Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 6
4
6 - FÖSTUDAGVR 26. JÚNÍ 199 8
r-:—;—r-j :-;-“3--„ \ .* • ---7
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjórar: stefán jón hafstein
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Adstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTl 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði
Lausasöiuverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: soo 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-i6i5 Ámundi Amundason
CAKUREYRI)460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Bjðrnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171CAKUREYRI) 551 6270 CREYKJAVÍK)
Reyklaus Flugstöð
I fyrsta lagi
Gera verður þá kröfu til yfirstjórnar Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar að hún framfylgi lögum um rétt þeirra sem ekki reykja.
Þegar komið er upp með rennistiga úr vegabréfsskoðun á leið
úr landi er reykjarsvæla það fyrsta sem ferðalangur finnur.
Hana leggur megna frá hinum mjög svo óheppilega staðsetta
bar; þar mun löglegt að reykja, en er siðlaust úr því að þeir
sem í gegn fara verða að anda stybbunni að sér. Það er fráleitt
að leyfa reykingar þar sem þær ná að angra næstum alla sem
fara um. A palli til hliðar við barinn er kófreykt - sem er bann-
að með lögum. Ekki verður vart við að fylgt sé eftir né áréttað
bann við reykingum, utan þess litla rýmis þar sem þær eru lög-
legar.
í öðru lagi
Flugstöðin í Frankfurt er einhver sú stærsta í heimi, hún er
þrifaleg, þjónar vel - og er reyldaus. Flugstöðin í Singapúr er
þrifaleg, þjónar vel - og einungis leyft að reykja í vandlega
merktu og lokuðu glerbúri, sem vænta má að sé loftræst sér-
staklega. Reykingamönnum er enginn greiði gerður með því
að stilla þeim upp í Flugstöð Leifs þar sem þeir angra alla
aðra. Fylgjast verður mjög hart með því að nýgert samkomulag
Tóbaksvarnarnefndar og Flugstöðvarinnar um aukinn rétt
reyklausra verði haldið.
í þriðja lagi
Flugstöðin í Reykjavík er í raun undir sömu sök seld, því reyk-
ingar eru leyfðar í veitingastofu sem er í sama rými og biðrað-
ir hlykkjast að afgreiðsluborði. Reyklausir eiga sinn rétt á op-
inberum stöðum og láta ekki bjóða sér lengur að vera hornrek-
ur. Sú krafa er í þágu þrifnaðar og heilsu, ekki gegn þeim sem
vilja reykja. Reykingamenn eiga hugsanlega að fá afmörkuð
svæði, sem þá verður að þjónusta vel. Það er ekki boðlegt fyr-
ir neinn að ösla sígarettustubbahauga eða vaða reyk á leið inn
í opinberar stofnanir af því að inni er reyklaust. Háskóli Is-
lands má taka pilluna ef hann vill.
Stefán Jón Hafstein.
Horfst í augu
Keikóævintýrið hefur óneitan-
lega framkallað miklar vanga-
veltur í kollinum á Garra. Fjár-
magnsflæðið í kringum þess
skepnu er á við sæmilegasta
alþjóðlega stórfyrirtæki og
ekkert virðist til sparað þegar
Keikó er annars vegar. Millj-
ónatugir íslenskra króna eru
skyndilega orðnir að skipti-
mynt í umræðunni og jafnt
ríkisstjórnir, fjölmiðlar, al-
menningur sem öflugasti her
heimsins eru komnir
£ eins konar þjón-
ustuhlutverk þegar
sjálfur Keikó er ann-
ars vegar. Enda vek-
ur hann heimsat-
hygli og Garri sér
fyrir sér Hali Halls-
son blaðafulltrúa
Keikós á Islandi
segja fréttir af mál-
inu í sjónvarpi: „Bak
við þessa hurð stendur heill
heimur á öndinni vegna komu
Keikós."
Milljarðamær-
ingur
En þó var það frétt úr Degi
sem hvað mest kitlaði hug-
myndaflug Garra. Þar var sagt
frá lesblindum bandarískum
milljarðamæringi sem orðið
hafði ríkur á farsímum. Maður
þessi heitir Craig O. McCaw
og hefur nokkur stór takmörk í
lífinu: Að byggja upp farsíma-
kerfi sem spannar öll Banda-
ríkin. Að koma hundruðum
gervihnatta út í geiminn til að
skapa „Internet of the Sky“
eins og hann kallar það, net
sem jafnvel hinir snauðustu í
aumustu þorpum veraldar
fengju að njóta. Og svo hefur
hann einsett sér að Keikó fái
aftur notið víðáttu hafsvæð-
V
anna við ísland. í frétt Dags í
vikunni um þennan mann
kom fram að ást hans og botn-
laus fjárframlög til Keikós má
að verulegu Ieyti rekja til
sundspretts sem þeir félagar
tóku saman, milljarðamæring-
urinn og Keikó. Þá horfðust
þeir í augu í kafi og hann
skynjaði að þarna var stórkost-
leg vitsmunavera á ferð.
