Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 2

Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 2
18 - MIDVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998 rD^tr LÍFIÐ Í LANDINU ■ SMÁTT OG STÓRT UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON 77/ hvers aö borga pening fyrir hvala- skoðun efhægt er að sjá hrefnurnar ókeyp- is á Pollinum? „Ég les mikið af ævisögum og mér fannst þessi saga vönduð og skemmtileg — en mér fannst hún ekki vera um mig.“ Sagði Erró í viðtali við DV um eigin ævisögu. Óvænt samkeppni Þeir aðilar á Norðurlandi sem nú hafa lifi- brauð sitt af hvalaskoðun hafa nú áhyggjur af framtíðinni. Astæðan er einkum sú að þrisvar sinnum nú í mánuðinum hefur hvalur eða hvalir gert sig heimakomna á Pollinum á Akur- eyri. Hafa þeir sést leika sér og elta ætistorfur örskammt frá Iandi sunnan við Torfunefs- bryggju og allt suður að flugvelli. Heimsókn- irnar hafa ætíð laðað marga áhorfendur að og sumir kunna að spyrja: Til hvers að borga pen- ing fyrir hvalaskoðun ef hægt er að sjá hrefn- urnar ókeypis á Pollinum? Sumir hafa einnig velt því fyrir sér hvort ferðaþjónustuaðilar á Akureyri ættu ekki að fara að markaðssetja bæinn sem hvalabyggð. Vegna framburðar gengur það þó sennilega ekki. Lítil pólitísk hönd Ofanrituðum brá illilega í brún fyrir skemmstu þegar kosningapési kom inn um dyralúguna á heimili mínu á Akureyri. Ekki það að innihald- ið vekti athygli heldur var það sá sem dreifði honum. Þar var nefnilega komið barn eitt sem í hæsta lagi var 5 ára gamal't og átti í mestu vandræðum með að koma pésanum inn um lúguna, þurfti m.a. að tylla sér á tær til að það gengi. Eflaust hefur ekki verið langt í mömmu eða pabba en blaðamanni varð samt hugsað til slysahættu. Hvort litlar hendur gætu ekki hæglega klemmst í þessu pólitíska útburðar- starfi. Þetta leiddi reyndar einnig hugann að því af hverju böm á Akureyri eru farin að hjóla á gangstéttum niður í 3ja ára aldur. Fundur út af klósettpappír Sú ákvörðun grunnskólakennara á Akureyri að segja upp í hrönnum fyrir skemmstu vegna óánægju með kjaramál, hefur vakið athygli og blendin viðbrögð almennings. Hægt er að deila um tímasetninguna en hitt er ljóst að óánægja kennara er langvarandi. Heimildar- maður blaðsins fullyrðir t.d. að í ónefndum skóla á Akureyri hafi ldósettpappír nýlega klár- ast einn skóladag hjá kennurum og viðbrögð þeirra hafi verið að auglýsa strax neyðarfund til að taka á málinu. Hljómar ögn hjákátlega ef rétt er, en lýsir andrúmsloftinu. Sr. Sigurður Páls- son hefur starfað sem kennari og prestur og gefið út nokkrar bækur. Hugsa böm um dauðaim? „Að tala um dauðann er að tala um lífíð,“ segir í nýútkominni bók Sr. Sigurðar Pálssonar, sókn- arprests í Hallgrfmskirkju, sem jjallar um sorg og sorgarviðbrögð barna og leiðbeinir um hvernig taka skal á þeim málum. Bókin Börn og sorg er skrifuð fyrir alla þá sem þurfa að annast börn sem eiga við einhverja sorg að glíma. Hvort sem það er að- standandi barns, kennari eða einhver annar sem að barninu kemur. Hún er ýkjulaus, ræðir hispurslaust um margt sem lýtur að dauða og sorg, hvernig taka má á slíkum hlutum og gera þá að hluta daglegs lífs. „Þessi bók er tilkomin að hluta vegna þeirrar reynslu okkar hjón- anna að við misstum dóttur okk- ar frá eiginmanni og þremur litlum drengjum og má segja að samfylgdin við þá hafi knúið mig til að sökkva mér svolítið ofan í þessi mál,“ segir Sigurður Pálsson. „Svo rifjaðist það upp fyrir mér að þegar ég var kennari, en við það starfaði ég í 12 ár, þá missti ég 3 nemendur af slysförum og þurfti að fást við að útskýra og styðja aðra nemendur mína í gegnum sorgarferlið og kunni Iítið til verka, enda lítið rætt um þessi mál á árum áður.