Dagur - 11.06.1998, Blaðsíða 13
r
X^ur.
ÍÞRÓTTIR
í'idwMt'uDÁGÚr Í l júNÍ 1 9 98 - 13
Erfitt að fylla skorð
Del Piero og Peruzzi
Ítalía er þrefaldur
heimsmeistari. Chile
í fyrsta sinu í sextán
ár með í úrslitakeppn-
inni. Meiðsli há háð-
uin liðunum.
Ef allt verður með felldu hjá ítöl-
um í dag ættu þeir ekki að eiga í
vandræðum með að Ieggja Chile
að velli í fyrsta leik liðanna á
HM f Frakídandi. Það er bara
ekki allt með felldu hjá ítölum.
Aðal stjarna þeirra, Alesandro
Del Piero, er meiddur og verður
ekki með í dag. Þá er Fabrizzio
Ravanelli með Iungnakvef og
óvíst hvenær hann kemst á skrið.
Ekki má heldur gleyma því að
Italir misstu aðalmarkvörð sinn,
Angelo Peruzzi, út vegna meiðsla
sem hann varð fyrir í æfingaleik.
Knattspyrnuþjóð eins og Italía á
marga frábæra knattspyrnumenn
sem koma inn fyrir þá sem meið-
ast. Það eru aðeins skörð þeirra
Del Piero og Peruzzi sem erfitt
verður að fylla. Þeir eru báðir
heimsklassa leikmenn.
Hópur ítala jafn
Styrkur ítalska liðsins í leiknum
við Chile er hvað hópurinn er
jafn. Þá hefur þessi leikmanna-
hópur mikla reynslu eins og kom
fram í síðasta Ieik þeirra í und-
ankeppninni. Giuseppe Bergomi
leikur sinn 78. landsleik, með
númer 2 á bakinu, í dag. Flestir
félaga hans eru klárir í slaginn
og þeir hafa vissulega getuna til
að klára leikinn við Chile með
sóma. Miðjumenn Itala koma til
með að ráða ferðinni í Ieiknum
og því má ætla að ítalir leiki að-
ferðina 3-5-2 þegar þeir sækja.
Sú aðferð hefur reynst þeim vel
þó ekki dygði það á móti Svíum á
dögunum. Málið er að það er
enginn í Iiðinu sem virðist geta
tekið af skarið þegar á þarf að
halda og knúið fram sigur. Hugs-
anlega getur Inzagi látið fara
mikið fyrir sér og takist það er
það vatn á myllu Itala.
Del Piero númer 10
Það hefur löngum þótt ákveðinn
heiður að leika í peysu númer
tíu. Sá heiður hefur hlotnast Ro-
berto Di Baggio undanfarin ár.
Nú er öldin önnur. Baggio kom
inn í liðið á síðustu stundu og er
ekki sá máttarstólpi sem fyrrum.
Það sýnir best trúna sem þjálfar-
inn, Cesar Maldini, hefur á Del
Piero að hann ætlar honum að
bera tíuna að þessu sinni. En
Maldini hefur ekki jafn mikla trú
á liði sínu ogjuventus leikmann-
inum knáa. Hann spáir nefnilega
Englendingum sigri á HM. Þessi
spá gæti haft sálræn áhrif, slæm
á ítalska liðið en góð á Chile-
mennina.
Cliile treystir á Zamarano
Þrátt fyrir að Interleikmaðurinn,
Ivan Zamarano, sem oft er kall-
aður Ivan grimmi, sé meiddur á
hné er það sá sem Chilemenn
byggja allt sitt traust á. Zamara-
no, ásamt Marcelo Zalas sem
leikur með Lazio í ítölsku A-
deildinni, eru vissulega leik-
menn sem geta orðið stjörnur
þessarar úrslitakeppni. Þeir eru
báðir miklir markaskorarar og
gætu orðið meðal markahæstu
leikmanna keppninnar. Aðrir
leikmenn Chile eru ekki mikið
þekktir í Evrópu. Þeir helstu eru
varnarmennirnir Christian
Castanda og Javier Margas
ásamt miðvallarleikmanninum
Clarence Acuna. Þessir leik-
menn eru allir mjög traustir og
geta hæglega komið Itölum í
opna skjöldu. Davíð hefur áður
unnið Golíat.
