Dagur - 28.03.1998, Qupperneq 2
2 —LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
Dáypfír
FRÉTTIR
Pottasögurnar gerast nú
mergjaðar: Staðhæft er í
póltískum bakherbergjum
að bankaráð Búnaðarbank-
ans sé búið að gera starfs-
lokasamning við Stefán
Pálsson bankastjóra - sem
væntanlega hættir þá störf-
uin mjög bráðlega.
Stefán Pálsson.
Plottið innan Framsóknar
er að setja Guðmund
Bjamason í Búnaðarbank-
ann, en áður hafði verið í
farvatninu, og er enn hjá
sumum, að liann fari í
Seðlabankann. Líkur á því
hafa minnkað - vegna inn-
grips úr síður en svo
óvæntri átt (að því er Pott-
verjar segja). Það sem vegur þungt er að Stein-
grímur Hermannsson, sem lætur af störfum í
sumar, vilji endilega fá Helgu Jónsdóttur borgar-
ritara þangað sem eftirmaim sirni.
Guðmundur Bjarna-
son.
Gangi plottið upp er komið
að því að Valgerður Sverris-
dóttir geti fengið ráðherra-
stól og jafnvel Guðni
Ágústsson líka - en eins og
hinn þjóðfélagslega skyggni
pottur hefur áður skýrt frá
er talað um í fúlustu alvöru ... . „
Valgerður Sverr-
að fjolga raðherrum um tvo isdóttir.
fyrir hvem einn sem fer út.
Þessum safariku tómötuin er hér með kastað á
helgargrillið!
Færð á vegum
Fært er um alla helstu þjóðvegi landsins, en í öllum landshlutum er
hálka, hálkublettir og snjóþekja á heiðarvegum, og einnig mjög víða á
vegum með ströndinni, þó einna síst á suð-vestur og Vesturlandi.
Hvassviðri er undir Eyjafjöllum og á Mýrdalssandi er hætta á sandstormi.
Kettir fagna sigri og Sigríðuc Heiðberg formaður Kattavinafélagsins er kampakát -1 orðsins fyiistu merkingu.
Reykjavík
Akureyri
NV2 SSA1 ANA3 A3 ASA2
VSV3 A3 NA3 A3
VSV2 VSV3 NA3 NA3 ASA3
SV3 VNV3 ANA3 ANA3
Stykkishólmur
Egilsstaðir
VNV2 SA1 ANA4 ANA3 ASA2
SV4 ANA4 NA6 A4
Bolungarvík
V1 VNV2 NNV2 NNA3 NNA2
V2 V4 NA5 NNA4
Kirkjubæjarklaustur
VSV2 NNA1 ANA3 ANA3 ASA1
VSV2 NA3 NA4 ANA2
V1 VNV1 A3 ANA3 ANA2
VNV3 SSA1 ANA5 ANA4
Blönduós
Stórhöfði
VSV1 V1 NA2 ANA2 ASA1
SV2 N2 NA3 ANA2
VNV4 S3 A6 A5 A4
V5 ASAS ANA7 A6
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hveijum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Norðaustan
gola eða kaldi
en stinnings-
kaldi austan til.
Snjókoma á
Norðaustur-
landi, él á
Norðurlandi en
annars þurrt.
Réttlætid sigraði
MiMl hamingja á Katt-
holti eftir að kettir íiimu
erfðamál. Formaður
Kattavinafélagsins vonast
til að vegalausum kisum
verði sleppt við erfðafjár-
skatt.
Sigríður Heiðberg, formaður Katta-
vinafélags Islands, fagnar því mjög að
Hæstiréttur hafí snúið dómi undirrétt-
ar í erfðamáli, þar sem niðurstaðan er
sú að kettirnir á Kattholti sem og starf-
semi Kattavinafélagsins hljóta 14 millj-
ónir króna í arf frá aldraðri konu á
Blönduósi. Héraðsdómur Norðurlands
vestra hafi fyrr dæmt að lögerfingi,
systurdóttir konunnar, hlyti arfinn, en
skv. erfðaskrá ánafnaði konan eigum
sínum Kattavinafélagi Akureyrar eða
Kattavinafélagi Reykjavíkur. Hvorugt
félagið er til, en Hæstiréttur taldi
sannað að konan hefði viljað að kettir
á landinu nytu góðs af.
Mikil hamingja
„Það er mikil hamingja hjá köttunum
og mér. Eg er ánægð með að réttlætið
náði fram að ganga, enda sé ég fyrir
mér þessa gömlu konu og síðasta vilja
hennar. Hún hefur eflaust verið svolít-
ið öðruvísi en aðrir, við sem erum
svona mikið í kringum dýrin erum ekki
áíltaf eins og fólk er flest. Hún var að
hlynna að þessum dýrum og eins og
lögmaðurinh sagði, líf hennar fór að
öðlast tilgang," segir Sigríður.
Veit að hún er alsæl
Sigríður segir að það hafi ekki komið
henni á óvart að Hæstiréttur sneri
dóminum, en hefur hún ekkert sam-
viskubit gagnvart lögerfingja. „Nei en
ég hugsa hlýtt til hennar. Eg veit að
gamla konan, Elísabet Ragnheiður
Lárusdóttir er alsæl núna. Þetta er dá-
samlegt."
Næg verkefni framundan
Af nógu er að taka að sögn Sigríðar til
að ráðstafa fénu, enda hafi starfsemin
staðið höllum fætí. Húsið að Stangar-
hyl 2 liggi undir skemmdum og það
verði æ erfiðara að halda líknarstarfinu
áfram. En er ekki viðbúið að kettirnir
þurfi að að borga erfðafjárskattr „Ja,
það er spurningin. Eg vona að svo
verði ekki. Mér finnst erfitt að taka toll
af vegalausum dýrum. Þeir geta ekki
skrifað undir neitt, þannig að þetta
gæti orðið svolítið snúin staða... Nei,
það er enginn formaður hérna í katta-
hópnum heldur reyni ég bara að gera
mitt besta sem talsmaður þeirra," segir
Sigríður og kímir.
Var talin bláfátæk
Þess má að lokum geta að konan frá
Blönduósi bjó í afar fábrotnu húsnæði
og kom það flestum í opna skjöldu þeg-
ar vænar fúlgur fundust inni á reikn-
ingi hennar í KEA. Hún var af flestum
talin eignalaus. —BÞ
i
I