Dagur - 17.01.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 17.01.1998, Blaðsíða 1
\ 1 \ Hækkar helmmgi meira en vísitalan Öfugt við það sem flestir halda hefur matvara verið að hækka mikið umfram hækkurt neysluverðsvísitölunnar. Matvæli hækkuðu ríf- lega tvöfalt meira en öunur heimilisútgjöld á nýliðnu ári - sem var þriðja árið í röð sem slíkt hefur gerst. Sú „þjóðsaga" að matvörur hækki minna en allt annað á ekki lengur við rök að styðjast. Verð á matvör- um hefur nú í þrjú ár í röð hækk,- að tvöfalt meira heldur en vísitala neysluverðs í heild, samkævæmt skýrslum Hagstofunnar. Matvöru- verð hækkaði þannig um tæp 5% í fyrra en neysluverðsvísitalan bara rúm 2%. Frá janúar 1995 hefur matvöruverð hækkað samtals um tæp 12% á sama tíma og aðrar vörur og þjónusta hækkuðu jafn- aðarlega um 5%, en neysluverðs- vísitalan í heild um tæplega 6%. Lífseig „þjóðsaga“ „Þjóðsagan" virðist hafa fæðst á næstu þrem til fimm árum þarna á undan. Matvöruverð hækkaði miklu minna en annað vöruverð frá 1990 til 1992. Og stóð síðan nán- ast í stað næstu þrjú árin, til 1995, á sama tíma og aðrar vörur og þjónusta hækkaði um 9% að jafn- aði. Kaupmenn og fleiri hafa síðan keppst við að telja fóki trú um að þetta Iöngu liðna „matargóð- æri“ sé enn við lýði þakkað það allri sam- keppninni - þótt þróun- in hafi snarsnúist fyrir um þrem árum. KartöfLui hækkað uin 100% - ávextir/græn- meti um 30% Verðhækkanir hafa verið mjög mismunandi milli vöruflokka. Kartöflur kosta nú 100% meira en fyrir þrem árum og grænmeti og ávextir eru nú 30% dýrari. Feitmeti hefur hækk- að um 13% á tímabilinu, brauð- og kornvörur kosta næstum 12% meira en fyrir þrem árum og mjólkurvörur/egg næstum 11% meira. Kjötið hefur á hinn bóginn hækkað helmingi minna, rúm 6% og fiskurinn sáralítið, eða ein- ungis 2%. Gosdrykkir kosta um 8% meira og þjóðardrykkurinn kaffið hefur nú hækkað um næst- um fjórðung á minna en ári. Verðlækkun á fötum, bjór og bílum Allt annað er uppi á teningnum þegar Iitið er á aðra þætti heimil- isútgjaldanna. Fatnaður er núna heldur ódýrari en fyrir þrem árum, bjór og áfengi líka, útgerð heinrilisbílsins kostar rúmlega 2% minna, og tryggingar heimilisins eru 3% ódýrari en fyrir þrern árum. Rafmagnstæki hafa lækk- að ennþá meira (5%) og síminn kannski allra mest (11%). Veitingahúsa- og hótelþjónusta hefur m.a.s. hækkað talsvert minna en maturinn úti í búð, eða um 8% á þrem árum og orlofs- ferðirnar þó helmingi minna. I húsgagna- og búsáhaldabúðum hafa prísarnir stigið um 6-7% á tímabilinu. Seljendur lesefnis og ýmiss konar tómstundastarfsemi hafa teygt sig talsvert lengra (9%). Hins vegar er aðeins 3% dýrara að hita og lýsa upp hjá sér. - HEI Prófkjörin að reirna sitt skeið „Það er mín skoðun að prófkjör hjá stjórnmálaflokkunum séu að renna sitt skeið á enda. Fólk er ekki tilbúið til að berjast hvert gegn öðru og eiga svo að snúa bökum saman í kosningabaráttu rétt á eftir, ef til vill óánægt með sína stöðu eftir prófkjörið," sagði Jón Guðmundsson, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ, en aðeins 7 manns gáfu kost á sér í prófkjör flokks- ins þar í bæ. Hann segir að allt eins geti far- ið svo að prófkjör fari ekki fram hjá sjálfstæðismönnum í Garða- bæ. Fólk sem leitað hefur verið til segist tilbúið að vinna fyrir flokkinn, jafnvel taka sæti á list- anum, en ekki að fara í prófkjör. Það verður fulltrúaráðsfundur, sem haldinn verður síðar í þess- um mánuði sem tekur ákvörðun um hvað gert verður. — S.DÓR Skíðamenn norðanlands hafa tekið gleði sína eftir snjóleysið í vetur. Gleðin skein úr andlitum þeirra sem nýttu sér fyrsta tækifærið ti! skíðaiðkunar þennan veturinn i Hlfðarfjalli á Akureyri. - mynd: bös i t Borgarfulltrúarnir Alfreð Þorsteinsson og Pétur Jónsson skoða nýútkomið , eintak R-listablaðsins á prófkjörsmið- , stöðinn/ í gær. - mynd: bg . Prófkjörið öllum opið Kosningamiðstöð Reykjavíkurlist- ans vegna prófkjörsins sem haldið , verður í lok janúar var opnuð í ! gær. Frambjóðendurnir 28 voru að sjálfsögðu mættir á staðinn, en tilgangurinn með sameiginlegri kosningamiðstöð er m.a. að draga úr kostnaði þeirra við að kynna sig. Þátttaka er öllum borgarbú- um heimil, en ekki bundin við að- ild að flokkunum sem að Reykja- víkurlistanum standa. Miðstöðin verður opin eftir hádegi alla daga og eftir helgi verður hægt að kjósa þar utankjörstaðar. Sjálft próf- kjörið verður31. janúar og verður kosið á 5 stöðum í borginni. Suðurpótsfararnir þrir. Uppboð Suðurskautsfararnir þrír, Olafur Örn Haraldsson, Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason, hafa ákveðið að bjóða upp GPS staðsetningartækið sem þeir not- uðu í. nýafstaðinni ferð sinni. Tækið verður boðið upp á sýning- unni Vetrarlíf '98 í húsi Ingvars Helgasonar og selt hæstbjóðanda. Andvirði tækisins ætla þremenn- ingarnir að Iáta renna til Iþrótta- sambands fatlaðra. Blýfast hjá sjómöimiun „Þetta er alveg blýfast," segir Benedikt Valsson, framkvæmda- stjóri Farmanna- og fiskimanna- sambandsins. Enginn árangur varð af tveggja tíma sáttafundi sjómanna og út- vegsmanna í gær. Ríkissáttasemj- ari hefur boðað þá til fundar klukkan 10 þriðjudaginn 20. jan- úar nk. - GRH Kynbundið launamisrétti verður ekki leiðrétt með hugarfars- breytingu einni saman. Til þess þarf pólitískar ákvarðanir. 14 dagar í prófkjör Reykjarvíkurlistans Perfecta c Neysluvntnsdalur SINDRI ^ -sterkur í verki SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.