Dagur - 18.09.1998, Qupperneq 10
1Ö
- FÖSTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1998
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3*105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Borgartún 21
í samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breyttu deiliskipulagi við Borgartún 21.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10:00-16:15 og stendur til 16. október 1998.
Ábendingum og athugasemdum vegna ofangreindrar
kynningar, ef einhverjar eru, skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar en 30. október
1998.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Áland 1, skilmálar og afmörkun
byggingarreits
( samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 er hér með auglýst til kynningar tillaga að
skilmálum og afmörkun byggingarreits að Álandi 1.
Kynningin fer fram i sal Borgarskipulags og Bygg-
ingarfulltrúa í Borgartúni 3,1. hæð, virka daga kl. 10:00-
16:15 og stendur til 16. október 1998. Ábendingum og
athugasemdum vegna ofangreindrar kynningar skal
skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur, eigi síðar
en 30. október 1998. Þeir, sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Askriftarsíminn er
4X<>,
v \
Þ
/ 8oo 7080
SMÁAUGLÝSINGAR
Húsnæðí í boði
Til leigu herbergi í innbænum á Akureyri
með húsgögnum. Tilvalið fyrir skólafólk.
Upplýsingar í síma 462 6465 milli kl. 20 og
22.
Felgur
Eigum mikið úrval af stálfelgum undir
flestar gerðir japanskra og evrópskra
bíla. Tilvalið undir vetrardekkin.
Bílapartasalan Austurhlíð, Akureyri.
Opið 9-19 og 10-16 laugardaga.
Sími 462 6512, fax 461 2040.
Pennavinir
25 ára einhleyp
kona frá Ghana
óskar eftir að skrif-
ast á við íslenska
karlmenn. Starf: rit-
ari. Áhugamál:
Ferðalög, mat-
reiðsla, lestur, söng-
ur, kyrrlátt heimílislíf
o.fl.
Hellena Ama Arthur Hughes,
Shankara Centre, P.O. Box 647,
Cape Coast Town,
Ghana - West Africa.
Heilun
AHeilun laugardaginn 19.
sept. frá kl. 13.30-16.00 án
gjalds.
Komið og sjáið hlýlegan stað í góðu um-
hverfi.
Kirkjustarf
Möðruvallaprestakall.
Kvöldguðsþjónusta verður I Bægisárkirkju
nk. sunnudag kl. 21:00. Kór Bægisárkirkju
syngur, organisti Birgir Helgason. Athugið
aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjónustuna.
Sóknarprestur.
Eyrarbakkakirkja.
Messa kl. 14 sunnudaginn 20. september.
Sóknarprestur.
Akureyrarkirkja.
Guðsþjónusta sunnudaginn 20. september
kl. 11:00.
Sr. Svavar Alfreð Jónsson.
Mömmumorgunn miðvikudaginn 23. sept-
ember kl. 10-12 í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju (gengið inn um kapelludyr).
Takið eftir
Minningarspjöld Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga fást hjá Pedromyndum,
Skipagötu 16.
Minningarspjöld Zontaklúbbs Akureyrar
fást í Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti og
Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Hornbrekka Ólafsfirði.
Minningarkort Minningarsjóðs til styrktar
elliheimilinu að Hornbrekku fæst I Bókvali
og Valbergi, Ólafsfirði.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju fást í
Bókabúð Jónasar og Blómabúðinni Akri.
ERLENDAR FRÉTTJR
Ellilífeyrisþegar í Tokyo mótmæla skertum lífskjörum.
Of miTdll auður
- of niiklar skuldir
Einu sinni sagði merkur íslensk-
ur stjórnmálamaður, að það væri
eins með verðbólguna og vind-
inn; enginn vissi hvaðan hún
kemur eða hvert hún fer. Nútíma
veðurfræði fylgist ágætlega með
vindinum og getur hver sem vill
fylgst með á sjónvarpsskjá hvað-
an hann kemur og hvert hann fer.
Óðaverðbólgan, sem lengi hélt
velli, var inngróin í athafnalífið
með gengisfellingum til að bjarga
atvinnuvegunum og í kjarasamn-
inga til að vernda kaupið. Er því
vitað nokkurn veginn hvaðan hún
kom og hvert hún fór eftir að lág-
launafólkið tók að sér að kveða
hana niður með einhliða þjóðar-
sátt.
Aftur á móti er fátt um útskýr-
ingar á þeirri fjármálakreppu sem
hófst um austanverða Asíu á síð-
asta ári og hefur verið að breiðast
út um veröldina síðan. Ekki vant-
ar fréttaflutning af kreppuein-
kennunum og er glöggt fylgst
með gengi hlutabréfa vítt og
breitt í kauphöllunum. Hrun
gjaldmiðla og gjaldþrot banka og
fyrirtækja eru mikil frásagnarefni
og stjórnmálamenn lýsa yfir
áhyggjum sínum og þiggja ráð hjá
hagfræðingum og öðrum sér-
fræðingum í Qármálaheiminum.
Margir óttast að kreppan eigi
eftir að breiðast út og magnast og
muni fyrr en síðar ná til Ijármála-
velda á vesturhveli og eru ein-
kennin raunar fyrir löngu farin
að gera vart við sig með verðfalli
á hlutabréfamarkaði og minnk-
andi viðskiptum.
