Dagur - 26.06.1998, Side 10
10 -FÖS TUDAGUR 2 é\ J Ú N j 19 9 8
FRÉTTIR
„Tékkiim“ enn
í íiillu fjöri
Garðar kemur til hafnar á Akureyri.
Garðar með síldarflök
Þrátt fyrir stóraukna
kortanotkim eru um
3/4 allrar greiöslu-
miðluuar í laudinu
ennþá í tékkum.
Mikið vantar ennþá á að
greiðslukortin hafi Iagt tékkann
að velli í íslenskri greiðslumiðl-
un, eins og oft hefði mátt ætla af
orðum ákafra talsmanna kredit-
og síðar debetkorta. Næstum
1.000 milljarðar króna ultu í
gegn um íslenska greiðslumiðlun
á síðasta ári (um 3,6 milljónir á
hvert mannsbarn í landinu),
samkvæmt hagtölum Seðlabank-
ans. Og hátt í 3/4 hlutar þeirrar
upphæðar voru greiddir með
tékkum; alls 8,5 milljónum
tékka. Meðaltékkinn var því yfir
80.000 krónur og hefur þannig
margfaldast frá því fyrir kort.
Um 260 milljarðar gegnum
kortin
Debetkortanotkunin hefur vaxið
mjög hratt síðustu þrjú árin og
komst veltan í næstum 180 millj-
arða í fyrra, í rúmlega 22 millj-
ónum færslna. Kreditkortin voru
notuð álíka oft, en heildarvelta
þeirra var samt rúmlega helm-
ingi lægri, eða liðlega 80 millj-
arðar. Ríflega fjórðungur
greiðslumiðlunarinnar fer því
um kortin.
Visareikninguriim 43 þús. á
mánuði
Debetkortaveltan er að
langstærstum hluta í bönkum og
hraðbönkum, en 54 milljarðar
þar fyrir utan. Kreditkortanotk-
unin var stórum meiri, rösklega
82 milljarðar. I lok síðasta árs
voru næstum 162 þúsund kredit-
kort í notkun, þannig að meðal-
greiðsla á hvert þeirra hefur ver-
ið um 510.000 lu-. á árinu, þar af
rúmlega 74.000 kr. í útlöndum.
Debetkortin eru orðin fleiri en
allir landsmenn yfir 15 ára, eða
207 þúsund. Hvert þeirra hefur
miðlað um 860.000 kr. að með-
altali. -HEI
Viimslugetan uiii 140
tonn á sólarhring.
Nótaskipið Garðar, sem Samheiji
á Akureyri festi kaup á í Noregi
fyrr í vor í stað Jóns Sigurðssonar
sem seldur var til Færeyja, kom í
fyrsta sinn til Akureyrar á mið-
vikudag með síldarflök. (Ekki
loðnu eins og sagt var í blaðinu í
gær). Skipið hefur farið tvo síld-
artúra og einn kolmunnatúr eftir
að það var keypt frá Noregi. Eftir
fyrri síldartúrinn var Iandað í Ála-
sundi í Noregi.
I áhöfn eru 29 manns, þar af
10 Islendingar, og segir Birkir
Hreinsson skipstjóri að eftir 14
daga úthald séu um borð liðlega
800 tonn af síldarflökum af stórri
og góðri síld að verðmæti um 60
milljónir króna sem fer á Pól-
landsmarkað. Vinnslugetan í flök-
un og frystingu er um 140 tonn á
sólarhring. Garðar er eitt stærsta
nótaskip flotans, ber um 2.200
tonn ef allar lestar eru nýttar
undir gúanófisk, en skipið er búið
RSV-kælitönkum sem eru nýttir
meðan verið er að vinna síldina.
Aðeins Hólmaborg frá Eskifirði
hefur meiri burðargetu. Skipið
heldur aftur á síldveiðar. — GG
Bílaskipti • Bílasala
Bílasala • Bílaskipti
Bílaskipti • Bílasala
Toyota Hilux D-C SR5 4.d ‘96
grár ek.31.þ.km m/hús stigbr brk álf
31“ V:2.080.000,-
Toyota Landcruiser
dísel turbo 3.d ‘88
rauður ek.124.þ.km 33“á felgum x2
interc. V:980.000,-
Si
Vantar tjaldvagna fellihýsi og hjólhýsi á
skrá og á staðinn - Góð inniaðstaða.
Vantar bíla á skrá og á staðinn strax
- mikil sala.
_ - fRÍLASAUNNJ
fflöldur ehf.
