Dagur - 11.06.1998, Blaðsíða 2
I
2 -FIMMTUDAGUR ll.JÚNí'Í99B
FRÉTTIR
„Það virðist eitthvað hafa hiaupið í sálina á flugvélinni, “ sagði Stefán Sigfússon. Flugvélin Páll Sveinsson á Selfossflugvelli í baksýn.
mynd: -sbs.
Páli varla fLogið
meira í sumar
Ólíklegt að fullnaðarvið-
gerð á Páli Sveinssyni geti
farið fram á Selfossflug-
velli, en þar nauðlenti vél-
in eftir að eldur kom upp
í hreyfli.
„Ég held að það sé alveg ljóst að flug-
vélinni verður ekki flogið meira í sum-
ar, viðgerð er það umfangsmikil,“ sagði
Stefán H. Sigfússon hjá Landgræðsl-
unni, en sem kunnugt er nauðlenti
flugvél Landgræðslunnar, Páll Sveins-
son, á Selfossflugvelli í fyrrakvöld eftir
að eldur kom upp í hægri hreyfli vélar-
innar. Mildi þykir að ekki fór verr, því
aðeins eru um 50 metrar frá þeim stað
7RÉTTAVIÐ TALIÐ
''A
þar sem vélin staðnæmdist og út í Ölf-
usá. Enn er ekki fullljóst hversu mikil
áhrif þetta mun hafa á starf Land-
græðslunnar í sumar.
Menn frá Rannsóknarnefnd flugslysa
mættu á Selfossflugvöll í fyrrakvöld og
athuguðu vélina. Ljóst þykir að skipta
þurfi um mótor í vélinni og jafnframt
ýmsar leiðslur sem frá honum liggja.
Stefán H. Sigfússon telur ólíklegt að
fullnaðarviðgerð á vélinni geti farið
fram á Selfossi, og koma þurfi henni á
annan flugvöll til slíks, þá væntanlega
með ærinni fyrirhöfn. „En það er eng-
inn botn kominn í það enn, það er mál
sem við eigum eftir að ræða,“ segir
Stefán.
Páll Sveinsson var í 6. flugferð
þriðjudagsins þegar eldurinn í vélinni
kom upp. Aburðarflugið hófst á mánu-
dag og þá var dreift frá Reykjavík, en
vélin var á flugi frá Gunnarsholti og að
Þorlákshöfn þegar eldurinn kom upp.
Fljúga átti frá Gunnarsholti til áburð-
ardreifingar í þijá daga, en síðan átti að
fara í áburðardreifingu á Eyvindar-
staða- og Auðkúluheiðum í Húnaþingi.
„Það virðist eitthvað hafa hlaupið í
sálina á flugvélinni,“ sagði Stefán Sig-
fússon. Hann vitnaði til þess að í fyrra
lenti vélin út af flugbrautinni á Eyvind-
arstaðaheiði og laskaðist hjólabúnaður
vélarinnar - og síðan atvikið á þriðju-
dag. Að öðru leyti hefur vélin reynst
Landgræðslunni afar vel í þau 26 ár
sem hún hefur verið nýtt til áburðar-
dreifingar og á sama hátt var hún
happagripur meðan hún var í eigu
Flugfélags Islands, en vélin kom upp-
haflega til landsins árið 1946. -SBS
Enn ræða menn Ríkisútvarpið
í heita pottinum. Núna eru það
breytingarnar hjá Sjónvarp-
inu, en meðal þess sem stcndur
til að breyta í dagskrárstefn-
unni er að úthluta skrifstofu
framkvæmdastjóra 20 mínút-
um í dagskránni vikulega til
frjálsrar ráðstöfunar. Mörgum
finnst þetta ininna óþægilega
mikið á „góðu gömlu dagana" þegar á skrifstofu
framkvæmdastjóra sat maður að nafni Hrafn
Gunnlaugsson sem skömmu áður hafði verið
rekinn úr starfi dagskrárstjóra. Hrafn tók upp
þann sið að úthluta skrifstofu framkvæmda-
stjóra (sjálfum sér) tíma og fé í dagskránni. Var
sá tími vel nýttur m.a. til að koma ungum heim-
dellingum á framfæri.
Hrafn Gunn-
laugsson.
Og emi um Sjónvarpið. í pottinum þykir það
sæta tíðindum að leggja eigi niður fréttaskýr-
ingaþáttinn Kastljós í sjónvarpinu og virðast
bæði jafnaðarmennimir og framsóknarmenn-
irnir sammála um að cnn sé verið að þrengja að
andrými fréttastofunnar...
