Dagur - 11.06.1998, Blaðsíða 12
1% - FIMMTUDAGUR 1 lr JÚflí, 1J9 9 8
ÍÞRÓTTIR
Brasilíimtenn
þiirftu sjálfs-
mark til sigurs
„Það er hræðileg tilfinning að
tapa leiknum með þessum hætti
og ég hef ekki upplifað annað
eins,“ sagði Tommy Boyd, skoski
varnarmaðurinn sem varð fyrir
því óláni að skora sjálfsmark í
opnunarleik HM, gegn Brasilíu-
mönnum. „Jim varði skotið mjög
vel, en ég gat ekki forðað mér frá
boltanum og því fór sem fór,“
sagði Skotinn óheppni.
Þetta sjálfsmark varð sigur-
mark Brassanna í þessum fyrsta
leik heimsmeistarakeppninnar í
Frakklandi, en Brassarnir sigr-
uðu í leiknum með tveimur
mörkum gegn einu marki Skota
sem Collins skoraði úr víta-
spyrnu.
„Taugaveiklun einkenndi
þennan Ieik eins og alla byrjun-
arleiki," sagði Zagallo, þjálfari
Brasilíumanna, sem var að von-
um ánægður með sigur sinna
manna.
Craig Brown, þjálfari Skota,
var að sjálfsögðu ekki eins
ánægður og sagði að sitt lið
hefði átt alla möguleika á að
halda jöfnu. „Það hefðu verið
frábær úrslit fyrir Skotland,"
Cesar Sampaio skoraði fyrsta
markið á HM.
sagði Brown.
Fyrra mark Brasilíumanna og
fyrsta markið á HM skoraði Ces-
ar Sampaio á fimmtu mínútu
leiksins.
Seinni Ieiknum í gærkvöld,
mili Noregs og Marokkó, lauk
með jafntefli, tvö mörk gegn
tveimur.
o
o
meí Degi og íslandsflugi
Nú getur þú lesið
Dag í loftinu á öllum
áætlunarleiðum
Islandsflugs.
ÍSLANDSFLUG
gortr tlotrum foert uð fíjúga
Möðruvöllum
Tilraunastöðin á Möðruvöllum - Bústjóri
Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að ráða bústjóra
að Tilraunastöðinni á Möðruvöllum I Hörgárdal frá og
með 1. september 1998. Umsóknir ásamt fylgiskjölum með
upplýsingum um menntun og fyrri störf berist tilraunastjóra,
Bjarna E. Guðleifssyni, Óseyri 2, 603 Akureyri,
fyrir 10. júlí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
Styrkur til háskólanáms í Japan
Hér með framlengist til 25. júní nk. frestur til að
skila inn umsóknum um annan af tveimur styrkjum,
er japönsk stjórnvöld bjóða fram handa íslending-
um til rannsóknanáms í háskóla í Japan á árinu
1999, og auglýstir voru lausir til umsóknar 17. apr-
íl sl. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást
í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 9. júní 1998.
Xfc^ur
mmm
UMFERÐ
ÞRÓTTUR 1
Mark: Asmundur Haraldsson.
Gul spjöld: Daði Dervic, Gunnar
Gunnarsson.
LEIFTUR 2
Mörk: Baldur Bragason, Rastislav
Lazorik
Gul spjöld: Þorvaldur Guðbjömss.
Maður leiksins:
Paul Kinniard,
Leiftri
ÍA 3
Mörk: Alexander Högnason,
Sigurður R. Eyjólfsson, Pálmi
Haraldsson
Gul spjöld: Rcynir Leósson
GRINDAVÍK 0
Gul spjöld: Sveinn Ari Guðjónss.,
Hjálmar Hallgrímsson.
Maður
leiksins:
Alexander
Högnason,
ÍA
KR 3
Mörk: Sigþór Júlíusson, Besim
Haxhiajdini, Guðm. Bendiktsson.
Gul spjöld: Birgir Sigfússon,
David Winnie.
ÍR 0
Gult spjald: Garðar Newmann.
Maður
leiksins:
Einar Þór
Daníelsson,
KR
KEFLAVÍK 1
Mark: Þórarinn Kristjánsson
FRAM 0
Gul spjöld: Anton B. Markússon,
Jón Sveinsson
Maður
leiksins:
Bjarki
Guðmundss,
Keflavík
ÍBV 6
Mörk: Steingr. Jóhannesson (3),
Hlynur Stefánsson, Sindri Grétars-
son, Ingi Sigurðsson.
VALUR 1
Mark: Jón Þ. Stefánsson
Gul spjöld: Daði Árnason, Ingólf-
ur Ingólfsson, Grímur Garðarsson,
Bjarki Stefánss., Kristinn Björnss.
Maður
leiksins:
Steingrímur
Tóhannesson,
íbv
Staðan eftir 5 umferðir
IBV 5 3 1 1 15-6 10
Leiftur 5 3 1 1 6-4 10
Keflavík 5 3 1 1 5-5 10
KR 5 2 3 0 6-1 9
ÍA 5 1 3 1 7-6 6
Þróttur 5 1 3 1 8-8 6
Grindav. 5 1 2 2 5-7 5
ÍR 5 1 1 3 3-7 4
Valur 5 0 3 2 5-11 3
Fram 5 0 2 3 1-6 2
Barcelona best
Spænska knattspyrnuliðið
Barcelona er það lið sem á
flesta leikmenn í heimsmeist-
arakeppninni. Þrettán leik-
menn frá spænska liðinu leika
með landsliðum þriggja þjóða.
