Dagur - 21.02.1998, Blaðsíða 1
I
Ilreppstjórar
skoniir iiiður
Hreppstjdrasnýtiugar
heyra sögunni til ef
svo fer sem horfir.
Landið gæti orðiö
nánast hreppstjóra-
laust - öllum hefur
verið sagt npp í
Skagafirði vegna nið-
urskurðar.
Ýmislegt bendir til að landið
verði nánast hreppstjóralaust
innan skamms. Eftir breytingar á
fjárlögum til sýslumannsemb-
ættanna líta að minnsta kosti
sumir sýslumanna svo á að skera
verði hreppstjóra og eru allir 10
hreppstjórarnir í Skagafirði
hættir störfum svo dæmi sé tek-
„Vona að
hann komist
niður“
„Ég er þokkalega
bjartsýnn, hann
sagði við mig
fyrir þremur
dögum að hann
væri í góðu
formi og hann er
æfa í brekkun-
um í dag með fé-
lögum sínum.
Hann hefur
reyndar haft ein-
hver flensueinkenni, en ég held
alveg örugglega að hann sé hita-
Iaus,“ sagði Björn Þór Ólafsson,
íþróttakennari og pabbi Kristins
Björnssonar í Ólafsfirði, síðdegis í
gær, nokkrum klukkustundum
áður en bjartasta von landsins í
skíðaheiminum renndi sér niður
brekkurnar á ólympíuleikunum.
Björn vildi engu spá fyrir um
árangur sonar síns, en sagðist
telja að Kristinn yrði alsæll með
\ að enda í 10 efstu sætunum. „Ég
held hann geri sér engar vonir um
verðlaunasæti. Maður vonar bara
að hann komist niður.“ — bþ
Kristirtn Björns-
son: Bjartasta von
íslands f Nagano.
Þörftn ekki fyrir hendi
Asdís Ármannsdóttir, sýslu-
mannsfulltrúi í Skagafirði, segir
að fjárveiting hafi verið felld nið-
ur til hreppstjóra og
því verði raunin vænt-
anlega sú að stéttin
nánast deyi út. Þó hafi
á landsvísu verið gerð-
ar undantekningar um
t.d. hreppstjórann í
Grímsey og á Skaga-
strönd, þar sem m.a.
sé tekið tillit til sam-
gangna.
„Þetta eru nánast
gagnaðgerðir. Fyrst
fjárveitingin var skorin
niður, þóttu þetta
óbein skilaboð um að
þörfin fyrir hreppstjóra væri ekki
lengur fyrir hendi," segir Ásdís.
Sameining sveitarfélaga spilar hér
einnig inn í sjálfkrafa fækkun.
Mikilvægar skyldur
Halldór Þ. Kristinsson, sýslu-
maður á Húsavík, segist ekki enn
hafa tekið ákvörðun um hvað
verði um hreppstjóra í Þingeyjar-
sýslu. „Það getur vel verið að ég
segi þeim upp störfum, en ég hef
enga ákvörðun tekið um það
enn. Ég lít þannig á að þetta sé
aðgerð til að halda útgjöldum í
skeíjum, en ég sldl þetta ekki
sem svo að sýslumenn eigi ekk-
ert val. Einhverjir verða að vinna
þau verk sem hreppstjórar hafa
sinnt. Hér eru til dæmis miklar
vegalengdir og ólíkir staðhættir
og í Skagafirði.“
Halldór segir að hreppstjórar
sinni mikilvægum skyldum líkt
og stjórnun utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslu, úttektum á jörð-
um, lokum á dánarbúum og
fleira.
Hreppstjórar hafa fengið borg-
uð föst laun frá ríkinu en um-
fang starfsins er mjög mismikið.
Launin eru tengd íbúafjölda en
þeir hafa einnig fengið sérstak-
lega greitt fyrir einstök embætt-
isverk. — BÞ
Grímsey: einn örfárra staða sem
þörf verður talin fyrir hreppstjóra í framtíðinni?
Foreldrar Kristins ætluðu að vaka í nótt og sjá drenginn standa niður brekkuna! - mynd: gs
Esra: búinn að skila en sviptur samt.
Tveir lækn-
ar sviptir
læknaleyfi
I gær lagði landlæknir til við
heilbrigðisráðherra að læknir sá
er ákærður var á dögunum fyrir
að hafa nauðgað konu, sem
hann var í vitjun hjá sem læknir,
verði sviptur læknaleyfinu. Ólaf-
ur Ólafsson Iandlæknir staðfesti
þetta í samtali við Dag en vildi
ekkert segja frekar.
Þá var Esra Pétursson geð-
læknir sviptur læknaleyfinu fyrir
skömmu vegna upplýsinga sem
koma fram í ævisögu hans, sem
kom út fyrir jólin. Þar skýrir
hann frá atburðum sem eru
trúnaðarbrot og þar af leiðandi
brot á læknaeiðnum.
„Ég hef sagt það bæði við land-
lækni og formann Læknafélags
Islands að mér þykir þetta afar
skrýtið vegna þess að ég var sjálf-
ur búinn að skila inn læknaleyfi
mfnu. Þess vegna þurfti ekkert
að svipta mig leyfinu." Meira
vildi hann ekki segja.
Dagur hefur heimildir fyrir því
að lögfræðingar, sem skoðað
hafa mál Esra, telji læknaleyfis-
sviptinguna vera brot á stjórn-
sýslulögum. , — S.DÓR
Teygjanlegt
„Þetta eru teygjanlegir hlutir og
það er best að málið fari sinn far-
veg hjá Ríkisendurskoðun," segir
Ágúst Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga Islands, um þá
ákvörðun umhverfisráðherra að
fela Ríkisendurskoðun að kanna
bókhald Landmælinga vegna atr-
iða er snerta Ágúst.
Meðan málið er í athugun vill
hann ekki tjá sig nánar: „Þegar
skýrsla kemur gefst eflaust til-
efni til athugasemda." — FÞG
Gabri^f
(höggpeyfar)
Q&varahlutir
Hamarshöfða 1-112 Reykjavík
Sími 567 6744-Fax 567 3703
BIACK&DECKER
Handverkfæri
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024
!
1
1
1
1
5
1
\
]
1
i
1
I
1
1