Dagur - 13.01.1998, Blaðsíða 4
4-ÞRIÐJUDAGUH 13. JANÚAR 1998
ro^tr
FRÉTTIR
Hafnaraðstaða fyrir Hafró
Hafrannsóknastofun hefur verið boðin aðstaða á Eskifirði fyrir skipa-
flota stofnunarinnar og vegna sameiginlegra hagsmuna hafnanna
(m.a. sameiningar sveitarfélaganna 7. júní 1998) er lagt til að settur
verði á fót sameiginlegur vinnuhópur í málinu. Hafnamálaráð er
samþykkt því.
Bylgjandi veggir grunnskóla
Dómnefnd um Hðbyggingu við grunnskólann hefur samþykkt að
velja tillögu frá arkitektastofunni Batteríinu vegna stækkunar Nes-
skóla. I niðurstöðu úr samanburðarsamkeppni segir m.a.: „Að okkar
áliti uppfyllir tillagan best þær forsendur sem lagðar voru til grund-
vallar vegna stækkunar. Aðkoman að byggingunni er mjög skýr og
skemmtileg. Gestir og nemendur eru leiddir að byggingunni með
bylgjandi vegg sem er eins og framhald gilsins. Stigi og lyfta eru í
góðum tengslum við alla hluta byggingarinnar og gera húsið mjög
miðlægt. Viðbyggingin hefur útlit sem speglar sinn byggingatíma og
hæfir nýrri öld. Bygginganefnd grunnskólans leggur til við bæjar-
stjórn Neskaupstaðar að í tengslum við stækkun Nesskóla verði gert
ráð fyrir að almenningsbókasafni og aðstöðu fyrir Tónskólann í hús-
næðinu.
Samræming útsvarsálagningar-
prósentu
Samstarfsnefnd vegna sameiningar Eskifjarðar, Neskaupstaðar og
Reyðarfjarðar hefur komið sér saman um að leggja til að álagningar-
prósentan verði 11,97% í öllum þremur sveitarfélögunum. Nefndar-
menn voru sammála um að ákvarða ætti aðrar álagningarreglur í Ijósi
þessarar útsvarsprósentu þannig að álögur á íbúa í nýju sveitarfélagi
ykjust almennt ekki.
Bridge - Bridge
Nýársmót Bridgefélags Dalvíkur og Ólafsfjaröar 1998
verður haldið laugardaginn 17. janúar og hefst kl. 10.
Spilaður verður Mitchell-tvímenningur, 2 lotur með
forgefnum spilum.
t=>átttökugjald: 1.400 kr. pr. mann (kaffi innifalið).
Spilað verður um silfurstig.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Antons í síma 461 3497 eða
Hákonar í síma 466 1580 fyrir kl. 19, föstudaginn 16. janúar.
Einnig er hægt að skrá sig á spilastað til kl. 09.45 á mótsdag.
Allt spilafólk er hjartanlega velkomið.
Bridgefélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar.
Menningarsjóður
útvarpsstöðva auglýsir
Samkvæmt útvarpslögum og reglugerö um Menningarsjóð útvarpsstöðva er
hlutverk sjóðsins m.a. að veita styrki til eflingar innlendri dagskrárgerð fyrir
hljóðvarp og sjónvarp, þeirri er verða má til menningarauka og fræðslu.
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Til
úthlutunar eru u.þ.b. kr. 50.000.000. í umsóknum skulu eftirfarandi upplýs-
ingar koma fram:
1. Nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang, ásamt upplýsingum um
aðstandendur verkefnis og samstarsaðila og skriflegum staðfestingum
allra aðila um þátttöku í verkefninu.
2. Heiti verkefnis og megininntak.
3. (tarleg og sundurliðuð kostnaðaráætlun ásamt greinargerð um
fjármögnun, þ.m.t. um framlög og styrki frá öðrum aðilum, sem fengist
hafa eða sótt hefur verið um, eða fyrirhugað er að sækja um.
4. Fjárhæð styrks sem sótt er um.
5. Nákvæm áætlun um framvindu verkefnis og greinargerð um það til
hvaða verkþátta sótt er um styrk til.
6. Handrit eða nákvæm lýsing verkefnis.
7. Yfirlýsing útvarpsstöðvar um að fyrirhugað sé að taka dagskrárefni,
sem sótt er um styrk til, á dagskrá.
Umsóknum og öllum fylgigögnum ber að skila í þríriti á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra sjóðsins, Bjarna Þórs Óskarssonar hdl., Laugavegi 97, 101
Reykjavík, eigi síðar en 16. febrúar nk. Með umsókn skal skila fylgiblaði
með lykilupplýsingum á eyðublaði sem fæst afhent á sama stað. Úthlutunar-
reglur sjóðsins fást afhentar á sama stað.
Ekki verður tekið tillit til umsókna sem ekki uppfylla öll framangreind skilyrði,
né eldri umsókna.
Valdís Ósk Hauksdóttir mætir i héraösdóm í gær. Er reiö yfir hinum þunga 8 ára dómi í Danmörku og hefur ekki viijaö veita
Kaupmannahafnarlögreglunni samstarf. - mynd: bg
„Ég vil fá að
vera í Mði“
Valdís Ósk Hauksdótt-
ir staðfesti ekki að
myiid af James
Butdier væri mynd af
þeim „Chikko“, sem
fékk hana til að
smygla kókaíni frá S-
Ameríku. Sagði að sér
hefði verið hótað.
