Dagur - 20.05.1998, Side 10

Dagur - 20.05.1998, Side 10
26 - MIDVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998 LÍFIÐ t LANDINU Vorsýning í Gunnarsholti hefur verið árviss atburð- ur til margra ára og fyrsta samkoma sem hestamenn bíða eftir á hverju vori. Af sjálfu leiðir að sýningarn- ar eru misjafnar milli ára. Þetta árið komu færri að- komuhestar en verið hef- ur tvö undanfarin ár. Því veldur hitasóttin sem geis- að hefur á stórum hluta HESTAR Kári flrnónsson skrifar Iandsins. Hitasóttin TT „ . . hafði líka greinileg VOTSytllTl^lJl l áHrif á sðsókn 3ð 1.... iiuiu iirf.__ sýningunni en hún Gunmrsholtifór sér rétt til þátttöku var mun lakari en oft- reiðhestur með 8,24 fyrir hæfileika, allt jafnar ein- kunnir. En hann er eins og Hlynur með slaka bygginau 7,65. Hún er þó misjafnari eins og hesturinn bar með sér. Aðaleinkunn hans er 7,95. Huginn er undan Sólon frá Hóli Náttfara- syni og Væntingu frá Haga sem er dóttir Gáska frá Hofstöð- um. Þessir þrír hestar hafa unnið ast áður. Hvað sýninguna sjálfa snertir þá fór hún vel fram og sjald- an hafa jafn litlar taf- ir orðið. Þetta gekk allt eftir áætlun. Hrossin komu vel fyr- ir og auðséð að haldið er í horfinu með hirðingu hross- anna, en það hefur löngum verið til fyrirmyndar í Gunnarsholti. Að því leyti hefur stóðhestastöð- in haft mjög mikil áhrif. Nú er stöðin eins og á síðasta ári rekin af Hrossaræktarsam- tökum Suðurlands. Stór hluti hennar er leigður þeim Ingu Jónu Kristinsdóttur og Þórði Þorgeirssyni, en Þórður er jafn- framt umsjónarmaður með þeim hrossum sem eru á vegum sam- bandsins. Alls fengu 48 hestar fullnaðardóm og auk þess voru 9 hestar byggingadæmdir. Þór frá Prestbakka með einkuim ylir 8 I flokki 4ra v. stóðhesta komu 16 í dóm. Af þeim fengu 9 yfir 7,60 og 6 náðu gömlu ættbókar- viðmiðinu 7,75. Efstur í þessum flokki var Þór frá Pretsbakka á Síðu, hest- ur sem hestasíðan hefur áður sagt frá. Þór er mjög vel gerður hestur með 8,23 fyrir sköpulag. Þar af 9 fyrir bak og lend og fyr- ir samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hann 7,79 og stóð skeiðið þar efst 8,5. Þór er undan Svarti frá Unalæk og það kom fram hjá fleiri sonum Svarts að hann erfir skeiðið vel frá sér. Móðir Þórs er Gyðja frá Gerðum dóttir Ofeigs frá Flugumýri. Gyðja er með 1. verðlaun fyrir afkvæmi og var á sínum tíma mikill gæðingur. Þór er bráðefnilegur stóðhestur og þess að vænta að með auknum þroska þá fylli hann vel út í hæfileikaeinkunnina. Annar varð Hlynur frá Blesa- stöðum á Skeiðum. Hann er son- ur Galdurs frá Laugarvatni og hefur áður verið sagt frá honum hér . síðunni. Móðir hans er Bylgja frá Ey I í Landeyjum kom- in út af Sörla frá Sauðárkróki. Þetta er fljúgandi reiðhestur sem fær hvorki meira né minna en 8.33 fyrir hæfileika 4ra v. gamall þar af 9 fyrir tölt. Mjög gott tölt er í hrossunum frá Ey og mönn- um er í fersku minni hve töltið var gott í Galdri föður Hlyns þeg- ar hann kom fyrst fram 4ra v. Hlynur er hins vegar með dapra byggingu en þar fær hann 7,5 á línuna nema 8 fyrir háls og herð- ar. Batni þetta