Dagur - 11.06.1998, Síða 5

Dagur - 11.06.1998, Síða 5
 FIMlflTIfPAGUR ll+JÚNltXS9 8- S Metkast hiá Hólmaborg FRETTIR Hraði o*i læti ástæða margra slysa á sjóimm Engiim má vera að neinu. Átaks er þörf. Sjómenn verða að vera meðvitaðri um hættumar, segir LÍÚ. „Þetta er bara hraðinn og lætin. Það má enginn vera að neinu, hvorki á fiskiskipum eða kaup- skipum. I fragtinni má t.d. aldrei stoppa og þar verða menn helst að vera farnir áður en þeir koma,“ segir Birgir Björgvinsson, stjórnarmaður í Sjómannafélagi Reykjavíkur. „Öskurapi í bruimi“ Hann segir að þetta séu m.a. „Sjómenn verða að vera meðvitaðir um sina hættu.“ ástæður þess að ekki hefur tekist að fækka slysum á sjómönnum. Sem kunnugt er þá hefur slysum á sjómönnum farið sífjölgandi og Iætur nærri að einn af hverjum tíu sjómönnum slasist á hverju ári. Birgir telur hinsvegar að hægt sé að fækka þeim með því að flýta sér aðeins hægar en gert er og hætta öllu óðagoti til sjáv- ar. Þá sé alltof lítið um það að menn hafi tíma til að kynna sjó- mönnum sem koma nýir til borðs nauðsynleg vinnubrögð og allar aðstæður. Þess í stað ættu menn að gefa sér tíma til að ganga með nýliðum um skipið og sýna þeim hvað ber að varast og hvað ekki. Þess utan batnar það ekki ef karlinn í brúnni er „ein- hver öskurapi með kjaftinn alltaf í hánorður." Þá verða menn trekktir á taugum sem býður hættunni heim. Átak gegn slysum Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ, er ekki sammála þessari lýsingu Birgis. Hann er hinsveg- ar á því að það þurfi átaks við til að fækka slysum á sjómönnum í samvinnu við alla hlutaðeigandi. „Þetta mál snýr í aðalatriðum að sjómönnum. Þeir verða að verða meðvitaðri um sína hættu og standa að þeim málum með þeim hætti. Þessu verður aldrei stjórnað með eftirliti frá Iandi,“ segir Kristján Ragnarsson. - GRH Hólmaborg frá Eskifirði landaði í gær 2.700 tonnum af síld, eða fullfermi, á Eskifirði, og lauk skipið þar með við að veiða þann kvóta sem það fékk úr norsk-ís- lenska síldarstofninum en síldin er nú gengin inn í íslensku lög- söguna, þ.e. flotinn er farinn að veiða „Islandssíld“. Mikil áta er enn í síldinni en hún orðin sæmilega feit. Þrátt fyrir það fer hún öll til bræðslu en aflaverð- mæti þessa farms Hólmaborgar- innar gæti numið um 21 milljón króna. Fleiri bátar voru á land- leið í gær eftir sjómannadaginn, m.a. Júpíter frá Þórshöfn sem fékk 1.100 tonn í einu kasti. Peningalyktin fer því innan tíðar að kitla lyktarskyn nágranna síldarverksmiðjanna. Þorsteinn Kristjánsson, skip- stjóri á Hólmaborg, segir að mikil veiði hafi verið á síldar- miðunum á þriðjudag en hún hafi verið minni á miðvikudag. - GG Falsaði naftt bróður Liðlega fertugur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í 12 mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir að falsa nafn bróður síns sem sjálfsskuld- arábyrgðaraðila á skuldabréfi og á víxil vegna bifreiðakaupa. Maðurinn keypti þriggja millj- ón króna bifreið í gegnum fjár- mögnunarfyrirtækið Glitni. Út- búið var skuldabréf sem maður- inn falsaði nafn bróður síns á og einnig falsaði hann nafn bróður sína á 107 þúsund króna víxil sem hann seldi í Islandsbanka. Það var sjálfur bróðir mannsins sem tilkynnti um fölsunina til RLR, en ákærði sagðist hafa haft heimild bróður síns til að rita nafn hans á pappírana. Það tald- ist ósannað. Hinn ákærði fékk 12 mánaða fangelsisdóm, en hann var allur skilorðsbundinn í tvö ár. Kemur fram í dómnum að hinn ákærði hafi lent í alvarlegu slysi 1992 og hafi ætlað að kaupa bílinn til að stunda Ieigu- akstur, sem ekki hafi gengið vegna heilsuleysisins. Hann er heimilislaus og upp á aðra kom- inn um allt. - FÞG Stórlaxar komu á land í Laxá í Aðaldal í gær, fyrsta daginn sem veiði er leyfð í sumar. Halldór