Dagur - 11.06.1998, Qupperneq 3

Dagur - 11.06.1998, Qupperneq 3
 FIMMTUDAGUR ll.JÚNÍ 1998 - 3 FRÉTTIR Ekkert Dagsljós hjá RÚV næsta vetur Konur sem nú eru á áttræðis- og níræðisaldri hafa fyrst og fremst unnið við heimilisstörf. Fréttatímiim lengdur um 5-10 míiiiítur. Ekkert Kastljós. Skrifstofa fram- kvæmdastjóra fær rúmar 20 mínútur vikulega til dagskrár- gerðar. Töluverðar breytingar verða á dagskrá Ríkissjónvarpsins í vetur frá því sem verið hefur undanfar- in ár. Sem dæmi verður ekkert Dagsljós næsta vetur og ekki heldur fréttaskýringaþátturinn Kastljós. Þá hafa rúmlega 20 mínútur í vikulegri dagskrá sjón- varpsins verið teknar frá undir dagskrárgerð sem heyrir undir framkvæmdastjóra Sjónvarpsins. Sigurður Valgeirsson dagskrár- stjóri innlendrar dagskárgerðar vildi ekki tjá sig opinberlega um þessar breytingar að svo stöddu að öðru Ieyti en því að ekkert Dagsljós verður næsta vetur. Hann sagði ekki rétt að úttala sig um þessar breytingar áður en þær verða kynntar starfsfólki. Áhöfn Dagsljóssþáttarins verður fjarri góðu gamni næsta vetur, í það minnsta í þeim hlutverkum sem áhorfendur þekkja þau úr frá í fyrra. Lengri fréttatími Samkvæmt heimildum Dags verður fréttatími Sjónvarps lengdur um 5-10 mínútur. Þessi lenging kemur í stað Kastljóss. Þá er hugmyndin að nota tímann frá 19.30 - 20 með ýmiskonar þemaefni eins og t.d. menningu og listum til að auka áhorf á þessum tíma. „Mér finnst auðvitað ánægju- Iegt að fá lengri fréttatíma sem gefur okkur rúm fyrir bæði inn- lendar og erlendar fréttaskýring- ar og lengri viðtöl. Þannig að því leyti horfir þetta til bóta. Við þurfum hinsvegar meiri tíma,“ segir Helgi H. Jónsson frétta- stjóri. Hann segir að fréttastofan hafi lengi farið fram á það að fá meira svigrúm, eða svokallað við- bragðsrúm. Það er til þess að geta brugðist við því sem kann að koma upp á dagíega í fréttum. Hann segist því ekki vera alveg úrkula vonar um að fréttastofan fái eitthvað af þeim tíma sem settur hefur verið undir skrif- stofu framkvæmdastjóra. Það helgast m.a. af því að ekki hefur verið ákveðið hvernig sá tími verður nýttur. -GRH Heimilis- störfin forheimsk- andi? Vitræn skerðing reyndist tvisvar sinnum algengari meðal aldr- aðra (70-85 ára) kvenna en karla er niðurstaða rannsóknar sem getið er um í ágripi í Læknablaðinu (júní ‘98). Hugs- anleg skýring á þessu er m.a. nefnd sú „að minni menntun og fyrri störf kvenna komi fram í vitræna prófinu“. Fyrri störf kvenna sem nú eru á áttræðis- og níræðisaldri hafa verið heim- ilisstörf fyrst og fremst og í mörgum tilfellum eingöngu. Onnur tilgáta er, að karlar með skerta vitræna getu hafi kannski fallið fyrr úr hópnum vegna annarra sjúkdóma. Lyflæknaþing á Aknreyri Björn Einarsson læknir mun skýra frá niðurstöðum þessarar rannsóknar á þingi Félags ís- lenskra lyflækna sem heldið verður á Akureyri um helgina (12. til 14. júní). — HEI Gríðarlegt álag var um tíma á skiptiborðinu hjá RÚVAK þegar örvæntingarfullar knattspyrnubullur hringdu inn og spurðu hvað væri um að vera. Þær Nína Þórðardóttir og Dóróthea Eyland reyndu eftir bestu getu að róa menn. Martrö ö HM-iuinenda Knattspymuiumendiir fóru á taugum á Norð- urlandi í gær þegar út- sendingar frá HM lentu í tvísýnu. Allar línur hjá Ríkisútvarpinu á Akureyri voru rauðglóandi um miðjan