Dagur - 17.01.1998, Blaðsíða 6
6-LAUGARDAGUB 17.JANÚAR 1998
ÞJÓÐMÁL
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Adstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjaid m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Simbréf auglýsingadeildar:
Simar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Simbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
A60 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur,is
460 6171CAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVfK)
----
Ástir sam-
lyitdra hjóna
Sérkeniuleg stjómsýsla
í fyrsta lagi
Samgöngunefnd Alþingis er nýkomin frá Brussel þar sem hún var
að kynna sér reglur og framgang símamála innan Evrópsusam-
bandsins. Slíkt er í sjálfu sér gott mál. Það er mikilvægt að stjórn-
málamenn kunni þokkaleg skil á því alþjóðlega umhverfi sem um-
lykur þá málaflokka sem þeir þurfa og eiga að fjalla um. Það sem
vekur athygli við þessa kynnisferð er hvernig að henni er staðið.
Augljóslega töldu samgöngunefndarmenn sig vera að fara út í
boði samgönguráðuneytisins og það væri ráðuneytið sem borgaði
fyrir þessar ferðir, enda kom boðið þaðan. Nú er komið í Ijós að
það voru hlutafélögin Landsíminn hf. og Islandspóstur hf. sem
deildu með sér kostnaðinum af þessari ferð.
í öðru lagi
Að láta hlutafélög úti í bæ, fyrirtæki sem standa frammi fyrir
harðri og óvæginni samkeppni á ýmsum sviðum, borga fyrir
náms- og kynnisferðir alþingismanna út í heim er fullkomlega
óeðlilegt fyrirkomulag. Það skiptir engu máli í þessu sambandi
þótt bæði félögin séu að öllu leyti í eigu ríkisins. Það er verið að
breyta fyrirkomulaginu og innleiða samkeppni á þessum sviðum
og yfirlýsingar liggja fyrir um að selja eigi hlutabréf í fyrirtækjun-
um. Gagnvart Alþingi, sjálfum löggjafanum, orkar það líka mjög
tvímælis að þiggja boðsferðir fyrirtækja með þessum hætti. Trú-
verðugleiki þingsins sem aðila sem stendur utan og ofan við dag-
lega samkeppni í viðskiptalífinu er í húfi.
í þriðja lagi
Þao er þó ekki ástæða til að ætla að þessi tiltekna ferð muni skip-
ta sköpum fyrir afstöðu samgöngunefndar, t.d. til þeirra fyrir-
tækja sem slást við Landsímann á símamarkaði, enda virðist
nefndin hafa talið sig hafa farið út á vegum ráðuneytisins. Það
sem vekur furðu er að ráðuneytið skuli ekki hafa talið þetta fyrir-
komulag óeðlilegt, eða upplýst þingmenn um að það væri Land-
síminn hf., símafyrirtæki í samkeppni á innlendum markaði, sem
kostaði kynningarferð þeirra. Spyrja má hvað yrði næst ef þetta
væri hin almenna regla? Að heilbrigðisráðherra byði heilbrigðis-
nefnd á námskeið í tannvernd og pakkinn væri kostaður af Coca
Cola?!! Þetta er einfaldlega fráleit stjórnsýsla. Það skeflir þó
mest, ad trún sti'ngur ekkert sérstakl’ega í stúf við öll þau óvæntu
sirkusatriði sem þjóðin hefur fylgst með í stjórnsýslu sam-
gönguráðuneytisins síðustu dagana. Birgir Guðmundsson.
l;
Garri hefur skemmt sér kon-
unglega yfir raunum sjálfstæð-
ismanna við val á fulltrúum í
borgarstjórn. Sjálfstæðisflokk-
urinn er búinn að gefa út yfir-
lýsingar á yfirlýsingar ofan um
veikleika og vantraust á ein-
staka frambjóðendur. Umræð-
an um Guðrúnu Péturs í átt-
unda sætið hefur veikt bæði
Árna Sigfússon og Kjartan
Magnússon sem frambjóðend-
Þrír slappir,
einn sterkur
Svo tókst kjörnefnd að
segja borgarbúum að
Guðlaugur Þór sé
slappur með því að
bjóða Eyþóri Arnalds
sætið hans. Imynd Iist-
ans er því: Þrír slappir
borgarfulltrúar og einn sterkur
varaborgarfulltrúi. Hinir eru
svo náttúrlega núll og nix.
