Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 13
 FfiSTVDAG, VR, 26,, ,-J P 19,9,8 - 13 ÍÞRÓTTIR GUÐNI Þ. ÖLVERSSON SKRIFAR Spánverjar of seinir í gang Chilavert markvörður Paragvæ var örugglega maður leiksins gegn Nígeríumönnum. Stórleikur Spánverja var of seint á ferd- inni. Paragvæ skoraði loks eftir 180 mínút- ur án árangurs. Víta- spymufaraldur í C- riðli. Frakkar fyrstir með fullt hús stiga. Danir sluppn með skrekkinn. Spánska markaveislan var til lít- ils. Það dugði Spánveijum ekki að vinna langþreytt lið Búlgaríu, 6-1. Þeir voru komnir með háls- inn undir fallöxina og þurftu að treysta á að Nigería héldi að minnsta kosti jöfnu við Paragvæ. En svo varð alls ekki. Paragvæ, sem ekki hafði skorað mark í keppninni til þessa, skoraði nú þijú mörk og þar með féll öxin á Spánveija. Liðið, sem margir spáðu góðu gengi á HM, jafnvel verðlauna- sæti, fór heim í gær. Það var sorg- legt að horfa á frábært lið Spán- verjanna skora fjögur síðustu mörkin sín án þess að fagna þeim. Þeir höfðu heyrt fréttirnar frá Stade Municipial þar sem Paragvæ var að bursta Níegeríu 3-1 í skemmtilegum leik. Mark- vörður Paragvæ, Chilavert, var örugglega maður dagsins á HM á miðvikudaginn. Félagar hans eiga honum að þakka, að liðið er nú komið á lítt kunnar slóðir í heimsmeistarakeppninni. Með sigrinum varð Paragvæ Ijórða lið- ið frá Suður Ameríku til að vinna sér sæti í sextán liða úrslitunum. Eins og nærri má geta voru móttökurnar ekki blíðar þegar Spánska liðið komu heim. Blóð- heitir Spánverjarnir heimta nú þjálfarann burt. Þeim verður ör- ugglega að ósk sinni. Sjálfsagt vildi ekki einn einasti maður í heiminum vera í sporum Javier Clemente í dag. Vítaspymuveisla!! Dómarar gerast nú gjafmildir á vítaspyrnur á HM. I báðum Ieikj- um C-riðils á miðvikudaginn voru samtals dæmdar fimm vítaspyrn- ur. Mörkin í leikjunum urðu sam- tals sjö. Það er erfitt að Ieggja dóm á réttmæti flestra þessara vítaspyrna. Það eina sem er krist- altært, er að fyrri vítaspyrnan sem S. Arabía fékk í leiknum við S. Afríku var út £ hött. Jafntefli varð niðurstaðan að leik loknum, nokkuð sem S. Arabar geta verið ánægðir með. Þar með fengu þeir þó stig til að fara með heim. Bæði þessi Iið féllu úr keppn- inni eftir riðlakeppnina. S. Arabía var með eitt leiðinlegasta liðið sem lengi hefur sést á HM, og átti ekkert annað skilið en heim- ferðina. S. Afríka sýndi aftur á móti oft skemmtilega takta og á nokkra virkilega skemmtilega leikmenn, sem örugglega eiga eft- ir að Iáta að sér kveða í Evrópu, séu þeir ekki þegar búnir að því. Leiðiulegur variiarleikur Það var ekki mikill stíll yfir frændum okkar og vinum í danska landsliðinu þegar þeir mættu Frökkum. Frakkar voru þegar búnir að vinna riðilinn en Danir áttu góða von um að fylgja þeim áfram. Til þess þurftu þeir að ná jafntefli eða tapa með minnsta mun í trausti þess að S. Afríka sigraði ekki S. Arabíu stórt. Danir mættu því til þess eins að hanga á jafntefli. Það tókst þeim ekki, því Frakkar sigruðu 2-1 og jafnteflið hjá S. Afríku og S. Arab- íu tryggði Dönum áframhaldandi keppni. Sigurmark Frakka var sérlega glæsilegt. Eftir mikið fálm og klúður í dönsku vörninni barst boltinn út til Emmanuel Petit sem hamraði hann í gegn um fjóra danska varnarmenn, í fótinn á Schmeichel og þaðan í netið. Sanngjarn sigur heimamanna í höfn og þeir ætla sér greinilega að vera