ekki með auknum þroska þá á þessi leirljósi gæðing- ur ekki mikla framtíð sem stóð- hestur. Aðaleinkunn Hlyns er 7,96. Þriðji í röðinni var svo Hug- inn frá Haga I í Suður-Þing. Þetta er sömuleiðis fljúgandi fram á laugar- daginn var. í landsmótinu. Næstur þeim kom svo Vængur frá Auðsholtshjá- leigu, jarpskjóttur foli undan Orra frá Þúfu og Rán frá ® Flugumýri. Þarna er á ferðinni efni- legur hestur með 7,90 fyrir sköpulag þar af 9 fyrir háls og herðar og 7,89 fyrir hæfileika þar af 9 fyrir fegurð í reið; aðaleinkunn 7,89. Líklegt er að þessi hestur komi aftur í dóm í vor og reyni við lands- mótsmarkið 7,95. Annar Orra- sonur Andvari frá Sléttubóli hlaut 7,78 og Galsasonurinn Þytur frá Hrepphólum hlaut 7,76 þar af 8 fyrir sköpulag. Hann er líklegur til að bæta hæfileikana verulega. Þá var Þorrasonur Döggvi frá Saltvík og móðirin Dáð frá Laugarvatni með 7,71 efnilegur töltari. Sleipnir sonur Andvara frá Ey hlaut 8,03 fyrir sköpulag en sagt var að hæfileikarnir hefðu ekki notið sín vegna mikillar náttúru. Númi lang efstui 5 v. hestanua I 5 v. flokknum bar einn hestur af öllum. Þetta var Númi frá Þóroddsstöðum. Númi fékk á síðasta ári mjög góða einkunn og var þá efstur 4ra v. stóðhesta. Hamur frá Þóroddsstöðum varð efstur í flokki 6 v. Knapi Þórður Þorgeirsspn. því Svartssynir efstir bæði í 4ra og 5 v flokknum. Næstur Núma var Ogri frá Háholti sonur Storms frá Stór- hóli og Kylju frá Háholti. Ögri hlaut fyrir sköpulag 8,13. Hann Iækkar bæði fyrir sköpulag og hæfileika en fyrir þá fékk hann núna 7,90 en 8 í fyrra. Þetta er fallegur hestur en það lýtir hann hvað hann virðist vera mikið á einn afbragðstöltarinn enn, Þyr- ill frá Hárlaugsstöðum sem líka er dóttursonur Þokka frá Garði. Hann fékk 9 fyrir tölt. Fyrir sköpulag fékk hann 7,95 og fyrir hæfileika 7,94 skeiðlaus. Faðir Þyrils er Páfi frá Kirkjubæ. I þessum flokki var alls dæmdur 21 hestur en Númi sá eini sem náði inn á landsmótið, en þar er markið 8,05 fyrir þennan aldur. 1/erðiaun afhent í 5 v. flokknum. myndir: ka. Hann sýndi það núna að það mat hefur verið rétt. Fyrir sköpulag hækkar hann úr 8,13 í 8,23 og fyrir hæfileika úr 8,21 í 8,40; aðaleinkunn 8,31. Hann fær 9 fyrir fótagerð eins og af- komendur Glímu fá yfirleitt, eða kannski má fara enn Iengra aft- ur og tala um afkomendur Sjafnar. Fyrir skeið fékk hann 9,5 og var ekki ofgefið. Númi er undan Svarti frá Unalæk og Glímu frá Laugarvatni. Það eru beislinu í reið. Orrasonurinn Markús frá Lagnholtsparti fékk 8,05 fyrir byggingu og 7,91 fyrir hæfileika og hækkar þar úr 7,69 í fyrra; aðaleinkunn 7,98. Þetta er bráðgóður klárhestur. Loki frá Hofi I í Öræfum er líka ágætur klárhestur með 8,03 fyrir sköpu- lag og 7,90 fyrir hæfileika. Hann er sonur Gnýs frá Hrepp- hólum en móðirin er Þokkadís frá Hala Þokkadóttir. Þá kom Hestur frá Þóroddsstöðiun líka efstur í 6 v. flokknum I flokki 6 v. og eldri voru eins og að líkum lætur allt hestar sem voru að koma í endurdóm. Það vakti athygli að enginn þeirra var eldri en 6 v. Þarna voru á ferðinni hestar sem flest- ir höfðu fengið mjög