Dagur - 28.03.1998, Síða 6
ÞJÓÐMÁL
A
Utgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Adstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Sfmar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
Lausasöluverð:
Grænt númer:
Símbréf auglýsingadeildar:
Simar auglýsingadeildar:
Netfang auglýsingadeildar:
Símbréf ritstjórnar:
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
stefAn JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 600 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. Á MÁNUÐI
150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ
800 7080
460 6161
(REYKJAVÍK)563-1615 Ámundi Ámundason
(AKUREYR 1)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
omar@dagur.is
460 6171(AKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Að bjarga útgerðar-
möimiun frá sjálfum sér
I fyrsta lagi
Hinar pólitísku víddir sjómannadeilunnar birtast nú með enn
skýrari hætti en fyrr. Með því að taka afstöðu með sjómönnum
reynir ríkisstjórnin að forða útgerðarmönnum frá sjálfum sér -
frá því að lenda í harðvítugasta stéttastríði síðari áratuga.
Komi til þess stríðs mun sægreifaveldið ekki standast samein-
aða atlögu þeirra afla sem vilja það burt. Sjómenn fóru fyrst og
fremst í verkfall til að berjast gegn einu birtingarformi þess:
kvótabraskinu, sem er staðreynd, en lítill hluti af útgerð í land-
inu. Hefðu útgerðarmenn borið gæfu til að snúast gegn fáum
en slæmum tilvikum væri staðan öll önnur. Þess í stað kusu
þeir að fara með stál í stál. Utgerðarmenn eru ekki í neinni
stöðu til að fara í stríð og því verður ríkisstjórnin að hafa vit
fyrir þeim.
í öðm lagi
Lög á verkfall sjómanna eru í grundvallaratriðum röng. Póli-
tíska lausnin er hins vegar rétt frá sjónarhóli ríkisstjórnarinn-
ar. Hún metur stærri hagsmuni meira en smærri, bakar sér
óvinsældir útgerðarmanna sem þjóðin hefur litla samúð með,
en „bjargar“ um leið kerfinu sem hún trúir á fyrir horn - með
litlum stæl. Þessi pólitíska aðgerð er of sein, illa unnin og
prinsipplaus til að geta talist annað en örvæntingarfull, en
nauðsynleg neyðaraðgerð þegar allt er í óefni.
1 þriðja lagi
Við skulum ekki forsmá kveinstafi útgerðarmanna: auðvitað er
út í hött að keyra mikilsverðar breytingar á fiskveiðistjórnun-
arkerfinu í gegnum þingið sem skyndilausn fyrir helgi. Gagn-
vart sjómönnum og mismunandi útgerðum erum við að tala
um arðskiptingu af takmarkaðri auðlind. Ætla menn að leysa
deiluna um mjög afmarkað vandamál (kvótabrask) með því að
krukka í kerfi sem kallar á enn meira krukk og deilur innan
tíðar? Framganga ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar í deilunni er
í hvívetna ámælisverð, allt frá upphafi... til þess enda sem eng-
innsérfyrir. Stefán Jón Hafstein.
Þeir sem landið
munu erfa
„Hún elskaði þessi kvikindi og
við því var ekkert að segja,“
sagði sýslumaður Húnvetn-
inga fyrir dómi, þegar hann
var spurður hvort kona nokkur
hefði verið fær um að arfleiða
á skynsamlegan hátt. Kona
þessi arfleiddi Kattavinafélag
Akureyrar sem ekki var til að
nokkrum milljónum. Sem bet-
ur fer reyndist vera til katta-
vinafélag á landinu sem var til-
búið að taka við þessum aur-
um.
Whiskas í
hvert mál
Hinn djúpvitri sýslu-
maður benti líka
dómendum í máli ■
sem reis af ágrein- B
ingi um erfðaskrána,
á nístandi afstæði
þeirrar spurningarinnar um
það hvað sé skynsamlegt.
Sýslumaðurinn hefur áður
þurft að leggja fagurfræðilegt
mat á útisamkomur Stuð-
manna og komst þá að þeirri
niðurstöðu að þeir væru lista-
menn. Garri er þeirrar skoð-
unar að svona eigi sýslumenn
að vera; heimspekilega þenkj-
andi og þess meðvitaðir að
undirstöður allrar skynsem-
innar eru loðnar og teygjanleg-
ar.