Öflugar bankastofnanir og fjár-
festar kippa að sér hendinni þar
sem á bjátar og þá versnar
ástandið að mun og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn er beðinn ásjár að
ausa enn meiri peningum í
skuldahítirnar og þegar hann fer
að tæmast biður Clinton forseti
Baksvið
MiMð var fjárfest og
byggðist uppsveiflan
á láiimn og meiri lán-
um. En þegar kom að
skuldadögum varð
skrattiun laus.
um enn meiri fjárframlög í hann
til að skuldunautar verði á færum
að endurgreiða amerískum lán-
veitendum skuldir sínar og til að
tryggja að fjárfestingar fari ekki
algjörlega í súginn.
Frani úr sjálíimi sér
Lítið er gert til að útskýra hvað
veldur kreppunni, hvert er eðli
hennar og hvað er til ráða. Það er
eins og að menn standi í svipuð-
um sporum og Asgeir bankastjóri
og síðar forseti, þegar hann gerði
samlíkinguna um vindinn og
verðbólguna.
Sjálfsagt er engin einhlít skýr-
Stjómarmyndun dregst á langinn
RÚSSLAND - Boris Jeltsín, forseti Rússlands, sagði í gær að sennilega
myndi það dragast um viku í viðbót að klára myndun nýju ríkisstjórn-
arinnar undir forystu Primakovs. Upphaflega var meiningin að því
verki yrði lokið í þessari viku. Primakov átti í gær viðræður við þrjá ut-
anríkisráðherra frá Evrópusambandinu, sem voru að kynna sér ástand-
ið í Rússlandi.
VopnaMésyfirlýsingu ETA tekið var-
lega
SPANN - ETA, aðskilnaðarsamtök baska á Spáni, Iýstu yfir vopnahléi í
vikunni, en spænskir ráðamenn töldu réttast að taka henni með varúð
og gera sér ekki of miklar vonir um að nú sé hryðjuverkum samtakanna
hætt. ETA vill að fundin verði Iausn á deilunni um Baskaland með svip-
uðum hætti og gert var á Norður-írlandi, og gerir því kröfu um að
samningaviðræður hefjist í kjölfar vopnahlésyfirlýsingarinnar.
ing á orsökum kreppunnar, en af
skrifum og skoðunum er hægt að
ráða í hvaðan hún kom.
Alþjóðavæðing fjármála og við-
skipta hefur gengið mjög hratt
fyrir sig og hefur hagvöxtur víða
verið hraðari en menn ráða við.
Mikill auður hefur safnast sam-
an, til dæmis í Japan, og til að
halda vextinum gangandi þarf að
láta peningana vinna fyrir sér og
hafa þeir verið lánaðir út og suð-
ur.
Fyrstu fórnarlömb uppsveifl-
unnar voru Asíutígrarnir, eða þau
lönd sem hagvöxturinn óx hraðar
en annars staðar. Veitt voru ótak-
mörkuð lán til þeirra landa og
nutu ríkisstjórnir, fyrirtæki og
einstaklingar þeirra í ríkum mæli.
Mikið var fjárfest og byggðist
uppsveiflan á lánum og meiri lán-
um. En þegar kom að skuldadög-
um var skrattinn laus. Lánin voru
notuð til neyslu og óarðbærra
fjárfestinga og töpuðust milljarð-
ar á milljarða ofan.
Japanir veittu um 60% þeirra
lána sem nú eru talin glatað fé og
fjárfestingar þeirra voru svipaðar
að hlutfalli. Ekki bætti úr skák,
að með hruni gjaldmiðlanna og
ört vaxandi fátækt duttu markað-
ir fyrir iðnvarning niður. Er jap-
anskur almenningur nú hvattur
til að létta undir með því að
hætta að spara en fara að eyða og
sóa til að fjörga viðskiptin heima
fyrir. En eftir því sem harðnar á
dalnum herða japanskir sultaról-
ina og spara enn meira til að
mæta erfiðum tímum.
Bankamir halda að sér hönd-
um til að tapa ekki enn meiru en
orðið er og fyrirtæki fara unn-
vörpum á hausinn og atvinnu-
Ieysi eykst.
Ofvöxtur fjárfestinganna
Bíladeild Mitsubishi-samsteyp-
unnar er nærri gjaldþroti, en aðr-
ar greinar halda henni á floti. En
erfiðleikar bílaframleiðenda eru
ekki einskorðaðar við Japan.
Talið er að framleiðslugeta bfla-
verksmiðja sé um það bil 40%
meiri en markaðir geta tekið við.
Ótæpilegar fjárfestingar í bíla-
framleiðslu eru óarðbærar og
Ieiða til harðnandi samkeppni,
sem á eftir að leika marga illa.
En svo er á miklu fleiri sviðum.
Fjárfestingar sem aðeins valda
kostnaði og skila ekki arði draga
úr hagvexti í stað þess að auka
hann, eins og til var stofnað. Þess
gjalda nú ríki og fyrirtæki, stór og
smá, sem gleyptu við lánum og
Qárfestingum og standa nú uppi
eins og stórskuldugir hetlarar,
sem ekki kunnu fótum sínum
forráð.