Dagur - 09.05.1998, Side 12
XII -LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
Andlát
Auðunn K. Magnússon
Skjólbraut 7a, lést á Sjúkra-
húsi Akraness Iaugardaginn
25. apríl.
Ágúst Vilhelm Oddsson frá
Akranesi, Sjávargrund 9b,
Garðabæ, lést á heimili sínu
fimmtudaginn 30. apríl.
Ami Guðgeir Sveinsson frá
Barðsnesi í Norðfirði andað-
ist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
mánudaginn 4. maí.
Ása Hjartardóttir lést á
Sjúkrahúsi Akraness mánu-
daginn 4. maí.
Ásta Vestmann frá Akranesi
Iést á Sjúkrahúsi Akraness
aðfaranótt 6. maí.
Bergur Lárusson frá
Kirkjubæjarklaustri lést á
hjúkrunarheimilinu Klaust-
urhólum, IGrkjubæjar-
klaustri, þriðjudaginn
5. maí.
Brynjólfur Björnsson
Söndergade 17, Hirtshals,
Danmörku, er lálinn.
Gunnlaugur Birgir Daní-
elsson sölustjóri, Kötlufelli
9, lést þriðjudaginn 28.
apríl.
Hreína Pjetursdóttir and-
aðist á Landspítalanum að-
faranótt þriðjudagsins 28.
apríl.
Indriði Jónsson frá Patreks-
firði, til heimilis að Háaleit-
isbraut 16, Reykjavík, Iést
að heimili sínu aðfaranótt
30. apríl.
Ingólfur Gíslason Ysta-
Skála, Vestur-Eyjafjalla-
hreppi, lést á heimili sínu
sunnudaginn 3. maí.
Jón Magnússon Vesturbergi
78, andaðist á Borgarsjúkra-
húsinu sunnudaginn 3. maí.
Pétur Gunnar Stefánsson
útgerðarmaður, Fálkagötu
9, lést á Hrafnistu í Reykja-
vík þriðjudaginn 5. maí.
Sigurbjörn Ragnar Guð-
mundsson Ránargötu 6,
Reykjavík, andaðist þriðju-
daginn 28. apríl.
Sigurður Jónsson Hring-
braut 72, Hafnarfirði, Iést á
Kanaríeyjum mánudaginn
27. apríl.
Sigurður Orn Bogason
cand. mag. Iést á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund
miðvikudaginn 1. apríl.
Solveig Guðmundsdóttir
Hvassaleiti 46, Reykjavík,
lést á Hrafnistu þriðjudag-
inn 5. maí.
Stefán Pálsson Hafnar-
braut 23, Hólmavík, lést á
sjúkrahúsinu í Hólmavík
þriðjudaginn 5. maí.
Stefán Örn Kárason fyrr-
verandi póstfulltrúi, Mel-
gerði 26, Kópavogi, andaðist
á Landspítalanum að kvöldi
föstudagsins 1. maí.
Þórunn Ingibjörg Þórðar-
dóttir Jöldugróf 14, Reykja-
vík, lést þriðjudaginn
21. apríi.
Ögmundur Guðmundsson
fyrrv. yfirtollvörður, áður til
heimilis í Lálandi 11,
Reykjavík, lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði laugardaginn
2. maí.
MINNINGARGREINAR
Elna Ólafsson
Elna Ólafsson fæddist í Binds-
lev í Vendsyssel á Norður-Jót-
landi hinn 21. júní 1912. Hún
andaðist á Landspítalanum
20. mars sl. Foreldrar hennar
voru hjónin Hanna og Senius
Johannes Christiansen, óðals-
bóndi í Bindslev og víðar. Elna
lauk venjulegu skólanámi en
sótti síðan námskeið í ýmsum
greinum, vann við verslunar-
störf bæði heima fyrir og í
Kaupmannahöfn. Hún stund-
aði mikið fimleika og tók víða
þátt í sýningum með fimleika-
flokki sínum.
Elna giftist Jóni Unnsteini
Ólafssyni frá Stóru-Ásgeirsá í
Víðidal hinn 25. september
1937, sem þá var að Ijúka
námi við Landbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Ungu
hjónin fluttu til Islands sumar-
ið 1938 en þá hafði Unnsteinn
verið skipaður skólastjóri við
hinn væntanlega garðyrkju-
skóla að Reykjum í Ölfusi. -
Börn þeirra hjóna eru fimm: 1.