Baráttan um formennsku hjá
SUF er ekki talin verða mjög
hörð. í pottinum er sú skýring
gefin á mótframboði Reykvlk-
ingsins Þorláks Traustasonar
að ungir frainsóknarmenn í
höfuðstaðnum telji að Árni
Gunnarsson, sitjandi formað-
ur, sé orðinn það mikill þunga-
vigtarmaður inni í sjálfu
flokksapparatinu að varla sé hægt að telja hann
eiginlegan uppreisnargjarnan ungliða lengur.
Árni er sem kunnugt cr aðstoðarinaður Páls Pét-
urssonar og hægri hönd ráðherrans og almennt
taliim ætla í framboð tii Alþingis næsta vor...
Pólití skur j árnhæll
Sjálfstæðisflokks
Ámi Guntmrs-
son
formaðurSUF og aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra.
Sambatid ungra framsókn-
armanna heldur upp á 60
ára afmæli sitt um næstu
helgi. Þáferjafnframtfram
þing samtakanna þarsem
ýmis mál verða á dagskrá.
Ekkert eggjahljóð lengurhjá
stjómaröflunum.
- Hvernig minnist SUF tímamótanna?
lyk sem veglegastan hátt. Jafnframt reyn-
um við að Iáta fara frá okkur eitthvað af viti
sem gæti reynst gott innlegg fyrir þá sem
stjórna landinu."
- Þú munt fá mótframboð sem formað-
ur. Hyggstu gefa kost á þér áfram?
„Ég mun gera það já. Þorlákur Traustason
býður sig fram gegn mér og það Ieggst vel í
mig. Pólitískt starf hefur gott af því að
menn takist á.“
- Er rétt að þingið hyggist sérstaklega
beina spjótum sínum að málefnum Rikis-
útvarpsins?
„Texti um þetta er í drögum sem verða
lögð fyrir þingið. Það ákveður síðan fram-
haldið, en mín persónulega skoðun er að
Ríkisútvarpið búi við algjörlega óviðunandí
ástand. Það er undir pólitískum járnhæl
Sjálfstæðisflokksins og sú starfsaðstaða sem
dagskrárgerðarfólki og fréttamönnum er
boðið upp á, er óviðunandi. Við erum að
leita leiða til að komast út úr þessu. Eitt af
því sem okkur dettur í hug er að Ríkisút-
varpinu verði breytt í almenningshlutafélag,
þar sem útvarpið yrði fært þjóðinni að gjöf
að hluta til eða öllu Ieyti með því að senda
hlutabréfin heim til landsmanna."
- Hvað áttu við þegar þú talar um pólit-
ískan jámhæl?
„Þá ég við að við erum með mjög pólitísk-
an formann útvarpsráðs sem hefur beitt sér
pólitískt hvað eftir annað. Ég á við orðsend-
ingar forsætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins til fréttastofanna tveggja
eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Fjölmörg
dæmi rökstyðja þetta."
- Þú ert ekki par ánægður með stjómar-
samstarfsflokk framsóknar í þessu máli?
„Sjálfstæðismenn tala og álykta á öllum
sínum samkomum um þessar mundir að
Ríkisútvarpið eigi að leggja niður. Aðstoðar-
maður menntamálaráðherra sem jafnframt
er formaður Sambands sjálfstæðismanna
endar allar sínar tölur á að leggja til að Rík-
isútvarpið verði Iagt niður. Á sama tíma nýta
sjálfstæðismenn sér að þetta er ríkisstofnun
sem þeir nota til að raða mönnum á garð-
ann. Það er afar mikill tvískinnungur í
þessu öllu og ég sé ekki betur en að verið sé
að drepa stofnunina innan frá.“
- Titrar stjórnarsamstarfstaugin vegna
yfirlýsinga forsætisráðherra í þessum efn-
um? Eru sprungur að myndast milli
Eramsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks?
„Þetta jók a.m.k. ekki álit framsóknar-
manna á forsætisráðherranum eða sam-
starfsflokknum í heild. Þó væri ofmælt að
segja að djúp skörð hefðu verið hoggin en
það verður einhverjar breytingar að gera.“
- Einhver önnur mál en RÚV-umræðan
sem munu verða ofarlega á baugi á þing-
inu um næstu helgi?
„Við munum leggja til nýja þjóðarsátt um
sparnað til að kæla efnahagskerfið og koma
í veg fyrir vaxtahækkanir. Það er tfmabært
að aðilar vinnumarkaðarins setjist niður
með ríkinu og semji þjóðarsátt um sparnað
þar sem allir Ieggi eitthv'að af mörkum.“
- Óttastu þróunina?
„Já, ég óttast að skriðan fari af stað. Það
væri engum til góðs.“ — bþ