Dagur - 17.09.1998, Page 5

Dagur - 17.09.1998, Page 5
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 - 21 Tk&fir LÍFIÐ t LANDINU Ryðgað geimfar í Hrísey? UndirHá- borðinu í Hrísey ligg- urfurðu- verk. Lista- maðurinn kallarþaðAsk Yggdrasils eða heimstréð. Hríseying- artaka listverkinu vel. Það ereins og ryðgað geimfar. Yggdrasill heitir verkið og er staðsett nærri þrjá km frá bæn- um og ekki nokkur leið að koma auga á það fyrr en komið er uppá hæð nokkra sem eyjar- skeggjar nefna Háborðið. Og ekki lék nú veðrið við eyjamenn þennan dag sem innsetningin var, hífandi rok og rigning og átti ég von á því að vera eini gesturinn . En landinn er greini- lega hættur að spyrja að veðri nú í seinni tíð og mættu 30 manns í slagviðrinu til að berja verkið augum. Við fyrstu sýn gat þessi ryðhrúga eins verið menjar utan úr geimnum sem brotlent hefði í Hrísey fyrir einhverjum mörgum tugum ára, en annað kom nú fljótt í ljós. I/ið fyrstu sýn gat þessi ryðhrúga eins verið menjar utan úr geimnum sem brotlent hefði í Hrísey fyrir einhverjum mörgum tugum ára, en annað kom nú fljótt í Ijós. Það er ekki ætlunin að skýra frá því hvaðan veraldaraskurinn Yggdrasill er kominn. Tréð er einfaldlega þar sem það er. Ekki er víst að það sjáist frá jörðinni, en eitt er víst að það er á sínum stað. Hægt er að gera sér í hug- arlund afl svipað því sem dregur járnbút að segulstáli. Maður veit að það er til, þó svo að maður geti hvorki séð það né þreifað á því. Yggdrasill kann að vera ósýnilegur dauðlegum mönnum, en fullvíst er, að án atbeina hins mikla eskitrés mundi allt molna og þeytast útí óendan- leikann. David Hebb sótti um Full- bright-styrk til að koma til Islands að vinna. Hann hafði verið búin að lesa mikið um Is- land og fengið heilmiklar upp- Iýsingar um landið á Netinu. Þar fann hann m.a. Gilfélagið á Akureyri sem bauð uppá gesta- vinnustofu fyrir erlenda og inn- lenda listamenn til lengri eða skemmri tíma dvalar og sótti strax um og fékk. David er nú búin að vera á Islandi í eitt ár og ég spurði hann nokkurra spurn- inga um verkið og veru hans hér: Hvers vegna valdirðu Island? „Það var nú aðallega vegna þess að ég var nokkuð viss um að fá styrkinn, því enginn í Ameríku sækir um að koma hingað! Nú og svo var ég búinn að Iesa mér til um landið og sögu þess auk þess sem ég var mjög áhuga- samur um norræna goða- fræði og fannst þetta vera verulega spennandi kostur." En hvers vegna Hrtsey? „Eftir að ég Ias um Gilfé- lagið á Netinu hélt ég að ég gæti fundið stað fyrir verkið í nágrenni við Akureyri, en svo kom bara í Ijós að ekki var þar um auðugan garð að gresja. Vinur minn benti mér svo á Hrísey og var haft sam- band við ráða- menn þar og sam- þykkt að ég mundi reisa verk- ið þar.“ tóku hug- Hvernig eyjaskeggjar myndinni? „Það var auð- vitað á báða bóga, sumum fannst óhæft að vera að reysa þetta David Hebb trúir því að náttúr- mun ég Snúa aftur járnarusl þama an uumi alltaf sigra og þess úti í náttúrunni, vegna munu rætur Yggdrasils en flestum þótti alltaf lifa þrátt fyrir allar þasr nú hugmyndin hörmungar sem maðurinn góð þegar þeir býður náttúrunni. myndir.' vv höfðu kynnt sér efni og sögu verksins.“ Hvernig stóð ú vali þínu að þessu viðfangsefni? „Eins og ég sagði áður, þá hef ég haft mikinn áhuga á nor- rænni goðafræði og hef gjarnan notað það í mínum verkum til að koma þeim skilaboðum á framfæri að náttúran kemur alltaf til með að sigra iðnaðar- verksummerki mannanna. Eg var hins vegar ekki búinn að ákveða hvað ég vildi gera þegar ég kom hingað, en eftir að hafa skoðað staðinn (Hrísey) kom þetta smám saman til mín.“ Hvemig hefur þér líkað að lifa og búa í íslensku samfélagi? „Alveg frábær- lega, mér hefur ver- ið tekið mjög vel bæði á Akureyri og í Hrísey þar sem allir hafa verið svo hjálp- legir og elskulegir." Hvað tekur svo við? „Eg ætla að kenna við Mynd- listaskólann á Akur- eyri eitthvað fram í nóvember, en þá til heimalandsins, en ég mun alveg ör- ugglega heimsækja ísland fljótt aftur.“ Tölvunám sem stenst kröfur vinnumarkaðarins Þú lærir meðal annars: ■ Wlndows 95 ■ Skjalavistun ■ Ritvinnslu ■ Töfiureikni ■ Glærugerð ■ Auglýsingagerð ■ Umbrot bæklinga og fréttabréfa ■ Internet = Vefur // Póstur // Spjallrásir ■ Uppsetningu forrita Þú velur morgun- eða kvöldnám Námið hefst 29. september Hafðu samband við okkur og fáðu senda ókeypis námslýsingu Innritun og allar nánari upplýsingar í síma 462 7899 Alvöru Bókhaldsnámskeið Námsefnið er raunveruleg fylgiskjöl Þú lærir meðal annars: ■ Að merkja fylgiskjöl ■ Að færa algenga gjaldaliði, t.d. vörukaup, húsaleigu, símkostnað, þjónustugjöld banka og FIT-kostnað ■ Að færa útreikning launa og launatengdra gjalda ■ Hvernig á að reikna og gera upp VSK ■ Að færa sjóðsbók ■ Að stemma af dagbókarlykla eftir hreyfingalistum ■ Að undirbúa uppgjör fyrirtækis Að námi loknu verður vinnan við bókhaldið leikur einn ATH. Námið hefst um 28. september NÁM SEM NÝTIST Innrltun og allar nánari upplýsingar I síma 462 7899 Furuvöllum 13 Símar 462 7899 og 896 5383

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.