Dagur - 11.06.1998, Síða 1
Keimaraskortur
sj aldan verið meiri
Sveitarfélög eyöa
mikliLin fjármimuin í
auglýsingar eftir
kenuunun. Launin of
lág. Eftirspum eftir
kennunun hlutfalls-
lega meiri. Einsetinn
sköli og færri nem-
endur í bekkjardeild-
um.
„Eg hafði það á tilfinningunni
um svipað leyti í fyrra að ástand-
ið yrði þá verra en árið þar á
undan. Það kom á daginn og ég
held að þetta eigi enn eftir að
versna nema eitthvað óvænt
komi upp sem snúi þessu við,“
segir Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Islands, um
það hvort meiri skortur sé á
kennurum um þessar mundir en
oft áður.
Of lág laun
Mjög mikil eftirspurn er eftir
kennurum við mjög marga skóla,
bæði á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Um það vitna
t.d. auglýsingar eftir kennurum í
fjölmiðlum. Hinsvegar virðist
sem réttindakennarar haldi að
sér höndum um allar ráðningar í
von um að fá kannski eitthvað
annað og betra launað starf en
þeir eiga kost á sem grunnskóla-
kennarar. Formaður KÍ segir að
ástandið í kennaramálunum sé
einföld staðfesting á því að Iaun
kennara séu ennþá of lág. Hann
áréttar þá skoðun sína að sveitar-
félögin vildu sitja uppi með
þennan vanda við gerð síðustu
samninga, enda töldu þau sig
ráða mjög vel við það. Nú sé
hinsvegar komið að þeim að sýna
á hvern hátt þau ætla að ráða bót
á þessum yfirvofandi skorti á
réttindakennurum á komandi
skólaári.
„Maður getur spurt sjálfan sig
að því hvort það sé betra fyrir
sveitarfélög að eyða hundruðum
Eiríkur Jónsson: „Ástandið á enn
eftir að versna
þúsunda í auglýsingar í stað þess
að setja þessa peninga í vasa
fólksins sem þau hafa í vinnu,“
segir formaður KI.
Gert vel við kennara
„Astandið er auðvitað slæmt ef
rétt er. Ég hef hinsvegar engar
nákvæmar tölfræðilegar upplýs-
ingar hvort þetta sé eitthvað
verra," segir Karl Björnsson, for-
maður launanefndar sveitarfé-
laga. Hann áréttar hinsvegar þá
skoðun launanefndar að við gerð
síðustu samninga hafi kennarar
fengið mun meira en aðrir. Þá sé
það engin ný bóla að sveitarfélög
geri vel \ið ýmsar fagstéttir eins
og t.d. kennara með því að bjóða
þeim ýmis fríðindi með því að
ráða sig í vinnu. Hinsvegar sé
samningsumboð sveitarfélaga
hjá launanefndinni eins og verið
hefur.
Formaður launanefndar bend-
ir einnig á að einsetning skóla og
færri nemendur í bekkjardeild-
um kunni að hafa í för með sér
hlutfallslega meiri eftirspurn eft-
ir kennurum en ella hefði verið.
Hann segist ekki geta staðfest
þessa fullyrðingu sína með töl-
fræðilegum staðreyndum en
þessi hugsun sé áleitin um þess-
ar mundir. - GRH
Limosine
í Hrísey
Nú er búið að slátra fyrstu
Limosinenautgripunum í Hrísey
og í júlí munu fyrstu steikurnar
af þessu dýrindis nautakjöti verða
á diskum gesta veitingahússins
Brekku.
Tæplega þrjú ár eru liðin síðan
fósturvísarnir af Limosinenaut-
gripunum voru fluttir í Einangr-
unarstöðina í Hrísey og eru þeir
gripir sem slátrað er 26 til 28
mánaða gamlir. Ekki er leyfilegt
að flytja kjötið út fyrir eyna og
mun veitingahúsið Brekka seþa
steikurnar, eitt veitingahúsa á Is-
landi.
Elís Arnason matreiðslumeist-
ari sá um að handleika fyrstu bit-
ana af Limosinenautakjötinu og
segir hann að þeir séu ákaflega
fallegir og vöðvamiklir.
Að sögn Smára Thorarensen,
eiganda Brekku, er ástæðan fyrir
því að gestum sé ekki boðið fýrr
upp á Limosine kjötið sé að kjötið
þurfi að meyrna betur. - HBG
Undanfarin ár hefur það verið Galloway en nú dugir ekkert minna en Limosine. Fyrsti bitinn af Limosinenauta-
kjötinu handleikinn af Elís Árnasyni matreiðslumeistara á Veitingahúsinu Brekku í Hrísey. mynd: gs
Jóhanna Sigurðardóttir: Þetta er
stjórnunarstíll manns sem segir:
Ríkið, það er ég.
Bréf Davíðs
lýsir hroka
„I bréfi Davíðs til Sverris birtist í
senn hroki hans, yfirgangur og
sá einræðisstíll sem er farinn að
vera mjög áberandi á síðustu
mánuðum," segir Jóhanna Sig-
urðardóttir alþingismaður, að-
spurð um bréf Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra til Sverris
Hermannssonar Landsbanka-
stjóra, sem gert hefur verið opin-
bert og fjallað er um í opnu Dags
í dag.
„Davíð er farinn að missa sig
aftur niður í það sem var fyrst
þegar hann var forsætisráðherra,
þegar hann taldi sig enn vera
borgarstjóra og ráða öllu. Sá stíll
breyttist, en er að birtast aftur.
Það er stjórnunarstíll manns
sem segir: Ríkið, það er ég.
Menn hafa tekið mjög vel eftir
þessum breytingum upp á
síðkastið. Hann fer yfir öll form-
leg valdsvið þegar hann svo kýs
og í þessu dæmi fór hann yfir á
valdsvið sem spurning er hvort
ekki tilheyrði Seðlabankanum
eða bankamálaráðherra," segir
Jóhanna. - FÞG
Sjá einnig umfjöllun bls. 8-9.
Týndur
sjoöur?
„Þetta er eitthvað sem þing-
mennirnir vita en ég ekki og hélt
ég mig nægilegan kunnugan
þessu,“ segir Kristján Ragnars-
son, formaður LÍÚ.
Svo virðist sem einhver áhöld
séu um það hvort tryggingasjóð-
ur fiskiskipa sé enn við lýði eða
ekld. I tillögum til úrbóta í ör-
yggismálum sjómanna, sem
fimm manna þingmannanefnd
hefur Iagt fram, er m.a. gert ráð
fyrir því að fá íjármuni úr þess-
um tryggingasjóði til að efla ör-
yggi sjómanna. - GRH
1