Blöndal samgönguráðherra barði ána fyrstur samkvæmt hefð en hafði ekki erindi sem erfiði. Heimamenn og eigendur árinnar voru hins vegar heppnari og fengu Laxmýringar 5 laxa, þar af tvo stórlaxa. Það voru Halla Björnsdóttir og Jón Helgi Vigfús- son, sláturhússtjóri KÞ, sem kræktu í þá stærstu og fögnuðu vel. Vigfús Jónsson yngri er á stærð við laxana stóru. INNLENT Atvinniileysi minnkar á Norðurlandi vestra Atvinnuástand hefur batnað nokkuð á Norðurlandi vestra samkvæmt skráningu svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra. Verulega hefur fækkað á atvinnuleysisskrá. I apríl voru um 300 einstaklingar án vinnu í kjördæminu en um síðustu áramót hafði þeim fækkað um 50. Eitt hundrað manns eru enn atvinnulausir í Skagafirði, 50 á Siglu- firði, 30 á Skagaströnd og Blönduósi. Svæðisútvarp Norðurlands greindi frá. Stærstu iaxamir eru engin smásmíði eins og sést í samanburði við Vigfús Jónsson yngri frá Laxamýri. Heimamenn voru kátir i gær þegar laxveiðitímabilið hófst í Laxá i Aðaidai. mynd js Risalaxar í Aðaldal . 10 sækja uni landlæknisstöðu 10 umsækjendur eru um stöðu landlæknis. Það eru Guðjón Magnús- son, Haraldur Briem, Haukur Valdimarsson, Júlíus Valsson, Kristján Oddsson, Lúðvík Ólafsson, Ólafur Hergill Oddsson, Sigurður Guð- mundsson, Sveinn Magnússon og Þorsteinn Njálsson. Búist er við að umfjöllun stöðunefndar liggi fyrir eftir 1-2 mánuði og er því ákvörð- unar ráðherra um skipunina að vænta eftir 2-3 mánuði. Aukauualeg af- skipti Davíðs Pétur Blöndal alþingismaður og flokksbróðir Davíðs oddssonar, sagði í viðtali við Stöð 2 í gærkvöld að hann teldi afskipti forsætisráð- herra af vaxtamálum Landsbank- ans ankannaleg. Eins og fram hef- ur komið ritaði Davíð Oddsson Sverri Hermannssyni bréf fyrir tveimur árum, þar sem hann knúði fram vaxtalækkun. Pétur sagði bankakerfið íslenska bjóða upp á afskipti sem þessi vegna ríkisaðild- arinnar að bönkunum. Pétur Blöndal alþingismaður. Veldur ofvirkni dópneyslu? Talið er að athyglis- lirestur með oívirkiii sé ein algengasta or- sök hegðunar- og að- lögunarerfiðleika og fíkniefnamisnotkunar síðar á ævinni. „Rannsóknir benda til að 2—5% barna eigi við ofvirkni að stríða og ýmislegt bendir til að athyglis- brestur með ofvirkni sé ein al- gengasta orsök hegðunar- og að- Iögunarerfiðleika og fíkniefna- misnotkunar síðar á ævinni. Samkvæmt athugun á Islandi virðist tíðnin vera 1% meðal 6-12 ára barna og einn fjórði þeirra virðist eiga foreldra sem eru eða hafa verið ofvirk.“ Þetta kemur fram í samantekt hóps lækna, sem mest afskipti hafa af þessum vandamálum og komið hafa sam- an til viðræðna um þau á vegum landlæknisembættisins að und- anförnu. Þunglyndislyf algengust Niðurstaða hópsins er sú, að of- virkni með athyglisbresti sé álíka algeng hér og í nágrannalöndun- um og því líklega vangreint ástand á Islandi. Ofvirkni sé í langflestum tilfellum afleiðing vefrænna truflana í heilastöðv- um, en geti einnig stafað af rösk- un í ytra umhverfi barna. Lyf séu mikilsverður hluti meðferðarinn- ar og oft forsenda þess að hægt sé að beita öðrum meðferðarað- ferðum. Algengast sé að nota örvandi lyf svo sem Ritalin, en önnur lyf svo sem þunglyndislyf komi einnig til greina. Þekking og reynsla af notkun þessara lyfja hjá börnum sé orðin veruleg. Vill víðtækt samstarf Læknarnir segja stóran hluta of- virkra barna eiga við margháttað- an námsvanda að stríða. Grein- ing á meðferð barna með ofvirkni og athyglisbrest kalli á samvinnu margra fagstétta; lækna, sálfræð- inga, sérkennara, félagsráðgjafa, sjúkra- og talþjálfara, iðjuþjálfa og fleiri. Og Landlæknisembætt- ið vill hafa frumvæði að því að fá þessa aðila til samstarfs um úr- lausn fjTÍr ofvirk börn. - HEI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.