með alla leið í úrslitin. Hjá Dönum var Schmeichel ágætur í markinu og Brian Laudrup í framlínunni. Það sem var þar á milli, var ekki upp á marga fiska að þessu sinni, - GÞÖ ÍÞR ÓTTAVIÐ TALIÐ íþrótta(Q)andiim míkli Það var grunnt á því góða milli Norðmanna og Brasilíumanna í leikn- um fræga á þriðjudaginn. Eftir að Bebeto náði forustunni fyrir heimsmeistarana hljóp fyrirliði þeirra, Dunga, að varamannabekk Norðmanna, benti á þjálfarann Egil Drillo og rak út úr sér tunguna. Það dugði ekki til, fingurinn fór líka á Ioft og apagríman fylgdi á eft- ir til varamannanna á bekknum. Fimmtán mínútum seinna varð Dunga að játa sig sigraðan í annað sinn á einu ári, af Drillo drengj- unum. Bairnað að skipta á peysum Eftir leikinn ætluðu Norðmenn að riafa peysuskipti við heimsmeist- arana. Tore Andre FIo ætlaði að skipta við Ronaldo. Það var stoppað af þjálfaranum sem bannaði öll treyjuskipti við Norðmenn. Fyrirlið- in, Dunga, sem áður hafði sýnt frændum vorum virðingu sína, fór þó ekki að fyrirmælum Zagallo. Hann gekk til markaskorarans og skipti við hann á treyju. Tore Andre Flo var þannig eini Norðmaðurinn sem fékk búning Brasilíumanna. Þetta fór mjög fyrir brjóstið á Norð- mönnum, einkum Ronny Johnsen, sem sagði Zagallo sýna takmark- aðan íþróttaanda. Klámsýki Brassaima Mario Zagallo var allt annað en ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum við Noreg. „Þeir virkuð slappir og þreyttir,“ sagði Zagallo. Skýringuna hafði hann líka á hreinu. „Leikmenn mínir héngu uppi alla nóttina fyrir leikinn og horfðu á klámmyndir í inn- anhússjónvarpi hótelsins. Það er ekki sá undirbúningur sem ég ætl- ast til af mínum mönnum, hér á HM í Frakklandi." Þess má geta að eftir tapið á Ullevaal í fyrra hafði Zagallo nokkrar ástæður einnig á hreinu. Lélegur völlur, kalt veður, leikmennirnir þoldu illa tímamis- muninn í löndunum og sú Ijórða var að leikurinn var bara æfingaleik- ur. Nú kom sú fimmta. Klámsýki Brassanna. Vafasömu vítaspymumar Vafasömu vítaspyrnunum fjölgar nú mjög á HM. Svo mikið að Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur nú gripið í taumana. Hann kallaði saman fund á miðvikudaginn með formanni Dómaranefndar HM, Skotanum David Woll, þar sem hann fór yfir vítaspyrnumálin. Það virðist eink- um fara fyrir bijóstið á Blatter þegar lið, frá þjóðum sem hann fékk stuðning frá í forsetakjörinu forð- um, eiga í hlut. Þar á meðal er hin umdeilda vítaspyrna Norðmanna gegn Brasilíu. Nú hefur markvörð- ur Brasilíu, Taffarel, stígið fram og sagt að vítaspyrnudómurinn hafi verið hárréttur. „Eg sá þegar Bai- ano togaði f treyjuna hjá FIo og dómarinn var í mjög góðri aðstöðu til að sjá það. Dómur hans var því miður réttur þrátt fyrir önnur mis- tök í leiknum," sagði markvörður- inn. - GÞÖ Baiano togar í treyju Tore Andre Flo, þegar hin umdeilda vítaspyrna var dæmd. Æfi sex daga vikuimar ÓlöfMaría Jónsdóttir íslandsmeistari í golfi. ÓlöfMaría Jónsdóttir, Golfhlúbbnum Keili, sigr- aði um síðustu helgi á ís- landsmótinu í holukeppni og er nú stigáhæst á ís- lensku mótaröðinni. Hún stefnirað námi íBanda- ríkjunum eftirrúmtár, en verðurhún okkarfyrsti at- vinnumaður í kvennagolf- inu? - Kemur þú vel undirbúin til leiks í sumar? „Eg var við nám í Iþróttakenn- araskólanum á Laugarvatni £ vet- ur og gat þvf lftið æft. Þó reyndi ég að nota helgarfriin eins og mögulegt var og stundaði þá æf- ingar í Golfheimum, en Keilir er þar með æfingaaðstöðu yfir vetr- armánuðina. Einnig hefur lands- liðið verið með æfingar f Reið- höllinni um helgar og ég hef reynt að mæta þar eins og ég hef getað. Þetta eru einu æfingarnar sem ég hef haft í vetur og því var ég ekki komin í gott form á fyrsta stigamótinu, sem fram fór á Hellu.