Ólafur Jóhannes, f. 7. apríl
1939, d. 9. sept. 1996. Hann
var kvæntur Erlu Gunnlaugs-
dóttur. Þau skildu. Synir þeir-
ra: a) Unnsteinn, sambýlis-
kona Berglind Hilmarsdóttir
og eiga þau eina dóttur, Önnu
Björk. b) Gunnlaugur. 2. Grét-
ar Jóhann, f. 5. nóvember
1941, lcvæntur Guðrúnu Guð-
mundsdóttur. Eiga þau þrjú
börn. a) Fjóla, gift Helga H.
Helgasyni. Börn þeirra: Ásta
Karen, Lilja Dögg og Haukur
Steinn. b) Kristín. Sambýlis-
maður Arnar Freyr Guð-
mundsson. c) Unnsteinn. 3.
Reynir, f. 29. júní 1945. 4.
Bjarki Aage, f. 15. desember
1947. 5. Hanna, f. 17. júní
1951, gift Eyjólfi Valdimars-
syni. Böm þeirra: Steinunn
Elna og Jóhann Valdimar.
Unnsteinn Ólafsson andað-
ist 22. nóvember 1966. Tveim-
ur árum seinna fluttist Elna til
Reykjavíkur og átti þar heima
æ síðan.
Utför hennar var gerð frá
Dómkirkjunni 27. mars sl.
Til hverrar sögu ber nokkuð og
ástæðuna til Islandsfarar frú
Elnu Ólafsson má í rauninni
rekja til þess, að á Alþingi 1936
var samþykkt frumvarp um
stofnun garðyrkjuskóla og mun
fyrsti flutningsmaður þess hafa
verið séra Sigurður Einarsson.
Var svo fyrirmælt í frumvarpinu
að skólanum skyldi valinn staður
að Reykjum í Ölfusi en árið
1930 hafði Jónas Jónsson beitt
sér fyrir því, að ríkið keypti
Reykjatorfuna í Ölfusi. Lá nú
næst fyrir að finna forsjármanna
hinnar nýju menntastofnunar
garðyrkjumanna. Ungur Vestur-
Húnvetningur, Unnsteinn
Ólafsson frá Stóru-Ásgeirsá í
Víðidal, hafði lokið námi við
garðyrkjudeild danska Landbún-
aðarháskólans vorið 1938, með
framúrskarandi góðri einkunn,
fyrstur Islendinga, sem lauk
slíku námi. Jónas Jónsson var f
sífelldri leit að ungum og efni-
legum mönnum, sem hann síð-
an leitaðist við að efla til áhrifa.
Uti í Danmörku hafði borið
saman fundum þeirra Jónasar og
Unnsteins og hvatti Jónas Unn-
stein eindregið til þess að sækja
um skólastjórastöðu við hinn
væntanlega garðyrkjuskóla. „En
ég gat ekkert boðið og engu lof-
að,“ sagði Jónas. Nú stóðu þau
Unnsteinn og hin unga brúður
hans á örlagaríkum vegamótum.
Ytra átti hinn ungi garð-
yrkjukandidat úr Víðidalnum
ýmissa góðra kosta völ. En hvað
beið hans heima? Voru líkur til
þess að hann fengi notið þar
menntunar sinnar og hæfileika?
Var framtíðin þar ekki óráðin
gáta? Og hvernig mundi hin
unga kona hans una sér í nýju,
óþekktu og gerólíku umhverfi?
Og kannski var það stærsta
spurningin? „Eg lagði þetta alveg
í hennar vald,“ sagði Unnsteinn
mér síðar. „Ekki veit ég hvort
hún hefur með einhverjum
hætti skynjað það, að mig lang-
aði heim. En afstaða hennar réði
úrslitum. Hún hvatti mig til þess
að fara heim og takast þar á við
ný verkefni og ég vissi, að þar
mundi hún ekki liggja á Iiði
sínu.“ Og Islandsförin var afráð-
in og Unnsteini falin stjórn hins
væntanlega garðjarkjuskóla. Það
var svo í ársbyrjun 1939, sem
þau hjón fluttu í Reyki og skól-
inn var settur og tók til starfa á
sumardaginn fyrsta.
Og nú gerðust þau hjón land-
nemar í bókstaflegum skilningi
þess orðs. Fátt eitt var fyrir
hendi, sem gerði það um sinn
unnt að reka þarna garðyrkju-
skóla, sem risið gæti undir nafni.
Flest þurfti að reisa frá grunni.