Geir keikiir
Garri sá það Iíka í
Degi í gær að Geir
Haarde er búinn að
vera í útlöndum á
meðan á kjaradeilu
við hjúkrunarfræð-
inga hefur staðið.
Vonandi hefur Geir
verið að reyna að ná
sambandi við herra
McCraw til að fá
hann til að taka
nokkra sundspretti á Islandi.
Það liggur greinilega beint við
að bjóða þessum góðhjartaða
manni að synda f sundkvínni í
Laugardal með Ástu Möller
hjúkrunarforingja og nokkrum
öðrum hjúkrunarfræðingum
sem nú eru í útrýmingarhættu
vegna lágra launa. Telja verður
einhverjar líkur á því að herra
McCraw nái augnsambandi
\áð einhverja þeirra og hver
veit nema hann skynjaði að
þarna væru á ferð stórkostleg-
ar vitsmunaverur. Þar með
væri hin erfiða deila leyst og
Geir harði gæti staðið keikur
eftir. Gefist þessi lausn vel
mætti þróa hana áfram og t.d.
kanna hvort herra McCraw
væri ekki tilleiðanlegur að fá
sér sundsprett með Iögreglu-
þjóni fráÁkureyri. GARRI.
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Fjör er að færast í pólitíkina
enda ekki nema rétt rúmir tíu
mánuðir til kosninga. Þeir sem
hyggja á framboð eru komnir í
startholurnar og er ekkert að
vanbúnaði, nema að finna sér
flokk og hugsjónir til að bera
fram til sigurs. Enn veit enginn í
hvaða líki fjórflokkurinn verður
og hvaða valkosti hann býður
þegar gengið verður til kosninga
í bytjun maí á næsta ári.
Toppkratar eru einhuga um að
gerast allaballar og Margréti Frí-
mannsdóttur er ekkert að van-
búnaði að taka Alþýðuflokkinn
undir sinn verndarvæng og gera
hugsjónir hans að sínum. Gömlu
kommarnir, sem ekki hafa tekið
eftir að Sovétríkin eru horfin af
landakortinu, halda uppi andófi
og Iofa skoðanasystkinum sínum
farsælum klofningi.
Gróska sem stofnuð var til að
sameina flokka hótar eigin sam-
einingarframboði ef komma- og
krataskammirnar geta ekki séð
Simdrað til að santeina -
eða öfugt
að þeir eru eitt og sama tóbakið.
Eru því góðar Iíkur á fjórum
vinstriframboðum ef kvenna-
flokkurinn heykist á að geispa
golunni þótt andlátið sé skammt
undan.
Etnn, tveir eða þrír?
Ellimóðir hafa uppi tilburði til
að koma sér upp eigin
framboði og íhaldið
bregst við með því að
koma upp öldungadeild
hjá sér og gera sig sætt í
framan fyrir gamlingjana.
En ekki eru allir aldraðir
ginnkeyptir fyrir slíkum
hundakúnstum. Þeir
þekkja fjórflokkinn og
kosningaloforð hans bet-
ur en allir aðrir.
Samtök um þjóðareign voru
komin á hlemmiskeið að stofna
flokk og efna til framboðs til höf-
uðs kvótaeigendum og hand-
bendum þeirra á Alþingi og í
ráðuneytum. Þá barst þeim
óvæntur liðsauki eða andstæð-
ingur, eftir því hvernig á málið er
litið. Sverrir ofgerði sínum lax-
veiðikvóta og er nú orðinn glað-
beittasti baráttumaður landsins
fyrir afnámi greifadæma útgerð-
armanna og þölskyldna þeirra.
Enn er ekki útséð um hvort
klækjarefurinn og siðbótar-
postulinn tekur að sér
forystu samtakanna eða
hvort hann býður fram á
eigin forsendum, eins og
við hér á Degi köllum
það. En innan Samtaka
um þjóðareign eru skipt-
ar skoðanir um hvort
gamli kommisarinn sé sá
happadráttur sem á þarf
að halda. Ef guð lofar
geta því kvótaframboðin
orðið tvö.