“ - Hvernig gekk þér á því móti? „Eg spilaði mjög illa fyrri dag- inn og lenti í öðru sæti. Ég var einfaldlega ekki tilbúin í þetta mót. Ég er þó mikið að koma til og fann mig miklu betur á holu- mótinu um helgina." - Hvernig fer holumótið fram? „Það byrjar með því, að á föstudegi er spilaður höggleikur þar sem leiknar eru átján holur. Eftir það er raðað niður eftir sætum og spilar til dæmis lýrsta sæti við það áttunda og annað við það sjöunda og svo framveg- is. Þetta er útsláttarkeppni og virkar þannig, að þú vinnur bara holuna, en skorið telur ekki. Þannig er spilað þar til einn sit- ur uppi sem sigurvegari. Mér gekk ágætlega á þessu móti og vann höggleikinn. I holukeppninni vann ég Ragn- hildi Sigurðardóttur í undanúr- slitum og síðan Herborgu Arn- arsdóttur í úrslitum." - Hvaða titla vannstu í fyrra og hvaða væntingar hefurðu til framhaldsins í sumar? „Helstu titlarnir í fyrra voru Is- landsmeistaratitillinn, Islands- meistari í sveitakeppni, stiga- meistari íslands og Idúbbmeist- ari Keilis. Að sjálfsögðu stefni ég að því að vinna sem flest mót í sumar, en fyrst og fremst vonast ég til að spila betur en í fyrrasumar. Ég var ekki alveg ánægð með spila- mennskuna í fyrra, þó ég hafi unnið marga titla. Ég tel að ég hafi spilað betur árið þar á und- an og stefni að því að gera enn betur í sumar." - Hvað æfirðu oft í viku yfir sumarmánuðina og hvemig er æfingum háttað? „Ætli ég spili ekki svona um það bil sex daga vikunnar. Tím- inn fer mikið í að æfa tæknina og við það fæ ég hjálp frá Guð- mundi Sveinbjörnssyni, þjálfara hjá Keili." - Hvaða mót eru framundan? „Um næstu helgi tek ég þátt í opna meistaramótinu í Luxem- borg, sem er mjög sterkt mót á okkar mælikvarða. Eftir það eru að ég held mót um hveija ein- ustu helgi, fram á haustið. Þau stærstu eru landsmótið og stiga- mótin og svo Evrópumeistara- mótið í iok ágúst og Norður- landameistaramótið í septem- ber.“ - Verður þú með á Evrápu- og Norðurlandameistaramótinu og hefur þú áður tekið þátt í mótum erlendis? „Ég tók þátt í Lúxemborgar- mótinu í fyrra og Ienti þar í fimmta til áttunda sæti. Einnig tók ég þátt í móti í Belgíu og lenti þar í öðru sæti. Fyrir utan Lúxemborgarmótið, stefni ég að því að vera með á Evrópumeist- aramóti einstaklinga, sem haldið verður í Hollandi í lok ágúst og einnig á Norðurlandameistara- mótinu í Danmörku í lok sept- ember. Einnig er ég með fjórða mótið í sigtinu í október, en það er ekki enn ákveðið." - Hver eru framtiðaráfomi- in? „Ég stefni að því að fara í nám til Bandaríkjanna, eftir rúmt ár, þegar ég er búin með íþrótta- kennaraskólann. Þar ætla ég að sjá til með golfið, hvort mögulegt er að æfa og keppa með náminu. Ef það gengur upp og mér geng- ur vel, þá er aldrei að vita með framhaldið.“ Stefnirðu á atvinnu- mennsku? „Það er allavega ekki draumur- inn í dag, en það er aldrei að vita hvað gerist. Möguleikarnir eru fyrir hendi í Bandaríkjunum, en það verður bara að koma í Ijós hvað verður.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.