Dagur - 01.09.1998, Blaðsíða 10
26 - ÞRIOJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Banvæn
blanda
í nýjum bílum sem búnir eru
líknarbelgjum eiga að vera miðar
sem vara við notkun barnabíl-
stóla í viðkomandi sætum. Það
er þó mismunandi hvort um er
að ræða Iímmiða sem geta dottið
eða áprentun sem föst er í bíin-
um. Dæmi eru um að misbrest-
ur sé á að þessir miðar séu yfir-
leitt til staðar í bílum sem búnir
eru líknarbelgjum. Grundvallar-
reglan er sú að barnabílstól má
alls ekki setja í sæti
sem búið er líknar-
belg.
BILAR
Hversu vel
erbamið
varið í um-
ferðar-
óhappi?
mæla með en sé ekki mælt með
neinum búnaði er keyptur stóll
sem passar í viðkomandi bíl
Góð öryggisfesting fyrir börn
eða barnabílstól samanstendur
af hlífðarskildi sem hægt er að
laga að hvaða barni sem er.
Stóliinn verður að veita höfði og
Iíkama vörn í árekstrum á hlið
og að aftan og við endurkasti í
árekstrum framan á. Það verður
að vera hægt að festa stólinn vel
í bílinn til að koma í
Reynsla afslysum í ycs fyrirr ,að barnið
* j s kastist of langt fram
Bandaríkjunum staðfest- eða lil hliðar ,við
árekstur sem eykur
álagið á barnið. Flest-
ir barnabílstólar eru
festir með bílbeltum
fyrir fullorðna. Til að
Olgeir Helgi
Ragnarsson
skrifar
í rannsóknarniður-
stöðu Euro NCAP,
sem eru evrópsk sam-
tök bifreiðaeigenda,
segir að þegar ræði
um vörn í slysum leggi
sumir bílaframleið-
endur meiri áherslu á
öryggi fullorðinna en
barna.
Það er bent á að ekki bjóði allir
framleiðendur upp á, né bendi á örygg-
isfestingar (t.d barnabílstóla) fyrir börn
í bíla þeirra. Nokkrir láti eiganda bílsins
það eftir að velja öryggisfestingar úr
þeim sem eru á markaðinum og vona
að bíllinn og öryggisfestingin séu nægj-
anlega örugg verði slys. Euro NCAP
prófar þann búnað sem framleiðendur
iraðþað erbanvæn
blanda að hafa bamabíl-
stólsemsnýrafturísæti úr hrcyfin8n
barnsins tram á við
þarf beltið að vera
þétt utan um stólinn.
með líknarbelg. Hvort
tæki um sig bjargar lífi
og limum en þegarþau
em notuð saman verða
Nýr staðaU
ISOFIX er nýr staðall
eða aðferð við að festa
■, . r, . 7 . * börn í bíl. Þá eru
þau banvænfynr bamið. bamabíistóiamir se«-
ir í viðkomandi bíl og
festir með sérstökum festingum. Þessi
hugmynd bætir verulega úr í þeim efn-
um. Verið er að ræða tillöguna innan
alþjóðlegu staðlastofnunarinnar (ISO).
Um er að ræða harða króka eða festing-
ar í sæti bílsins sem eru sniðnir til að
nota við barnabílstólafestingar. Þessi
aðferð hefur ýmsa kosti, m.a. betri vöm
í árekstrum á hlið og að aftan og minni
hættu á rangri ísetningu.
Gátlisti fyrir
bamabílstóla
Gætið að því að barnabílstóllinn sem valinn er passi í sætin í bílnum.
Eina leiðin til að tryggja það er að prófa nokkra stóla í bílnum áður en
♦ keyptur er bílstóll. Meðmæli framleiðanda bílsins með einstökum stól
tryggja ekki að sá stóll passi í bílinn. Kaupið aldrei notaðan barnabílstól
og hendið stólnum ef hann hefur Ient í umferðaróhappi.
Fylgið vandlega leiðbeiningum framleiðandans, sérstaklega þegar verið
er að þræða bílbelti fyrir fullorðna í festingar á stólnum. Geymið Ieið-
♦ beiningarnar með stólnum þar sem hægt er að grípa til þeirra í bílnum.
Gætið þess að enginn slaki sé á bílbeltinu sem heldur stólnum og stóll-
inn sitji vel fastur á sínum stað.
Oruggasti staðurinn fyrir nánast alla barnabílstóla er í miðju aftursætis-
. ins, svo fremi að þar sé enginn armpúði sem getur fallið niður og skað-
að barnið í árekstri. Yfirleitt er aftursætið öruggari staður fyrir barnabíl-
stóla en farþegasætið fram í.
Gætið þess að beltin í barnabílstólnum séu hvorki snúin né skemmd og
herðið þau eins þétt og hægt er án þess að til óþæginda sé íyrir barnið.
♦ Setjið barnabílstól ALDREI í sæti með líknarbelg. Gætið að viðvörun-
armiðum fyrir líknarbelgi ef þið þekkið ekki bílinn. Viðvörunarmiðar
geta verið mismunandi eftir fram-
leiðslulandi bílsins, en þó sérstak-
lega eftir þeim markaði sem bíllinn
er framleiddur fyrir.