„Eg er búin að fá minn dóm og vil
fá að vera í friði,“ sagði Valdís Ósk
Hauksdóttir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, en þar neitaði
hún að kannast við mann á mynd,
sem Kaupmannahafnarlögreglan
sýndi henni. Myndin er af James
Andrew Butcher frá Nigeríu og
vildi Iögfræðingur Kaupmanna-
hafnarlögreglunnar, Carsten
Egeberg Christensen, að Valdís
staðfesti að Butcher væri sá
„Chikko“ sem hún hafði borið að
hefði fengið sig til að smygla
kókaíni frá S-Ameríku.
Valdís Ósk kvaðst ekki kannast
við neinn mann á þeim myndum
sem henni voru sýndar. Christen-
sen spurði Valdísi hvort rétt væri
að hún hefði fengið boð um að
vera ekki samvinnufús í málinu
og sagði Valdís þá að hún hefði
fengið skilaboð þess efnis að hún
og fólk í kringum hana hefði verra
af ef hún tjáði sig um þetta mál.
Hún neitaði að svara til um hver
hefði fært henni þessi skilaboð og
bað Christensen um úrskurð
dómara hvort Valdísi bæri skylda
til að svara spurningunni. Eftir
réttarhlé kvað dómarinn, Arnfríð-
ur Einarsdóttir, upp þann úrskurð
að Valdísi væri ekki skylt að svara
til um þetta, því ekki væri útilok-
að að svarið kynni að baka henni
refsiábyrgð með einhverjum
hætti.
Augljóst var að Valdís hafði lít-
inn áhuga á að veita Kaupmanna-
hafnarlögreglunni Iiðsinni og
þegar hún var spurð hvers vegna
hún hefði neitað beiðni um að
koma til Kaupmannahafnar til að
bera vitni sagði hún: „Ég er búin
að fá minn dóm og vil fá að vera í
friði“. Hún afplánar 8 ára dóm
fyrir að smygla alls 4 kílóum af
kókaíni frá Brasilíu og Uruguay.
Christensen sagði í samtali við
Dag að það skipti Iitlu máli að
Valdís Ösk hefði ekki borið
kennsl á Butcher. „Ég hef vitnis-
burð svo margra annarra í málinu
sem hafa bent á sakborninginn.
Meðal þeirra eru nokkrir vinir
Valdísar. En hún er höfuðvitni og
vetjandi Butchers vildi fá hennar
vitnisburð og því erum við hér.
Áður en við komum hingað vissi
ég að hún væri mjög reið yfir
þeim þunga dómi sem hún fékk
og ég var því ekki mjög bjartsýnn
um að hún yrði samvinnuþýð,"
sagði Christensen, sem viður-
kenndi aðspurður að Valdís Ósk
hefði fengið mjög strangan dóm í
Danmörku. — FÞG
Fj árhagsáætlun
rædd í lok janúar
Fjárhagsáætlim ísa-
fjarðarhæjar ekki til-
húin fyrr en í næsta
mánuði, en á lðgum
samkvæmt að vera
lokið í janúar.
„Það var eldd byrjað að vinna að
gerð fjárhagsáætlunar fyrir en um
mánaðamótin nóvember-desem-
ber sl. Það eru engar skýringar á
þessum vinnubrögðum. Við fáum
þetta sem slæman arf frá fyrri
meirihluta," segir Kristinn Jón
Jónsson, annar af tveimur starf-
andi bæjarstjórum í ísafjarðarbæ.
Á sama tíma og flest bæjarfélög
eru að Ijúka gerð fjárhagsáætlana
fyrir nýhafið ár, hefur fyrri um-
ræða um fjárhagsáætlun Isafjarð-
arbæjar eldd enn farið fram. Búist
er að við að hún verði 22. janúar
nk'. Það þýðir að Ijárhagsáætlun
verður afgreidd í fyrsta lagi í byrj-
un febrúar. Það er á skjön við
sveitarstjórnarlög, sem kveða á
um að gerð íjárhagsáætlana sé
lokið áður en janúar er allur.
Starfandi bæjarstjóri segir að
þetta sé ekki í f)Tsta sinn sem
þetta gerist. I fýrra hafi Ijárhagsá-
ætlunin verið afgreidd frá bæjar-
stjórn í byrjun febrúar. Þá réði
ríkjum meiribluti sjálfstæðis-
manna og krata. Sá meirihluti
sprakk sl. vetur út af málefnum
grunnskólans og við tók stjórn fé-
lagshyggjuflokka og tveggja full-
trúa sjálfstæðismanna úr fyrri
meirihluta.
Sökum þess hvað gerð fjárhags-
áætlunar er komin skammt á veg
vildi bæjarstjóri ekki tjá sig um af-
komu bæjarsjóðs að öðru leyti en
því að skuldirnar hafa aukist hátt
í 100 milljónir króna. I fyrra
námu skuldir bæjarsjóðs 500-600
milljónum króna. Þá er viðbúið
að tekjurnar hafi minnkað og
m.a. vegna 7 vikna verkfalls fisk-
vinnslufólks sl. vor. - GRH