Dagur - 20.05.1998, Page 3
Xfc^MT
[ LÍFIÐ t LANDINU
MIDVIKUDAGUR 20.MAÍ 1998 - 19
iiiil
. .
■ .. . i: :
: . .» •
.■
:
:
'
.
111®
.
Funklisti ungsfólks
stal senunni íísafjarð-
arbæ í kosningumfyrir
tveimurárum. ívorer
óvenju mikið aflistum
ungsfólks, en hvað er
á bakvið?
Fjölmörg framboð utan hins
hefðbundna flokkakerfis bjóða
fram í komandi sveitastjórna-
kosningum. Þau heita ýmsum
nöfnum og hafa ýmislegt fram
að færa. Ungt fólk er sérstaklega
áberandi fyrir þessar kosningar
og eru framboð þeirra a.m.k.
fimm talsins vítt og breitt um
landið. Og nöfnin gefa til kynna
að hér sé blanda af gamni og al-
vöru, meira e.t.v. af gamni:
Dizkólistinn, Vinsældalistinn,
Tónlistinn, Bjargvætturinn,
Oskalistinn.
Ekkert jjríii
Öll eiga þessi framboð það sam-
eiginlegt að vera skipuð ungu
fóíki og er meðalaldurinn í
kringum 20 - 30 ár. Nýju fram-
boðin eru ekki uppreisn gegn
gamla flokkakerfinu, heldur vilja
þau koma á framfæri sjónarmið-
um ungs fólks og telja að besta
leiðin til þess sé að stofna eigin
flokk. En er þetta ekki bara eitt-
hvert grín? Ekki aldeilis. Olafur
Grétar Ragnarsson hjá
Dizkólistanum á Selfossi segir
fulla alvöru búa að baki. Meðal
stefnumála Dizkólistans sé að
ljúka við kvikmyndahúsið á Sel-
fossi, byggja tölvuver fyrir al-
menning og byggja nýjan grunn-
skóla í stað þess að stækka þann
sem fyrir er. Vissulega sé þó
stutt í gamanið því þeir stefni
einnig að því að fjölga sólskins-
dögum!
Æskulýðmál,
myndastyttur,
kettir.
„Nei, ekkert
grín,“ segir
Helgi Guðjóns-
son Oskalistan-
um á Fáskrúðs-
firði. „Við leggj-
um mikla
áherslu á æsku-
lýðsmál, at-
vinnumál,
skólamál og
umhverfismál.
Við Iítum til
framtíðar og
viljum gera Fá-
skrúðsljörð fýsi-
legri stað til að
búa á.“
Að sögn Að-
alheiðar Lilju
Ulfarsdóttur
sem skipar 1.
sæti á Vinsæld-
arlistanum f Skagafirði leggur
hann áherslu á byggingu nýs fé-
lagsheimils á Sauðárkróld og
bann við Iausagöngu katta. Þá
sé stefnt að því að reisa styttu af
Geirmundi Valtýssyni, poppgoði
þeirra Skagfirðinga, fyrir
framan Skagfirðingabúð.
Bjargvættur á Hvamms-
tanga vill snúa við byggða-
þróuninni í landinu segir
Ágúst Frímann Jakobsson
Bjargvættur á Hvamms-
tanga og leggur meginá-
herslu á skólamál og at-
vinnumál. Tónlistinn í
Hafnarfirði ætlar heldur
ótroðnar slóðir til að Iækka
skuldir Hafnaríjarðarbæjar
nái hann kjöri segir Krist-
ján Hjálmarsson Tónlist-
anum. Flokkurinn hyggst
tvöfalda tekjur bæjarins
með því að fá háhyrning-
inn Keikó í Hafnarfjörð-
inn. Þá á að bora eftir olíu
í Hafnarfjarðarhöfn og
stela henni ef hún finnst
ekki þar. Loks hyggjast
þeir Tónlistamenn reisa
styttu af Kristjáni Arasyni,
handboltakappa úr FH.
Aðspurðir voru viðmælendur
Dags bjartsýnir á góðan árangur.
Vinsældalistinn, Dizkólistinn og
Oskalistinn töldu raunhæft að
fá tvo menn kjörna hver. Bjarg-
vættur hyggst reyna að koma
einum manni að en Tónlistinn
stefnir hins vegar að hreinum
meirihluta. Þar sem skoðana-
kannanir eru til staðar bendir
ekkert til að þessi bjartsýni sé
raunhæf!
Funklistiim
Stjórnmálafólkið unga sagði
Funklistann frá Isaíjarðarbæ
ekki undirrót þess að þessir njju
flokkar hafi verið stofnaðir þó
vissulega sé árangur þeirra
hvatning til afreka. Funklistinn
fékk tvo menn kjörna í bæjar-
stjórnarkosningum við samein-
ingu sveitarfélga fyrir tveimur
árum. Hilmar Magnússon fyrr-
verandi formaður Funklistans
segir að þessi reynsla hafi verið
skemmtileg og lærdómsrík. „Við
lofuðum fyrir kosningarnar að
Iofa ekki neinu og við stóðum
við það,“ segir Hilmar og hlær.
Ymsar framúrstefnulegar hug-
myndir voru á málefnalista
Funkmanna. Ætlunin var m.a.
að hita upp Onundarljörðinn,
byggja vatnaskemmtigarð í Súg-
andafirði og launa Dönum í
Hróarskeldu jólatréð sem ár
hvert er sent til Isafjarðar með
því að senda þeim snjó. Hilmar
segir Funklistann hafa komið
því í gegn að opnunartími bæjar-
skrifstofanna hafi verið rýmkað-
ur en að öðru leyti hafi áhrif
hans verið óbein. „Ég er ekki frá
því að frambjóðendur á listun-
um sem nú bjóða fram í Isa-
íjarðarbæ séu heldur yngri en
oft áður og þá eru þrjár konur
sem skipa þijú efstu sæti Sjálf-
stæðisflokksins.“ Samstarfið við
hina bæjarfulltrúana segir Hilm-
ar hafa gengið upp og ofan.
„Þetta var frekar tíðindalítið og
rólegt samstarf. Það var ekki
fyrr en ég var hættur í bæjar-
stjórn sem allt fór í háa loft,“
segir Hilmar og vitnar í þær
deilur sem urðu um byggingu
nýs skóla í Isatjarðarbæ undir
Iok síðasta árs. „Ég er ánægður
með að ungt fólk sé í auknum
mæli að taka þátt í stjórnmál-
um,“ segir Hilmar um leið og
hann óskaði nýju framboðunum
velfarnaðar.
Hvað gerist?
Að ofansögðu má ljóst vera að
ungt fólk ætlar sér stóra hluti í
komandi sveitastjórnakosning-
um. Áhugi þess á stjórnmálum
virðist fara vaxandi og eru þessi
framboð skemmtileg og þörf við-
bót við önnur. Hvort einhverjum
þessara flokka eða öðrum tekst
að feta í fótspor Funklistans skal
ósagt látið en víst er að bjartsýni
um gott gengi ríkir, en mismikil
ástæða er til að taka þá alvar-
lega.
-jv
„1Zið lofuðum fyrir kosningarnar að lofa ekki
neinu og við stóðum við það, “ segir Hilmar
Magnússon, fyrrverandi formaður
Funklistans.