Dagur - 02.04.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 02.04.1998, Blaðsíða 5
Xfc^Hr FIMMTUDAGUR 2.APRÍL 1998 - 5 FRÉTTIR i. Helmingur íslenskra hrossa hefur sýkst Hestarnir hans Ármanns Sigurðssonar hafa eins og önnur norðlensk hross sloppið við hrossasáttina alræmdu og vonandi skemmir hun ekki fyrir hestamönnum /ands- mótið a Akureyri í sumar. mynd: bös Landsmót verður haldið, en í skugga hrossasóttarinnar. Aðstandendur segja stórskaðlega umræðu hafa farið fram. „Það má vel vera að landsmót hestamanna á Melgerðismelum verði haldið í einhverjum skugga þessarar veiki og eflaust hefur sóttin einhver áhrif á aðsókn. Við teljum samt nauðsynlegt að takast á \að þetta og senda þau skilaboð til útlanda að hér sé ekki um mjög alvarlegan sjúk- dóm að ræða,“ segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir og sér- fræðingur í hrossasjúkdómum, á Hólum. Veðurfar hefur áhrif I fyrrakvöld var ákveðið á fundi hestamanna á Akureyri að stefna að landsmóti, að áeggjan yfir- dýralæknis. Enn gildir bann við hrossaflutningum en með sumr- inu, e.t.v. aðeins nokkrum dög- um fyrir mótið, er stefnt að því að opna Iandamærin. „Það er ljóst að veðurfarið hefur mikil áhrif á hestana og veikin mun ekki verða illvíg yfir sumartím- ann,“ segir Sigríður. Landsmótið hefst 8. júlí og hafa forráðamenn búist við metaðsókn. 40.000 hxoss sýkst? Þrátt fyrir að sóttin hafi fyrst greinst 9. febrúar hefur veiran ekki verið greind, en Sigríður segir að aukinn kraftur verði enn settur í veirurannsóknir enda sé ákaflega mikið í húfi að veiran greinist. Talið er að 30-40.000 hross hafi sýkst, sem nemur um 50% allra hrossa á Iandinu. Stað- fest er að veikin hefur komið upp í Reykjavík og nágrenni, Arnes- sýslu og Rangárvallasýslu og leikur grunur á að veiran hafi numið land á bæ nálægt Akra- nesi. En er ekki spá manna að sótt- in fari yfir allt landið? „Jú, ég held að við verðum að sætta okk- ur við að fyrr eða síðar geri hún það og þess vegna erum við að reyna að stjórna tímasetning- unni,“ segir Sigríður. Stórskaðleg imiræða Sigfús Helgason, sem stjórnar undirbúningi landsmótsins, seg- ist mjög ánægður með að ákveð- ið hafi verið að halda að settu marki. Fullur stuðningur sé við störf yfirvalda en vissulega sé brýnt að fá greiningu sem fyrst. „Við höfum fundið fyrir ótta hjá útlendingum enda hefur umræð- an verið hreint með ólíkindum. Fréttir frá Þýskalandi hafa hermt að hér séu hross að drepast í þúsundatali. Það er umræðan sem er að skaða okkur en ekki það sem er að gerast í raun,“ seg- ir Sigfús. I ályktun fundarins er minnt á að íslenski hesturinn sé sá hraustasti í heimi en opinber- ir aðilar eru hvattir til að taka höndum saman við fram- kvæmdastjórn landsmótsins og hrinda af stað öflugu kynningar- starfi heima sem utan Iandstein- anna til að kveða niður ranghug- myndir. —BÞ Kolbeinn Kristinsson, framkvæmdastjóri Myiiunnar: „Yfirlýsingin sýnir alls ekki að við höfum búist við því að úrskurð- ur Samkeppnisráðs yrði með þessum hætti." Samsölu bakarí var tryggt Samkeppnisstofnun hefur fengið það staðfest að við kaup Myll- unnar á Samsölubakaríinu af Mjólkursamsölunni hafi verið gerður baksamningur um að það yrði Mjólkursamsölunni að skað- lausu ef samruni fyrirtækjanna yrði úrskurðaður ógildur. „Ég vil ekki tjá mig um þetta mál, en get staðfest að við höfum fengið þau gögn sem við báðum um,“ segir Guðmundur Sigurðsson hjá Samkeppnisstofnun. Kolbeinn Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Myllunnar, segir ekkert óeðlilegt \ið slíka yfirlýs- ingu. „Hún sýnir alls ekki að við höfum búist við því að úrskurður Samkeppnisráðs yrði með þess- um hætti, langt í frá, úrskurður- inn kom ekki bara okkur heldur öllum á óvart. Það sem ég skil hins vegar ekki er hvers vegna Samkeppnisstofnun er enn að safna gögnum. Það bendir helst til þess að stofnunin hafi mótað úrskurð sinn á of litlum upplýs- ingum,“ segir Kolbeinn. - FÞG l’ramsóknarinemi deila enn nm hálendið Framsóknarmeim hafa enn ekki náð sam- komulagi uin frum- varp til sveitarstjóm- arlaga sem gerir ráð fyrir að stjómsýsla á miðhálendinu verði í höndum aðliggjandi sveitarfélaga. Framsóknarmenn hafa enn ekki náð sáttum varðandi þá grein í frumvarpi Páls Péturssonar fé- lagsmálaráðherra til sveitar- stjórnarlaga, sem snýr að yfirráð- um yfir miðhálendi landsins. I 1. grein þess segir að allt Iandið skiptist í sveitarfélög og um það eru menn ekki á einu máli. Þau Siv Friðleifsdóttir, Hjálmar Arna- son og Olafur Orn Haraldsson hafa öll sett sig upp á móti þessu atriði. I frumvarpinu er gert