
Norðurskautsráðið er vettvangur
þar sem komið verður saman til
að meta ástandið og stöðuna á
hinum ýmsu sviðum og leggja á
ráðin um sameiginlegar aðgerðir
er varða vernd og nýtingu norð-
urslóða. Þátttökuríkin munu
samræma starfsemi sína og efna
til samstarfsverkefna eftir því
sem þörf krefur og þau ná sam-
komulagi um.
Ráðið byggist á stofnyfirlýs-
ingu sem undirrituð var af full-
trúum ríkjanna átta í Ottawa
hinn 19. september 1996. Það er
mikilvægur samstarfsvettvangur
en ekki alþjóðastofnun. For-
inennsku ráðsins gegna aðildar-
ríkin til skiptis tvö ár í senn.
Leggur formennskuríkið ráðinu
til aðalskrifstofu á sínu tímabili.
Kanadamenn voru kjörnir til að
taka þetta hlutverk að sér fyrstir
enda höfðu þeir barist ötullegast
fyrir stofnun ráðsins. Lýkur for-
mennsku þeirra næsta haust
þegar ráðherrar ríkja Norður-
skautsráðsins koma saman í
fyrsta skipti frá því að ráðið var
stofnað, en gert er ráð fyrir fund-
um þeirra á 2ja ára fresti. Emb-
ættismenn hittast þess á milli
svo og vísindahópar sem sinna
einstökum starfsþáttum.
Minnsta mengunin á noröur-
skautssvæðunum
A miðju sl. ári tók Norðurskauts-
ráðið við víðtækum verkefnum á
sviði umhverfisverndar sem unn-
ið hefur verið að í umsjá um-
hverfisráðherra aðildarríkjanna
síðan árið 1991. Einn merkasti
afraksturinn af því starfi er
skýrsla um heildarkönnun og -
mat á umhverfisástandinu á
norðurslóðum. Lá hún fyrir á
lokafundi umhverfisráðherranna
í júní sl. Niðurstöðurnar fela í
sér staðfestingu á að norður-
skautssvæðin eru meðal hinna
minnst menguðu á jarðarkúl-
unni.
Engu að síður er við staðbund-
in vandamál að glíma sem ráðast
Á Akiireyri er nú mið-
stöð fyrir starf vís-
indahópsms sem
fjallar um vemd dýra
og gróðurs á norður-
hjara. Jafnframt höf-
um við boðist til að
sinna skrifstofuþörf-
um þess hópsins sem
einbeitir sér að
vemdun hafsvæða
norðurslóða enda
stendur það starf
okkur nærri.
þarf gegn eins og geislavirkum
úrgangi sem sovéski herinn
kastaði í sjó árum saman af
miklu ábyrgðarleysi. Ihugunar-
vert er að sú mengun sem fyrir-
finnst á norðlægum slóðum hef-
ur að verulegu Ieyti borist þang-
að frá fjarlægum ríkjum. Þetta
undirstrikar hið alþjóðlega eðli
umhverfisvandamálanna og
nauðsyn hnattrænnar samstöðu
í viðleitninni til að hindra að
mengun spilli lífi manna, dýra og
jurta.
1 samræmi við þetta var þegar
brugðist við og niðurstöður
könnunarinnar kynntar m.a. á
aukaallsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna sl. sumar. Nýlega voru
formenn allra Ijögurra vfsinda-
hópa Norðurskautsráðsins
kvaddir saman til vinnu um mót-
un frekari aðgerða gegn mengun
sem könnunin varjiaði ljósi á.
Vemdun hafslns
Af einstökum málum sem verða
nú á starfsskrá ráðsins og vís-
indahópanna má nefna áfram-
haldandi söfnun upplýsinga um
þróun mengunar á norðurslóð-
um og áhrif mengandi efna á
heilsufar. Einnig er fylgst með
breytingum af völdum útljólu-
blárrar geislunar og loftlags-
breytinga.
Stefnt er að því að áætlun um
aðgerðir til verndunar hafsins
gegn mengun frá Iandi verði
endanlega afgreidd á ráðsfund-
inum næsta haust. Skipulagning
kerfis til söfnunar upplýsinga
um sjóflutninga á norðurhöfum
heldur áfram, jafnframt því sem
vonast er til að Alþjóðasiglinga-
málastofnunin ljúki leiðbeining-
um fyrir skip sem sigla um
nyrstu höf. Leiðbeiningar um
olíu- og gasvinnslu á sjó liggja
fyrir sem ávöxtur fyrra starfs og
einnig er við að styðjast leiðbein-
ingar um aðgerðir til að fyrir-
byggja og draga úr afleiðingum
umhverfisslysa. Áætlun um að-
gerðir til að tryggja líffræðilegan
fjölbreytileika á norðurhjara er í
undirbúningi. Einnig frekari af-
mörkun norðlægra svæða sem
þarnast sérstakrar verndar.
