Dagur - 26.06.1998, Qupperneq 8

Dagur - 26.06.1998, Qupperneq 8
T rDgptr. FRETTASKYRING Gerrædisleg eiturheiimld veldur afsögn formauns BJÖRN ÞORLÁKS- SON Svefnlyfið Fenemal er umdeilt í íslenskri náttúru og notkun þess vandmeðfarin. íslenskir hundar hafa t.d. drepist eftir að hafa tekið inn lyfið, en hagsmunir æðar- bænda eru einnig stór- ir. Það væri einföldun að segja að ákvörðun Ævars Petersen, að segja af sér formennsku í ráð- gjafanefnd um villt dýr, væri ein- ungis vegna þess að umhverfis- ráðherra heimil- aði í vor notkun efnisins Fenemals í ís- lenskri náttúru til verndar æðar- fuglinum. Akvörðun hans snýst um hvern- ig staðið var að málinu. Skort á Iögbundnu sam- ráði að hans sögn. Ævar sem er forstöðumað- ur Reykjavíkur- seturs Náttúru- fræðistofnunar Islands, útskýrir mál sitt í viðtali við Dag. „Ankannalegt að á sama tíma og íslend- ingar skrifa undir al- þjóðlegar samþykktir um hann við eitiir notkun í náttiim fer umhverfisráðherra fram með þessum hætti.“ ið staðið nægilega faglega að því að taka þessar ákvarðanir. Lögin eru afskaplega skýr. Eitur eða svefnlyf eru bönnuð skv. íslensk- um lögum en það er hægt að veita undanþágur ef villt dýr - og í þessu tilviki vargfuglar - valda umtalsverðu tjóni ef aðrar að- ferðir duga ekki. Ráðgjafanefnd- in hefur ekki séð nein gögn í þá veru að umtalsvert tjón hafi orð- ið og eins hefur nefndin ekki séð að aðrar aðferðir hafi ekki hent- að. Þetta er í grundvallaratriðum það sem að mér snýr. Það hefur verið talað um það í hálfgerðum véfréttastíl að mikið tjón hafi orðið á æðarvarpi og því sé nauð- synlegt að nota eitur. En þetta hefur ekki komið inn á borð ráð- gjafanefndarinnar. Ekki fyrr en í byrjun maf og þá er sagt að búið sé að vinna að þessum málum í mörg ár. Ég kannast ekki við að búið sé að skilgreina neitt tjón sem menn telja sig hafa orðið fyrir,“ segir Ævar Petersen. Gerræðisleg vinnubrögð? Forsaga þessa er í stuttu máli sú að Fenemal hefur verið bannað frá árinu 1994 þegar ný lög tóku gildi og kváðu á um að eitur og/eða svefnlyf mátti ekki nota til að granda fuglum. I und- antekningartil- Ekkert skilgremt tjón „Ég er ósáttur við að ráðuneytið hafi ekki haft ráðgjafanefndina með í ráðum varðandi þetta mál, eins og lög kveða á um. Jafn- framt því tel ég að ekki hafi ver- fellum var þó hægt að veita efnið, ef menn töldu ekki hægt að firra sig stór- tjóni án þess en til að slík leyfi fengjust varð fyrst að hafa samráð við ráð- gjafanefndina eins og komið hefur verið inn á. Ákvörðunin um leyfisveitinguna nú var hins vegar ekki tekin í neinu samráði að sögn Ævars. „Það eina sem ráðgjafanefndin fékk til umsagn- ar var eyðublað til æðarbænda þar sem þeir gátu sótt um eitur. Svo fengum við að vita það stuttu seinna að eyðublaðið hafði verið sent út til æðarbænda sofandi, hálfdauðir eða dauðir. Ég minnist þess hvernig ástandið var þegar eitrað var á gömlu öskuhaug- unum í Gufunesi fyrir allmörgum árum,“ segir Ævar. Engin landamæri Ævar gagnrýnir einnig að á sínum tíma þegar sérstök reglugerð var sett og kvað á um að æðarbændur mættu nota Fenemal, voru ákveðin svæði algjörlega undanskilin. T.d. svæðið frá Kjalarnesi og í Hrúta- fjörð. „Þetta er akkúrat svæði arn- arins og það var undanskilið á sín- um tíma vegna þess að menn vildu ekki taka þá áhættu að örn æti fugl sem hefði verið eitrað fyrir. Núna eru ekki sett nein slík skilyrði og það hefur a.m.k. verið veitt eitt leyfi núna á þessu svæði.