Dagur - 18.09.1998, Side 4

Dagur - 18.09.1998, Side 4
é -"'FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1998 ro^r FRÉTTIR Pálína Garðarsdóttir ráðin bæjargjaldkeri Pálína K. Garðarsdóttir, Mosfellsbæ, hefur verið ráðin bæjargjaldkeri Isafjarðarbæjar. Þrír sóttu um starfið, auk Pálínu þeir Bergur Torfa- son á Þingeyri og Grétar Kristjónsson í Reykjavík. Bæjarráð hefur jafnframt staðfest ráðningu Elísabetar Gunnlaugsdóttur sem leik- skólastjóra á Tjarnarbæ og ráðningu Valgerðar Hannesdóttur sem leikskólastjóra á Eyrarskjóli. Fækkirn bifreiðastæða veldur óróa Eigendur Pizza-67, Aðalstræti 37 og Alþýðuhúss ísfirðinga hafa gert athugasemdir við fækkun bílastæða vegna breytts skipulags á Austur- vegi 2. Telja aðilar að of fá bílastæði verði miðað við þá starfsemi sem fram fari í eignum þeirra svo og öðrum húseignum á svæðinu. Bíla- stæðum fækki úr 24 í 7 ojg telja að með því sé svo þrengt að rekstri þeirra að óviðunandi sé. Askilja eigendur sér allan rétt til skaðabóta á hendur bæjaryfirvöldum vegna takmörkunar á notagildi húseign- anna. Sæmundur Kr. Þorvaldsson og Sigríður Bragadóttir óskuðu á fundi umhverfisnefndar að bókuð yrði eftirfarandi athugasemd: „Við teljum þær athugasemdir sem gerðar eru við þessa deiliskipulagstil- lögu og snúast um bílastæði séu í samræmi við það sem K-listinn var- aði við vegna þeirra hugmynda að koma bráðabirgðahúsnæði grunn- skólans fyrir á Austurvegi 2.“ Veitingarekstur í Tjöruhúsi Bæjarstjórinn, Halldór Halldórson, hefur gert samning við Guðrúnu Höddu Óskars- dóttur um veitingarekstur í Tjöruhúsi í Neðstakaupstað á Isafirði. Menningar- málanefnd, undir forsæti Ingu Ólafsdóttur, hefur lýst ánægju sinni með leigutakann. Tvær umsóknir bárust um starf umsjónar- manns íþróttahússins Torfnesi, annars veg- ar frá Leifi Halldórssyni sem hefur gegnt starfinu undanfarna mánuði og hins vegar frá Jóhanni Torfasyni. Farið var fram á úr- skurð fræðslunefndar um það hvort rétt hafi verið staðið að auglýsingu um starfið, en það var einungis auglýst innanhúss. Fé- lag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum telur nægilegt að auglýsa stöðuna innan- húss þar sem einungis var um hlutastarf að ræða. Gengið hefur ver- ið frá ráðiningu Leifs Halldórssonar í starfið. Halldór Halldórsson bæiarstjóri á ísafirði. Vetumætur í október Lista- og menningarvikan Vetumætur verður í Isafjarðarbæ 23. til 30. október nk. og er þetta í annað sinn sem þær eru haldnar en að þeim standa ýmis félög, kórar og einstaldingar. A Vetrarnóttum verða myndlistarsýningar, tónleikar, ýmis námskeið og jafnvel listasmiðja og þarft innlegg í vestfirskt menningarlíf í upphafi vetrar. Flateyriugar ábyrgastir í uuiferðiuni I „Bæjarins besta á Isafirði var nýlega kynnt könnun á notkun bíl- belta á Vestfjörðum og þar komist að þeirri niðurstöðu að 62% öku- manna notuðu bílbelti og er niðurstaðan talin með öllu óviðunandi að mati þeirra sem að henni stóðu, þ.e. Umferðarráðs, SVFÍ og ör- yggisfulltrúa Vestijarða. Skást var ástandið á Flateyri þar sem 82% ökumanna notuðu öryggisbelti en 93% farþega í ífamsæti. Aðeins 33% ökumanna á Bíldudal voru í öryggisbeltum en 52% farþega en á Tálknafirði voru 39% ökumanna í öryggisbeltum en aðeins 36% far- þega í framsæti. 92% farþega í aftursæti í bílum á Flateyri voru í ör- yggisbeltum en Iangfæstir á Tálknafirði, eða 36%. GG Síðasti Golftnn genginn út I byrjun september gekk þriðji og síðasti Golfinn út í sumarílöskuleik Coca Cola á Islandi. Það var Ingibjörg Kristjánsdóttir, 15 ára Hafnfirðingur, sem datt í Iukkupottinn. Ingi- Ingibjörg Björnsdóttir tekur við lyklunum að björg er því þriðji íslend- Golfinum frá Gísla Vagni Jónssyni, mark- ingurinn sem vinnur Golf í aðsstjóra Heklu. Arna Ormarsdóttir, auglýs- sumarflöskuleik Coca ingastjóri Vífilfells, Bergdís Kristjánsdóttir, Cola í sumar. mamma Ingibjargar, og litla systir hennar fylgjast með. Forustumenn smábátaeigenda, Örn Pálsson framkvæmdastjóri og Arthúr Bogason, hafa áhyggjur af litlu svigrúmi í sóknardögum