Vinnubrögð og framganga
Sjálfstæðisflokksins í fram-
boðsmálum eru hvalreki á fjör-
ur Garra sem er áhugamaður
um ímyndarfræði, og sérstakur
áhugamaður um skólabókar-
dæmi í klúðri.
Sá fjölfræðingur og mann-
lífsspekúlant sem Garri hefur
orðið á langri og gífturríkri ævi
krefst þess auðvitað að rýnt sé
í framtíðina og sálarlíf aðalper-
sóna skoðað ofan í kjölinn.
Þannig hefur Garra alltaf
fundist Guðrún Pétursdóttir
vera einlæg félagshyggjukona
sem af virðingu og væntum-
þykju við fjölskyldu sína hefur
aldrei komið út úr sk^nruim.
Eiginmaður hennar, sá skarp-
Ólafur
Hannibalsson.
skyggni þjóðfélagsrýnir Ólafur
Hannibalsson er hins vegar
vinstrimaður að ætt og upplagi
sem meðfædd kerskni hefur
gert að sjálfstæðismanni.
Ole den ogsaa
niende
Svona Ieita nú andstæðurnar
hverja aðra uppi. Garra finnst
mikill fengur í pólitískri þátt-
töku þeirra, en verður
að játa að honum
finnst að alla jafna eigi
fó.Ik að vera í þeim póli-
tísku samtökum sem
passa skoðunum þeir-
ra. Garri fagnar þvi
þeirri umræðu sem
hann hefur heyrt hjá
Reykjavíkurlistanum að
þar á bæ séu menn al-
varlega að huga að því
að bjóða Ólafi Hannibalssyni
9. sætið á lista sínum. Þetta er
bráðsnjöll tillaga og ekki að efa
að Ólafur yrði listanum mikill
styrkur, enda pólitísk skynsemi
runnin honum í merg og bein.
Nú kynnu einhverjir að
hugsa að slíkt kynni að hafa al-
varlegar afleiðingar fyrir ágætt
hjónaband þeirra Guðrúnar.
Því er til að svara að Guðrún
Pétursdóttir er mikil vinkona
Ingibjargar Sólrúnar og myndi
því ekki slá hendinni á móti því
að vita af manni sínum í góð-
um félagsskap. Hún hefur Iíka
sagt að fólk getið verið góðir
vinir þótt það sé ekki samstíga
í pólitík. Setjist Ólafur í 9. sæti
Reykjavíkurlistans myndi það
engu breyta um ást Gunnu á
Ó.la .né ÓU> já £ííut.>au x;áUR'
ELIAS
SNÆLAND
JÓNSSON
ritstjóri skrifar
í fótspor Jónasar
Það fer ekki framhjá nokkrum
manni að formaður Sjálfstæðis-
flokksins, Davíð Oddsson for-
sætisráðherra, fagnar fimmtugs-
afmæli í dag. Síðdegis bjóða
sjálfstæðismenn þjóðinni í Perlu
Davíðs til að óska afmælisbarn-
inu til hamingju, og í kvöld er
efnt til mikillar veislu á sama
stað fyrir boðsgesti. Gefin er út
hátt í þúsund blaðsíðna bók
Davíð til heiðurs. Og fjölmiðl-
arnir - þar á meðal Dagur -
minnast þessara tímamóta í lífi
þjóðarleiðtogans með margvís-
íegri umfjöllun.
Allt þetta húllumhæ er auðvit-
að staðfesting þess hversu
traustlega Davíð Oddsson hefur
fest sig í sessi sem stjórnmála-
maður. Hann hefur náð að sýna
sig í verki sem hinn sterki foringi
sem leiðir í stað þess að Iáta
leiða sig. Flokksmenn sýna hon-
um mikla hollustu, enda er hann
þar kóngur í ríki sfnu.
Kóngurinn 1935
Það er ekki oft sem haldið hefur
verið upp á fimmtugsafmæli
stjórnmálaforingja með slíkum
glæsibrag. Líklega þarf að fara
alla leið aftur til árs-
ins 1935 til að finna
eitthvað sambærilegt.
Á því ári varð
áhrifamesti og um-
deildasti stjórnmála-
maður þjóðarinnar
fimmtugur. Jónas
Jónsson frá Hriflu.