Italska liðið Inter kemur næst
á eftir með 11 leikmenn í sjö
landsliðum.
Leikmenn Barcelona í HM
eru þessir: Abelardo, Amor,
Celades, Ferrer, Luis Enriqe,
Nadal, Pizzi og Sergi, allir í
spænska Iandsliðinu. Hesp,
Spánverjinn Amor er einn þeirra
landsliðsmanna sem leikur með
Barcelona.
Bogarde og Reizger i því hol-
lenska og í brasilíska liðinu
eru Giovanni og Rivaldo.
Enska úrvalsdeildin
sterkust
Ef marka má styrldeika knatt-
spyrnudeildanna eftir fjölda
leikmanna á HM er enska
deildin sú sterkasta í heimi.
Sjötíu og sex leikmenn úr
ensku úrvalsdeildinni leika
með liðum á HM. ítalska A-
deildin og spánska fyrsta
deildin koma næstar með sjö-
tíu leikmenn. Þar á eftir kem-
ur þýska úrvalsdeildin með 54
leikmenn, sú franska með 50
leikmenn og hollenska deildin
er þar næst með 20 Ieikmenn.
Sex sterkustu deildir heimsins
eru samkvæmt þessu í Evrópu.
Fá mörk 1 fyrsta leik
I upphafsleikjum átta síðustu
heimsmeistarakeppna hafa að-
eins verið skoruð fimm mörk
til samans. Þar af voru tvö
mörk skoruð þegar Ítalía og
Búlgaría gerðu 1-1 jafntefli
1986.
Svona hafa upphafsleikirnir
farið til þessa:
1930 Bandaríkin-Belgía 3-0
1934 Ítalía-Bandaríkin 7-1
1938 Sviss-Þýskaland 1-1
1950 Brasilía-Mexíkó 4-0
1954 Júgóslavía-Frakkl. 1-0
1958 V-Þýskal.-Argentína 3-1
1962 Uruquay-Columbia 2-1
1966 England-Uruquay 0-0
1970 Mexíkó-Sovétríkin 0-0
1974 Brasilía-Júgóslavía 0-0
1978 V-Þýskal.-Pólland 0-0
1982 Argentína-Belgía 0-1
1986 Ítalía-Búlgaría 1-1
1990 Argentína-Kamerún 0-1
1994 Þýskaland-Bólivía 1-0
1998 Brasilía-Skotland 2-1
Gamli maðurinn og
boltinn
Brasilíski landsliðsþjálfarinn,
Mario Jorge Lobo Zagallo, er
með elstu þjálfurum heims í
dag. Hann stýrir nú brasilíska
Iandsliðinu í þriðja sinn á HM
og hefur tækifæri til að vinna
sinn fimmta heimsmeistaratit-
il. Hann hefur verið með
Brössunum í þau ijögur skipti
Zagallo þjálfari Brasilíumanna.
sem liðið hefur unnið heims-
meistaratitilinn, sem leikmað-
ur árin 1958 og 1962, þjálfari
1970 og aðstoðarþjálfari
1994.
Að sjálfsögðu er Zagallo
þjóðhetja í Brasilíu þó ekki séu
allir forráðamenn fótboltans
þar í landi hundrað prósent
ánægðir með karlinn. Þeim
þykir hann ekki fylgjast nóg
með „tækninni" og settu því
snillinginn Zico honum til að-
stoðar óumbeðið. Hann hefur
einnig sætt gagnrýni frá
norska landsliðsþjálfaranum,
Egil Olsen, en Iætur það sem
vind um eyru þjóta enda náð
meiri frama í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu en
nokkur núlifandi maður.
Stan „The Man“ löðrung-
aði kærustuna
Knattspyrnumaðurinn Stan
Collymore hefur löngum átt í
útistöðum við samfélag sitt.
Samband hans við kærustu
sína, hina sænsku Ulriku Jon-
son, hefur oft verið storma-
samt en í fyrradag tók þó
steininn úr þegar þau voru
stödd á pöbb í Frakklandi, þar
sem þau ætla að fylgjast með
Heimsmeistarakeppninni.
Þegar Ulrika var að tala við
skoska knattspyrnukappann
Ally McCoist, réðist kappinn á
hana, lamdi, barði og sparkaði
og fyrir framan á annað
hundrað skoska knattspyrnuá-
hugamenn sem eru mættir á
HM til stuðnings landsliði
sfnu.
Stan Collymore.
Dyraverðir voru snöggir til,
gripu knattspyrnuhetjuna og
hentu henni út. Collymore á
nú yfir höfði sér kæru vegna
árásarinnar, sem ekki er sú
fyrsta á konu. Þá á hann einn-
ig í erfiðleikum hjá liði sínu,
Aston Villa, sem keypti hann
fyrir stórfé frá Liverpool fyrir
síðustu leiktíð. Þar með hefur
þessi efnilegi landsliðsmaður
Englendinga átt í útistöðum
hjá öllum þeim félögum sem
hann hefur leikið með, Nott-
ingham Forrest, Liverpool og
nú hjá Villa auk þess sem
hann hefur ekld verið valinn í
enska landsliðið í langan tíma.
- GÞÖ