Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 11

Dagur - 26.06.1998, Blaðsíða 11
Xk^wr FÖSTUDAGUR 26. JÚ\Í 1998 - ,11 • *' .... * U' *■■! ' . < ■ ' 1 f ■ 1 * ■ * '» ! . 1 I ERLENDARFRÉTTIR HEIMURINN Jiang hressir upp á ímynd sína Níu daga ferð Banda- ríkjaforseta uin Kína hófst í gær. Litlar vonir eru bundnar við efnislegan árangur ferðarinnar. Einkaþota Bills Clinton Banda- ríkjaforseta lenti í gær á flugvelli í borginni Xi’an, þar sem fyrsti áfangi heimsóknarinnar hefst. Alls mun Clinton dveljast níu daga í Kína og ræða þar við ráða- menn. Þetta er fyrsta heimsókn bandarísks forseta til Kína í níu ár, og Jiang Zemin, forseti Kína, ætlar greinilega að nota hana til þess að tryggja sér ákveðinn sess í sögunni. Með svipuðum hætti og Mao Zedong vann það afrek að sameina Kína - að undanskildu Taívan - og Deng Xiaoping opnaði dyrnar að umheiminum, þá virð- ist Jiang ætla sér heiðurinn af því að hafa byggt upp sterk og varan- leg tengsl við Bandaríkin. Félagamir tveir, Jiang og Clinton Sem stendur rekast þessi áform Jiangs all verulega á raunveruleik- ann. Sambandið við bandarísk stjórnvöld er brokkgengt og flókið og lítið virðist þurfa til að upp úr slitni. Sjónarmið ríkjanna stang- ast mikið á hvað varðar málefni á borð við Taívan, viðskipti, öryggis- mál og mannréttindi. Jafnt Bandaríkjamenn sem Kínverjar eru sammála um að þarna sé ágreiningur. Og embættismenn af beggja hálfu hafa reynt að draga úr vonum um að í ferð Clintons náist samkomulag um eitthvað sem máli skiptir. Engu að síður er ferð Clintons „afar mikilvæg fyrir Jiang,“ segir David Shambaugh, bandarískur fræðimaður sem sérhæfir sig í málefnum Asíu. Með því að Clint- on fer til Kína núna þá er Jiang stillt upp sem samherja hans þrátt fyrir þann ágreining sem er á milli þeirra. „A endanum snýst heim- sókn Clintons miklu frekar um ímyndir heldur en efnisatriði," sagði Shambaugh, „og þessar ímyndir auka tvímælalaust veg Ji- angs bæði heima fyrir og erlend- is.“ Dræm kosningaþátttaka á N-írlandi NORÐUR-ÍRLAND - í gær var gengið til kosninga á Norður-írlandi þar sem valdir voru fulltrúar á nýja svæðisþingið samkvæmt friðarsamn- ingnum sem gerður var á föstudaginn langa. Kosningaþátttakan var dræm fram eftir degi í gær og svo virðist sem almenningur á N-Irlandi sýni þessum kosningum miklu minni áhuga heldur en þegar kosið var um friðarsamninginn sjálfan fyrir nokkrum vikum. Austur-Tímor fær takmarkað sjálfstæði INDÓNESÍA - AIi Alatas, utanríkisráðherra Indónesíu, skýrði frá því í gær að stjómvöld þar í landi væru reiðubúin að veita Austur-Tímor sjálfstæði að hluta, en þó verði utanríkismál, fjármál, varnarmál og ör- yggismál áfram á hendi indónesísku stjórnarinnar. Ekki er þó meining- in að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu um þessa nýju skipan mála. Indónesar innlimuðu austurhluta eyjunnar Tímor árið 1976, en Sameinuðu þjóðirnar hafa aldrei viðurkennt yfirráð Indónesa. Hermaður skaut fimm félaga sína ÚKRAÍNA - 19 ára hermaður á Krímskaga skaut í gær fimm félaga sína og flúði að því búnu inn f skóg þar sem hans var leitað ákaft, en sú Ieit hafði ekki borið árangur seinni partinn í gær. Ekkert var heldur vitað um ástæður þess að hann framdi þetta voðaverk. Fjöldamorð á ný í Alsír ALSÍR - Hópur manna myrti í gær 17 þorpsbúa í Alsír, að því er ríkis- útvarpið þar skýrði frá. Lítið var vitað um atburðinn að öðru leyti. Fjöl- mörg áþekk fjöldamorð hafa verið framin þar á síðustu misserum, og hefur íslömskum bókstafstrúarmönnum verið kennt um þau. Borðtenuiskúlur á eldaua BANDARÍKIN - Slökkviliðið í Flórída í Bandaríkjunum ætlar að nota borðtenniskúlur til þess að vinna bug á skógareldunum sem þar hafa geisað undanfarið. Kúlurnar verða fylltar með eldfimu efni og verður varpað úr flugvél markvisst á ákveðin svæði til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu eldanna. Kínverjar létu óspart í Ijós söknuð sinn þegar Deng Xiaoping féll frá fyrir rúmu ári. Jiang Zemin, forseti Ktna, vonast til að vinna ekki minni afrek. Breytti um stefnu Jiang hefur haft sífellt meira frumkvæði að auknum samskipt- um við Bandaríkin frá því hann tók við forystuhlutverki í utanrík- ismálanefnd Kommúnistaflokks- ins seint á síðasta ári af Li Peng, fyrrverandi forsætisráðherra. Li var þekktur fyrir andstöðu sína við að Kína haldi uppi nánum tengslum við Bandaríkin og talaði iðulega um nauðsyn þess að Kína haldi uppi mótvægi við yfirburða- stöðu Bandaríkjanna á alþjóða- vettvangi. Jiang hefur breytt stefnu Kína gagnvart Bandaríkjunum á ýms- um mikilvægum sviðum, meðal annars með því að koma hörðustu andstæðingum Bandaríkjanna út úr Kommúnistaflokknum. Og hann hefur einnig breytt and- rúmsloftinu í Kína gagnvart Bandaríkjunum á ýmsan hátt, en það er nú orðið mun vinsamlega en það var fyrir aðeins örfáum árum. - The Washington Post Áfrábœru verði: Bæjarstjóri Starf bæjarstjóra í Grindavík er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1998. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík, merkt „Nýr bæjarstjóri11. Nánari upplýsingar um starfið veita: Hallgrímur Bogason, sími 426 7100 og Ólafur Guðbjartsson, sími 426 8323, GSM 899 0025. Vitara Diesel er með forþjöppu og millikæli: aflmikill, einstaklega hljóðlátur, lipur í akstri, með miklum staðalbúnaði og öllum þægindum eðaljeppans. Hann er ekta jeppi, upphækkanlegur, sterkbyggður á grind, með háu og lágu drifi, stöðugri fjöðrun og góðu veggripi. Dieselvélin er ein sú kraftmesta á markaðnum og hefur mikið tog (brekkurnar verða leikur einn). Samt eyðir hún einstaklega litlu - þú getur t.d. komist. fram og til baka á milli Akureyrar og Reykjavíkur á innan við einum tanki! VITARA DIESEL 5 dyra VERÐ: Handskiptur 2.180.000 KR. Sjálfskiptur 2.340.000 KR. 0 8UZUKI : ALLIR "SUZUKIV • SUZUKI BiLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM. AFLOG I t ÖRYGGIJ SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„ Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf„ Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.