Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 1
Atkvæði látin ráða
á landsfundiniun
Útlit fyrir dramatískt
uppgjör um samfylk-
ingarmálin með at-
kvæðagreiðslu á
landsfundi Alþvöu
baudalagsins.
Átök innan Alþýðubandalagsins
um leiðina í samfylkingarviðræð-
unum fer harðnandi fyrir auka-
landsfund flokksins um aðra
helgi og er útlit fyrir dramatískt
uppgjör. Tekist er á um tvær leið-
ir; „sameiningarsinnar" vilja að
félagshyggjuflokkarnir bjóði strax
saman í þingkosningunum næsta
vor, en hægfara „samstarfssinn-
ar“ vilja samstarfssamning til
fjögurra ára með yfirlýsingu um
ríkisstjórnarsamstarf.
Fylkingarnar vinna nú hörðum
höndum við að tryggja sinni
stefnu meirihluta á landsfundin-
um. Bryndís Hlöðversdóttir
þingmaður hafði ásamt fleirum
forgöngu um að senda flokks-
mönnum bréf þar sem hvatt er
til sameiginlegs framboðs vorið
1999 og skrifuðu 52 flokksmenn
undir bréfið, meðal annarra Jó-
hann Ársælsson, Skúli Alexand-
ersson, Grétar Þorsteinsson og
Guðmundur Þ. Jónsson, auk
fjölmargra sveitarstjórnarmanna.
Bryndís segir að hópur samein-
ingarsinna hafi hist reglulega
undanfarið.
„Eg á von á því að á landsfund-
inum verði kosið um þær tvær
leiðir sem tekist er á um. Það er
mitt mat að 70-80% kjósenda
flokksins vilji sameiginlegt fram-
boð í vor og sá vilji er ríkur með-
al sveitarstjórnarmanna, ungliða
og í verkalýðshreyfingunni. En
mér sýnist að yfirlýsingar ein-
stakra þingmanna þýði að þeir
muni leggja fram tillögu um leið-
ina sem Steingrímur talar fyrir.
Hvað klofningstal varðar vil ég
benda á að eini maðurinn sem
hefur talað um klofning opinber-
lega er Hjörleifur Guttormsson.
Það eru þeir sem tala gegn meiri-
hlutaleiðinni sem kljúfa flokk-
inn, en ekki forystan, sem hefur
ekki gert annað en að framfylgja
Bryndís: Vill láta kjósa um sam-
fylkingu á landsfundi.
samþykktum landsfunda til
margra ára,“ segir Bryndis.
I Degi í dag mælir Steingrímur
J. Sigfússon fyrir áætlun um
samstarfsleið í fimm Iiðum, en
hann er talinn leiðtogi „sam-
starfssinna".
ABR vill tryggja ókloiiim
flokk
Á fundi Alþýðubandalagsfélags
Reykjavíkur (ABR) í vikunni var
Svavar: Á ekki von á að atkvæði
verði greidd.
samþykkt ályktun til forystu
flokksins um að vinna að sam-
fylkingarmálunum á þann hátt
að flokksmenn fylki sér samein-
aðir og Alþýðubandalagið þar
með óklofið til þeirra verka.
„Þetta er nákvæmlega það sem
forysta flokksins er að reyna að
gera,“ segir Margrét Frímanns-
dóttir um þessa ályktun. „Það
hefur aldrei verið talað um að
leggja niður Alþýðubandalagið,
heldur að gera samstarfstilraun í
fjögur ár og sjá hvernig það kem-
ur út.“
Margrét segir að landsfundur-
inn muni ekki knýja kjördæmis-
ráð flokksins til eins eða neins.
„Kjördæmaráðin hafa úrskurðar-
vald um það hvernig þau standa
að sínum framboðsmálum. Nið-
urstaða landsfundar verður fyrst
og fremst í því formi að beina
einhverju til kjördæmisráðanna."
Svavar Gestsson segir ágreining-
inn innan flokksins snúast „um
hvort það á að fara í sameiginleg
framboð eða mynda málefnalega
samstöðu fyrir kosningar, t.d.
um ríkisstjórnarsamning, og á
þeim grundvelli bjóði flokkarnir
fram í sitthvoru Iagi. Um þetta
er vissulega ágreiningur. Lands-
fundur mun aldrei reyna að segja
kjördæmisráðunum fyrir verk-
um. Þau ráða eigin framboðs-
málum sínurn."
Svavar segist ekki eiga von á
því að á landsfundinum verði
kosið milli leiðanna tveggja.
Skilyrðislaus niðurstaða fáist
ekki á þessum fundi. - FÞG
Boltinn og
hagvöxtur
„Við höldum að þetta komi ekki
til með að draga úr hagvexti. Ef
eitthvað er þá eflir HM bara
keppnisandann,11 segir Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ.
Af hálfu VSÍ hefur það ekki
verið kannað hversu margar
vinnustundir kunna að tapast
vegna áhorfs á leiki í HM í fót-
bolta. Þórarinn V. segir að vissu-
Iega Ieggist ekki af nein vinna
nema því aðeins að viðkomandi
atvinnurekandi sé því meiri
áhugamaður um knattspyrnu.
Hinsvegar sé nokkuð ljóst að
þessi áhugi sé nokkuð staðbund-
inn eftir vinnustöðum.
Aftur á móti sé viðbúið að
áhrif heimsmeistaramótsins á
vinnustaði eigi eftir að aukast
þegar úrslitakeppnin hefst í
næstu viku og þá sérstaklega
þegar mikilvægir leikir fara fram
um miðjan dag. - grh
ísland með augum gesta. Hábjargræðistíminn í ferðaþjónustunni fer í hönd og þessir farfuglar komnir til Akur-
eyrar - en hvert liggur leiðin svo? mynd: brink
Neyðar-
aðgerð
Tæpir níu tugir grunnskólakenn-
ara á Akureyri íhuga nú að draga
uppsagnir sínar til baka eftir að
bæjaryfirvöld gerðu þeim tilboð
um verulega kjarabót. Viðræðu-
nefnd kennara er búin að sam-
þykkja tilboð frá bænum. Kjara-
bótin er veruleg í prósentum
talið. Hún er 10,43% á ári fyrir
þá sem fá 12 tíma á mánuði.
8,7% í miðflokknum og 6,1% hjá
nýliðunum.
„Við lítum þannig á að við höf-
um verið að leiðrétta ákveðna
þætti. Það var búið að Ieggja
meira á kennara hér en kjara-
samningar gerðu ráð fyrir. Þetta
er neyðaraðgerð," segir formaður
bæjarráðs á Akureyri, Ásgeir
Magnússon.
Á sama tima hefur aldrei jafn-
mörgum kennarastöðum í
Reykjavík verið óráðstafað, eða
40-50. - bþ
Sjá bls. 3.
BIAGKSlDECKER
Jiandverkfæri
SINDRI \
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024
L