Dagur - 01.04.1998, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1998 - 19
Ifc^ur
LÍFIÐ í LANDINU
Það er ekki sjálfgefid að ró og friður ríki í kennsiustund. Ýmsar aðferðir eru tiitækar til að skapa það vinnuandrúmsioft sem er forsenda árangursriks skóiastarfs. myndir: bös.
Að halda ró í bekk
Oftfermikill tími og
orka í það eitt að skapa
þau skilyrði í kennslu-
stofu að vinnufriður
ríki. Kennaranemar á
Akureyrí rannsökuðu
skilyrði þess að ró og
fríðurríki í kennslu-
stundum.
Á dögunum var haldin málstofa
á vegum kennaradeildar Háskól-
ans á Akureyri þar sem fjallað
var um bekkjarstjórnun. Það
voru kennaranemar á þriðja ári
undir stjórn kennara síns Ingólfs
Á. Jóhannessonar lektors sem
stóðu fyrir þessu málþingi og var
það opið starfandi kennurum,
fagfólki og öðrum þeim sem
áhuga höfðu á efninu.
„Við gengum út frá því þegar
við völdum þetta verkefni að
finna okkur eitthvert verkefni
sem myndi nýtast okkur beint
sem verðandi kennarar, segir
Sólveig K. Magnúsdótttir einn
nemanna sem stóðu að þessu
málþingi. „Þess vegna völdum
við bekkjarstjórnun, fremur en
að fást við aga eins og hann snýr
að öllum skólanum. Við skoðuð-
um hvaða þætti við gætum und-
irbúið, til þess að skapa grund-
völl fyrir árangursríkt starf í
skólastofunni.11
Vinnuff iöur er ekki
sjálfgefum
Bryndís Snæbjörnsdóttir skóla-
systir Sólveigar segir hópinn
hafa unnið þetta í sameiningu,
þannig að einn hópur flutti stutt
erindi um efnið meðan aðrir sáu
um að stýra umræðunni. „Við
skoðuðum fyrst hlutverk kenn-
arans, svo skoðuðum við hvernig
tíminn nýtist í kennslustofunni
og þvínæst vorum við með
fræðilegan fyrirlestur um bekkj-
arstjórnun."
„Það er ekki sjálfgefið að það
sé vinnufriður í bekk og þess
vegna vildum við skoða þetta
sérstaklega," bætir Sólveig við.
„Það kom líka í ljós þegar við
fórum að skoða rannsóknir um
þetta, að þar sem bekkjarstjórn-
un var í góðu lagi var í rauninni
ekki brugðist öðruvísi við vanda-
málum sem upp komu, heldur
komu slík vandamál sjaldnar
uPP-“
Hvada þættir reyndust hafa
mest að segja um stjómun
hekkja?
„Það kom í ljós að það sem
hefur mest áhrif á það hvernig
til tekst með stjórnun bekkjar er
upphaf. og endir kennslustund-
ar,“ segir Sólveig. „Það að skipu-
leggja þessa þætti getur skipt
sköpum um það hvemig gengur
að halda góðum vinnuanda í
kennslustofunni. Þetta er hægt
að gera til dæmis með því að
vera búinn að skrifa fyrirmæli á
töfluna og að úthluta verkefnum
til nemenda í byrjun kennslu-
stundar, hugsanlega bara fyrstu
fjórar mínúturnar, meðan verið
er að undirbúa það verk sem á
að fara að vinna í kennslustof-
unni. Þannig að það skapist ekki
dauður tími sem býður upp á
óróleika."
Kennari hafi húmor
„Einfalt atriði, eins og að kenn-
ari sé kominn inn í kennslustof-
una á undan bekknum. Svona
atriði sem í fljótu bragði virðast
ekki skipta mildu hafa ótrúlega
mikið að. segja,“ segir Bryn.dís.
Nú heyrir maður oft þumal-
puttareglur eins og kennari eigi
að vera strangur í wpphafi og
megi siðan slaka á þegar líður á
veturinn. Sumir segja að kennar-
ar eigi ekki að brosa fram að jól-
um.
„Einn af þeim punktum sem
við komum inn á er nauðsyn
þess að kennari hafi húmor og
það að vera grafalvarlegur fram
að áramótum er ekki rétta leiðin
til að ná árangri. Ég held að
þetta sé einhver goðsögn," segir
Bryndís og bætið því við að ógn
eða ótti séu ekki góð stjórntæki,
heldur sé mikilvægt að nemend-
urnir skynji ákveðið öryggi.
Sólveig tekur í sama streng
og segir það ekki vænlegt fyrir
kennara að búa til mynd af sjálf-
um sér sem hann haldi ekki út
til lengdar. „Strax frá upphafi er
æskilegt að nemendur taki þátt
eða séu kynntar þær reglur sem
gilda og viðurlögin við þeim.
Grundvallaratriðið er að kennar-
inn sé samkvæmur sjálfum sér,
þannig að sama gildi í dag og á
morgun. Beglurnar þurfa að
vera fáar og einfaldar, þannig að
þeim sé fylgt.“
Ekki sama hvemig stofan er
yfirgefiii
Bryndís segir að ramminn verði
að vera aðgengilegur, þannig að
börnin fái skýr skilaboð um það
hvernig ganga eigi um og hvern-
ig eigi að hegða sér.
Lok kennshistundar skiptir
líka máli samkvæmt athugun
ykkar. Hvemig endar maður
kennslustundina?
„Þegar kemur að lokum
kennslustundar er gott að láta
nemendur vita að nú fari að líða
að lokum kennslustundarinnar,"
segir Sólveig. „Það er líka mikil-
vægt að gefa sér tíma í Iokin til
að draga saman það sem gert var
í kennslustundinni og svo að
kennslustofan sé yfirgefin með
einhverjum ákveðnum hætti,
t.d. þannig að yngri börnin
standi fyrir aftan stólana sína.“
„Það kemur í ljós að atriði
sem manni finnst að eigi
kannski ekki að skipta máli eins
og t.d. lágmarks samstuð \að
húsgögn eða aðra nemendur
skipta í raun mildu um það
hvort ró haldist í kennslustof-
unni,“ segir Bryndís.
Þær segja að hópurinn hafi
verið búinn að fara vel í gegnum
fræðilega hlið málanna, en til-
gangur málstofunnar hafi verið
að fá tækifæri til að ræða við þá
sem reynslu hafa af stjórnun í
bekk. „Við Iögðum til fræðilegu
vinnuna og fengum til baka við-
brögð frá þeim sem reynsluna
hafa af vettvangi. Þessi umræða
var því mjög gagnleg fyrir báða
aðila,“ segja þær Bryndís og Sól-
veig að lokum. HH