Dagur - 24.01.1998, Blaðsíða 4
4- LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 199 8
ro^tr
FRÉTTIR
Embættismeimimir bíða
„Það er ekkert nýtt að frétta af þessu máli. Við erum
að vinna að lausn þess og annað er ekki um það að
segja á þessari stundu," sagði Guðrún Zoega, for-
maður kjaranefndar, í samtali við Dag í gær. Hún
sagðist vita að margir væru orðnir óþolinmóðir að
bíða eftir þeim launahækkunum sem nefndin á að
úrskurða um en þetta væri mikil vinna og tæki því
sinn tíma. Guörún Zoega,
Þeir sem taka laun samkvæmt úrskurði kjara- formaöur kjara-
nefndar eru allir embættismenn ríkisins nema þeir' nefndar.
æðstu eins og biskup, ríkissáttasemjari, hæstaréttar-
dómarar og umboðsmaður barna svo nokkur dæmi
séu nefnd. Þá hafa bæst í hópinn allir heilsugæslulæknar landsins.
Þeir ákváðu í síðustu kjarasamningum að afsala sér samningsréttin-
um og fela kjaranefnd að ákveða kjör sín. — S.DÖP,
ASÍ vill ræða við ráðherra
Miðstjórn Alþýðusambandsins vill ræða við heil-
brigðisráðherra um stefnuna í heilbrigðismálum. I
ályktun sem miðstjórn hefur samþykkt segir m.a. að
„...ekki megi draga lengur að fram fari opinská um-
ræða um hvert skuli stefna í heilbrigðismálum. Þró-
unin hefur verið sú að hlutur sjúklinga í greiðslum
fyrir þjónustu heilbrigðiskerfisins hefur farið vax-
andi.“
Miðstjórnin varar við því að heilbrigðiskerfið sé
smátt og smátt látið breytast í grundvallaratriðum án
þess að meðvitaðar ákvarðanir hafi verið teknar eða
heildarstefna mótuð. Einnig er vakin athygli á
vanda þeirra sem þurfi að greiða fullt verð fyrir þjónustu sérfræði-
lækna vegna deilna þeirra við Tryggingarstofnun rfkisins.
Miðstjórnin óskar eftir fundi með Ingibjörgu Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra til að fá upplýsingar um stefnu stjórnvalda og fram-
tíðarsýn í heilbrigðismálum. — vj
Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrígð/s-
ráöherra.
Kaupþing tapaði skuldabréfamáli
Hæstiréttur hefur sýknað Byggingafélag Gylfa og Gunnars og Aðal-
geir Finnsson af kröfum Kaupþings, en verðbréfafyrirtækið vildi fá
samtals 1,8 milljónir króna vegna fimm skuldabréfa. Deilt var um
vísitöluverðtryggingu skuldabréfanna.
Bréfin voru verðtryggð samkvæmt byggingavísitölu og drógu GG og
Aðalgeir í efa að það væri Ieyfilegt. Auglýsing frá Seðlabankanum
heimili aðeins verðtryggingu samkvæmt lánskjaravísitölu. Dómarar
Hæstaréttar féllust á að ekld hafi verið heimild fyrir því að miða verð-
tryggingu við byggingavísitölu. — FÞG
VESTURLAND
Nýtt aðalskipulag í Borgamesi
Aðalskipulag fyrir Borgarnes var lagt fram til kynningar á dögunum.
Um er að ræða aðalskipulag fyrir árin 1997 til 2017 og tekur það við
af því sem áður var í gildi. Reiknað er með minni íbúðabyggð en í
eldra skipulagi en meiri þéttingu á þeirri byggð sem fyrir hendi er.
Einnig er gert ráð fyrir að þjóðvegurinn verði færður út úr bænum og
liggi utan við landið upp fyrir bæinn. Gert er ráð fyrir töluvert meiri
uppfyllingu í kringum Brúartorg, þar sem nú standa þrjár bensín-
stöðvar, en þar er gert ráð fyrir svæði fyrir verslun og þjónustu.
Styrktartónleikar Tónlistarskóla
Borgarfjarðar
Tónlistarskóli Borgarfjarðar stendur íyrir styrktartónleikum í Borgar-
neskirkju í dag, laugardag kl. 14:00. A tónleikunum koma fram nem-
endur og kennarar úr tónlistarskólanum. Einnig syngja Barnakór
Borgarness og Karlakórinn Söngbræður á tónleikunum. Dagskráin
verður mjög fjölbreytt, einsöngur, dúettar, samspil og kórsöngur.
Meðal efnis eru atriði úr Kátu ekkjunni eftir Lehár, Ungverskur dans
eftir Brahms leikinn fjórhent á píanó og tvö verk eftir kennara skól-
ans, Gunnar Ringsted.
Tilefni tónleikanna er að safna fyrir kennslugögnum og tækjum
tyrir tóniistarskólann sem starfað hefur í 30 ár, en síðastliðið haust
fékk skólinn fyrst húsnæði fyrir hluta af starfsemi sinni.
