Dagur - 28.02.1998, Side 5
LAVGARDAGUR 28. FERRÚAR 1998 - S
FRÉTTIR
Allt að 80-90% rnunur
á gjaldi leikskóla
Leikskólinn Betri bær á Húsavík. Þar i bæ borgar „venjuleg kjarnafjölskylda" hæsta
gjald á landinu.
Gríðarlegux verðmim-
ur er á leikskólagjöld-
um milli sveitarfé-
laga.
„Leikskólagjaldafrumskógur" er
orð sem leitar á hugann þegar
litið er yfir töflur um leikskóla-
gjöld í 22 sveitarfélögum á land-
inu. Sama sveitarfélagið getur
bæði boðið lægsta verð og líka
með því hæsta t.d. Reykjavík.
Gjald fyrir eitt barn er allt frá
4.400 kr. upp í 23.400 kr. Verðið
ræðst af því hvort börnin koma
úr forgangshóp eða kjarnafjöl-
skyldu, hvað þau eru lengi í skól-
anum og hvort þau eiga þar
systkini. Leikskóli fyrir eitt barn
í 8 stundir er ódýrastur á Nes-
kaupstað en dýrastur á Húsavík
(43-76% dýrari ) - og Grindavík
sé barnið í forgangshóp. Fjög-
urra tíma leikskóli er samt ódýr-
ari á Húsavík en Neskaupstað.
Hafnarfjörður: 6 tíina skóli
ódýrari en 4,5 tíma
Samstarfsverkefni ASÍ, BSRB og
Neytendasamtakanna hefur gert
umfangsmikla könnun á leik-
skólagjöldum. Þrátt fyrir heil-
mikinn verðmun - 20-90% - milli
sveitarfélaga þegar litið er á
hvern einstakan flokk er hreint
ekki auðvelt að benda á hvar
leikskólar eru dýrir og hvar ódýr-
ir. Sum sveitarfélögin veita til
dæmis forgangshópum einungis
afslátt af ákveðnum gjaldflokk-
um. Af því leiðir að í Hafnarfirði
er ódýrara að vera 6 stundir í
leikskóla en 4 og hálfa. Systkina-
afsláttur er líka mismunandi, á
bilinu 25-50% fyrir annað barn
og allt að 75% fyrir þriðja.
Reykjavík bæói ódýr og dýr
Fyrir 2 börn úr forgangshópi í
heilsdagsskóla með systkinaaf-
slætti er gjaldið lægst í Reykjavík
(samtals 16.600 kr.), en hæst í
Hveragerði (29.400 kr.). Komi
börnin hins vegar úr venjulegri
kjarnafjölskyldu nálgast Reykja-
\ák hærri kantinn (32.800 kr.).
Við þær kringumstæður bjóða
Vestmannaeyjar best (25.900
kr.) en Húsavík er hæst (37.800
krónur).
Fyrir eitt barn úr forgangshópi
í hálfsdagsskóla er verðmunur-
inn 80%. Þar státar Kópavogur
af lægsta gjaldinu (4.400 kr.) en
Hafnarfjörður er hæstur (7.900
kr.). Fyrir barn sambýlisfólks
hækkar gjaldið ekki í Hafnar-
firði, en tvöfaldast hins vegar í
Kópavogi og verður með því
hæsta á landinu, litlu Iægra en á
Akureyri, þar sem hálfsdagsskóli
er dýrastur á landinu (um 9.000
kr.).
,?Rauði“ bærinn bamgóður
Átta stunda skóli fyrir 1 barn
hjónafólks er ódýrastur á Nes-
kaupstað (15.100), sem býður
raunar best í mörgum tilfellum.
Verðið er heldur hærra á Sauðár-
króki, Reykjanesi, Siglufirði og
Akranesi. Dýrastur er átta
stunda skólinn á Húsavík
(21.600 -kr.). Og næstu bæir
þeim megin eru Akureyri, Kópa-
vogur, Garðabær og Selfoss.
Tekið er fram að sum sveitarfé-
lög hafa þegar hækkað gjaldskrá
sína á þessu ári, m.a. Húsavík,
Akureyri og Hveragerði. En önn-
ur hafa tilkynnt allt að 10%
hækkanir innan skamms. — HEl
Árni Sigfússon: Sjálfstæðismenn telja
umhverfisslys í uppsiglingu á Geldinga-
nesi efáform Reykjavfkurlistans ná
fram að ganga.
Nýsýná
Geldinganes
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
vilja hætta tafarlaust öllum
sprengingum og grjótnámi í
Geldinganesi. Þeir leggja áherslu
á að íbúðabyggð verði reist á
svæðinu fyrir allt að 8 - 9 þús-
und manns og fallið verði frá
þeim áformum Reykjavíkurlista
að byggja þar stórskipahöfn og
atvinnu- og geymslusvæði í
bland við íbúðir.
A blaðamannafundi í gær kom
fram að þeir munu flytja tillögu
þess efnis á fundi borgarráðs í
næstu viku. Þeir leggja jafnframt
áherslu á að kjörið svæði fyrir
hafnargerð og atvinnusvæði sé á
Alfsnesi í stað Geldinganess.
Það sé hinsvegar forsenda fyrir
nýtingu Geldinganess að Sunda-
braut verði lögð. Auk þess sé
hentugt svæði undir atvinnu-
starfsemi á Höllum við Vestur-
landsveg.
