Dagur - 12.05.1998, Qupperneq 1
Leikarar að ætt og uppruna
Sex afáttcL nýjum nemum í
LeiklistarskólcL íslands eru
leikararað ætt, uppruna og
kannski uppeldi líka. Leik-
listarbakterían gengur víst
örugglega í erfðir.
Það eru leikara- og söngvarabörnin Brynja
Valdís Gísladóttir, Ivar Örn Sverrisson,
Ólafur Egill Egilsson, Tinna Hrafnsdóttir,
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna
Pálsdóttir sem voru svo heppin að fá inn-
göngu í Leiklistarskóla Islands nú á vor-
dögum og þeim til viðbótar komust inn í
skólann Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Gísli
Pétur Hinriksson. Þau fyrrnefndu hafa
fengið brennandi áhugann með móður-
mjólkinni, hálft í hvoru alin upp í hringiðu
leikhússins. Hin síðarnefndu hafa lítil sem
engin tengsl við leiklistina þó að þau hafi
aðeins „fiktað", með Hafnarfjarðarleik-
húsinu eða sem krakkar.
Sögumar grassera
Að sjálfsögðu gildir það sama um leikara-
stéttina eins og aðrar stéttir í landinu að af-
kvæmin læra af foreldrunum og sækja
gjaman í svipað starfsumhverfí og þau eru
alin upp við. Tannlæknaböm læra til tann-
læknis, kaupmannssonurinn tekur við búð-
inni af pabba sínum, kratabamið gengur í
Alþýðuflokkinn. Leikarabörnin eru sum
hver pínulítið viðkvæm fyrir því að íjailað sé
um ættir þeirra og uppruna í tengslum við
leiklistina því að þau hafa fengið að heyra
það; klíkuskapur eða ekki ldíkuskapur, sög-
umar eru strax farnar að grassera. En þau
komust alltént inn í skólann og það er vel!
„Þeir sem vita út á hvað þessi próf ganga
vita að þetta gengur ekki út á klíkuskap.
Það græðir enginn á að taka inn hæfileika-
lausa manneskju. Skólinn vill geta verið
stoltur af okkur. Við berum hróður skólans
út á við. Það er algjörlega dómnefndarinn-
ar að ákveða hverjir komast inn,“ segja þau
réttilega og pínulítið í vörn vegna upp-
runans.
Siggi Sigurjóns er fjarskyldur
Sum þeirra hafa tekið sér tímann sinn til
að ákveða hvaða braut þau eiga að fara.
Brennandi áhugi með móðurmjóikinni. Úlafur Egill Egilsson er liggjandi fremst á myndinni. Arnbjörg Hiíf Vaisdóttir, Brynja Valdís Gísladóttir, Gísli
Pétur Hinriksson, Tinna Hrafnsdóttir, Unnur Úsp Stefánsdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Það er ekki óþekkt, frekar þvert á móti, að börnin sæki í
svipað starfsumhverfi og foreldrarnir eru í. mynd: teitur jónasson.
Ólafur Egill Egilsson Ólafssonar og Tinnu
Gunnlaugsdóttur hefur til dæmis tekið sér
frí frá leiklistinni í eitt ár og verið að und-
anförnu að sauma leikbúninga fyrir
Myrkrahöfðingjann, mynd Hrafns Gunn-
laugssonar. Tinna Hrafnsdóttir Gunn-
laugssonar hefur verið í háskólanum að
Ieggja stund á bókmenntafræði og íslensku
auk þess að afgreiða viðskiptavini hjá
SPRON. Brynja Valdís Gísladóttir, dóttir
Önnu Kristínar Arngrímsdóttur leikkonu,
hefur verið á hönnunarbraut í Iðnskólan-
um og þannig mætti lengi telja. Bakterían
hefur blundað og í sumum tilvikum hefur
Ieiðin verið nokkuð löng en ekkert þeirra
hefur þó verið víðs fjarri listinni.
Til glöggvunar á þeim hinum er rétt að
geta þess að Ivar Örn Sverrisson er sonur
Sverris Guðjónssonar og Elínar Eddu
Arnadóttur, Unnur Ösp Stefánsdóttir er
dóttir Stefáns Baldurssonar Þjóðleikhús-
stjóra og Þórunnar Sigurðardóttur for-
manns Listahátíðar, og Vigdís Hrefna
Pálsdóttir er dóttir Páls Baldvins Baldvins-
sonar leikstjóra og sonardóttir Baldvins
Halldórssonar leikara.
Hinir nýju leiklistarnemarnir tveir eru
ekki af leikaraættum nema fjarskylt sé.
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir er að norðan,
dóttir Vals heitins Arnþórssonar fyrrv.
bankastjóra, og Gísli Pétur Hinriksson
kemur úr Hafnarfirði. Hann hefur verið
viðloðandi Hafnarljarðarleikhúsið, nú síð-
ast sem jötunninn Þjazy. Hann huggar sig
við að Siggi Sigurjóns sé fjarskyldur ætt-
ingi. I gríni þó. -GHS.
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM
GARÐA- OG GRÓÐURRÆKT
Þarftu aö eyöa illgresi? Eru pöddur í garðinum þínum?
Veistu ekki hvernig á aö bregöst viö? Leyfðu okkur aö aðstoða þig.
RáÖgjöf sérf
✓
ðinga um garS- og gróSurrækt
GROÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SmiÖjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100
Munið!
Fagmennska
í fyrirrúmi!
-