Dagur - 17.01.1998, Qupperneq 4

Dagur - 17.01.1998, Qupperneq 4
4-LAUGARDAGUR 17. JANÚAK 1998 FRÉTTIR Dgur VESTURLAND Hraðkaup í Borgamesi Hagkaup opnar nýja verslun í Borgarnesi, Hraðkaup. Stefán Haralds- son verslunarstjóri segir þetta nýja tegund verslunar sem eigi eftir að koma víðar um landið. Vöruval verður þrengra en almennt gerist í Hag- kaupsverslunum og vörur forpakkaðar, það verður t.d. ekki kjötborð í versluninni. Stefán segir verslanir þessarar tegundar eiga eftir að koma víðar um landið. Eignarhaldsfélög um afrétti Sex sveitarfélög í Borgarfjarðarhéraði kjósa um sameiningu í dag. Vilji er til þess að stofna eignarhaldsfélög um afrétti núverandi hreppa í sameiginlegu sveitarfélagi og binda eignaraðildina við lögbýli. Meira hyggt í Borgamesi Fyrsta skóflustunga að fjór- um parhúsaíbúðum var tekin í Borgarnesi um síðustu helgi. Það er Pálmi Ingólfs- son byggingameistari á Háls- um í Skorradal sem byggir. Húsin eru byggð úr stein- steyptum samlokueiningum frá Loftorku. Tólf íbúar í nágrenninu undirrituðu mótmælaskjal þar sem fyrirhuguðum fram- kvæmdum var mótmælt á þeirri forsendu að skortur væri á leiksvæði fyrir börn og bílastæðum fyrir íbúa. Arið 1991 skrifuðu sextíu og einn íbúí í nágrenninu undir mótmæli við því að byggð yrði íbúðablokk á lóðunum sem parhúsin nú rísa á, en það stóð þá til. Ekkert varð af byggingu blokkarinnar. Öryggismyndavélar misheppnaðar Öryggismyndavélar sem settar voru upp í Jaðarsbakkalaug á Akranesi gegna ekki hlutverki sínu sem skyldi. Nokkur „blind“ svæði komu í Ijós í Iauginni þegar myndavélarnar sem voru fjórar höfðu verið teknar í notkun. Seljandi þeirra bætti við fimmtu vélinni á sinn kostnað. Ann- að vandamál fylgir vélunum, en þegar ljósin í sundlauginni eru kveikt í skammdeginu blindast myndavélarnar. Það eru því lítil not af þeim við þær aðstæður. Seljandinn ætlar að reyna að Ieysa þetta vandamál sem fyrst en blindu svæðin verða ekki Iagfærð fyrr en næsta haust þegar tæmt verður úr lauginni. - OHTt Nýr vegur um Sámsstaðamúla Skipulagsstofnun hefur hafið athugun á frummati á umhverfisáhrifum vegna lagningar nýs vegar um Sámsstaðamúla í Árnessýslu, það er frá gatnamótum við Búrfellsvirkjun að Þjórsá við Sandafell. Um er að ræða 3,5 km. langan nýjan vegkafla, sem mun stytta leiðina um 2,1 km. mið- að við núverandi veg. Miðað er við að framkvæmdir hefjist snemmsum- ars á þessu ári. Búist er við að umferð um þessa leið muni vaxa mikið á næstu árum vegna virkjunarframkvæmda á hálendinu. Guðni vill fréttir af Suðurlandi Guðni Ágústsson alþingismaður telur brýnt að Ríkis- útvarpið bæta fréttaþjónustu sína á Suðurlandi en hann telur kjördæmið afskipt í þessum efnum, borið saman við önnur kjördæmi. Á fundi á Akureyri fyrr í vikunni sagði Halldór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins, að nauðsyn væri fyrir Sjónvarpið að efla fréttaþjónustu sína til dæmis á Norður- og Aust- urlandi, en Guðni telur að ekki sé síður mikilvægt að Ríkisútvarpið taki sig á í fréttaflutningi af Suður- landi, hvort heldur er í sjónvarpi eða útvarpi. Jákvæður sameiningarandi í nppsveitum Fjögur sveitarfélög af sjö í uppsyeitum Árnessýslu hafa gefið jákvætt svar um vilja til þátttöku í umræðum um sameiningarmál. Að sögn Sig- urðar Inga Jóhannssonar formanns undirbúningsnefndar, hafa þegar komið jákvæð svör frá hreppsnefndum Þingvallasveitar, Laugardals- hrepps, Biskupstungna og Hrunamannahrepps. Enn er beðið svara úr Grímsneshreppi, af Skeiðum og úr Gnúpvetjahreppi. Frestur til að skila inn svörum er fram til nk. þriðjudags, 20. janúar. Nú þegar hefur verið unnin allmikil undirbúningsvinna vegna sameiningarmála og all- ar tölulegar staðreyndir eiga að liggja fyrir, en ef allt gengur upp