Dagur - 24.01.1998, Side 7

Dagur - 24.01.1998, Side 7
%W LAUGARDAGUR 2 4 . / A N Ú A R 1998 - 7 RITS TJÓRNARSPJALL Clinton og kynlífi ö asta umhverfi sínu og eiga því auðvelt með að umbera. Umheimurinn hlýtur hins veg- ar að hafa verulegar áhyggjur af þessum nýjustu uppákomum í lífi Clintons. Þeir sem leita til Bandaríkjanna eftir sterkri for- ystu við að reyna að leysa ýmis alvarlegustu vandamál heims- byggðarinnar sjá núna í Hvíta húsinu mann sem þarf sífellt að vera að veija sig í fjölmiðlum og jafnvel fý'rir dómstólum. Persónulegt traust milli þjóð- arleiðtoga skiptir miklu máli í al- þjóðlegum samskiptum ríkja. Ef fram fer sem horfir - hversu Iengi mun þá Bill Clinton njóta þess trausts sem er bráðnauð- synlegt til þess að hann geti beitt sér með árangri á alþjóðavett- vangir Einkum er hætt við að sífellt veikari staða Clintons vegna kyn- lífsmálanna muni gera honum erfitt um vik að beita sér af skyn- semi í málum sem snerta áhrifa- mikla hópa bandarískra kjósenda beint. Það á bæði við um friðar- ferlið í Miðausturlöndum og sambúðina við Kúbu - en þar er brýn þörf fyrir djarfa nýhugsun af hálfu bandarískra stjórnvalda. Söguleg heimsókn Heimsókn Jóhannesar Páls páfa til Kúbu er sögulegur atburður sem hefur vakið mikla athygli og nokkrar vonir um breytta stöðu þessa eyríkis sem verið hefur pólitískur fleinn í holdi Banda- ríkjanna í um fjörutíu ár. Allt frá því að Fídel Kastró hrakti einræðisherrann Batista, og bandarísku mafíuna, frá völd- um á Kúbu hefur sambúðin við Bandaríkin verið erfið. Stjórn- völd í Washington hafa áratug- um saman reynt að svelta Kastró til hlýðni með viðskiptabanni sem enn var hert á skömmu íyrir síðustu forsetakosningar í Bandaríkjunum til að friðþægja þeim íjölmörgu bandarísku kjós- endum sem eru flóttamenn frá Kúbu, eða afkomendur flótta- manna. Það var íyrst og fremst vegna fjandskapar bandarískra stjórn- valda sem Kastró hraktist í nær banvænan faðm sovéskra leið- toga. Kúba varð háð stórfelldri sovéskri aðstoð sem gufaði upp þegar Sovétríkin hrundu. Eftir sat bandaríska viðskiptabannið eins og spennitreyja. Þótt náðst hafi mikill árangur á sumum félagslegum sviðum á Kúbu (læsi er til dæmis mun al- gengara en í öðrum ríkjum á svæðinu) er efnahagur landsins afar bágborinn og pólitískt frelsi óþekkt. Hinir bjartsýnu spá því að heimsókn páfans muni smám saman hafa í för með sér að Kastró opni fyrir aukið frelsi í efnahagslífínu. Sumir telja reyndar að heim- sókn páfa gefi forsetanum í Hvíta húsinu einstakt tækifæri til að aflétta viðskiptabanninu af Kúbu og hrinda þannig af stað atburðarás sem hljóti fyrr en síð- ar að leiða til pólitísks frelsis á eynni. Til slíkra verka þarf hins vegar sterkan forseta sem hefur tíma og orku til annars en að koma sér í, og bjarga sér úr ómerkilegum kynlífshneykslum. Bandarísk stjórnmál minna stundum á ótrúlegan reyfara. Þau einkennast oft af hatursfull- um átökum þar sem öllum brögðum er beitt; tilgangurinn helgar meðalið rétt eins og hjá spænska rannsóknarréttinum forðum daga. Allt er leyfilegt til að klekkja á pólitískum andstæð- ingum. Fjölmiðlar og stjórnmálastofn- anir Bandaríkjanna engjast gjarnan vikum, mánuðum og jafnvel árum saman út af ómerkilegustu uppákomum, ekki síst ef þær tengjast með ein- hverjum hætti kynlífi. Ein slík hryðja gengur nú yfir bandarísku þjóðina. Þannig hafa ýmis alvar- Iegustu og eldfimustu átakamál heimsbyggðarinnar horfið í skuggann að undanförnu vegna gengdarlauss áhuga bandarískra fjölmiðla á kynfærum Bill Clint- ons forseta, en þau á hann að hafa sýnt einhverjum kvenmanni óumbeðið fyrir mörgum árum suður í Arkansas. Hún vill fá stórfé í bætur fyrir þessa lífs- reynslu, og nýtur til þess öflugs stuðnings pölitískra andstæðinga forsetans. Allra síðustu daga hefur komið fram