Heimild: www.fia.com
Barnabílstóll sem mælt var með I
Mitsubishi reyndist ekki passa við bíl-
belti í Lancer. Hæð beltafestingarinnar
gerði það að verkum að sætið héist
ekki fast í árekstri framan á og höfuð
barnsins kastaðist ofmikið fram.
Mynd: www.fia.com
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: olgeirhelgi@islandia.is
Nýrdiskur
frálBM
SVOJUA
ER LIFID
Yigdís
svarar
í símann!
Ertu með ráð,
þarftu að spyrja,
viltu gefa eða
skipta?
Vigdís svarar í
símann kl. 9—12.
Síminn er
563 1626 (beint)
eða 800 7080.
Póstfang:
Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgötu 31
Akureyri.
Netfang:
ritstjori@dagur.is
Nýjar fréttir frá IBM herma
að þar á bæ hafi tekist að
hanna tölvudisk með geysi-
miklu geymslurými og allt að
12 gigabætum getur komist
fyrir á venjulegum disklingi
(1 GB er sama og 1000 MB
en eitt MB, megabæt, er
1000 KB, kílóbæt). Þetta eru
merkilegar fréttir, ekki bara
fyrir aukið geymslurými,
hraðvirkara og betra, heldur
einnig vegna þess að þetta
gæti boðað endurkomu „Bláa
risans", IBM inn á markað-
inn í tölvuheiminum.
Aætlað er að almenn
framleiðsla á þessum diskum
hefjist innan þriggja ára.
(Heimild: Hin svarta list)
Karlmcnn óþolandi
Sæl Vigdís.
Mig Iangar til að vita hvers vegna karlmenn
eru svona óþolandi. Eg er búin að vera gift í 8
ár og maðurinn minn er alveg að gera út af við
mig. Hann nennir aldrei neinu, vill bara vera
heima og horfa á sjónvarpið þegar hann kemur heim eftir
vinnu sem er nú ekki alltof snemma. Mér hundleiðist þetta
og vil komast út, að minnsta kosti um helgar. Eg er ein heima
með krakkana allan daginn og það eru allar vinkonur mínar
að vinna úti þannig að ég sé aldrei neinn. Það er lítið fútt í
því að fara út í búð og skoða dag eftir dag og svo á maður
hvort sem er ekki pening fyrir neinu. Er einhver leið til að
breyta þessum hugsunarhætti karlsins?
Mér finnst nú fulllangt gengið að fullyrða að allir karl-
menn séu óþolandi þó þú sért ekki sátt við þinn. Eg skil
að þú sért leið og viljir komast af heimilinu ef þú ert
heima allan daginn, en þar sem eiginmaðurinn er útivinn-
andi vill hann sjálfsagt helst af öllu vera heima í róleg-
heitum og alveg skiljanlegt líka og hann hefur kannski
ekki þrek til neins annars.
Þú átt ekki að reyna að breyta hugsunarhætti hans, það
er ekki leiðin. Ef hann er heima öll kvöld, hvað er þá til
fyrirstöðu að þú farir út? Þú gætir farið í kvöldskóla,
fengið þér kvöldvinnu ef þú vilt ekki eða getur ekki unnið
úti á daginn, eða bara heimsótt fólk. Ég er nokkuð viss
um að viðhorf þitt breytist snarlega við það. Maður á ekki
að treysta á aðra til að gera sig ánægða og hamingjusama,
það er manns eigið verkefni. En byrjaðu endilega á að
ræða málið við hann í bróðerni, deilur og skammir hjálpa
lítið. Ég er viss um að þið finnið lausn á þessu máli sam-
eiginlega.
Leið-
rétting
í dálkinum
Svona er lífið í síð-
ustu viku var rætt
um ökuskírteini.
Hér kemur 56. gr.
laga um ökurétt-
indi: Lögreglu-
stjóri getur ákveð-
ið að áður en
fullnaðarskírteini
verður gefið út í
stað bráðabirgða-
skírteinis skuli
skírteinishafi
gangast undir
hæfnispróf ef hlut-
aðeigandi hefur
sýnt af sér van-
kunnáttu í akstri,
vanhæfni eða víta-
verða aksturshætti.
Ef sótt er um
útgáfu fullnaðar-
skírteinis eða end-
urnýjun ökuskír-
teinis þegar meira
en tvö ár eru Iiðin
frá því ökuskírtein-
ið féll úr gildi skal
umsækjandi stand-
ast hæfnispróf.
Lögreglustjóri get-
ur þó ákveðið að
ekki þurfi að gang-
ast undir hæfhis-
próf.
Ekki halda aííur
aflincrraiium
Þegar maður er í fjölmenni
vill maður ógjarnan hnerra
yfir fólk og heldur þá hnerr-
anum inni. Við það líður
manni eins og hljóðhimn-
urnar muni springa, en það
er ekki svo. Hinsvegar getur
það að halda hnerranum or-
sakað að bakteríur frá nefi
þeytist inn í eyrun og orsak-
að með því sýkingar í eyra.
Vilji maður komast hjá því
að úða yfir mannskapinn þá
er reynandi að prófa að
halda þétt um nefið þegar
hnerrinn nálgast. Við það
hverfur tilfinningin stundum
og maður hættir við að
hnerra.