Dagur - 19.03.1998, Page 14
FIMMTUDAGUR 19. MARS 1998
Ðwpir
LÍFIÐ í LANDINU
Byggöastofnun
Byggðastofnun hefur á undanförnum árum veitt styrki vegna
atvinnuþróunarverkefna á landsbyggðinni. Áárinu 1998er
það fjármagn sem til ráðstöfunar er svo knappt að aðeins
verður hægt að sinna takmörkuðum fjölda fyrirliggjandi
umsókna. Afgreiðsla þeirra umsókna sem síðar kunna að
berast fer eftir því hvort stofnunin fær rýmri fjárráð til
styrkveitinga.
AKUREYRARBÆR
m m
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 23. mars 1998 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Ásta
Sigurðardóttir og Heimir Ingimarsson til viðtals á skrifstofu bæjar-
stjóra að Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Fimintudagirin 26. mars
gefur Dagur út veglegt
blað um páska og fermingar.
Auglýsingapantanir í
blaðið þurfa að berast 1
síðasta lagi
mánudaginn 23. mars.
01 láUmmm
Ef þú hefur stöðugt á tilfinning-
unni að þú sért svangur/svöng, þó
svo þú hafir borðað, þá er ráðið
kannski að borða epli eða perur
daglega. Rannsókn sem gerð var í Brooke
Army Medical Center í San Antonio stað-
festi að meltanlegar trefjar í hýði ávaxta
geri það að verkum að fólki finnist það
satt lengur. 74 menn voru látnir drekka
appelsínusafa og fékk hluti þeirra
safa sem innihélt 20% af þessum
treijum. Það kom í Ijós að þeir sem
fengu slíkan safa fundu mun lengur
fyrir fyllitilfinningu en hinir, jafnvel stór-
an hluta dagsins. Þannig, að viljir þú
halda matarlystinni í skefjum, þá skaltu
borða epli fyrir mat.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Ungur karlniaöur
Ég er í þeirri undarlegu stöðu að vera
einhleypur og barnlaus ungur karlmaður
(35 ára) og það virðist fara alveg óskap-
lega í taugarnar á fólki. Ég er ósköp
venjulegur, þykir konur yndislegar og er
alveg tilbúinn til þess að eiga í stuttum
samböndum, en ekki að binda mig til
frambúðar. Ég hef góðar tekjur, lifi góðu
lífi og get farið og komið eins og mér sýn-
ist og sé enga ástæðu til að breyta því. Ég
tek fulla ábyrgð á lífi mínu, sé sjálfur um
getnaðarvarnir, því ég kæri mig ekki um
slysabarn. En þessi pressa með að stofna
til fjölskyldu er dáb'tið óþægileg, hvernig
er hægt að sannfæra fólk um að mér líði
bara vel?
Aumingja þú. Lifir þessu fína Iífi og
svo vill fólk fá þig til að breyta því. Þú
hefur alla mína samúð. En einhvem
veginn er það svo í þessu samfélagi
okkar að eðlilegt hefur talist að fólk
stofni til fjölskyldu á aldrinum 18-30
ára og eignist börn. Reyndu bara að
láta sem ekkert sé og í versta falli að
segjast vera forfallinn piparsveinn þeg-
ar fólk spyr. Það er erfítt að útskýra
þetta fyrir fólki sem sér veröldina á
annan hátt og ekki hvað síst ef þetta
sama fólk er ofurlítið öfundsjúkt út í
þig fyrir að lifa þessu „ljúfa lífí.“
Vigdís svarar í símann!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símann kl. 9-12.
Síminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Afgangateppi
Það vilja safnast fyrir garnafgangar hjá
þeim sem prjóna mikið. Ein leiðin til að
nýta slíka afganga er að prjóna teppi eins
og það sem á myndinni sést. Það er
prjónað á grófa prjóna og garnið haft ein-
falt, tvöfalt eða jafnvel þrefalt eftir atvik-
um. Prjónarnir eru númer 7 og einfalt
garðapijón er notað þannig að ekki þarf
neina sérstaka kunnáttu til. Og af því að
teppið er allt prjónað í röndum, þá er
auðvelt að hafa verkið með sér og nota
Iausar stundir þegar verið er að bíða eftir
einhverju, tii dæmis lækni eða strætó. I
hverri rönd eru 24 L og til að fá teppi
sem er um það bil 130 x 170 sm. þá þarf
8 rendur í þeirri breidd. Rendurnar eru
svo annaðhvort saumaðar saman eða
heklaðar.
Vegna rangrar myndbirtingar í síðustu
viku birtum við aftur þennan pistil og nú
með réttri mynd. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Heilsufræði heimilaima
Iðnú var að gefa út bók sem
heitir Heilsufræði heimilanna
og inniheldur sú ýmis hollráð
við algengum kvillum. Bókin
er ætluð sem uppflettirit og sem slík
auðveld til notkunar, efnisyfirlit gott og
ráðin öll þess eðlis að þau gagnast flest-
um. Til gamans koma hér nokkur ráð úr
bókinni.
Magaverkur:
• Reyndu sódavatn því það og aðrir
kaffínlausir drykkir draga úr melting-
artruflunum.
• Þú skalt drekka ávaxtasafa ef þú ert
með magaverki, uppköst eða niður-
gang. Avaxtasafi bætir upp kalíumtap
og önnur næringarefni sem líkaminn
missir.
• Pipar er þekkur fyrir að erta melting-
arfærin og þess vegna er rétt að prófa
að minnka piparinn eða sleppa hon-
um alveg. Osennilegt að hann hafi
nokkur áhrif ef einkennin lagast ekki.
• Drekktu að minnsta kosti 6 til 8
vatnsglös á dag til að hjálpa melting-
unni.
• Sumir fá magakveisu af eplum og
melónum. Taktu eftir þ\'í hvort þannig
er með þig. Ef svo er, skaltu sleppa
þessum ávöxtum.
• Reykingar eru einn af áhættuþáttum
magasárs. Tóbaksreykur er ertandi
fyrir meltingarfærin.