Þarna var t.d. aðeins eitt gamalt
íbúðarhús og ekki stórt. Inn í
það fluttu þau hjón og um árabil
var það bústaður skólastjóraþöl-
skyldunnar, auk þess sem starfs-
fólk bjó þar einnig. - Jú, ég neita
því ekki, að mér brá nokkuð í
brún þegar ég sá allar aðstæður,
sagði frú Elna. En þess varð
samt sem áður síður en svo vart,
að hin unga landnemakona setti
fyrir sig þær aðstæður, sem
henni voru búnar í hinum nýju
heimkynnum.
Frú Elna var ákaflega hlý og
elskuleg kona. Hún minnti mig
ávallt á sólargeisla, brosmild,
hlédræg, hógvær. Hún stóð
ávallt við hlið manns síns í öllu
hans mikla sköpunarstarfi á
Reykjum. Hún bjó fjölskyldu
sinni gott og fallegt heimili og
þangað þótti Unnsteini skóla-
stjóra gott að hverfa að enduð-
um löngum og ströngum vinnu-
degi. Hlutur hennar í fram-
kvæmdum og uppbyggingu á
Reykjum á mótunarárum skól-
ans er mikill þótt hann kunni að
dyljast öðrum en nákunnugum,
því „hinn fórnandi máttur er
hljóður."
Unnsteinn skólastjóri andaðist
sem fyrr segir 22. nóvember
1966, aðeins 53 ára að aldri.
Árið 1968 flutti frú Elna til
Reykjavíkur og átti þar heima til
æviloka. En í raun og veru hvarf
hún aldrei frá Reykjum. Sonur
þeirra Unnsteins, Grétar, tók við
skólastjórninni þar að föður sín-
um önduðum, og hefur ríkt þar
síðan. Þannig hefur unga konan,
sem hingað kom til Iands frá
Norður-Jótlandi fyrir 60 árum
orðið einskonar guðmóðir þess
merkilega menningarstarfs, sem
unnið hefur verið á Reykjum.
Það er óbrotgjarn minnisvarði.
Magnús H. Gíslason.
Aðalbjörg Vilfríðiir Karlsdóttir
Fædd 29. ágúst 1925,
dáin 3. mars 1998.
Með henni er gengin góð kona
og farsæl. Hún hefur háð harða
og vonlitla baráttu við hinn mikla
vágest sem herjar svo víða, og
sýnt frábært hugrekki og æðru-
leysi svo að vinir og vandamenn
dást að.
Við Aðalbjörg höfum átt sam-
leið um langan aldur. Við lékum
okkur fyrst saman innan við
fimm ára aldur, á ytri bakkanum
á Húsavík þar sem við áttum
heima hlið við hlið í Dverga-
steini, á heimili foreldra hennar,
Karls Emils Gunnarssonar og
Dagrúnar Jónsdóttur. Þau voru
mikil sæmdarhjón og áttu fallegt
og friðsælt heimili, þar sem mér
finnst að alltaf hafi verið sólskin
inn um gluggana og fagurt útsýni
yfir til Kinnarljallanna í vestri.
En á heimilinu bjuggu þá líka
foreldrar Dagrúnar, Jón Frið-
finnsson og Aðalbjörg Benedikts-
dóttir, afi og amma hennar Lillu
vinkonu minnar, sem voru svo
skemmtileg og okkur börnunum
svo hlý og góð. Jón var frá Kota-
mýrum í Kinn, en hafði flutt frá
Vargsnesi til Húsavíkur, svo að
oft var skyggnst yfir flóann og
riíjaðar upp minningar frá þess-
um afskekktu bæjum. Stundum
léku þau gömlu hjónin við okkur
í eldhúsinu. Við sátum á gólfinu
og gerðum ýmsar kúnstir, svo
sem að reisa horgemling eða
spyrja flösku um ýmis óræð.efni.
Og Jón var hagleiks smiður, hann
hafði meðal annars smíðað
skauta úr hrossleggjum sem við
Lilla fengum að fara með út á
Höfðatún og æfa okkur þar á
frosnum tjörnum og hjarni. Þetta
voru góð ár og áhyggjulaus æska.
Og gott var að koma heim á
myndarheimilið hennar Dagrún-
ar og fá heitar kleinur eða Iumm-
ur eftir kaldsama leiki úti í vetr-
arkuldanum. Þegar við stækkuð-
um var hlaupið í París eða bolta-
leiki ýmis konar. Svo var hægt að
skreppa niður í Ijöruna og heim-
sækja þá sem voru að stokka lín-
una og fá að læra hjá þeim hand-
tökin eða heyra skrýtlur og sögur.