Óveðrið gerði usla í Borgamesi
„Það fóru tveir skjólveggir í kringum hús, brúarhandriðið á Brákar-
brúnni fauk eftir mannsaldurs þjónustu. Svo fauk stórt auglýsinga-
skilti úr plasti á Brúartorgi og hlífar af bensíndælu. Tuttugu rúður
brotnuðu í átta húsum. Sex bílar urðu fýrir fokskemmdum. Tvö þök,
á Dvalarheimilinu og íbúðarhúsi, Iyftust. Svo var eitt og annað smá-
Iegt, það voru ruslagámar og hestakerrur sem líkaði ekki staðsetning-
in og voru að færa sig um set,“ sagði Þórður Sigurðsson yfirlögreglu-
þjónn í Borgarnesi um foktjón.
I Reykholtsdal urðu miklar skemmdir á gróðurhúsum og skemmd-
ist það sem búið var að sá hjá nokkrum bændum. - OHR
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir það „ódýran brandara“ að D-listinn hafi bara flutt tvær tillögur i borgarstjórn, eins og fulltrúar
Reykjavikuríistans hafa haldið fram.
Ekki fátældr
af málefmim
Á þessu kjörtímabili hefur D-list-
inn „aðeins flutt tvær tillögur til
ályktunar í borgarstjórn. Á sfð-
asta kjörtímabili fluttu minni-
hlutaflokkarnir hátt í hundrað
slfkar tillögur," segir Guðrún
Ágústsdóttir, forseti borgar-
stjórnar og R-Iistaborgarfulltrúi,
um „ótrúlega málefnafátækt" D-
listans. I samtali við Dag segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arfulltrúi D-listans, að þessi mál-
flutningur sé „lélegur brandari".
Guðrún og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri hafa vak-
ið athygli á því að D-listamenn
hafi aðeins flutt tvær tillögur í
borgarstjórn og að báðum hafi
Ólafur Magnússon mælt fyrir.
Vilhjámur segir að borgarfulltrú-
ar D-listans hafi sett fram ótal
tillögur í borgarráði og í nefnd-
um og ráðum borgarinnar um
hin ýmsu mál og auk þess í borg-
arstjórn sett fram á hverju ári
tjölmargar tillögur um stjórn og
rekstur borgarinnar við afgreiðlu
fjárhagsáætlana.
„Þetta er því aulafyndni og
ódýr áróður. Eins og nú þegar
hver borgarfulitrúi R-listans á
fætur öðrum birtir prófkjörs-
grein þar sem lofað er að fram-
kvæma hluti á næsta kjörtímabili
sem þeir Iofuðu í maí 1994 að
framkvæma á þessu kjörtíma-
bili,“ segir Vilhjálmur. — FÞG
Vill erlent fé
í hvalasafnid
Hvalasafnið á Húsa-
vík er komið í hús og
hefur nú sétt um er-
lent styrktarfé tU að
koma því á laggirnar.
„Sólstöðuhátíð“
hvalaskoðara fyrir-
huguð í sumar.
Hvalurinn „Kjálkarýr" liggur nú
og Iætur náttúruna skafa á sér
beinin, en framtíðarhúsnæði fyr-
ir þau er nú komið á besta stað í
hjarta Húsavíkur. Ásbjörn Björg-
vinsson aðalhvatamaður segir að
nú sé sótt um erlent fé til að
koma safninu á fót, enda „Iítill
áhugi innanlands á atvinnuskap-
andi og fræðandi verkefnum" að
sögn, „það er eins og allt þurfi að
vera úr steinsteypu“.
Húsavíkurbær hefur þó látið fé
af hendi rakna, svo og Kísilgúr-
sjóður, sem er umhverfissjóður
Ásbjörn Björgvinsson er aðalhvatamað-
ur þess að nú sé sótt um erlent fé til
að koma safninu á fót.
Kísilverksmiðjunnar; þá hafa
samgöngu- og umhverfisráðu-
neytin lagt í púkkið. Hins vegar
er þörf á mun meira fé, þar sem
áætlaður heildarkostnaður er
talinn geta orðið 25 milljónir.
Ásbjörn segir þó að það fé þurfi
ekki að koma allt í fyrstu.
Náttúra og lunhverfi
Erlendur sjóður sem nefnist
World Wide Fund Iagði til fé í
svipað verkefni í Andenes í Nor-
egi, en þar er eini hvalaskoðun-
arstaður Norðmanna. Sjóðurinn
kann að koma til móts við verk-
efnið á Húsavík, enda mikill
áhugi að tengja frekar náttúru-
skoðun, - umhverfisvernd og
ferðamennsku. I vor er fyrirhug-
uð ráðstefna hér á iandi um þau
mál. Húsvíkingar eru bjartsýnir
og telja mikla framtíð „í hvaln-
um“; hvalaskoðunarsafnið muni
auka ferðamannastraum til bæj-
arins og styrkja annað atvinnulíf
samtímis. Á prjónunum er mikil
„sólstöðuhátíð“ hvalaskoðunar í
sumar, með fyrirlestrum, sigling-
um og öðru sem tengist hinum
voldugu risum hafsins - á „ári
hafsins“ eins og Ásbjörn minnir
á.