Dagur - 01.04.1998, Qupperneq 5

Dagur - 01.04.1998, Qupperneq 5
Tfc^ur MIDVIKUDAGUR l.APRÍL 1998 - 21 LÍFIÐ í LANDINU í dag, miðvikudaginn 1. apríl, hefurnýr fréttavefur göngu sína. Þar er áferðinni frétta-, skemmti- og þjónustuvefurínn Vísirmeð þátttöku Dags, DV og Viðskipta- blaðsins. Fréttir úr Degi eru á veftium Ásgeir Friðgeirsson, forstöðumaður Nýmiðiunar Frjálsrar fjölmiðlunar, með Dagsefni á skjánum hjá sér. Efni úr Degi hefur verið gert hjá Visi í tilraunaskyni í tvær vikur. Nú er búið að opna vefinn og allir geta skoðað. mynd: e.ól. „Vísir er sjálfstæður miðill í eigu Fijálsrar fjölmiðlunar. Hann er samsettur af 16 vefum og þeim mun fara ört fjölgandi, þar á meðal eru Dagur, DV, Viðskiptablaðið og Skíma. Þetta er í raun og veru heimur út af fyrir sig sem við erum að bjóða upp á og notum meðal annars fréttir; al- mennar fréttir, íþróttafréttir og við- skiptafréttir; til að draga fólk að. A þró- unartímanum höfum við verið að renna 100-120 fréttum og frásögnum í gegn- um vefinn á degi' hverjum," segir Ásgeir Friðgeirsson, forstöðumaður Nýmiðlun- ar Frjálsrar Qölmiðlunar. Tilraunir í tvær viktir Undirbúningur að Vísisvefnum hefur staðið í nærri heilt ár. Asgeir hefur sem forstöðumaður Nýmiðlunarinnar staðið fyrir uppbyggingu á vefnum og segir hann að til að hyrja með hafi fyrst og fremst verið reynt að skilgreina hvað stæði til að gera. Síðan hafi undirbún- ingur hafist fyrir um það bil sex mánuð- um, meðal annars með forritun á þeim tækjum og tólum sem þarf til að reka vefinn. Tilraunir með vefinn hafa staðið yfir í marga mánuði en vefurinn hefur verið keyrður í endanlegri mynd undanfarnar tvær vikur til að þjálfa starfsfólkið. A þeim tíma hafa starfsmenn Vísis prófað innsetningu á efni, fyrstu og fremst stöðugum fréttum allan sólarhring- inn, í samvinnu við Dag, DV og viðskitpa- um besta myndatextann þar sem menn geta sett inn sinn eigin myndatexta við mynd á vefnum. Gagnvirkir möguleikar eru ýmsir, til að mynda verður hægt að draga saman efni í p! f í 3 a a i íjj tarvW «Am4 Hm- *♦*■»». 0« í Qj ti ^ 1 ** •♦«*'** *W» mmmmmmmme 19 //ww.«•»» visir NYR HCIMUR A NETINU N Á LEIÐ TIL ÍSLANDS? netferölr Alltum KOSNINOAR FHlTT f BfÓ blaðið og verið að ná inn um 120 fréttum á sólarhring. A Vísi má finna fréttir og skiptast á skoð- unum um ýmis málefni. Þar verða fréttir, viðskipti og útvarpað viðskiptaþættinum af Bylgjunni, íþróttir, veður, færð og sjólag, bílavefur, smáauglýsingavefur og jafnvel netferðir í samvinnu við Samvinnuferðir- Landsýn. Getraunir og leikir verða á vefnum og verður til dæmis hægt að taka þátt í leik Á Visi er hægt að fletta upp fréttum, viðskiptafréttum eða íþróttum. Einnig má skoða smáauglýsingar og jafnvel taka þátt í getraunum eða leikjum. brennidepla og meðal annars notað þar efni úr gagnabanka. Þarna er skoðanavefur, þar sem fólk er hvatt til umræðna, og svo verður dagbók þar sem greint er frá öllu því mark- verðasta sem er að gerast. fréttir og skemmtiefni. Þessi gagnvirki miðill mun bjóða upp á alls konar þjónustu, sölu á varningi, ferðum og svo framvegis. Hann mun miðla fjölmörgu," segir Asgeir og riljar upp