Þetta var sannkallaður ævintýra-
heimur fyrir börn.
Síðan fylgdumst við að í barna-
skóla ásamt mörgum góðum
stallsystrum okkar og félögum og
áttum þar góðar og lærdómsríkar
stundir undir handleiðslu hinna
ágætustu kennara sem þá voru á
Húsavík að ógleymdum skóla-
stjóranum Benedikt Björnssyni,
sem áreiðanlega var einn mikil-
hæfasti skólastjóri og fræðimað-
ur á sínu sviði og sínum tíma.
Og svo kom að hinum eftir-
minnilega áfanga fermingunni
hjá séra Friðrik A. Friðrikssyni,
sóknarprestinum og hugsjóna-
manninum, sem jafnframt var
svo hlýr og skemmtilegur við
okkur börnin. Margar ljúfar og
góðar minningar áttum \dð frá
þessum tímum sem við Lilla gát-
um minnst og glaðst við á efri ár-
unum.
Aðalbjörg stundaði síðan nám í
Húsmæðraskóla Þingeyinga á
Laugum. Hún var vel gefín og
einkar hög til allra verka, ekki
síst fim við alla fíngerða handa-
vinnu. Um margra ára skeið vann
hún við afgreiðslustörf í Kaupfé-
lagi Þingeyinga og ávann sér
traust jafnt yfirmanna sinna sem
viðskiptavinanna. Hún var ein af
stofnendum Kvenskátafélags
Húsavíkur, sem frú Gertrud Frið-
riksson stofnaði 1940, og vann í
því félagi af áhuga og samvisku-
semi eins og öllu öðru sem hún
tók sér fyrir hendur.
Síðar Iagði Aðalbjörg leið sína
til Kaupmannahafnar og stund-
aði nám í hannyrðum við Haand-
arbejdets Fremme og lauk þaðan
kennaraprófi. Þessi ferð reyndist
henni heilladrjúg, því að þarna
kynntist hún manni sínum, Ólafi
Halldórssyni handritafræðingi.
Þau giftu sig 1957 og bjuggu
fyrst í nokkur ár í Kaupmanna-
höfn þar sem Ólafur vann við út-
gáfustörf og háskólakennslu. Þar
fæddust börnin þeirra þrjú, og
Aðalbjörg rækti heimilisstörfin
og barnauppeldið af mikilli
skyldurækni og myndarskap eins
og hennar var von og vísa. Heim-
ilið stóð jafnan opið öllum vinum
og vandamönnum þeirra, og
margir Islendingar á ferð í Höfn
eða fræðimenn, sem sækja vildu
fróðleik til húsbóndans, fengu
þar ætíð höfðinglegar móttökur.
Síðan mættust leiðir okkar Að-
albjargar aftur er menn okkar
unnu náið saman við íslensku
handritin í Árnastofnun, en það
hafa þeir nú gert um nær 40 ára
skeið. Margar ánægjustundir
höfum við átt saman í hópi vina
og vandamanna, bæði í heima-
húsum og með bekkjarfélögum
frá M.A. 1946. Ólafur og Aðal-
björg hafa verið glaðleg í fasi og
reiðubúin að sýna sína eðlislægu
gestrisni, og Ólafur með hnytti-
legar kímnisögur sínar á reiðum
höndum. Því munu margir
minnast þeirra með þakklæti nú
á þessari kveðjustund og senda
Ólafi hlýjar hugsanir.
Auk alls þessa höfum við Aðal-
björg starfað saman við próf-
gæslu í H.I. á undanförnum 10
árum. Þar kom einnig fram hin
góða samviskusemi hennar og
glöggskyggni. Ætíð var hún glöð
og hressileg, en athugul og traust
og fylgdist grannt með öllu sem
fram fór, eins og til var ætlast.
Margir sem með henni hafa
starfað að prófgæslunni sakna
hennar nú og þakka samveruna.
Ólafi bekkjarbróður mínum og
börnum þeirra Aðalbjargar og
fjölskyldum þeirra og öðrum
vandamönnum sendum við hjón-
in innilegar samúðarkveðjur nú á
skilnaðarstund. En minning Að-
albjargar Iifir skýr og glaðleg í
hugum vina hennar um ókomna
daga.
Sigríður Kristjánsdóttir.