Dagur - 02.04.1998, Blaðsíða 16
Fimmtudagur 2. apríl 1998
S T E I K H Ú S
WWW.ISLANDIA.IS/ARGENTINA/
Veðrið í dag...
Austan og suðaustan gola, en kaldi eða stinningskaldi við suðurströnd
ina. Súld með köflum suðaustanlands, en þurrt og bjart veður
annarsstaðar. Vægt frost um kvöldið.
Hiti 1 til 7 stig.
VEÐUR
HORllIR
Lmuritin sýna fjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan
sýnir hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu en vin-
dáttir og vindstig eru
tilgreind íýrir neðan.
Reykjavík
A3 ANA2 NA2 NNA2 SV1
NA3 ANA3 ANA3 NNA3
Stykkishólmur
9 Fös Lau Sun Mán
-10
5
0
ASA3 ANA2 NA2 NA2 NNV1
NV3 ANA3 ANA3 NA3
Bolungarvík____________
°9 Fös Lau Sun Mán mm
-10
- 5
- 0
A1 NA2 NA3 NA2 SA1
NNV1 ANA2 NA3 ANA2
Blönduós
c Fös
Lau Sun
Mán mm
SSA2 ASA1 ANA2 NA2 SSA1
SSA1 A2 NA2 ANA2
Akureyri_______________
°9 Fös Lau Sun Mán mm
-10
• 5
. 0
SA3 ASA3 A3 NNA2 S3
SA3 A2 A2 A2
Egilsstaðir______________
°9 Fös Lau Sun Mán mm5
-10
- 5
- 0
A3 ANA3 NA3 N3 A2
A4 ANA4 NNA4 NA3
Kirkjubæjarklaustur
°9 Fös Lau Sun Mán mm
■10
- 5
- 0
ANA3 ANA3 NA3 NA2 ASA2
ANA4 ANA4 NA4 ANA2
Stórhöfði
ío-öt
Lau Sun
Mán mm
6 ANA6 ANA6 NNA4 SSA3
ANA6 ANA6 ANA5 NA4
Benedikt í biðstoðu
„Eins og staðan er núna veit ég
ekki hvort ég þjálfa Grindavíkur-
liðið á næsta tímabili. Það kem-
ur væntanlega til með að ráðast
af vilja nýrrar stjórnar. Ég tel að
ég hafi sinnt mínu starfi vel og
árangur liðsins þegar á heildina
er litið er góður, þó vissulega
hafi það verið áfall að falla út í
fyrstu umferðinni í úrslitakeppn-
inni,“ segir Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari Grindavíkur-
Iiðsins í körfuknattleik, en allt
virðist á huldu með hvort hann
þjálfi liðið áfram.
Einn fjölmiðill greindi frá því á
veraldarvefnum í gær að Bene-
dikt hefði sagt upp störfum, en
hann segir það ekki vera rétt. Þá
greindi Morgunblaðið frá því í
gær að þjálfarinn hefði ekki
komið til Grindavíkur, frá því
meistaraflokkurinn féll út gegn
IA í oddaleik liðanna í úrslita-
keppninni og að forráðamenn
körfuknattleiksdeildar félagsins
hafi neyðst til þess að ráða aðra
til að sinna þjálfun þeirra tveggja
yngri flokka sem Benedikt hefur
stjórnað í vetur. „Það er rétt að
ég hef ekki komið til Grindavík-
ur að undanförnu, en ég hef ver-
ið í sambandi við stjórnarmenn.
Hvað varðar þjálfun yngri flokk-
anna, þá hafði annar þeirra lok-
ið keppni og góður maður ætlar
að þjálfa hinn flokkinn fyrir
mig,“ sagði Benedikt.
- En getur það verið að Bene-
dikt verði áfram þjálfari Grinda-
víkurliðsins?
„Það er ekki bara undir mér
komið. Það eru breytingar á
stjórn körfuknattleiksdeildarinn-
ar og ég veit ekki hvort þeir sem
taka við hafa áhuga á því að fá
mig aftur. Eg get því lítið annað
en beðið. Ég vil þjálfa í úrvals-
deild og er opinn fyrir Grindavík
og það liggur beinast við að ræða
við þá, áður en ég fer að tala við
önnur lið.“
Grindarvíkurliðið hreppti þrjá
titla í vetur, liðið varð Reykja-
nesmeistari, bikarmeistari og
deildarmeistari. Liðið datt út í
undanúrslitum í deildarbikarn-
um og í 8-Iiða úrslitum í úrslita-
keppni Islandsmótsins. „Þegar
ég lít til baka, finnst mér að ekki
sé hægt að kvarta yfir árangrin-
um. Þegar ég tók við liðinu voru
þeir Páll Axel (Vilbergsson) og
Jón Kr. (Gíslason) á förum frá
liðinu og ljóst að Hermann
Mayers yrði ekki áfram, síðan
datt Unndór (Sigurðsson) út úr
myndinni mest allt tímabilið
vegna meiðsla. Eg þurfti að sjóða
saman nýtt lið og vann að því að
fá Grikkjann hingað. Eg held að
menn hljóti að vera sáttir, liðið
vann þremur titlum fleira en í
fyrra, en það var vissulega aula-
skapur að detta út í úrslita-
keppninni," sagði Benedikt.
Óráðið með þjálfaramál
Guðfinnur Friðjónsson, stjórn-
armaður í körfuknattleiksdeild
Grindavíkur, sagði að Benedikt
hefði sinnt sínum skyldum hjá
félaginu og körfuknattleiksdeild-
in hefði ekkert yfir hans störfum
að kvarta. „Eg get hins vegar
ekki svarað því hvort hann verð-
ur áfram með liðið. Samningur
hans rann út þegar liðið féll út
úr úrslitakeppninni og það verð-
Bened/kt Guðmundsson stjórnaði
Grindavíkurliðinu i vetur, en óvíst er
hvort hann eigi sér framtið i Grindavik.
ur verkefni nýrrar stjórnar að
finna þjálfara," sagði Guðfinnur,
en aðalfundur deildarinnar verð-
ur haldinn síðar í þessum mán-
uði. Guðfinnur sagðist búast
fastlega við að ný stjórn þyrfti
einnig að leita fyrir sér á leik-
mannamarkaðnum að nýjum
leikstjórnanda, því Helgi Guð-
finnsson hefur hug á því að fara
í atvinnumennskuna. Þá er ekki
búist við því að gríski miðherjinn
Konstantin Tsartsaris Ieiki ann-
að tímabil með liðinu.
LÍFEYRISSJÓÐUR VERZLUNARMANNA
Hefur þú fengið iðgjaldayfirlitið?
Lrfeyríssjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin
iðgjöld á tímabilinu 1. september 1997 til 28. febrúar 1998. Ekki er óeðlilegt að
greiðslur fyrir mánuðina desember 1997 til febrúar 1998 vanti á yfirlitið.
Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð
verzlunarmanna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsamleg-
ast hafið samband við innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. maí nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt réttindi glatast:
ELLILÍFEYRIR - ÖRORKULÍFEYRIR - MAKALÍFEYRIR - BARNALÍFEYRIR
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS!
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna
gjaldþrota skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr
skugga um skil vinnuveitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á
iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit
launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram
frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á
grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Skrifstofa sjóðsins er opin frá kl. 9.00-17.00.
Húsi verslunarinnar, 4. hæð, 103 Reykjavík,
sími 581 4033, fax 568 5092.
Heimasíða: www.lifver.is
Netfang: skrifstofa@lifver.is