B I' L A S A L A
við Hvannavelli, Akureyri
Símar 461 3019 & 461 3000
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107,
600 Akureyri, s. 462 6900
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálfum,
sem hér segir
Fagrasíða 11a, Akureyri, þingl. eig.
Valmundur Einarsson og Elsa
Pálmey Pálmadóttir, gerðarbeið-
endur Byggingarsjóður verka-
manna og Lífeyrissjóður Norður-
lands, miðvikudaginn 1. júlí 1998 kl.
10.00.
Hrafnabjörg 1, Akureyri, þingl. eig.
Þorsteinn H. Vignisson, gerðarbeið-
endur Húsbréfadeild Húsnæðis-
stofnunar, Innheimtustofnun sveit-
arfélaga, íslandsbanki hf., Kaupfé-
lag Eyfirðinga og Ríkisútvarpið,
miðvikudaginn 1. júlí 1998 kl.
10.30.
Móasíða 1, Iðnaðarhúsnæði I, Ak-
ureyri, þingl. eig. Þrb. Leikskóla
Guðnýjar Onnu ehf., gerðarbeið-
andi Islandsbanki hf., miðvikudag-
inn 1. júlí 1998 kl. 11.00.
Móasíða 1, Iðnaðarhúsnæði II, Ak-
ureyri, þingl. eig. Þrb. Leikskóla
Guðnýjar Onnu ehf., gerðarbeið-
andi Islandsbanki hf., miðvikudag-
inn 1. júlí 1998 kl. 11.15.
Munkaþverárstræti 37, Akureyri,
þingl. eig. Þórarinn (varsson, gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður ríkis-
ins og Landsbanki íslands hf., mið-
vikudaginn 1. júlí 1998 kl. 11.45.
Skáldalækur, Svarfaðardal, þingl.
eig. Hallur Steingrímsson, gerðar-
beiðendur Flutningamiðstöð Norð-
url. ehf., Landsbanki íslands hf.,
eign.leig., Landsbanki íslands hf.
höfuðst. og Ólafur Guðmundsson,
miðvikudaginn 1. júlí 1998 kl.
14.00.
Skíðabraut 7a, Dalvík, þingl. eig.
Ylfa Mist Helgadóttir, gerðarbeið-
andi Húsbréfadeild Húsnæðisstofn-
unar, miðvikudaginn 1. júlí 1998 kl.
14.30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
25. júní 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
MÉUMFERÐAR lÍRAÐ
Bjöm HaíJjór
oæjarstjóri
Björn Hafþór Guðmundsson,
sem gegnt hefur starfi fram-
kvæmdastjóra Sambands sveit-
arfélaga á Austurlandi (SSA) sl.
8 ár, hefur verið ráðinn bæjar-
stjóri Austur-Héraðs, nýs sveit-
arfélags sem varð til við samein-
ingu fimm sveitarfélaga á Hér-
aði. Helgi Halldórsson, sem ver-
ið hefur bæjarstjóri á Egilsstöð-
um, tekur aftur við starfi skóla-
stjóra grunnskólans á Egilsstöð-
um að nýju, en hann fékk leyfi
frá því starfi á sfðasta kjörtíma-
bili til að gegna starfi bæjar-
stjóra.
„Það bárust 14 umsóknir um
starfið og þar af tvær þar sem
óskað var nafnleyndar. Við odd-
vitar meirihlutans og formenn
flokkanna sem standa að meiri-
hlutanum, þ.e. Framsóknar-
flokks og Lista félagshyggju við
Fljótið, ég og Jón Kr. Arnarson,
kynntum okkur að sjálfsögðu
innihald umsóknanna en við
Iögðum þær umsóknir til hliðar
eftir að hafa skoðað þær og þær
umsóknir komu ekki til greina.
Okkur ber ekki lagaleg skylda til
þess að taka tillit til óska um-
sækjenda um nafnleynd," segir
Broddi Bjarnason, forseti bæjar-
stjórnar. Jón Kr. Arnarson er for-
maður bæjarráðs en verið er að
skipa í helstu nefndir hins nýja
sveitarfélags jafnframt því að
unnið er að gerð nýs skipurits
fyrir sveitarfélagið. — GG
HEILRÆÐI
NOTAK BARNIÐ ÞITT HJÁLM ÞEGAR
ÞAÐ LEIKUR SÉR Á HJÓLASKA UTUM
EÐA HJÓLABRETTI?
SLYSAVARNAFÉLAGÍSLANDS
RAUÐI KROSSÍSLANDS