Dagur - 24.01.1998, Síða 2

Dagur - 24.01.1998, Síða 2
2 -LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 D^tur FRÉTTIR Hefnigirni ræður feröinni segir Kristín Ástgeirsdóttir þingkona. Kveimalistiim dregiim í svaðið Fyrmin samherjar í Kvennalistamnn deila nú af mildlli heift um pen- inga. „Mér þykir afskaplega leiðinlegt að horfa upp á mína íyrri samherja sýna kvennasamstöðu með þessum hætti og mér finnst þær vera að draga Kvenna- Iistann niður í svaðið með framkomu sinni. Það er hefnigirni sem þarna ræð- ur ferðinni," sagði Kristín Astgeirsdótt- ir þingkona í gær. Þá hafði þingflokkur Kvennalista, sem hefur mótmælt því að Kristín fái útgáfustyrk á Alþingi, rætt við formenn þingflokkanna og forseta þingis og fengið því framgengt að greiðslu útgáfustyrks til þingflokka er frestað og málið skoðað á ný. Miklir peningar Málið snýst um það hvort Kristín Ást- geirsdóttir, sem sagt hefur skilið við þingflokk Kvennalistans, eigi að fá 1900 þúsund krónur í útgáfustyrk eða hvort þær Guðný Guðbjörnsdóttir og Kristín Halldórsdóttir eigi að fá þessa peninga til viðbótar þeim 7 milljónum sem þingflokkur þeirra fær nú þegar. Um tvennskonar styrki er að ræða til þingflokkanna. Annars vegar 47 milljónir króna til að kaupa sérfræði- aðstoð og verða það rúmar 600 þúsund krónur á hvern þingmann. Þá peninga fær Kristín. Hins vegar er svo um að ræða 130 milljónir króna til útgáfu- starfsemi. Rúm 12% skiptast jafnt milli þingflokkanna, en afgangurinn eftir atkvæða- og þingmannafjölda flokkanna. Kristúiar það sem Krístinu ber „Við erum með sterk rök fyrir okkar máli og teljum að ekki sé verið að fara eftir þeim reglum sem gilda. Þess vegna hefur verið fallist á kröfu okkar um að betur sé farið ofan í þetta mál. Kristín á fullan rétt á peningum til greiðslu á sérfræðiaðstoð þingmanna og fær þá samtals 658 þúsund krónur á ári. En með því að veita henni út- gáfustyrk er verið að fara út fyrir þær reglur sem gilda og veita hættulegt for- dæmi. Útgáfustyrkurinn til þingflokka er samkvæmt umsókn þingflokka. Hún getur því ekki sótt um hann því hún er ekki þingflokkur og hún hefur ekki sótt um þennan styrk. Þess vegna voru þetta mistök hjá úthlutunarnefndinni," sagði Guðný Guðbjörnsdóttir, formað- ur þingflokks Kvennalistans. Engar vinnureglur „Nefndin hefur bara það verksríð að úthluta þessari ákveðnu upphæð. í sjálfu sér eru engar vinnureglur fyrir nefndina að fara eftir nema hefðin sem mótast hefur á löngum tíma. Nefndin var sammála um að eðlilegt væri að Kristín Ástgeirsdóttir fengi útgáfu- styrk. Kristín segist ætla að skrifa bók um kvennabaráttuna og það tel ég að falli undir þennan útgáfustyrk. Hún er væntanlega í bókinni að höfða til þess hóps sem hefur kosið hana á þing,“ sagði Egill H. Gíslason, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins, sem sæti á í úthlutunarnefnd útgáfustyrksins. - S.DÓR Kiyddpían Mel B. og Fjölnir Þorgeirsson eru á leið í hnapp helduna samkvæint frétt í Hello. í þessu vinsælasta slúð- urblaði heims segir að Mel og Fjölnir, sem blaðið segir vera fyrrverandi hnefaleikakappa, séu leynilega trúlofuð. Blaðið hcfur eitir vini Mel og Fjölnis að þess muni ekki vera langt að bíða að þau gangi í það hcilaga. Verði svo mun Hello vafalaust standa vaktina þvf þar á bæ láta menn sig ekki vanta með Ijósmyndavélamar þegar fræga fólkið gengur í það heilaga. Fjölnir Þorgeirsson. í heita pottinum cr um fátt meira talað en svívirðingar þær sem kvennalistakonur núverandi og fyrrverandi ausa hvcrjar yfir aðra. Einn pott- verji sagði þetta h'kast þvf sem gerist í hjónaskilnuðum. Hjónin reyni að vera kurteis og yfirveguð að minnsta kosti á yfirborðinu, þangað til komi að peningamálunum, þá veröi allt vitlaust. í pottinum fyrir norðan voru menn að velta fyr- ir sér af hverju leikskólakennaranemar í Háskól- anum á Akureyri væru svona illir yfir því að gefa ætti félögum þeirra í fóstur- og þroskaþjálfaskól- anum tækifæri á að útskrifast í vor frá nýjum uppeldisháskóla með háskólapróf í sínum fræð- um. Skýring segja kunnugir er ekki síst sú að nemendumir á Akureyri gerðu ráð fyrir að verða þeir fyrstu scm úskrifuðust sein háskólamennt- aðir leikskólakcimarar, en nú stefnir í að fóstur- skólanemar skjóti þeim ref fyrir rass. Línuritin sýna fjögurra daga veðurhorfur á hveijum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Sunnan kaldi og hlýnandi veður. Dálítil súld um sunnan- og vestanvert landið en annars þurrt. Færð á vegiuit Víða var hálka í gær en annars þokkalegt vetrarfæri almennt. Lágheiði var mokuð.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.