Garri er líka mikill kattavin-
ur og gleðst í hjarta sínu yfir
því að nú geti umkomulausir
kettir fengið húsaskjól og
Whiskas í hvert mál. Kettir
virðast vera sú dýrategund að
manninum meðtöldum sem
þroskast hraðast í honum
heimi. Þannig áttu Akureyr-
ingar til skamms tíma stór-
listakött sem gott ef ekki bar
höfuð og hnakkadramb yfir
aðrar listaspírur bæjarins.
Köttur þessi sá að ekki var
búið við menningarlega fátækt
landsbyggðarinnar og stundar
nú listalífið í Reykjavík af
kappi.
Kettir og lífs-
leikiiiii
Kannski verður þessi óvænti
arfur til þess að Kattavinafélag
Islands veitir í fyrsta
sinn listakattalaun
og telur Garri að
slíkt mætti verða til
þess að auðga
menningu þjóðar-
innar. Friðrik mikli
sagði einhvern tím-
ann að eftir því sem
hann kynntist
mönnunum betur,
þess betur kynni hann við
hundinn sinn. Garri tekur
undir þetta, en kýs ketti frem-
ur en hunda.
Nýjasta tískan í uppeldi og
menntun þjóðarinnar er lífs-
leikni sem Björn Bjarnason
ætlar að kenna þjóðinni. I
þeirri list eru fáir færari en
kettirnir, einkum þó þeir sem
ekki hafa verið geltir af eig-
endum sínum. Garra finnst
það ráð að menntamálaráðu-
neytið hefji þegar viðræður við
Kattavinafélag Islands um
skipulag slíkrar þjálfunar fyrir
þjóðina. Þannig vaknar með
Garra sú von að þjóðin megi í
nánustu framtíð mala sæl og
ánægð, hvað sem allri skyn-
semi líður.
~rm. f f 1 JÓHANNES SIGURJÓNS- SON skrifar
Venslatengsl geta verið mikið pró-
blem. A Húsavík hefur nýlega
verið lögð fram stjórnsýslukæra
vegna meints vanhæfis tveggja
nefndarmanna við lóðaúthlutun.
Oðrum nefndarmanninum er
fundið það til foráttu að vera svili
eins umsækjanda (sem hann
reyndar studdi ekki) og einnig
systursonur manns sem hefur
viðskiptatengsl við fyrirtækið sem
nefndarmaðurinn studdi við lóða-
veitinguna. Þarna voru sem sé
bæði ættar- og hagsmunatengsl
hugsanlega á ferðinni. Hinn
nefndarlimurinn var svo óhepp-
inn að vera þremenningur við þá
umsækjendur sem Ióðina fengu,
þannig að möguleiki var á að ætt-
ingjagæska réði afstöðu manns-
ins í málinu.
Dulin ættartengsl
Að vera eða ekki vera hæfur, það
er sem sé spurningin.
Þetta. er auðvitað ekki stórkost-
legt vandamál úti í hinum stóra
Vanhæfisvaiidi og
venslatengsl
heimi. En þetta er stöðugt vanda-
mál á Islandi, ekki sfst í smærri
samfélögum, þar sem allir þekkja
alla, flestir eru tengdir innbyrðis
á einn eða annan hátt, í gegnum
skyldleika, pólitík, atvinnu,
mægðir, o.s.frv'.
I smærri samfélögum er það
regla en ekki undantekning að
einhver tengsl séu til staðar á
milli þeirra sem stjórna
sveitarfélögum og taka
ákvarðanir og þeirra sem
ákvarðanirnar bitna. Og oft
eru þessi tengsl dulin, þó
ýmsir viti nú ýmsilegt.
Þegar allir eru skyldir
öllum
„Hver er ekki skyldur hverjum í
þessu sveitarfélagi og sumir jafn-
vel skyldari ýmsum en margan
grunar." Sagði ágætur sveitar-
stjórnarmaður eitt sinn í umræð-
um um vanhæfi. Oopinber tengsl
sem allir vita um eru oft meiri og
sterkari en hin opinberu sem hið
opinbera veit um og byggir
ákvarðanir sínar á.
