Dagur - 01.09.1998, Qupperneq 1
Hótelstjóri íKeflavík,
sem aldrei hefurná-
lægtpenslum komið,
tók sig til einn daginn
og málaði 70 myndirá
hótelið sitt. Hann varð
stolturþegar einni
myndinni varstolið.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á
Hótel Keflavík, er hugmyndarík-
ur maður sem lætur smámuni
ekki stoppa sig, maður sem er
óhræddur við að feta ótroðnar
slóðir og kemur fram eins og
hann er klæddur. Þegar hann fær
hugmyndir er hann fljótur að
framkvæma þær, ekkert hik eða
tafir. Steinþór var til dæmis í
Reykjavík þegar hann fékk þá
hugmynd að kaupa glerskálann,
sem var utan á Iðnó, og bæta
utan á hótelið. Hann hratt henni
strax í framkvæmd og í dag er þar
rekið Café Iðnó.
„Þú talar ensku“
Steinþór er líka maður tilviljana.
19 ára gamall lenti hann á skrif-
stofu Ofnasmiðju Suðurnesja og
„var skilinn þar eftir.“ Þeir feðgar
reka ennþá Ofnasmiðjuna og
Steinþór segir hana ennþá aðal
fyrirtækið þeirra og hótelið bara
áhugamál þó að það sé í dag eitt
það stærsta á Iandinu, 60 her-
bergi. Steinþór byggði hótelið
með föður sínum fyrir rúmum
áratug, faðir hans sér þar um við-
hald og uppbyggingu en sjálfur er
hann andlit fyrirtækisins.
„Eg hafði aldrei kynnst hóteli
Steinþór byrjaði að máia afstríðni og fyrir tilviljun. „Ég stökk bara inn og kom út með trönur og allt heila galleríið.
1/ið vorum á leið upp í bústað og ég málaði þar þrjár eða fjórar myndir, “ segir hann. Hér er hann með fyrstu myndina
sem hann málaði, mynd afþresti. mynd: pjetur.
þegar ég allt í einu var orðinn
hótelstjóri. Eg var svo heppinn
að kunna ensku. Pabbi sagði við
mig kvöldið áður en við opnuð-
um: „Þú verður hótelstjóri, þú
talar ensku.“ Þá var ég búinn að
reka Ofnasmiðjuna og rek hana
enn þann dag í dag,“ útskýrir
Steinþór.
Kom út með trönux
Steinþór hefur ekki verið neitt
sérstaklega mikið fyrir listir þó að
hann hafi mjög gaman af
skemmtilegum málverkum. Sem
hótelstjóri tók hann eftir því að
oft komu „alls konar menn með
myndir sem var hægt að selja fyr-
ir tugi eða hundruð þúsunda
bara af því að þær voru komnar í
ramma." Að mati Steinþórs á
verðskyn ekki við í list því að
verkin eru háð smekk manna.
Fyrir ári síðan vantaði 70 mál-
verk á hótelið og Steinþór fór létt
með að bjarga því.
„Eg er oft stríðinn og í staðinn
fyrir að segja hluti þá geri ég þá.
Eg sagði við einhvern sem var að
sýna mér myndir að það væri lít-
ið mál að gera svona. Einu sinni
þurfti ég að bíða eftir konunni
minni í Vogue á Skólavörðustíg.
Litir og föndur er þar við hliðina.
Eg stökk bara inn og kom út með
trönur og allt heila galleríið. Við
vorum á leið upp í bústað og ég
málaði þar þrjár eða fjórar mynd-
ir,“ segir Steinþór og bendir á
fyrsu myndina sem hann málaði,
litla mynd af þresti.
Klúkkutíma með
meðal mynd
„Eg var álitinn léttruglaður en ég
var sjálfur ánægður með þessa
mynd og þorði að gera meira.
Það batna svakalega allar myndir
sem fara í ramma. Allar myndir
sem ég hef málað eru á hótelinu.
Eg hef aldrei hent mynd og gef
mér ekki mikinn tíma í hveija
mynd. Eg er kannski klukkutíma
með meðal pastelmynd eða tæpa
tvo tíma og er að flýta mér það
mikið að ég gleymi að merkja,"
segir Steinþór og bætir við að
hann hafi orðið stoltur þegar ein
af myndunum hans hvarf af
veggjum hótelsins. Hann var
ánægður með að einhver skyldi
vilja eiga hana.