' Hann var að vísu ekki
forsætisráðherra,
reyndar ekki einu
sinni „venjulegur“
ráðherra, en réði
þrátt fyrir það meiru
um stjórn landsins en nokkur
annar - að ráðherrunum með-
töldum. Hann þurfti nefnilega
ekki titla til að fara sjnu fram á
stjórnarheimilinu. Á þessum
árum var hann kóngurinn í ís-
Hún
Jónas Jónsson frá Hriflu.
lenskum stjórnmálum.
Samherjar hans efndu til mik-
illar afmælisveislu 1. maí árið
1935 til að heiðra foringjann.
haldin á Hótel Borg
sem þá var helsta
veisluhús bæjarins.
Þar var Jónas frá
Hriflu hylltur sem
aldrei fyrr. Haldnar
voru fjölmargar ræð-
ur honum til heiðurs
þar sem afrek hans á
flestum sviðum þjóð-
lífsins voru rakin -
en hann hafði þá
sem kunnugt er haft
úrslitaáhrif á íslensk
stjórnmál og aðgerð-
ir þings og ríkis-
stjórnar um árabil. Þessar ræður
voru seinna gefnar út í bók.
Ólík endalok?
En þótt Jónas og Davíð eigi það
sameiginlegt að vera sterkir leið-
togar, og báðir hafi þeir beitt sér
fyrir eftirminnilegum húsbygg-
ingum í höfuðborginni, eru þeir
að flestu öðru leyti ólíkrar gerð-
ar.
Vafalaust munu flestir lika spá
því að pólitískum ferli þeirra
muni ekki ljúka með svipuðum
hætti. Nokkrum árum eftir að
flokksmenn Jónasar mærðu
hann í ræðu og riti í tilefni
fimmtugsafmælisins vörpuðu
þeir honum á dyr. Eins og nú er
umhorfs í Sjálfstæðisflokknum
er ekki sjáanlegur neinn sá mað-
ur sem hefur burði til að stugga
við flokksformanninum. Hann er
því traustur í sessi.
En auðvitað á aldrei að segja
aldrei þegar stjórnmálin eru ann-
ars vegar. Eins og Harold Wilson
forsætisráðherra Breta sagði eitt
sinn: Vika er langur tími í pólitík.
Þar getur allt gerst.
Ætlarþú í fimmtugsaf-
mæli Davíðs Oddssonar?
Hermann Gunnarsson
útvarpsmadur á Bylgjutmi.
Eg er ekki
viss um
hvort ég
hef tíma til
þess,
heilsurækt-
in gengur
f}TÍr. En ef
heilsa ég uppá snillinginn. I af-
mælisgjöf myndi ég gefa honum
árskort í Ræktinni, líkamsræktar-
stöðinni í gamla Isbjarnarhúsinu
vestur á Nesi. Hann hefði gott af
því að púla þar með mér á morgn-
ana og Bubbanum, þessum sem
syngur, - en ekki þeim sem hann
lék sjálfur hér um árið.
Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastj. Vinnuveitendasam-
bands íslands.
Já, það
ætla ég að
gera og
held að
þetta geti
orðið
skemmtileg
stund. Á
fastlega
von á því
að hitta þar
margt gott fólk. Afmælisgjöf? Það
er nú þannig með afmælisgjafir
að þær eiga að koma á óvart þan-
nig að ég vil ekkert segja hvað ég
færi honum.
Katrín Fjeldsted
heilsugæslulæknir og
Jv. borgarjiditrúi.
Já, er þetta
ekki afmæli
aldarinnar
og enginn
nr .maðiy-
með mönn-
um nema
hann haldi
uppá dag-
inn með
Davíð. Ég
óska honum innilega til hamingju
og Iangra og ánægjulegra lífdaga.
I afmælisgjöf myndi ég gefa hon-
um einhverja skemmtilega bók,
hann kann að meta góðan texta
og getur skrifað hann sjálfur -
einsog sjá má í nýútkomnu smá-
sagnasafni hans.
Sr. Hjálmar Jónsson
prestur og þingmaður
Sjálfstædisflokks.
„Við mætnmst í mdlefnum brýmim,
en mannlegum þóttum ei týnum.
I afmæliðfer,
þar óskirfram ber
ogfagna með foringja mínum.
Til Perlunnar stika ú stokknum
og stend beinn að ræðunum loknum.
Fimmtíu úr
eru framundan kldr
hjá leiðtoga lifsins iflokknum."