Þannig getur sveitarstjórnar-
maður verið dæmdur vanhæfur í
tilteknu máli, þar sem náfrændi
hans kemur við sögu, en hæfur til
að taka ákvörðun í máli hálfbróð-
ur síns. Munurinn aðeins sá að
tengslin við frændann eru opin-
ber, en ekki við hálfbróðurinn, þó
allir í plássinu viti um þessi
nánu tengsl.
Nefndarmeim í DNA
Verður farið að krefjast
þess að tekin séu DNA sýni
úr sveitarstjómarmönnum
og t.d. Ióðaumsækjendum,
til að fá meintan skyldleika á
hreint? Verða gamlar falleraðar
konur að mæta fyrir rétt og bijó-
ta áratuga þegjandi samkomulag
um að minnast ekki á gamalt ást-
arævintýri og framhjátöku í
hjónabandi? Þurfa þær að standa
fyrir framan dómara og benda
skjálfandi fingri á miðaldra
nefndarmann og segja: „Faðir
hans er ekki faðir hans, heldur
annar.“
Frændum verstir
Raunar er það svo að það er
hugsanavilla fólgin í því að dæma
vanhæfi út frá ættartengslum og
ganga út frá því sem vísu að flest-
ir séu hallir undir nepótisma.
Frændur eru oft frændum verstir.
Og menn eru misjafnlega ætt-
ræknir. Og nefndarmenn eru oft-
ar en ekki betur í stakk búnir en
óskyldir til að taka úpplýstar
ákvarðanir um málefni sem sner-
ta nána ættingja sína, því þeir vita
betur en aðrir hvílíka drullusokka
eða sómamenn við er að eiga.
Svo er alveg hugsanlegt að reik-
na með þeim möguleika að menn
sem veljast til trúnaðarstarfa séu
traustsins verðir. En sjálfsagt er
til of mikils ætlast að fólk leggi al-
mennt trúnað á slík firn á þessari
rorrandi laxveiðiöld.
spurpái
svarad
Heldur þú að Fríðrík
Sophusson sé á leið úr
ríkisstjóm?
ísólfur Gylfi Pálmason
þingmaður Framsóknaiflokks.
„Já, ég hef
trú á því.
Veður- og
garnaspá-
maður í
mínu kjör-
dæmi, Suð-
urlandi,
hvíslaði að
mér á dög-
unum að hann muni fara frá fyr-
ir miðjan apríl. Að sjálfsögðu tek
ég mark á mínum mönnum í
kjördæminu."
Krtstján Pálsson
þitigmaður Sjálfstæðisflokks.
„Það er búið
að tala lengi
um að Frið-
rik sé á leið
út úr ríkis-
stjórn. Sjald-
an lýgur al-
mannaróm-
ur, segir mál-
tækið - og
eftir því sem ég best veit hefur
Friðrik gefið í skyn að hann sé að
hætta, en ég hef reyndar enga
staðfestingu fengið frá honum
né Davíð Oddssyni um þetta. En
verði þetta raunin mun ég sakna
Friðriks því hann hefur reynst
farsæll og ráðagóður stjórnmála-
maður. Alltaf slæmt að missa
menn með slíka eiginleika - sem
Friðrik hefur - en væntanlega
mun þjóðin fá að njóta þeirra þó
á öðrum vettvangi sé.“
Svavar Gestsson
þingmaðurAlþýðubandalags.
„Já, það held
ég. Hinsveg-
ar held ég að
það liggi ekki
fyrir hvað
hann muni
fara að gera
þegar hann
fer héðan úr
þinginu.“
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir
þingmaður jafnaðarmanna.
„Lengi hefur
allt bent til
þess að Frið-
rik muni
hætta á
þessu þingi.
LítiII fugl
hvíslaði að
mér dagsetn-
ingunni 10.
apríl - sem er reyndar föstudag-
urinn langi en ekki uppstigning-
ardagur svo ég veit ekki hvort
fuglinn fer með fleipur. En það
er hinsvegar ekkert fuglafleipur
að Friðrik er kominn með full líf-
eyrisréttindi og er á leiðinni út,
sem sannast mun á næstu dög-
um eða vikum.“