dag í gær eftir að sendir bilaði á Vaðlaheiði með þeim af- leiðingum að sjónvarpsútsending datt niður. Þetta ástand varði nánast fram að útsendingu frá HM í knattspyrnu sem hófst með leik Brasilíumanna og Skota kl. 15.30 í gær. Mikil taugaveiklun greip um sig hjá knattspyrnuá- hugamönnum á Norðurlandi en þeir sluppu með skrekkinn. Við- gerð lauk rétt fyrir ldukkan 15.00 og Norðlendingar fengu sinn fót- bolta. „Það greip mikil skelfing um sig og síminn stoppaði ekki. Þetta var martröð. Sumir voru reiðir en aðrir sögðust ætla að treysta á guð og símann," sagði Arnar Páll Hauksson, deildarstjóri RUV á Norðurlandi í gær, en þar á bæ sátu menn sveittir við að svara fyrirspurnum fram eftir degi. Landssíminn sér um viðhald sendisins sem bilaði og er hann kominn vel til ára sinna eins og margur annar búnaður sem teng- ist sjónvarpsútsendingum. „Fjár- skorturinn er viðvarandi og sumt af þessum búnaði er farið að eld- ast verulega," segir Arnar Páll. Ætíi að duga Sú spurning var ofarlega í huga margra í gær hvort viðgerðin væri aðeins til bráðabirgða eða hvort HM-unnendur sem aðrir áhorf- endur gætu átt von á frekari bil- unum sem gætu haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Olafur G. Viktorsson, rafeindavirki hjá Landssímanum, var staddur á Vaðlaheiði í gær. Hann sagði við- gerð lokið og ekkert benti til ann- ars en að allt yrði í lagi framveg- is, en þó gerðu bilanir ekki boð á undan sér. Um ræddi bilun í loft- neti og komu sérhæfðir menn frá loftnetadeild Landssímans í Reykjavík til að gera við ásamt heimamönnum. Bilunin náði til alls Evjatjarðarsvæðisins, Dalvík- ur, Olafsfjarðar, Siglufjarðar, Húsavíkur og Mývatnssveitar svo eitthvað sé nefnt. — BÞ Jónas forseti bæjar- stiómar Á tyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Seyðisljarðar 8. júní sl. var Jónas A. Þ. Jóns- son kjörinn forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs, en Gunnþór Ingvason 1. varafor- seti. Kosið var í nefndir og ráð en Framsókn- arflokkur var með Sjálfstæðisflokld í þeim kosningum. Sjálfstæðismenn fengu hreinan meirihluta í bæjarstjórnarkosningunum 23. maí sl. Staða bæjarstjóra verður auglýst innan tíðar en fráfarandi bæjarstjóri, Þorvaldur Jóhanns- son, mun sinna starfinu fram til hausts. —GG Órökstudd gagnrýni átaliu Stjórn Blaðamannafélags Islands hefur samþykkt ályktun vegna um- ræðu og gagnrýni á fréttaflutning í Ijölmiðlum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga. Þar segir m.a.: „Stjórn Blaðamannafélags tslands átelur órökstudda gagnrýni á fréttaflutning vegna sveitar- stjórnarkosninganna í maí. Slík gagnrýni getur orðið til þess að koma í veg fyrir eðlilega umræðu í þjóðfélaginu og er sérstaklega alvarleg þegar hún er sett fram af fulltrúum stjórnvalda sem njóta virðingar starfa sinna vegna.Það er því krafa blaða- og fréttamanna að séu störf þeirra gagnrýnisverð þá sé gagnrýnin sett fram með skýrum rök- um og studd dæmum." Bjami fór utan 7 ára Að gefnu tilliti skal tekið fram að Bjarni Try'ggvason geimfari bjó á íslandi til sjö ára aldurs en í blaðinu í gær var sagt að hann hafi aldrei til Islands komið. Með því var átt við að eftir að Bjarni fluttist til útlanda, hefur hann ekki sótt Island heim. Bjarni Tryggvason, geimfari.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.