Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 1

Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 1
T ! ÞcLU hafa svo sannarlega sleg- ið ígegn unglingamirí Grindavík með leikritinuAllt íplasti, en það ersýntá veg- umfélagsmiðstöðvarinnar Laufin og spaðamir. Starfið í félags- miðstöðinni í Grindavík ein- skorðast ekki við þetta venju- lega, tónlist og borðtennis. Unglingarnir hafa sýnt hvað í þeim býr og fengið beiðni um að sjá um dag- skrá 17. júní í Grindavík Stundum dugar *£" minna en aðsetjafolki net! og emmg hefur sjó- m a n n a - d a g s r á ð samið við þau um að setja upp út- varpsstöð sem rekin verður sjómannadags- helgina. Síðast en ekki síst munu þau sjá um unglingadansleik í Festi sömu helgi. Hrafnhildur Björgvinsdóttir er aðaldrif- fjöðurin á bak við starfsemi Laufsins og spaðanna, sem er félagsmiðstöð fyrir ungt fólk í Grindavík. Hún stóð að stofnun miðstöðvarinnar eftir lát sonar síns í fyrra, eins og Dagur sagði frá. En hvað hefur gerst síðan miðstöðin tók til starfa? Með- byr er mikill. Unglingarnir stofnuðu leik- félag innan félagsmiðstöðvarinnar, þar starfar ungt fólk á aldrinum 16-25 ára og þau sjá um allt sem að uppsetningu lýtur, með góðri aðstoð. „Krakkarnir hafa sýnt þessu geysimikinn áhuga og ekki er heldur hægt að kvarta undan móttökum áhorfenda," segir Hrafnhildur. „I leikritinu sem heitir „Allt í plasti“ og er þýtt af Hafliða Arngrímssyni, leika 14 krakkar, en svo eru önnur í því hlutverki að selja leikskrár, vinna í sjopp- Það er greinilega glatt á hjalla þarna! unni og sinna sviðsstörfum. Á bak við þau stendur svo Hilmar Knútsson, faðir kær- ustu sonar míns heitins, og Orn Ingi Gíslason sem er mjög Ijölhæfur. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson." Unglingar geta allt „Þetta sýnir hvað ungt fólk getur gert mik- ið fái það tækifæri til,“ segir Hrafnhildur. „Við höfum verið að byggja upp starfsem- ina hér og fengið eitt og annað gefins, eins og til dæmis billiardborð sem þarfnaðist smálagfæringa, sjónvarp og tvö borðtenn- isborð og allt hefur þetta verið vel þegið. Við keyptum vídeótæki og eina leikjatölvu, þannig að smám saman hefur safnast að okkur búnaður til afþreyingar.“ LjósmyndaMúbbiir á döfinni Það er ýmislegt fleira í gangi í gömlu ver- búðinni, því á dagskrá er að setja upp Ijós- myndaklúbb og hafa krakkamir tekið frá eitt herbergi fyrir þá starfsemi. Annars segir Hrafnhildur leiklistina hafa tekið alla at- hyglina upp á síðkastið, enda ekkert smá átak að koma leikriti upp. Þau hafi sett upp leikmynd og upphækkun fyrir áhorfenda- palla og til að koma þessu fyrir þurfti að taka niður borðtennsiborðin. „En áhuginn er svo mikill að krakkarnir hafa jafnvel sleppt vinnu til að geta verið við æfingar,'1 segir Hrafnhildur „og ég hef frétt af krökk- um sem ætla sko ekki að láta vinnu koma í veg fyrir að þau geti verið með næst!“ Hrafnhildur segir allt starf í félagsmið- stöðinni vera fyrst og fremst forvarnarstarf og bærinn greiði Iaun starfsmanns að hluta. Hins vegar sé draumurinn sá að hver sem stjórni bænum geri sér grein fyr- ir mikilvægi þessa starfs fyrir unga fólkið og styðji vel við starfið. „Eitt stjórnmála- aflið hefur lýst yfir stuðningi við okkur og við bíðum bara eftir því að heyra frá fleir- um,“ segir hún. „Þetta er brautryðjenda- starf, en það er ákaflega mikilvægt að ung- lingar á þessum aldri hafi eitthvert afdrep, þetta eru miklar félagsverur og hafi þau ekkert annað en sjoppurnar og göturnar, þá eru þau þar. En ég hef séð hvað þau skemmta sér vel hérna og þetta starf hef- ur verið alveg gífurlega gefandi finnst mér og hefur hjálpað mér mikið.“ -VS t

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.