Skerfux íslands mjkilvægur
Anægjulegt er að Island hefur
þegar lagt fram verulegan skerf
til þess samstarfs sem nú fer
fram undir merkjum Norður-
skautsráðsins. Við studdum
dyggilega stofnun ráðsins og höf-
um lagt okkur fram um að þoka
áfram þeirri vinnu sem fylgt hef-
ur í kjölfarið til að ieggja frekari
grunn að framtíðarstarfi þess.
Við höfum tekið \irkan þátt í
starfi 3ja af Ijórum \isindahóp-
um ráðsins og gegnt formennsku
eins þeirra.
A Akureyri er nú miðstöð fyrir
starf vísindahópsins sem fjallar
um vernd dýra og gróðurs á
norðurhjara. Jafnframt höfum
við boðist til að sinna skrifstofu-
þörfum þess hópsins sem ein-
beitir sér að verndun hafsvæða
norðurslóða enda stendur það
starf okkur nærri. Fleira mætti
nefna af því sem vísindamenn
okkar og stjórnvöld hafa lagt
fram til þessa mikilvæga sam-
starfs.
I tengslum við þátttöku okkar í
Norðurskautsráðinu standa ut-
anríkisráðuneytið og Sögustofn-
un Háskóla Islands sameiginlega
að því að haldin verður hérlend-
is í júní n.k. Alþjóðaráðstefna
um sögu norðurslóða. Þar verður
sérstaklega fjallað um þróun
Iandbúnaðar, stjórnarfars og
menningarsamskipta í norðri,
auk fyrirlestra um mörg önnur
efni. Hefur þetta áform fallið í
frjóan jarðveg og hafa yfir 40 er-
Iendir vísinda- og fræðimenn Iát-
ið í ljós áhuga á að flytja erindi á
ráðstefnunni — auk töluvert á
annan tug íslenskra. Er þetta í
fyrsta skipti sem efnt er til svo
umfangsmikillar ráðstefnu um
sögu norðurslóða.
Mikilvægt þrátt fyrir
íáinenni
Enda þótt hið norðlæga svæði
sem starfsemi Norðurskauts-
ráðsins nær til sé svo víðáttumik-
ið sem raun ber \itni eru íbúar
þar ekki taldir vera fleiri en um
10 milljónir, þar af rúmlega sex
milljónir í evrópska hlutanum.
Þrjá íbúa norðurslóða af hverj-
um 4 er að finna í nyrstu héruð-
um Rússlands enda eru innan
Iandamæra þess sjö af einungis
níu borgum norðurslóða sem
náð hafa verulegri stærð. Hinar
tvær eru Reykjavík og Anchorage
í Alaska. Þessi takmarkaði fbúa-
fjöldi endurspeglar vissulega hve
harðbýlt er á þessum slóðum.
En hann breytir harla litlu um
hve mikilvægt er að mönnum
farnist vel stjórnun málefna
svæðisins. Ekki verður horft
framhjá þ\4 að svæðið skiptir
einnig máli fyrir aðra íbúa þeirra
ríkja er standa að Norðurskauts-
ráðinu, sumra mjög fjölmennra
— og Ijölda fólks langtum víðar
um heim sem neytir og nýtur
fæðu og annarra gæða er þaðan
koma.
Það er ekki síst af þessum
ástæðum sem vaxandi áhugi er
fyrir samvinnu um málefni norð-
urslóða. Það er eindregin von
mín — og hagsmunir lands okk-
ar — að samstarfið haldi áfram
að eflast og Norðurskautsráðið
að styTkjast í sessi. Við þurfum
að leggja okkur fram um að ár-
angur náist á þessum vettvangi
og nýta þau tækifæri sem þetta
samstarf býður upp á til að bæta
hag okkar og þeirra þjóða sem
starf ráðsins snertir.
Þá má ætla að skemmtisiglingar með ferðamenn og viðkomur þeirra hérlendis verði sífellt tíðari. - Hagkvæm lega lands okkar
getur þvi haft mikla þýðingu og að sama skapi brýnt að við séum vakandi um að hagnýta slíka möguleika, “ segir Halldór Ás-
grímsson m.a. í grein sinni.