ráð fyrir að þeir 40 hreppar sem Iiggja að miðhálendinu fari með alla stjórn þar efra. I þessum 40 hreppum búa 4% þjóðarinnar. Siv Friðieifsdóttir hefur sannfærst enn meira en áður um að nauðsynlegt sé að sk/puleggja miðhálendið sem eina heiid. Nú er frumvarpið um það bil að koma út úr félagsmálanefnd Al- þingis og er sáttaleiða Ieitað. „Ég hef ekkert skipt um skoð- un. Þvert á móti hef ég sannfærst enn meira en áður um að nauð- synlegt sé að skipuleggja miðhá- lendið sem eina heild en ekki að sveitarfélögin ein skipuleggi það en ég fellst á að þau komi sterkt þar að,“ segir Siv. Hún segir að í 12. grein skipu- lags- og byggingalaga séu ákvæði um svæðaskipulag og Guð- mundur Bjarnason umhverfis- ráðherra hafi á fundi sl. mánu- dag bent á að ein leið væri að styrkja 12. greinina, sem gerir ráð fyrir að í heildar svæðis- skipulagi væri komið til móts við sjónarmið þeirra sem vilja skipu- leggja miðhálendið sem eina heild. Siv segir að verið sé að skoða hvort þar sé að finna milli- lendingu. Ólafur Örn þorir ekki að segja til um hvort samkomulag takist við félagsmálaráðherra um þetta deilumál. Hann benti hins vegar á að þeim tillögum sem hann og fleiri hafa lagt fram, hafi ekki verið hafnað. Sjálfstædismeim sáttir Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Reykja- nesi, sagðist sáttur við frumvarp félagsmálaráðherra. Stefna sjálf- stæðismanna sé skýr, þeir vilji að sveitarfélögin sjái um skipulag alls landsins. Hann bendir á að hægt sé að fara með hvaða mál sem er fyrir úrskurðarnefnd, séu menn ekki sáttir og finnist sinn réttur fyrir borð borinn. -S.DÓR Svartsýni í Stykkishólmi „Það vill koma svartsýni í Pétur og Pál þegar atvinnuástandið er ekki í nógu góðu standi," segir Einar Karlsson, formaður Verka- lýðsfélags Stykkishólms. Hátt í 35 manns eru án at- vinnu í Hólminum og er stærsti hlutinn vegna uppsagna hjá rækjuverksmiðju Sigurðar Agústssonar sem er stopp í bili. Astæðan fyrir því er sögð vera gæftaleysi, verkfall sjómanna og hátt verð á rækju til vinnslu mið- að við afurðaverð. Ekki er búist við að fólkið fá vinnu á ný í rækju fyrr en f fyrsta lagi um næstu mánaðamót. Þá er ætlunin að rækjuverksmiðjan fari af stað á ný. Þess utan er viðbúið að báta- sjómenn verði einnig fyrir skakkaföllum þegar hrygningar- stoppið í þorskinum gengur í garð á næstunni. -GRH INNLENT Valgerdux í heið- urssæti A-listi Alþýðu- flokksins í Hafn- arfirði hefur samþykkt endan- legan framboðs- Iista sinn fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar í maí og vekur at- hygli að Arni Hjörleifsson bæj- arfulltrúi er ekki á listanum og að Valgerður Guð- mundsdóttir bæjarfulltrúi skipar heiðurssæti hans. Valgerður tók ekki þátt í próf- kjöri flokksins og um tíma var því fleygt fram að hún myndi skipa sér í raðir samfylkingar- sinna á Fjarðarlistanum. Arna gékk illa í prófkjörinu og kenndi „kosningamaskínu Guð- mundar Arna“ um það. Hann Iýsti því yfir að hann myndi ekki taka sæti á lista með Tryggva Harðarsyni og var farið að ósk- um hans við uppstillinguna. Efstu sæti A-listans skipa: Ingvar Viktorsson, Jóna Dóra Karlsdóttir, Tryggvi Harðarson, Ómar Smári Armannsson, Hafrún Dóra Júlíusdóttir, Unn- ur Hauksdóttir og Eyjólfur Sæ- mundsson. - FÞG Dæmdur fyrir nauðguu Tæplega Timmtugur karlmaður hefur verið dæmdur af Héraðs- dómi Reykjavíkur í 3 1/2 árs fangelsi fyrir að misnota dóttur sína á árunum 1988 til 1995, þegar hún var 9 til 16 ára. Við meðferð málsins var hinn ákærði látinn víkja úr dómnum meðan stúlkan gaf skýrslu og við vitnaleiðslur sögðu tvö vitni frá kynferðislegri áreitni mannsins gagnvart sér, auk þess sem móð- ir stúlkunnar greindi frá kyn- ferðislegum tilburðum manns- ins gagnvart yngri dóttur þeirra. Maðurinn hefur neitað því statt og stöðugt að hafa mis- notað stúlkuna kynferðislega, en dómurinn taldi sök hans sann- aða. - FÞG Bætur ekki of „Ég er einfald- lega ósammála fjármálaráð- herra. Menn ættu að skoða aðeins samburð- inn við ná- grannalöndin. Ég held að það væri hollt,“ segir Grétar Þorsteins- son, forseti ASI. Haft hefur verið eftir fjármála- ráðherra að atvinnuleysisbætur kunni að vera of háar og hvetji fólk ekki til verða sér úti um vinnu. Atvinnuleysisbætur fyrir fólk með full réttindi eru um 60 þúsund krónur á mánuði. Grét- ar segir að það blasi frekar við að það þurfi að hækka atvinnuleys- isbæturnar. I það minnsta sé ekki auðvelt að sjá sér farborða með því að hafa ekkert annað á milli handa en þær. -GRH lágar Grétar Þor- steinsson, for- seti ASÍ.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.