góðan dóm 5 v. En greinilegt var að aukinn þroski og þjálfun færði þeim hærri einkunnir. Efstur í þessum flokki var Hamur frá Þóroddsstöðum. Hamur er glæsilegur virkjamikill hestur. Hann fær fyrir sköpulag 8,35 þar af 9 fyrir fótagerð og 9,5 fyrir hófa og fyrir hæfileika fær hann 8,66 og hefur hækkað úr 8,31 sem hann fékk í fyrra; aðaleinkunn 8,50. Hamur fékk 9 bæði fyrir tölt og brokk. Til gamans má geta þess að hæsti kynbótadómur í fyrra var 8,41. Hér fer saman óvenjugóð bygging og miklir hæfileikar. Hamur er sonur Galdurs frá Laugarvatni og því annar sonur hans á þessari sýningu en móðir hans er Hlökk Hrafnsdóttir frá Laugarvatni. Þóroddsstaðabónd- inn getur borið höfuðið hátt eftir þessa sýningu. Næsti hestur fékk líka góðan dóm í fyrra, en það var Eiður frá Oddhóli. Eiður fékk fyr- ir sköpulag 8,15 sömu einkunn og í fyrra en fyrir hæfileika fékk hann 8,74 og hafði hækkað úr 8,61; aðaleinkunn 8,45. Eiður er frábær ganghestur. Hann er með 9.5 fyrir tölt, 9 fyrir brokk og 9,5 fyrir vilja. Eiður er undan Gáska frá Hofsstöðum og Eiðu frá Skán- ey Eiðfaxadóttur. Minna má á það að annar afkomandi Eiðfaxa frá Stykkishólmi Valíant frá Hegg- stöðum er líka afbragðs töltari. Þriðji hesturinn í þessum flokki kom sannarlega á óvart. Það er Skorri frá Gunnarsholti. Fyrir sköpulag hækkar hann úr 8,03 í 8,10 og fyrir hæfileika hvorki meira né minna en úr 8,01 í fyrra í 8,61: aðaleinkunn 8,36. Fyrir hófa fékk hann 9 og fyrir tölt og vilja 9,5 og 9 fyrir brokk, stökk og fegurð í reið. A laugardagssýningunni sýndi hann ekki þennan styrk en sagt var að í dómnum hafi hann ver- ið frábær sem hlýtur að vera. Skorri er sonur Orra frá Þúfu og er með hæsta aðaleinkunn af hans sonum ásamt Andvara frá Ey. Þess má geta að Hrossarækt- arsamband Vesturlands á hlut í þessum þremur efstu hestum. Fjórði hesturinn var svo Hilmir frá Sauðárkróki. Hann fékk fyrir sköpulag 8,28 og fyrir hæfileika 8,16 og hefur hækkað úr 7,93 í fyrra; aðaleinkunn 8,22. Mest munar um skeiðein- kunnina en þar fær hann 9,5. Viljinn hefur líka harðnað en þar fær hann núna 8,5 en fékk 7.5 í fyrra. Hans veiki hlekkur er töltið en þar fær hann 7,5 en aðaleinkunn hans er engu að síður góð. Þessir fjórir hestar náðu inn á landsmótið en mörk- in fyrir 6 v. og eldri eru 8,15. Næstur Hilmi kom svo Álfur frá Akureyri undan Gassa frá Vorsabæ. Alfur fékk fyrir bygg- ingu 8,13, þar af 9 fyrir bak og lend og fyrir hæfileika 8,06; að- aleinkunn 8,09. Móðir Álfs er Frigg frá Pétursborg dóttir Harðar frá Kolkuósi. Sjötti hesturinn sem fór yfir 8 markið var Gljái frá Hrafn- kelsstöðum í Hrunamanna- hreppi. Hann fékk fyrir sköpu- lag 7,90 allt jafnar einkunnir og fyrir hæfileika 8,23; aðalein- kunn 8,06. Gljái er undan Við- ari frá Viðvík en móðir hans er Rangá frá Kirkjubæ dóttir Öng- uls og Brönu frá Kirkjubæ. Sýningin var tekin upp á myndband og er það verslunin Hestamaðurinn sem framleiðir og dreifir. Myndbandið er gott og mjög til glöggvunar. Verðlaun voru gefin af Lánasjóði land- búnaðarins.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.