Dagur - 24.01.1998, Qupperneq 11

Dagur - 24.01.1998, Qupperneq 11
D^rrr LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1998 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR L Gálgafrestur Clintons Kvennamál Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna, eru í brennidepli fjölmiðla þessa dagana, og það ekki í fyrsta sinn. Yfirheyrslum yfir Monicu Lewin- sky, sem fram áttu að fara í gær, hefur verið frestað ótímabund- ið. Clinton neitar þ\i' statt og stöðugt að hafa átt í ástarsam- bandi við hana, og sömuleiðis þvertekur hann fyrir að hafa hvatt hana til að ljúga því að hún hafi aldrei átt í slíku sambandi við sig. Monica Lewinsky er 24 ára fyrrverandi starfsmaður í Hvíta húsinu sem hefur sagt vinkonu sinni að hún hafi átt kynferðisleg samskipti við forsetann, en neit- aði þ\4 í yfirheyrslu hjá lögfræð- ingum Paulu Jones, sem hefur kært forsetann fyrir kynferðis- lega áreitni. Clinton hefur nú fengið gálga- frest til að undirbúa mál sitt og sannfæra bæði þjóðina og lög- fræðinga um að hann sé ekki með neitt gruggugt í pokahorn- inu, þótt spjótin standi að hon- um úr öllum áttum. Sífellt viðtækari rannsókn- arheimildir Svonefndir sjálfstæðir lögmenn í Bandaríkjunum, sem starfa sam- kvæmt lögum frá 1978, hafa árum saman sætt sívaxandi gagnrýni fyrir dýrar og sífellt viðameiri rannsóknir sínar sem hafa dregið fram glæpsamlegar hliðar á bandarískum stjórnmál- um. En jafnvel þeir sem mestar efasemdir hafa haft um starf- semi þeirra segja að Kenneth W. Starr, sem vinnur að rannsókn Whitewater málsins, hafi staðið á traustum iagagrunni þegar hann bað um og fékk leyfi dóms- yfirvalda til þess að bæta við einu rannsóknarefni: hvort Bill Clint- on hefði hvatt fyrrverandi starfs- mann Hvita hússins til þess að sverja rangan eið. Janet Reno dómsmálaráðherra og þriggja manna dómaranefnd sem hefur eftirlit með rann- sóknastarfi sjálfstæðra lögmanna hafa nokkrum sinnum áður veitt honum heimild til að útvíkka upphaflegt umboð sitt frá 1994, þar sem honum var falið að rannsaka Whitewater landa- kaupin íArkansas. Meðal annars fékk hann leyfi til að rannsaka uppsagnir starfsfólks á ferða- skrifstofu Hvíta hússins, og sömuleiðis grun um að starfsfólk Hvíta hússins hafi misnotað skýrslur frá bandarísku alríkis- lögreglunni, FBI. Lagalega hliöin skeinu- hættust Allar þessar útvíkkanir á upphaf- legu rannsóknarheimildinni hafa þó kallað á gagnrýni frá stuðn- ingsmönnum Clintons, sem segja Starr vera kominn langt út fyrir verksvið sitt. „Svo virðist sem hann sé að reyna að hanka forsetann frekar en að leita sannleikans,“ sagði Abbe D. Lowell, saksóknari, sem er með áhyggjur af öllum þeim birting- armyndum sem rannsókn Starrs er farin að taka á sig. Sumir stjórnmálaskýrendur telja að ef í ljós kæmi að Clinton hafí átt náið samband við Lewin- sky, sem þá var 22 ára starfs- stúlka í Hvíta húsinu, þá gæti þolinmæði almennings þrotið gagnvart forsetanum sem al- mennt er viðurkennt að sé ekki gallalaus. En það er lagalega hliðin á málinu sem gæti reynst forsetanum ennþá skeinuhætt- ari. Staðreynd er að bæði Clint- on og Lewinsky hafa þegar svar- ið þess eið \áð yfirheyrslur að hafa aldrei átt í neinu kynferðis- legu sambandi, og þar greinir þetta mál frá öðrum kvennamál- um Clintons. Clinton á á hættu lögsókn fyrir meinsæri og fyrir að hindra framgang réttvísinnar ef í ljós kemur að hann hafi í raun ekki sagt rétt frá. - Washington Post HEIMURINN Fjölmeimar mótmælasamkomur múslima gegn tsrael ISRAEL - Hundruð þúsunda múslima komu saman f Jerúsalem í gær til þess að sýna andstöðu sína við ísrael. Gífurlegur íjöldi múslima kom einnig saman í Iran, Sýrlandi og Líbanon í gær sömu erinda- gerða. Mótmælin fóru friðsamlega fram. I Jerúsalem einni tóku hundruð þúsunda Palestínumanna þátt í síðustu föstudagsbænum Ramadanmánaðarins, sem brátt lýkur. t predikun sinni hvatti Mo- hammed Hussein áheyrendur til þess að rísa gegn „hugmyndum Isra- elsmanna um að breyta íslamskri ásýnd borgarinnar.