„Eg hafði aldrei málað neitt.
Eg skrifaði ágætlega þegar ég var
yngri og get ennþá þegar ég
vanda mig með jólakortin en dag-
Iega er það ekkert sérstök skrift.
Eg var aldrei hár í teikningu. Eg
málaði bara þessar myndir og
hafði gaman af því. Það er fullt af
fólki sem spáir í verkin mín og
það sér oft eitthvað annað út úr
þeim en ég geri.“
Bætti fjórða strikiuu við
Steinþór leggur áherslu á að
hann sé ekki að leitast við að vera
titlaður listamaður. Sig hafi vant-
að 70 myndir á þessum tíma og
hann hafi haft gaman af þessu.
Nú máli hann meira fyrir fjöl-
skylduna og til gjafa. Þegar kon-
an hans kom af fæðingardeild-
inni með þriðju stelpuna þeirra
málaði hann til dæmis mynd af
konu að halda á þremur börnum
og bætti svo fjórða barninu við.
„Eg man að ég hugsaði að ég
ætlaði að bæta fjórða strikinu við
því að ég átti von á að eignast
Ijórðu dömuna seinna og hafði
hana inni á til öryggis. Hún er
komin núna,“ segir þessi maka-
lausi hótelstjóri í Keflavík. -GHS
EL/556L
Þú getur reiknað með...
3 linur i glugg
242 relkniaðgerðir
Forritanleg: 1100 For-
ritunarskref
2 línur f glugga
153 innbyggðar reikniaögerðir
Rétt aðgeröarraöð D.A.L.
(Direct Algebraic Logic)
2.190,
2 línur í glugga
194 innbyggöar reikniaðgerðir
Rétt aðgerðarraöð D.A.L.
(Direct Algebraic Logic)
Twin power: Sólar- og venjuleg rafhlaða
rafhlaða
2 línur í glugga
287 innbyggðar reikniaðgerðir
Rétt aðgerðarraöð D.A.L.
(Direct Algebraic Logic)
Twin power: Sólar- og venjuleg
Reiknivélar lyrir
skarpa skólakrakka
MeðSHARP reiknivélum verður stærð-
fræðin skemmtilegri og auðveldari.
djrj . er rétt aðgerðarröð
sem gerir þér kleift
að leysa flókin reiknings-
dæmi á sama hátt og þú
skrifar þau niður á blað.
Sharp notar nú DJTll. í
flestar gerðir vasareikna.
Umboösmenn um land allt: Reykjavík: Verslanir Pennans. Bókabúö Árbæjar. Griffill. Bókabúö Lárusar Blöndal. Bókahorniö. Heimskringlan. Bókabúöin Grafarvogi. Bókabúöin Mjódd. Bóksala Stúdenta. Bókbær. Mál og menning. Bókabúöin Hlemmi. Kópavogur: Tónborg. Garöabær:Bókaversl.
Gríma. Hafnarfjöröur: Bókabúö Böðvars.Penninn.Mosfellsbær: Bókabúöin Ásfell. Vesturland: Bókaskemman, Akranesi. Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrfmsson, Grundarfiröi. Ásubúö.BúöardalAfestflröir: Árnhóll. Króksfjaröarnesi.
Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík.KF Steingrímsfjarðar, Hólmavfk.Bókaversl. Jónasar Tómassonar, (safirði. Straumur, ísafiröi. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Skagfiröingabúð. Sauöárkróki. KEA, Olafsfirði. KEA,
Dalvík. Akureyri: Hljómver, Bókabúö Jónasar, Naust hf. Húsavík: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar, Kf. Þingeyinga. Austurland: KF Vopnafjaröar, Vopnafirði. Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Bókabúö Sigurbiörns Brynjólfssonar.Fellabæ. Ris
tölvuverslun.Neskaupstaö.Lykill, Reyðarfiröi.KF. Fáskrúösfjaröar, Fáskrúðsfiröi. Bókaverslun Guömundar Björnssonar, Stöðvarfirði. KASK, Höfn Hornafir&i. Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Mosfell, Hellu.Bókabúöin Heiöarvegi, Vestmannaeyjum. Brimnes.Vestmannaeyjum.
Reykjanea: Bókabúö Keflavfkur, Keflavfk. LJÓsboglnn.Keflavík. Bókabúð Qrindavfkur, Grindavfk. Rafborg, Qrlndavfk.
r