“ Ævar segir ankannalegt að á sama tíma og Islendingar skrifi undir alþjóð- legar samþykktir um að banna svona eiturburð fari umhverfisráð- herra fram með þessum hætti. Hann leggur áherslu á að í afskap- lega vel skilgreindum tilfellum hefði verið hægt að veita undan- þágur en þær ekki skilgreindar sem fyrr segir. Mávum og hröfnum ætlað að falla Æðarbændur sem nota Fenemal eru einkum að verja sig fyrir hröfn- um og mávum. Nokkrar fuglateg- undir eru ófriðaðar allt árið og leyf- in núna ná aðeins til þeirra teg- unda. Þetta eru hrafninn, sílamáv- urinn, silfurmávur og svartbakur. Venjan er að setja eitrið í æðaregg. „Þetta er mjðg sérstætt og ef viimu- brögðin eru ekki rétt er hætta á að lagabók- stafuriun verði einskis nýtur. Það eru þau skilahoð sem ég vill líka koma á framfæri.“ FRETTIR Kvótinn á Flæmingja- grunni á æ færri hendur AfLaverðmæti Hús- vikings um 70 miUj- ónir króna eftir fyrsta túriun. Frystitogari Fiskiðjusamlags Húsavíkur (FH), Húsvíkingur, er á rækjuveiðum á Flæmingja- grunni við Nýfundnaland og landaði í Argencia í síðustu viku eftir fyrsta túrinn 365 tonnum að verðmæti 70 milljónir króna eftir um mánaðar útivist. Hús- víkingur er með um 550 tonna kvóta á Flæmingjagrunni en bú- ist er við að við hann bætist, bæði varanlega og til leigu. Húsvíkingur gerði mettúr hér við land áður en haldið var vest- ur, en þá landaði hann £ Hafnar- firði um 330 tonnum af rækju fyrir um 70 milljónir króna. Um 90 tonn af þeim afla fengust utan lögsögu á Dohrnbanka áður en hafís lokaði þeirri slóð. Kristján Garðarsson, útgerð- arstjóri FH, segir að kvótinn á Frystitogarínn Húsvíkingur er að gera það gott um þessar mundir á Flæm- ingjagrunni. Flæmingjagrunni hafi verið að færast á færri hendur. Upphaf- lega hafi margir verið að veiða á þessum slóðum með afar mis- jöfnum árangri og því margir fengið lítinn kvóta við úthlutun sem ekki svaraði kostnaði að stunda veiðar fyrir. „Kvótinn hefur því verið að safnast á færri hendur og til að- ila sem eru með stærri og betur búin skip. Við höfum styrkt okk- ar kvótastöðu þarna töluvert í varanlegum kvóta með kaupum en kvótaárið þarna er almanaks- árið en byijar ekki 1. september eins og hérlendis. Togarinn verður út ágústmánuð fyrir vest- an nema rækjuveiðin fari að glæðast hér við land, en hún hefur verið léleg," segir Kristján Garðarsson útgerðarstjóri. - GG Úrsknrðað í haust um nöfu sveitarfélaga Niðurstöðion úr- skurðamefnda í átta kosningákærum áfrýjað til félags- málaráðuneytis. Krafa Austur-Húnvetninga um að Vestur-Húnvetningar fái ekki að nota nafnið Húnaþing á nýja sveitarfélagið sem varð til við sameiningu allra sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu, liggur hjá félagsmálaráðuneytinu. Rökstuðningur Austur-Hún- vetninga er m.a. sá að nafnið sé samheiti fyrir báðar sýslurnar. Sesselja Árnadóttir, lögfræð- ingur hjá félagsmálaráðuneyt- inu, segir að ekki sé búið að taka afstöðu til málsins í ráðu- neytinu, en auk þess hafi ráðu- neytinu einnig borist nokkur mótmælabréf frá einstakling- um. „Við viljum fá umsögn Or- nefnanefndar í deilumáli Húnvetninga sem og vegna annarra nafngifta á öðrum nýj- um sveitarfélögum sem hafa orðið til nú í vor við samein- ingu. Okkur hafa einnig borist átta áfrýjanir vegna kæra á kosningaúrslitum. Við munum byrja að kalla eftir gögnum í þeim málum öllum frá úrskurð- arnefndunum en ég reikna með að fyrsta kæran verði afgreidd snemma í næstu viku og síðan koll af kolli, þó misjafnlega hratt eftir því hversu flókin mál- in eru. Kosningaúrslitin voru kærð í níu sveitarfélögum, að- eins í Austur-Landeyjahreppi var niðurstöðu úrskurðarnefnd- ar ekki áfrýjað," segir Sesselja Ámadóttir. Sesselja segir að sér sé ókunnugt um að Örnefnanefnd hafi verið beitt þrýstingi til að koma saman sem fyrst, en hún mun að öðrum kosti ekki koma saman fyrr en 1. ágúst. Á með- an verða nokkur sveitarfélög Iandsins nafnlaus, þó þau í um- ræðunni manna á meðal muni heita Húnaþing, Árdalsvík, Austur-Hérað, Austurríki