í dagsljósið að pólitískir fjandmenn Clintons, saksóknar- inn sem árum saman hefur verið að Ieita, án árangurs, að hugsan- legum misgjörðum Clintons í fasteignabraski vina hans í Arkansas fyrir áratugum, og FBI, bandaríska alríkislögreglan, hafa sameiginlega verið að rannsaka meintar uppáferðir forsetans í Hvíta húsinu, og beitt þar meðal annars leynilegum segulbands- upptökum eins og tíðkast í slöppum Hollywoodkrimmum. Bandarískir fjölmiðlar taka and- köf yfir þessum ósköpum og eru jafnvel farnir að tæpa á því að nú verði að reka forsetann í útlegð eins og Richard Nixon forðum daga. Pólltísk flogaveiki Það hættulega fyrir umheiminn við slfka pólitíska flogaveiki er auðvitað sú staðreynd að Banda- ríkin eru eina stórveldið á hnett- inum og ráða því rniklu um hvað gerist í heiminum, til góðs og ills. Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr þá er forset- inn í Hvíta húsinu í Washington helsti leiðtogi jarðarbúa. Hann þarf að vera í stakk húinn til að beita sér á alþjóðavettvangi af skynsemi, yfirvegun og ákveðni. Tilraunir til að ýta friðarferl- inu milli Israelsstjórnar og Palestínumanna af stað á nýjan leik og koma þannig í veg fyrir hatrömm átök, flókin og hættu- leg refskák umheimsins við Saddam Hussein og morðingja- hirð hans í Irak, og söguleg ferð Jóhannesar Páls páfa til Kúbu, eru aðeins þrjú stórmál sem síð- ustu daga hafa fallið í skuggann vegna yfirþyrmandi áhuga bandarískra og þar með alþjóð- Forsetahjónin i Hvita húsinu - Bi/I og Hillary Clinton - horfa hér til himins, en pólitísk óvedursský hrannast nú í lofti yfir Was- hington vegna kvennamála forsetans. legra íjölmiðla á kynlífi Clintons. Táknrænt fyrir ástandið voru sjónvarpsútsendingar frá sam- eiginlegum blaðamannafundi Yasser Arafats og Clintons í H\a'ta húsinu, en þar snerust all- ar spurningar fréttamanna um meint framhjáhald forsetans. I hugum þeirra sein stýra hinni alþjóðlegu fréttamaskínu er stríð eða friður í Miðaustur- löndum augljóslega smámál samanborið við kvennafar for- seta sem virðist næstum því jafn hömlulaus í þeim efnum og einn helsti pólitíski dýrlingur Banda- ríkjamanna á þessari öld - John F. Kennedy. Rúinn trausti? Það eru tiltölulega fá ár síðan bandarískir fjölmiðlar fengu þennan gífurlega áhuga á kynlífi stjórnmálamanna. Þeir minntust til dæmis aidrei á skrautleg kvennamál Kennedys forseta á meðan hann var á lífi. En nú er öldin önnur. Það liggur við að stjórnmálamenn vestra þurfi ekki aðeins að hafa hreint saka- vottorð heldur líka hreint kyn- lífsvottorð. Hins vegar eru það ekki aðeins bandarísku fjölmiðlarnir sem sökkva sér ofan í slík mál af sannkölluðum trúarhita. Stjórn- málamennirnir sjálfir eru óragir við að nota áburð af þessu tagi gegn andstæðingum sínum. Þannig hafa repúblíkanar verið drifkrafturinn á bak við margra ára málarekstur á hendur Clint- on forseta - málarekstur sem hefur kostað skattborgara vestra gífurlega fjármuni en engum ár- angri skilað. Fram til þessa hefur banda- ríska þjóðin látið sér fátt um finnast. Hún hefur þannig kosið Clinton í tvígang sem forseta Bandaríkjanna þrátt fyrir enda- Iausar sögusagnir um alvarlega skapgerðarbresti sem virðast hvað eftir annað hafa leitt hann út á vafasamar brautir f einkalíf- inu. Nýlegar skoðanakannanir sýna að hann nýtur enn mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar. Clinton virðist einn af þessum stjórnmálamönnum sem banda- rískur almenningur er reiðuhú- inn að fyrirgefa næstum því hvað sem er. Hvað veldur þessu er eitt af þessum óútskýranlegu íýTÍr- bærum f mannssálinni. Hugsan- lega er ástæðan sú að í slíkum mönnum endurspeglast algeng- ur mannlegur breyskleiki sem svo margir kannast við úr nán- ELIAS SNÆLAND JÓNSSON RITSTJÓRI SKRIFAR

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.