Sjálfstæðismenn gagnrýna R-
lista harðlega fyrir fyrirhyggju-
leysi í skipulagsmálum. Þeir full-
yrða að staðan í þeim efnum sé
álíka slæm og var á valdatíma
vinstri manna 1978-1982. Af-
leiðingarnar séu m.a. þær að
borgin tapar útsvarsgreiðendum
til nágránnasveitarfélaga. — GRH
KEA gengur frá kaupfélagsstjóraskiptum: Samsær/skenningum vísað á bug hvarvetna. - mynd: bös
Kaupfélagsstj óraskiptiu
engin gj örgæsluaðger ð
Stj ómarformaöur
KEA og bankastjóri
Lamisbaiikans vísa
því á bug að ráðniug
nýs kaupfélagsstjóra
frá viðskiptabanka sé
vegna bágrar stöðu
KEA.
„Þessi samsæriskenning, að
Landsbankinn hafi sett mig inn í
Kaupfélagið er algjört bull. Það
var ekki Landsbankinn sem
hvatti mig til að fara, enda ræður
bankinn ekkert yfir Kaupfélag-
inu,“ segir nýráðinn kaupfélags-
stjóri KEA, Eiríkur S. Jóhanns-
son, sem fer úr starfi útibússtjóra
Landsbankans á Akureyri. Hall-
dór Guðbjarnarson bankastjóri
staðfestir þetta, bankinn sjái á
eftir manni sem nú leggi til at-
lögu við ögrandi verkefni, „sjálf-
sagt fyrir hærri laun".
Þær raddir hafa heyrst að um
gjörgæsiuaðgerð hafi verið að
ræða af hálfu Landsbankans,
viðskiptabanka KEA, þegar
„maður bankans“ var ráðinn til
KEA í fyrradag. KEA hefur tapað
á síðustu árum. Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, stjórnarformaður
KEA. tekur undir með Eiríki og
segir umræðuna fráleita.
„Bjami norðursins“
I samtali \áð Dag sá Eiríkur sér
aðeins fært að hafna „samsæris-
kenningunni“, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig frekar um nýja
starfið vegna „sérstakra“ kring-
umstæðna. Blaðið kannaði hug
allmargra viðmælenda sem
tengjast IŒA beint eða óbeint og
voru þeir almennt jákvæðir í garð
ráðningarinnar þótt sumir gerðu
athugasemd við að staðan skyldi
ekki auglýst. Eiríkur var m.a.
kallaður „Bjarni norðursins" í
gær með vísun til glæsilegs ferils
annars ungs viðskiptamanns,
Bjarna Armannssonar. - GG/BÞ
Stones enn í
skoðun
„Þetta er allt enn í athugun og
ekki búið að afskrifa neitt,“ seg-
ir Signý Pálsdóttir á skrifstofu
Listahátíðar.
Svo virðist sem enn sé einhver
von til þess að Iiðsmenn Rolling
Stones haldi tónleika á Islandi í
vor. I það minnsta hefur Lista-
hátfð ekki gefið upp alla von að
hægt verði að koma tónleikun-
um á dagskrá þann 16. maí nk.
- GRI I
Uppsagnir hjá
Bakka
í Hnífsdal
Þorbjörn hf. í Grindavík hefur
ákt'eðið að hætta allri rækju-
vinnslu hjá Bakka í Hnífsdal frá
og með 1. apríl nk. Ollu starfs-
fólki fyrirtækisins hefur verið
sagt upp, eða alls tuttugu og
þremur.
Fyrirtækið hyggst ná fram
hagræðingu í rækjuHnnslunni
með því að hafa hana alla í Bol-
ungarvík. „Það er alltaf slæmt
þegar fólki er sagt upp,“ segir
Karitas Pálsdóttir hjá Verkalýðs-
félaginu Baldri á Isafirði. Hún
minnir á að sumir starfsmenn
Bakka í Hnífsdal séu búnir að
vinna þar í mörg ár og eigi því
rétt á allt að 6 mánaða uppsagn-
arfresti. —GRH
Tilhoði lífeyris
sjóðanna tekið
Stjórn Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins hefur tekið tilboði
sjö lífeyrissjóða í 7.12 prósent
eignarhlut í íslandsbanka. Til-
boðið hljóðaði upp á rúmlega
941 milljón króna sem svarar til
3.41 gengis hlutabréfa bankans.
Grindavíkur-
listinn með próf-
kjör
Bæjarmálafélag jafnaðar-, fé-
lagshyggjufólks og óháðra í
Grindavik efnir til prófkjörs í
dag, en félagið ætlar að bjóða
fram Grindavíkurlistann f kom-
andi sveitarstjórnarkosningum.
Að listanum standa A-flokk-
arnir og óháðir og hafa átta ein-
staklingar boðið sig fram í próf-
kjörinu, þar sem úrslitin í fyrsta
sætið verða bindandi. Kosið er í
verkalýðshúsinu milli kl. 12 og
20. — FÞG
KEA kaupir
Akureyrar-
apótek
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
lvey'pt Akureyrarapótek af Böðv-
ari Jónssyni. Apótekið verður
áfram rekið undir sama nafni og
Böðvar mun veita því faglega
forstöðu. Flest starfsfólk fyrir-
tækisins verður endurráðið.
KEA mun frá 1. mars reka þrjár
lyfjaverslanir, Stjörnuapótek,
Sunnuapótek og Altureyrarapó-
tek.
Astæða kaupanna er liður í að
búa KEA betur undir harðnandi
samkeppni á lyfsölumarkaðn-
um. — GG