að á árdögum íslenskrar útgáfu hafi ritstjórar blaða fengið bréf frá konum austur í sveitum sem báðu þá að útvega sér nálar og senda með blaðinu. „Við erum í rauninni aftur komin á þennan punkt. Með upplýsingum, skemmtiefni og leikjum og ýmsu öðru getum við auk þess þjónustað fólk með svo margt. Eg segi ekki að viö opnum nál- arvef en það er augljóst og liggur beint við að stærsta bókaverslun veraldar er á vefn- um og geisladiskar eru á leið þama inn þannig að það liggur beint við að þjónusta af því tagi. Við getum litið á þetta sem eins konar Kringlu á vefnurn,11 útskýrir hann. visir.is Ásgeir bendir á að ættfræðivefur verði inni á Vísi og svo sé kosningavef ‘98 að finna inni á Vísi. Hann verði styrktur enn frekar með þátttöku Dags. Þar verði fjallað um sveitarstjórnarkosningarnar, framboðslistar kynntir og svo megi búast við nánari umfjöllun þegar nær dregur kosningum. Ritstjórn Vísis sé sjálfstæð. Fréttavefur Vísis sé samlag Dags, DV, Við- skiptablaðsins og ritstjórnar Vísis. Iþrótta- vefurinn sé hins vegar í höndum iþrótta- deildar DV og viðskiptavefurinn í höndum Ný Kringla á vefnum „Við lítum svo á að þessi miðill verði mikil- vægasti aðgangur almennings að fréttum líð- andi stundar. Eg held að hugtakið Ijölmiðill komi til með að breytast. Eg held að við mun- um miðla mörgu öðru en því sem Ijölmiðlar dagsins í dag hafa einskorðað sig við sem er ritstjórnar Viðskiptablaðsins. Vísir sé frekar samræmingar- og samhæfingaraðili, sem haldi utan „um allan skrokkinn". Slagorðið er Nýr heimur á netinu og markmiðið er að Vísir verði mest heimsótti vefur á íslandi frá fyrsta degi. Til að komast inn á Vísi þarf að slá inn slóðina http://www.visir.is Eða eins og segir í auglýsingu: Ekki fara á mis við Vísi punktur is. Leikfélag Akureyrar Söngvaseiður The Sound of Music eftir Richard Rodgers og Oscar Hanunerstein II, sýn. föst. 3. aprílkl. 20.30 UPPSELT sýn. laug. 4. aprfl kl. 20.30 UPPSELT sýn.sunn. S.aprílkl. 16.00 UPPSELT sýn. skírd. 9. aprilkl. 20.30 UPPSELT sýn.laug. ll.aprflkl. 14.00 UPPSELT sýn. laug. 11. aprflkl. 20.30 UPPSELT sýn. 2.ípáskumkl. 16.00 UPPSELT sýn.föst. 17. aprflkl. 20.30 UPPSELT sýn. laug. 18. aprílkl. 20.30 UPPSELT sýn.sunn. 19.aprilkl. 16.00 UPPSELT sýn. flmmt. 23.aprílkl. 20.30 laus sæti sýn. föst. 24. aprfl kl. 20.30 sýn. laug. 25. aprfl kl. 20.30 sýn. smm. 26. aprflkl. 16.00 Sýningar fram í júní Markúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal. á Rcnniverkstæðinu. Lýsing: Ingvar Bjömsson. Leikmynd: Manfred Lemke. Leikstjóm: Trausti Ölafsson. Forsýning 8. aprflkl. 20.30, Frums. föstudáginn langa kl. 16.00 hátíðarsýn. 2. ipáskum kl. 20.30 í tilefni af 30 ára leikafmæli Aðalsteins Bergdal. Kona einsömul eftir Dario Fo. í Deiglunni. Leiklestur Guðbjargar Tlioroddscn skírdag 9. aprfl kl. 17.00, 2.ípáskumkl. 20.00 iniðavcrð kr. 800,- Landsbanki íslauds veitir handhöfum gull-dcbctkoria 25% afslátt. Miðasalan er opin þriðjud.-finimlud. kl. 13-17, föstud.-suiuiud. fram að sýningu. Simsvari allan sólarliringinn. Munið pakkaferöirnar. Slmi 462 1400 er styrktaraöili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.