Dagur - 02.04.1998, Qupperneq 3

Dagur - 02.04.1998, Qupperneq 3
X^MT' FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1998 - 3 FRÉTTIR Saka bæj aryfir- vðld um lögbrot Bæjarfulltrúarnir Tryggvi Harðarson, Lúðvík Geirsson, ingvar Viktorsson bæjarstjóri og Árni Hjörteifsson eru tæplega að ræða bréf endurskoðenda Hafnarfjarðar því þá væri þeim ekki svona skemmt. - mynd: pjetur Endui'skoðendiir Uafnarfj arðarbæj ar segjast hafa verið leyndir gögnum. Fjár- málastjóri bæjarins stimplaði bæjará- byrgð án heimildar. Bærinn leigði örsmáa kjallarabolu á 70 þús- und á mánuði. Reynt að þröngva Leikfélagi Hafnarfjarðar inn í Strandgötu 30. „Það er Ijóst að ekki var lögform- lega staðið að bæjarábyrgðinni, enda getur ýmislegt misfarist án þess að um stórglæp sé að ræða. Eg þarf að kynna mér bréf end- urskoðendanna betur og fá svör, því ég sé ekki betur en að þeir fari í ýmsu langt út fyrir sitt verk- svið. Auðvitað er það alvarlegt ef einhverjum gögnum er haldið leyndum, en jafn Ijóst er að það er ekki í verkahring endurskoð- enda að segja bæjarstjórn fyrir verkum," segir Tryggvi Harðar- son, bæjarfulltrúi Alþýðuflokks- ins. Bæjarendurskoðandi og yfir- skoðunarmenn bæjarreikninga í Hafnarfirði hafa sent frá sér bréf vegna málefna Strandgötu 30 (Hafnarfjarðarbíó), en þar koma fram alvarlegar athugasemdir og ásakanir um að sveitarstjórnar- lög hafi verið brotin og þeir verið vísvitandi leyndir ýmsum gögn- um um málið. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að fjármálastjóri Hafnar- fjarðarbæjar hafi veitt heimildar- Iausa bæjarábyrgð upp á um 12 milljónir króna vegna fasteignar- innar og enn fremur að fast- eignagjaldaskuld hafi verið jöfn- uð með leigu bæjarins á örsmárri kjallarakompu í húsinu fyrir 70 þúsund krónur á mánuði. Þá kemur fram að svo virðist sem bæjaryfirvöld séu að reyna að Ieysa málið að hluta með því að knýja Leikfélag Hafnarfjarðar (LH) til að taka húsnæðið til notkunar, en á því hefur LH afar takmarkaðan áhuga. Fj ármálastj óri gaf bæj ará- byrgð án heimildar Bréf endurskoðendanna er svar við fyrirspurnum frá bæjarfull- trúunum Magnúsi Jóni Arnasyni og Lúðvík Geirssyni og var rætt á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju- dagskvöld. I bréfinu segir meðal annars: „Það er augljóst að vís- vitandi höfum við verið leyndir ýmsum gögnum er lúta að þessu máli. Ekki verður hér neinn dómur á það lagður hvers vegna sá kostur var valinn, en við lítum slíkt háttalag mjög alvarlegum augum og teljum reyndar það forsendu vinnu okkar að farið sé eftir 86. grein sveitarstjórnar- laga...“ Þeir telja augljóst að þau lög hafi verið brotin. Endurskoðendurnir telja, eins og reyndar hefur verið viður- kennt af bæjarstjórn, að stimpill fjármálastjóra um bæjarábyrgð á skuldabréfum vegna fasteignar- innar hafi ekkert gildi, þar sem ekkert slíkt hafi verið samþykkt af bæjarstjórn. Sameinaði lífeyr- issjóðurinn og Lífeyrissjóður Austurlands eiga bréfin og hefur lögfræðingur þeirra hótað mála- ferlum gegn bænum. Kjallarakompa á 70 þúsimd á mánuði Endurskoðendurnir eru sérlega harðorðir vegna afturköllunar á uppboðsbeiðni vegna vanskila fasteignagjalda og samnings milli bæjarins og eigenda fast- eignarinnar, Þorvalds Asgeirs- sonar og Viðars Halldórssonar, um að jafna þá skuld með leigu bæjarins á kjallara í húsinu. Kjallarinn er aðeins 25 fermetrar og Iofthæð aðeins á bilinu 1 metri til 1,90 og er ígildi leig- unnar þó 70 þúsund krónur á mánuði. „Útilokað er að fallast á að slík leiga geti talist eðlileg," segja endurskoðendurnir. — FÞG Kristján Pálsson, alþingismaður. Góð hugmynd „Mér finnst hugmyndin um að gera Suðurnes og Suðurland að einu kjördæmi skemmtileg. Þarna væru komin landsvæði inn í eitt kjördæmi sem eiga margt sameiginlegt. Suðurnesin eru eitt sterkasta útgerðarsvæði landsins og væru þá komin með Þorlákshöfn og Vestmannaeyj- um. Þarna væri komin sterk heild. Þar að auki væri kjör- dæmið með eitt öflugasta Iand- búnaðarhérað landsins innan síns svæðis. Suðurnes og Suður- land myndu styrkja hvort annað mjög,“ sagði Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurnesjum, um hugmyndir kjördæmanefndar um fækkun og stækkun kjördæma. Hann bendir á að ef þarna verður gert kjördæmi yrði að leggja svokallaðan Suðurstrand- arveg, sem tengir Suðurnes og Suðurland. Hann myndi liggja frá Sandgerði og áfram með ströndinni f gegnum Olfus að þjóðvegi númer 1 á Selfossi. - S.DÓR