er rætt um að kjósa um sameiningartillögu samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor. — SBS Guðni Ágústsson. Velvilji í stjóm- arflokkunum Farþegar SVR fagna lokuii Hafiaarstrætis Háskóliim á Akureyri fær vflyrði um batn- andi tima. „Ég náttúrlega fagna því vel ef styðja á Háskólann á Akureyri. Við höfum barist fyrir að fá bygg- ingaráætlun fjármagnaða og samþykkta og þetta er mikil við- urkenning á þeirri starfsemi sem hér hefur farið fram og gagnsemi hennar fyrir landið allt. Við verð- um varir við aukna viðurkenn- ingu, bæði frá almenningi og stjórnmálamönnum og það er mjög dýrmætt að fá svona yfir- lýsingu frá formanni annars stjórnarflokksins," segir Þor- steinn Gunnarsson rektor Há- skólans á Akureyri. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra og formaður Framsókn- arflokksins, segir mjög jákvæðan vilja hjá ráðherrum beggja stjórnarflokka til að flýta upp- byggingu Háskólans á Akureyri og leggja fram það fé sem til þess þarf. Þetta kom fram á almenn- um fundi framsóknarmanna á Akureyri £ fyrrakvöld. Halldór sagði á fundinum að reynslan sýndi að Háskólinn á Akureyri útskrifi fólk sem kjósi umfram annað háskólafólk að setjast að úti á Iandi og á tímum mikillar búseturöskunar hljóti slíkt að teljast jákvætt. Ráðherra varar við því að menn festist í hug- myndum um að Háskólinn á Ak- ureyri sé í samkeppni við Há- skóla Islands. Vöxtur og frekari uppbygging Háskólans á Akur- eyri sé framfaramál allrar þjóðar- innar. „Brýnast hjá okkur er að bygg- ja upp kennsluhúsnæði hér á Nemendur Háskúlans á Akureyri létu s/g dreyma um stærri og betri skóla i gær enda ætlar Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokks/ns að beita sér fyrír auknum fjármunum ti/ stofnunarínnar. mynd: bös nýja háskólasvæðinu við Sólborg þannig að kennslan fari öll fram á sama stað og njóti þjónustu bókasafnsins sem þegar hefur flust þangað. Kostnaðurinn við fyrsta áfanga kennsluhúsnæðis- ins er um 250 inilljónir króna,“ segir Þorsteinn Gunnarsson.— bþ SVR leggst gegn opnun Hafnarstrætis. Eykur umferöarör- yggi farþega og stnöl- ar aö ineiri stundvísi vagna. Eflir almenn- ingssamgöngur. „Við teljum mjög mikilvægt að Hafnarstræti sé lokað fyrir al- mennri bílaumferð frá Pósthús- stræti að Lækjargötu," segir Árni Þór Sigurðsson stjórnarformað- ur Strætisvagna Reykjavíkur. Hann segir að það sé ekki for- svaranlegt út frá umferðaröryggi farþega SVR að hafa þennan hluta götunnar opinn fyrir bíla- umferð. í því sambandi bendir hann m.a. á að farþegar SVR þurfa að ganga yfir götuna frá skiptistöðinni á Lækjartorgi þeg- ar þeir fara upp í sína vagna. Þar fyrir utan hafa tímamælingar staðfest að vagnarnir verða fyrir miklum töfum á leið sinni frá miðbænum og uppá Hlemm þegar þessi hluti Hafnarstrætis Það er ekki aðeins að nýjustu vagnar SVR séu brosandi þessa dagana heldur einnig far- þegar og vagnstjórar. Með því að loka hluta Hafnarstrætis fyrir almennri umferð eru meiri likur en ella að strætó geti haldið timaáætlun frá miðbæ og uppá Hlemm. hefur verið opinn fyrir almennri umferð. Það helgast m.a. af mun þyngri umferð einkabíla frá Hafnarstræti og upp Hverfis- götu. Það bitnar svo aftur á stundvísi vagna SVR. Árni Þór segist ekki hafa orðið var við annað en almenna ánægju bæði meðal farþega og vagnstjóra SVR að hafa þennan hluta Hafnarstrætis lokaðan. Hann gerir ekki ráð fyrir að borgin muni breyta þessari ákvörðun sinni þrátt fyrir áköf mótmæli kaupmanna. I það minnsta mundi stjórn SVR leggj- ast gegn öllum slíkum áformum. Þar fyrir utan væri lokun göt- unnar í anda þeirrar stefnu borg- aryfirvalda að efla almennings- samgöngur og draga úr umferð einkabíla. — GRH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.