Hvað sem öllum vangaveltum
um gengi Chile í þessari keppni
líður er staðreyndin sú að liðið
hefur ekki sýnt neina stórleiki á
undirbúningstímanum og ólík-
legt er að breyting verði þar á í
sjálfri úrslitakeppninni. Italía
vinnur auðveldan sigur, 3 - 1, í
dag. — GÞÖ
Víkingar taplausir
KVA - KA 2 - 0
KVA vann sinn fyrsta sigur í 1.
deild, þegar liðið fékk KA í heim-
sókn til Eskifjarðar. Eitthvað voru
menn pirraðir í þessum leik, þvf
dómarinn þurfti sjö sinnum að
lyfta gula sjaldinu í Ieiknum og
einu sinni því rauða.
KVA var sterkari i fyrri hálfleikn-
um og hélt vel boltanum, þó ekki
rataði hann í markið.
I seinni hálfleik jafnaðist leikur-
inn nokkuð, en heimamenn höfðu
þó áfram frumkvæðið og skoruðu
þeir tvö mörk. Fyrra markið skor-
aði Sigurjón B. Björnsson og Veig-
ar Sveinsson það seinna.
BREIÐABLIK -
SKALLAGRÍMUR
2 - 0
Blikarnir voru betri aðilinn í leikn-
um gegn Skallagrími í Kópavog-
inum og léku sterkan varnarleik
allan leikinn. Bjarki Pétursson,
besti maður Blikanna, fiskaði
vítaspyrnu í byijun leiksins sem
Sigurður Grétarsson skoraði úr og
var staðan 1:0 í hálfleik.
I seinni hálfleik héldu Blikarnir
uppteknum hætti og bætti Atli
Kristjánsson við öðru marki með
skalla.
STJARNAN - HK 1-0
Stjarnan var betri aðilinn í leikn-
um gegn HK í Garðabænum á
mánudaginn. Þeir voru miklu
meira með boltann og sóttu stíft
að marki HK. Þrátt fyrir það létu
mörkin á sér standa, þar til í
seinni hálfleik að Veigar P. Gunn-
arsson komst í gegnum HK-vörn-
ina og skilaði boltanum í netið.
I heildina var leikurinn fremur
daufur og lítið um færi og þrátt
fyrir aðeins eitt mark var sigur
Stjörnunnar nokkuð öruggur.
VÍKINGUR - FH 2-1
Víkingar sigruðu FH-inga á Vík-
ingsvellinum og eru á toppi deild-
arinnar með fullt hús stiga.
Leikurinn var nokkuð fjörugur
og sóknarleikur í hávegum hafður
hjá báðum liðum. FH-ingar léku
sterkan varnarleik og voru fyrri til
að skora, þegar Davíð Ólafsson
skoraði með þrumuskoti.
í seinni hálfleiknum voru Víking-
arnir beittari í sóknarleiknum og
tókst að skora í tvígang. Fyrra
markið skoraði Sváfnir Gfslason
með skalla og það seinna Sumar-
liði Árnason, einnig með skalla.
ÞÓR - FYLKIR 1 - 2
Þórsarar b\Tjuðu leikinn á móti
Fylki mun betur þegar liðin mætt-
ust á Akureyri í fyrradag. Þeir
fengu ágætis færi í fyrri hálfleik,
en tókst ekki að skora lyrr en á 40
mín. með marki Jóhanns Þórhalls-
sonar.
Þórsurum tókst ekki að knýja
fram sigur í síðari hálfleik þó þeir
væru einum fleiri á vellinum, eftir
að Sigurður Sigursteinsson, Fylki
fékk að líta rauða spjaldið.
Þórsarar fóru illa með færin sín
og gegn gangi leiksins skoruðu
Fylkismenn tvö mörk í hálfleikn-
um og sigruðu 1:2.
I-yrra mark Fylkis skoraði Gunn-
ar Þ. Pétursson og það síðara
Steindór Gíslason.
ÍÞRÓTTAVIÐ TALIÐ
Liðimiun hefur fjölgað um 100%
PéturHrafn
Sigurðsson
framkvæmdastjóri KKÍ.
KKÍ stóð nýlega fyrír við-
horfskönnun, í samvinnu
við HSÍ. Niðurstaða könn-
unarinnar var kynnt ný-
lega og ræddi Dagur við
PéturHrafn Sigurðsson,
framkvæmdastjóra KKÍ,
um niðurstöðurhennar.
- Til hvers var þessi könnun
gerð?