Miliíir hagsmunir í húfi fyrir laudsmeim Gagnagnumsfnun- varp heilbrigðisráð- herra veldur lækiium áhyggjum og Tölvu- nefnd hefur tekið það til skoðunar. Stjórn Siðfræðiráðs Læknafé- lagsins hefur tekið hið nýja frumvarp heilbrigðisráðherra um gagnagrunn á heilbrigðissviði til umljöllunar og stjórn Læknafé- lagsins býst við að gera verulegar athugasemdir við það innan skamms. Fyrir Tölvunefnd kom frumvarpið líka eins og þruma úr heiðskíru lofti. Framkvæmda- stjóri nefndarinnar, Sigrún Jón- asdóttir, segir að hún hafi ekki séð frumvarpið fyrr en í gær, eins og það var kynnt fréttamönnum. Nefndarmenn muni nú skoða það hver fyrir sig og nefndin síð- an væntanlega gefa út álit eftir næsta fund sinn. Vítavert að keyra þetta í gegn „Það er lágmarkskrafa að Alþingi leyfi almenna umfjöllun um þetta. Það væri í rauninni víta- vert ef það á að keyra frumvarp- ið í gegn á þeim örfáum vikum Siðfræðiráð lækna er afar ósátt við frumvarp Ingibjargar Páimadóttur heil- brigðisráðherra um gagnagrunn með upplýsingum um heilsufar iandsmanna. fyrir þinglok í vor,“ sagði Svein- björn Sveinsson, læknir. „Okkur finnst þetta mál svo mikilvægt og þess eðlis að það varði alla landsmenn. Það snýst um það, að upplýsingum um hvern einasta mann, sem hefur samband við heilbrigðisþjónust- una með einhveijum hætti, sé safnað í persónutengdan grunn. Það hlýtur því að vera lýðræðis- leg krafa að þetta fari í ítarlega umræðu í þjóðfélaginu. Eg er þess vegna fylgjandi því að m.a. læknar, lögfræðingar, heim- spekingar og siðfræðingar taki þetta sérstaklega til umfjöllunar, samhliða meðförum Alþingis, en ekki á eftir." Tal um „ruglaðan“ gruiui ekkirétt Þótt talað sé um „ruglaðan" grunn segir Sveinbjörn það ein- faldlega ekki rétt. „Samkvæmt 3. gr. frumvarpsins er heilbrigðis- ráðherra heimilað að safna svona upplýsingum í persónutengdan grunn sem verður í vörslu land- læknis. Hann getur síðan látið af hendi „ruglaðar" upplýsingar til þriðja aðila. Þær upplýsingar eiga þó ekki að vera betur tryggð- ar en svo, að það er fullnægjandi að þær séu ruglaðar með þeim hætti að það þurfi mikinn mann- afla og fé til að afrugla þær, sbr. skilgreiningu á persónuleyndinni í skilgreiningu á hugtökum í upphafi frumvarpsins. Þar með hljóta að vera mörg siðfræðileg og lagaleg efni sem koma upp,“ sagði Sveinbjöm. Ef Islendingar reynast tilbúnir að taka þátt í þessu þá ráði lækn- ar ekki við það. „En eins og sak- ir standa er ekki hægt að láta neitt af hendi til þess arna nema að sjúklingurinn fari fram á það við mig að ég geri það,“ sagði Sveinbjörn. — HEI Viðræður við Norðmeim Knut Vollebæk utanríkisráðherra Noregs kom til landsins í gær í þriggja daga opin- bera heimsókn. Hann og Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra hafa náð samkomu- lagi um sérstakan málefnaramma sem á að vera forsenda frekari viðræðna um fisk- veiðideilur þjóðanna. Halldór segir tíma- bært að Islendingar og Norðmenn ræði saman á ný og fiskveiðideilan verði aðeins leyst í samvinnu ríkjanna þriggja, Rússa, ís- lendinga og Norðmanna. Hann vill ekki greina nánar frá því hvað felist í samkomu- laginu um málefnarammann. VoIIebæk á fund með utanríkismálanefnd Alþingis í dag. Knut Vollebæk utanríkisráð- herra Noregs og Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra. Útboðsgögn rifin út Gríðarlegur ánugi reyndist á hlutabréfum ríkisins í Islenska járn- blendifélaginu en þar hófst sala í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem al- menningi og fjárfestum gefst kostur á að kaupa hlut í íslensku stór- iðjufyrirtæki og voru útboðsgögn rifin út, skv. fréttum Stöðvar 2. Nafnverð hlutaQárins er 374,4 milljónir, 26,5% af hluta ríkisins og standa almenningi til boða 60% en stofnunarfjárfestum 40%. Sala bréfanna er fyrsta stóra skrefið í einkavæðingaráformum ríkisins. Framsóknarmenn í Mosó tilbúnir Uppstillingarnefnd framsóknarmanna í Mosfellsbæ hefur kynnt til- lögu sína að lista flokksins vegna bæjarstjórnarkosninga í vor. Tillag- an var einróma samþykkt og átta efstu sætin skipa; 1. Þröstur Karls- son bæjarfulltrúi, 2. Helga Thoroddsen bæjarfulltrúi, 3. Björgvin Njáll Ingólfsson verkfræðingur, 4. Ævar Sigdórsson bifreiðastjóri, 5. Halla Karen Kristjánsdóttir, 6. dr. Eyjólfur Árni Rafnsson verkfræð- ingur, 7. Sigríður Sigurðardóttir skrifstofurmaður, 8. Elín Gróa Karls- dóttir bankamaður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.