Stefnur
Framsókn getur í hvoruga löpp-
ina stigið, vinnur stórsigur með
vinstra liði í Reykjavík og enn
betri með íhaldinu í Kópavogi og
hefur loksins komið ró á pólitík-
ina í Hafnarfirði með fulltingi
sjálfstæðismanna. Tapar stórt á
Austurlandi og er orðinn klofinn
og áhrifalaus smáflokkur á Akur-
eyri. Þetta er víst það sem kallað
er að vera fijálslyndur og halda
sig á miðjunni.
Hagsmunasamtökin sem kalla
sig Sjálfstæðisflokk eiga hug og
hjörtu þeirra sem skoðanakann-
anir ná til. Oft hefur verið nart-
að illilega í fylgi flokksins, sem
skríður saman eftir hvern klofn-
ing og býr sig undir næstu inn-
anhúsátök.
Pólitíska litrófið er því harla
Qölskrúðugt en kannski miklu
einsleitara en nokkru sinni fyrr.
Um hvað flokkar ætla að samein-
ast annað en að krækja sér í
þingsæti er óútskýrt. Og átt-
flokkurinn nærist á hugmynda-
fátækt og orðagjálfri og hefur
áhyggjur af því einu hvernig
þingsæti hans skiptast.
Ertu sammála þeirri
niðurstöðu prestastefnu
að kirkjan blessi ekki
sambúð samkyn-
hneigðra?
Ólafsdóttir
„Þjóðkirkjunni
miðar ekkert í
mannréttinda-
átt. Prestum er í
sjálfsvald sett
hvort þeir blessa
samkynhneigð
pör og með því
kemur kirkjan sér undan ábyrgð-
inni. Bæði danska og sænska
kirkjan eru með blessunarathafn-
ir sem öllum prestum ber að veita
samkynhneigðum, en íslenska
kirkjan segir ennþá að það sé allt
í Iagi með samkynhneigða en \ið
réttum þeim ekki höndina."
Sr. Kristján Bjömsson
sólumrprestur á Hvammstanga.
„Kirkjan er með
blessun hús-
næðis og fjöl-
skyldu en ég er á
móti því að tekn-
ir verði upp sér-
stakir helgisiðir
varðandi bless-
un á sambúð samkynhneigðra.
Eg er hins vegar mjög vonsvikinn
yfir því að ekki fór fram nein al-
varleg umræða í kirkjunni eftir að
kirkjan samþykkti í fyrra að taka
málið til umræðu. Það verður að
ræða stöðu allra þeirra sem eru
innan kirkjunnar fyrir næstu
prestastefnu, einnig samkyn-
hneigðra."
Margrét Pála
fóstra.
Magnús Skarphéðinsson
skólastjóri Sálarrannsóknarsltólans.
„Aö sjálfsögðu er
ég ekki sammála
því. Það er alltaf
sami heiguls-
hátturinn þar
sem kirkjan og
trúarbrögðin eru
annars vegar. Og
lítið virðist ætla að batna með
nýjum biskupi. Við samkyn-
hneigðir erum búnir að þola nógu
mikla áþján af hálfu kirkjunnar
gegnum aldirnar svo ekki sé verið
að halda áfram að draga lappirn-
ar í þessu máli. Við áttum að
minnsta kosti von á að nýr biskup
yrði meira afgerandi, myndi beita
áhrifum sínum til að málið yrði
ekki svæft núna í fjórða skiptið í
röð. “
Snorri Óskarsson
forstööumaður í Betel.
„Samkynhneigð
og kynvilla hafa
aldrei talist til
kristinna
dyggða. Þetta er
ekki kristilegur
lífsmáti og Biblí-
an andmælir
slíku. Kristin kirkja hefur líka
andmælt kyn\illu gegnum aldirn-
ar. Við breytum þessu ekki. Ann-
að hvort stöndum við með Guðs
orði eða þá að við erum ekkert í
þjónustu Guðs almáttugs. Is-
lenska þjóðkirkjan hefur þegar
gengið allt of langt til móts við
samkynhneigða með því að viður-
kenna og vígja slíka menn. Kirkj-
an talar tveim tungum í þessu
efni, vígir einn en segir annan
ekki í lagi. Sannleikurinn gerir
okkur frjálsa."