„Könnunin var gerð til að sam-
böndin gætu frekar gert sér grein
fyrir stöðu mála og hefðu ein-
hverjar viðmiðanir til að byggja á,
við frekari uppbyggingu þessara
tveggja íþróttagreina."
- Kontu niðurstöðurnar ykkur
á óvart og voru menn ánægðir
með þær?
„Könnunin var margþætt og
ýmislegt f henni var mjög fróð-
legt. Fólk var til dæmis spurt að
því, hvort það vissi hvað deildirn-
ar hétu og vissu um 36% að-
spurðra um Nissan-deildina, en
23% um DHL-deildina.
Körfuknattleikssambandið vildi
vita, hverjir það eru sem iðka
körfuknattleik í frístundum, hér
og þar í íþróttasölum og hand-
knattleikssambandið um það,
hvaða viðhorf almenningur hefði
til þess. Handknattleikssamband-
ið var ánægt með niðurstöðuna
við þeirri spurningu, því yfir 50%
aðspurðra höfðu mjög jákvæð
viðhorf til sambandsins, en að-
eins 3% neikvæð.
Einnig var fólk spurt um við-
horf þess til leiktíma í deildun-
um, en þar kom í ljós að fólk
skiptist nokkuð jafnt í hópa um
það, hvort það væri ánægt með þá
leiktíma sem í gangi voru eða
hvort það vildi breytingar. Það
sýnir okkur að sá leiktími sem
hentar best hreyfingunni er í Iagi
samkvæmt könnuninni.
Það sem mest kom á óvart í
þessari könnun var sá mikli mun-
ur sem er á áhuga fólks fyrir körf-
unni á höfuðborgarsvæðinu og
úti á landsbyggðinni. Þar hefur
landsbyggðin vinninginn og mun-
ar þar tugum prósenta. Þessi nið-
urstaða er okkur áhyggjuefni og
sýnir að við þurfum að leggja í
landvinninga hér á fjölbýlissvæð-
inu. Að öðru leyti er það
kvennakarfan sem virðist veiki
punkturinn hjá okkur. Þar verður
að gera stórátak."
- Hyggst körfuknattleikssam-
bandið þá beita sér sérstklega
fyrir uppbyggingu kvennaköif-
unnar?
„Við erum þegar með átak í
gangi sem ákveðið var að fara út í
á síðasta ársþingi sambandsins.
Við fórum út í þetta átak sem er
kallað „Sókn í kvennakörfubolta",
vegna þess að niðurstöður könn-
unarinnar sýndu okkur, að þar
eru málin ekki í lagi og við höfð-
um af því áhyggjur. Átakið á að
standa yfir í tvö ár og ráðinn verð-
ur starfskraftur til að vinna að
því.“
- Hafa niðurstöður könnun-
arinnar gefið ykkur einhverjar
aðrar vísbendingar um breyttar
áherslur í starfi sambandsins?
„Þessi könnun er sú fyrsta sem
gerð er og nýtist okkur sem við-
miðun til næstu ára, en markmið-
ið er að gera slíka könnun árlega.
Kostirnir eru, að menn sjá ýmsa
þætti í starfinu sem betur mættu
fara og gefur okkur nánari vit-
neskju um stöðuna. Þannig get-
um við metið okkar starf og feng-
ið samanburð frá ári til árs í þeim
aðgerðum sem eru í gangi, eins
og átakið í kvennaboltanum.
Núna sjáum við til dæmis í
fyrsta skipti kynja- og aldursskipt-
ingu þeirra sem eru að fylgjast
með. Einnig búsetu um landið.
Hvar erum við sterkir og hvar
erum við veikir og skiptingu eftir
atvinnu, menntun, fjölskyldu-
samsetningu og svo framvegis.“
-Hvaða ályktanir dregur þú af
þessari könnun?
„Eg dreg þá ályktun af niður-
stöðunni að það gífurlega starf
sem unnið hefur verið á undan-
förnum árum við uppbyggingu
körfuboltans hefur skilað góðum
árangri. Okkur hefur tekist að
gera körfuna að einni megin
íþróttagreininni hér á landi og fé-
Iagsliðum hefur á átta til níu
árum fjölgað um 100%. Félögin
voru 24, en eru nú um 60, sem
sýnir að við erum á réttri leið. Nú
er það kvennakarfan sem þarf
sýna athygli og þar ætla menn sér
að ná settum markmiðum.“