“ A hvetju ári látast að meðaltali 82 einstalding- ar á aldrinum 20-44 ára og 7 börn á aldrinum 5-14 ára. Það er því allstór hópur barna sem missir foreldra, systkini eða vini og skólafélaga, auk barna sem missa afa og ömmur, frændur og frænkur. Bókin á því erindi til margra. Þegar dauðinu kveður dyra „Þessi bók skiptist í þrjá meginþætti og heitir sá fyrsti „Börn og sorg“. Þar er rætt um þegar dauðinn kveður dyra og börn missa einhvern nákominn," segir Sigurður. „Fyrstu viðbrögð, kveðjustund, útför og annað og er sá hlutinn hugsaður sem stuðningur við aðstandendur sem þurfa að sinna börnum.“ Ábendingar eru aftast í kaflan- um og segja meðal annars: Talið af hreinskilni. Forðist óljós og ómarkviss orð. Hjálpið barninu að skilja. Gerið missinn raunverulegan. Dragið úr ótta barnsins við að það sjálft eða eftirlifandi foreldri deyi. Hvað getur skóliuu gert „Annar hlutinn fjallar um það hvernig börn skilja dauðann eftir aldri og þroska og er það nokkuð fræðileg umræða,“ segir Sigurður ennfremur. I þeim kafla segir meðal annars frá fjórtan ára dreng sem misst hefur föður sinn og samdi eft- irfarandi vísu sem segir svo mikið: Ég sat f stólnum og grét, þegar dyrabjallan hringdi. Ég þautfram í eftirvæntingu, en kom alltaf aftur jofn sorgmæddur. Það var heldur ekki pabbi í þetta sinn. „Síðasti hlutinn er svo um það hvað skólinn get- ur gert og skiptist hann í tvennt,“ segir Sigurð- ur. „Annars vegar um það hvernig kennarar geta gert þessa staðreynd lífsins, það er að segja dauðann, að eðlilegum þætti í skólastarfinu. Að bókmenntatextar og annað sem hefur með dauðann að gera sé ekki sniðgengið og hins veg- ar ábending til kennara um það hvernig þeir geta stutt við nemendur þegar þeir missa að- standendur eða þegar nemandi eða starfsmaður skólans deyr.“ -VS „Þessi bók er tilkom- in að hluta vegna þeirrarreynslu okkar hjónanna að við misstum dótturokk- arfrá þremurlitlum drengjum, “ segir Sigurður. SPJflLL FRÁ DEGI TIL DflGS Það er engin þörf að kvarta, þegar blessuð sólin skín. Slefánfrá Hvitadal: VOIiSÓL. • 1994 útskrifaðist Þórólfur Jónsson úr Verslunarskóla Islands með hæstu eink- unn sem gefín hafði verið á stúdents- prófí en hún var 9.76. • 1967 bannaði útvarpsstöðin BBC lag Bítlanna, „A Day in the Life“ á þeim forsendum að í texta væri vísað í eitur- lyf. • 1954 varð Chang Kai-shek forseti Taiwan. • 1932 flaug Amelia Erhart frá Ný- fundnalandi, en hún var fyrsta konan til að fljúga ein yfir Atlantshafíð. • 1899 varð Jacob German í New York fyrstur til að verða handtekinn fyrir að aka of hratt, en hann ók leigubíl og fór hraðar en 12 mílna hraðatakmörkin leyfðu. Fædd á þessum degi • 1958 fæddist Reagan forseta Banda- ríkjanna sonurinn Ronald Prescot Reagan Jr. • 1946 fæddist Sonny Bono, sá sem er annar helmingur Sonny & Cher, söngv- ara og Ieikara. • 1882 fæddist Sigrid Unset í Noregi. Hún var skáldkona og skrifaði meðal annars verkið Kristín Lavransdóttir. • 1901 fæddist Max Euwe í Hollandi, en hann var heimsmeistari í skák 1935-37. Hátíðisdagur I Búlgaríu er dagurinn kallaður dagur Botevs. I Zaire er þetta dagur uppreisna og í Kanada dagur Viktoríu. Vísa dagsins Ekki veit ég eftir hvern þessi vísa er, en varla hefur þeim er hana orti litist vel á viðkomandi. Éftir því, sem ég hef vit, en athugað íflýti, hefur hann vöxt og háralit húsbóndans í Vtti. Afmælisbam dagsins Sigfús Daðason skáld hefði orðið sjötugur í dag, fæddist mánudaginn 20. maí árið 1928. í tilefni dagsins eru lesendur hvattir til þess að ná sér í eina af bókunum hans og lesa a.m.k. eitt Ijóð sér tii heilsubótar. Lesturinn gaeti reyndar valdið þyngslum í höfði, en þau eru góð- kynja og endast lengi. „Þetta er mamma, nú ætla ég að kynna þig fyrir pabba." Tölvaní dag Viltu vita hve margt fólk er á jörðinni í dag? Kannski ekki nákvæmlega, en svona nokkurn veginn? Kíktu þá á „mannfjölda- klukkuna" á þessari netsíðu: http:// sunsite.unc.edu/lunarbin/worldpop - Það vantar víst ca. 20 milljónir enn upp á 6 milljarðana.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.