“ Páfinn fór fram á að Castró náði pólitíska fanga KUBA - Jóhannes Páll páfi annar átti í gær 45 mínútna einkasamtal með Fidel Castró, leiðtoga Kúbu. I tilefni af heimsókn sinni til Kúbu hvatti páfi Castró til að náða pólitíska fanga. Talsmaður páfa sagði að Sodono kardináli, sem fer með utanríkismál í Vatíkaninu, hafi átt við- ræður við háttsetta embættismenn á Kúbu þar sem lögð var fram beiðni um náðun hóps pólitískra fanga á Kúbu. Eystrasaltsráðið ræðir baráttu öesjn glæpum LETTLAND - Helstu umræðuefnin á fundi Eystrasaltsráðsins í Riga, höfuðborg Lettlands, eru viðskipti milli landanna og samræmdar að- gerðir ríkjanna gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta er í annað sinn sem leiðtogar Eystrasaltsríkjanna ellefu hittast frá þ\a' Eystrasaltsráð- ið var stofnað. Menningarsjóður Umsóknir um styrki Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Menn- ingarsjóði skv. 1. gr. reglugerðar um sjóðinn nr. 707/1994. Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum og/eða höf- undum fjárhagslegan stuðning til útgáfu þeirra bóka á íslenskri tungu, sem verða mega til eflingar íslenskri menningu. Sérstök áhersla skal lögð á að efla útgáfu fræðirita, handbóka, orða- bóka og menningarsögulegra rita. Jafnframt getur sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning annarri skyldri starfsemi s.s. vegna hljóðbókagerðar. Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást í afgreiðslu mennta- málaráðuneytisins. Umsóknum skal skilað til Menningarsjóðs, menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 27. febrúar 1998. Nánari upplýsingar veitir starfsmaður sjóðs- ins Björg Ellingsen menntamálaráðuneytinu. Stjórn Menningarsjóðs Fe gur á ar s amkeppni NoráurlanJs 1998 Tehið er á móti áliendingum í Fegurðarsamkeppni Norðurlancls sem fer fram í Sjallanum í mars 1998, í síma 462 2770 (Sjallinn) og 462 6266, Sigurður. Stúlkurnar munu taka þátt í vörukynningum, tískusýningum og sitja fyrir á auglýsingamyndum auk þess aá taka þátt í keppninni Frumkvæði og endurnýjun ! NY HU6SUN I ÍKOLAMALUM ^fNNmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Virkjum frumkvœ&i félagasamtaka Lúgum skólann að þörjum bamanna Nýtum starfsdaga fyrir íþráltir og menningu Hrannar Björn í borgarstjórn N Á M S K E I Ð Peningarnir og fífið Námskeið ætlað konum um fjármál og félagsleg réttindi. Haldið átta þriðjudagskvöld frá 18:30 til 21:30 í Menntasmiðju kvenna Glerárgötu 28, 3. hæð. Námskeiðið hefst 3. febrúar og lýkur 24. mars. Meðal annars verður farið í skattamál.fjármál hjóna, fjármál fólks I óvígðri sambúð, almannatryggingar, einkatryggingar, félagslega aðstoð, lífeyrissjóði, fjárhag einstaklinga, sparnað og lántökur. Námskeiðsgjald er 5000 krónur, innifalið I því er kennsla, handbók, kaffi/te/djús. Styrkur fékkst úr Pálssjóði til að greiða niður þetta námskeið. Skráning hjá ritara jafnréttisfulltrúa, virka daga frá 8 til I I, í síma 460 1409, netfang: steinunn@ak.is

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.