o.s.frv. þar til úrskurður liggur fyrir. — GG NOVA 3000 Ekki óafturkræft Dagur spurði Ævar hvort hann myndi taka þá ákvörðun til baka að segja sig úr ráðgjafanefndinni ef umhverfisráðherra mundi sjá sig um hönd og afturkalla reglugerð- ina? „Náttúrufræðistofnun hefur verið beðin um nýja tilnefningu í þessa nefnd. Ég óskaði ekki eftir því að halda áfram og það tengist því hvernig þetta mál var höndlað. Ef leyfin verða dregin til baka og menn fara aftur að vinna á eðlileg- an hátt, er ég alveg tilbúinn að endurskoða mín mál. Hitt er einnig staðreynd að ég er búinn að vera í þessu í ein 20 ár og e.t.v. er ágætt að einhver annar taki við.“ „Það hefur verið talað um það í hálfgerðum véfréttastíl að mikið tjón hafi orðið á æðarvarpi og því sé nauðsynlegt að nota eitur. En ég kannast ekki við að búið sé að skilgreina neitt tjón sem menn telja sig hafa orðið fyrir, “ segir Ævar Petersen. engu að síður áður en umsögn frá villidýranefndinni hefði borist ráðuneytinu. Það er ekki eins og við höfum setið á svar- inu. Ég held að aðeins fimm eða sex dagar hafi Iiðið frá því að við fengum erindið þangað til því var svarað. Þar af voru þrír frídagar á rnilli," segir Ævar. Lýsti lögbroti á hendur sér Fjögur leyfi hafa verið veitt í ár og einn aðili til viðbótar hefur sótt um. Ævar bendir á kúnstugt atriði sem virðist stangast á við lög. „Einn af þeim sem sóttu um að fá að nota þetta eitur í vor, lýsir í umsókn sinni lögbroti á hendur sér vegna þess að hann getur þess að hann hafi notað efnið árið 1996. Þá var sannar- lega engin heimild í lögum fyrir notkun þess en samt sem áður veitir ráðuneytið honum leyfi til að nota eitrið núna. Þetta er mjög sérstætt og ef vinnubrögðin eru ekki rétt er hætta á að laga- bókstafurinn verði einskis nýtur. Það eru þau skilaboð sem ég vil líka koma á framfæri." Hefur drepið hunda Dæmi eru um frá fyrri árum að Fenemal hafi valdið dauða hjá dýrum, að sögn Ævars. Hann segist vita tvö dæmi þess og dauðdaginn er hægur. „Fenemal er svefnlyf en virkar ekki hraðar en það að fuglar geta flogið langt burt eftir að þeir taka það inn. Þeir sækja mikið í vatn eftir að hafa tekið inn lyfið og sofna síð- an á vatni og drukkna. Það eru mörg dæmi um að fuglar hafi fundist út um allt eftir að hafa innbyrt Fenemal. Þeir finnast Bjaml á Elateyri Kandadísk/ís- lenski geimfar- inn Bjarni Tryggvason kom til Isa- fjarðar í gær ásamt konu og tveimur börn- um og hélt vestur í Ön- undarfjörð og skoðaði snjó- flóðavarnargarðanna sem reistir hafa verið ofan byggðarinnar á Flateyri. Á Isafirði heimsótti hann raftæknifyrirtækið Púls og íshúsfélag ísfirðinga þar sem honum var kynnt vinnsluferlið. Þaðan lá Ieiðin í kirkjugarðinn þar sem Bjarni kom að leiði móðurafa síns og ömmu. Frá ísafirði Iá Ieiðin til Bol- ungarvíkur þar sem hann skoð- aði m.a. hið stórmerka náttúru- gripasafn en þaðan var haldið út í Vigur. Frá Vestfjörðum liggur Ieiðin til Reykjavfkur en heim- sókn Bjarna og fjölskyldu hing- að til lands er sem kunnugt er í boði forseta Islands, Ólafs Ragnars Grímssonar. — GG Bjarni Tryggvason. Ein stærsta sportvöruverslun landsins Golfsett Howson oversize, 9 x jám+3 xtré frákr.22.900 + poki, pútter og kerra 29.900 1/2 sett fullorðins kr. 12.900 Unglingasett m/pcka kr. 13.900 Stakar kylfur SW-3 jámkr. 2.150 Graphide Tié verð frá kr. 4.200 Titanium Driver kr. 19.900 Golfkerrur verð frá kr. 4.400 Rafmagnskerxur frá kr. 49.900 Golfpokar verð frá kr. 3.500 Magnafsláttur af golfboltum og golftíum Golfsett: HIPPO - HOWSON Golfskór: ETCNIC - HI-TEE Golffatnaður: flJHftS HIEPO - DAVID SAX 5% staðgr. afsláttur Ármúla 40 Símar: 553 5320 568 8860 Verslunin

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.