handfæra- og línubáta. Verulegt vaiimat á fismstofmmi Hrygningarstofininn 560 þúsund tonn, sem er helmingi meira en gert var ráð fyrir, seg- ir framkvæmdastjóri Landssambands smá- bátaeigenda. Forsvarsmenn smábátaeigenda og sjávarútvegsráðuneytisins hafa ræðst við að undanförnu vegna sóknardaga handfæra- og línubáta á þessu fiskveiðiári vegna kröfu smábátasjómanna um að sóknardögum verði íjölg- að úr 9 í 40 talsins. Næsti fund- ur verður ekki fyrr en á þriðjudag þar sem Ari Edwald, sem stýrt hefur umræðunum af hálfu ráðuneytisins, er á ársfundi Norður-Atlantshafsfiskveiðiráðs- ins í Portúgal. Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri LS, segir að á meðan talað sé við þá haldi þeir í vonina en hann sjái ekki að þeir geti gengið að neinu samkomulagi undir 40 sóknardögum, það sé sú trygging sem þeir verði að gefa sínum mönnum. „Menn verða að átta sig á því að þarna er um þriðjung allra smábáta að ræða, eða 328 báta. Óbreytt ástand mun Ieiða vand- ræði yfir Qölda fjölskyldna auk erfiðleika fyrir þá sem hafa tekið við afla þeirra til vinnslu. Hvað er verið að leysa með því að út- hluta okkur 9 dögum? Er verið að vernda fiskistofnana? Það get- um við ekki séð því það er nú miklu meira af fiski í sjónum en menn hafa séð undanfarna tugi ára en spár fiskifræðinga eru ekki í neinum takti við það. I skýrslu Hafrannsóknastofnunar frá árinu 1995 segir að ef veitt verði að meðaltali 190 þúsund tonn af þorski á árunum 1996 og 1997 þá muni það skila okkur veiðistofni upp á 750 þúsund tonn en hrygningarstofninn muni fara í 280 þúsund tonn. Farið var eftir ráðgjöfinni en veiðistofninn er kominn í eina milljón tonna og hrygningar- stofninn tvöfaldast, eða í 560 þúsund tonn. Því viljum við spyrja hvort ekki sé líka vanmat á ferðinni núna,“ segir Örn Páls- son. GG Vill tónlistarhús Tvær athuganir hafa verið gerðar á því hvernig hægt sé að fá viðunaudi hljómhurð í íþróttahöllina á Ak ureyri. Formaðurhæj- arráðs vill varanlega lausn. Ásgeir Magnússon, formaður framkvæmdanefndar Akureyrar- bæjar og formaður bæjarráðs, telur koma vel til greina að bygg- ja sérstakt tónlistarhús á Akur- eyri. Það stendur tónlistarlífi í bænum fyrir þrifum að ekkert samkomuhús er fyrir hendi í bæjarfélaginu sem bæði rúmar fjölda fólks og býr yfir góðum hljómburði. Asgeir bendir á að miklu minni sveitarfélög séu bet- ur í stakk búin en Akureyri hvað þetta varðar. Menningarmálanefnd hefur vísað til framkvæmdanefndar erindi um hugsanleg kaup Ak- ureyrarbæjar á hljóðkerfi. Eina Ásgeir Magnússon formaður bæj- arráðs segir það aðalatriði að koma upp varanlegri lausn til tón- leikahalds á Akureyri. leiðin til að halda tónleika í íþróttahöllinni á Akureyri er að magna allt húsið upp og hljóm- burðarsérfræðingar hafa gert tvær athuganir á því hvaða kostnaður fylgir því að breyta húsinu þannig að hljómburður verði viðunandi. Skiptar skoð- anir eru þó á þessum athugun- um en önnur tillagan segir að kostnaður geti verið 10-15 milljónir króna. Hin myndi þýða 40-50 milljóna króna kostnað fyrir bæinn. Varanleg lausn Ásgeir Magnússon segist tilbú- inn að skoða fyrri kostinn en hann leysir engan vanda til fram- búðar: „Eg er mikill áhugamaður um að við komum upp aðstöðu til að geta sinnt tónleikahaldi með þokkalegum hætti. Hljóð- kerfi er eflaust góðra gjalda vert í einhverju tilliti en að atriðið er að við komum upp húsi þar sem hægt er að flytja tónlist með sómasamlegum hætti. Tónlist sem við viljum ekki magna upp. Það er engin spurning að ég er mjög áfram um byggingu sér- staks tónlistarhúss en hvenær það gæti risið er ekki hægt að segja um strax," segir Ásgeir. Betra í sveitunum Ásgeir bendir á að ekkert sam- komuhús sé til á Akureyri stærra en Leikfélagshúsið og hljómburð- ur er ekki til að hrópa húrra fyrir þar. „Við þurfum hús með góðan hljómburð sem rúmar um 500 manns í sæti. Menn eiga svona hús víða í minni sveitarfélögum landsins en við eigum ekkert hér á Akureyri,“ segir Ásgeir. i:t)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.