Dagur - 03.10.1998, Page 5
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 - 21" "
Þann 1. október 1786
hvarfprestur áferð
milli bæja ogfannstaf
honum hvorki tangur
né tetur. Hvaifið varð
umtalað um land allt
og upphaflanglífra
frásagna sem settar
verða á svið Þjóðleik-
hússins um næstu
helgi.
Rétt við þjóðveg 1 í Skagafirði
stendur Miklibær, prestssetrið
þar sem séra Oddur Gíslason
bjó á ofanverðri 18. öld. Þjóð-
sagan um ástir séra Odds og
Sólveigar ráðskonu hans er
flestum kunn og heillaði ekki
bara ímyndunarafl almennings
á þeim tíma, skáld og höfundar
hafa fundið þar dramatískan
efnivið:
Hart er í hófi frostið;
hélar andi ú vör.
Eins og auga brostið
yfir mannsins för...
Bergmúl brýzt og líður
bröttum eftir fellum.
Dunar dátt í svellum:
Dæmdur maður ríður!
Þannig orti stórmennið Einar
Benediktsson um hinstu ferð
séra Odds.
Ofsótti ástmannmn
Það er kannski rétt að rifja upp
fyrir þeim sem hafa horft á
Þjóðsögur Jóns Árnasonar ryk-
falla upp í hillu að atburðarásin
er í stuttu máli sú að Solveig og
séra Oddur leggja ást hvert á
annað, hún vill giftast en prest-
ur vildi ekki kvænast henni. I
örvinglan sker Solveig sig á háls
en tekst í andarslitrunum að
segja vinnumanni nokkrum að
hún vilji láta grafa sig í kirkju-
garði. Biskup bannaði séra
Oddi að grafa Solveigu, þar
sem hún hafði sálgað sér sjálf,
og var hún því dysjuð utan
garðs. Solveig hafði þar með
verið tvívegis svikin af ást-
manninum og tók því að of-
sækja. hann. Af ótta við hefnd
afturgöngunnar var Oddi ætíð
fylgt heim að húsdyrum er
hann var á ferð um héraðið.
Svo var það eina nótt að Oddur
skilaði sér ekki heim. Menn
voru ekki lengi að setja saman
tvo og tvo: Solveigu hafði nú
tekist, 8 árum eftir dauða sinn,
að ná fram hefndum. Og það er
eigi undarlegt að mönnum hafi
þótt eitthvað grunsamlegt við
þetta hvarf - ekki var nema um
kílómeter milli bæjanna.
Hötuð fordæða
Ragnar komst fyrst í tæri við
söguna í Lestrarbók Sigurðar
Nordals en býr auk þess í
Varmahlíð í Skagafirði, rétt í
næsta nágrenni við sögusviðið.
„Það er margt í þessari þjóð-
sögu sem á erindi við okkur á
öllum tímum. Þetta er saga um
unga stúlku sem umbreytist í
hataða fordæðu. Það er nokkuð
sem gerist á öllum tímum. En
framar öllu öðru er þetta auð-
vitað saga um heita ást í mein-
um.
Frásagnir af hvarfi Odds eru
fjöldamargar enda um fátt
meira rætt á sínurn tíma. „Elins
vegar er ákaflega lítið vitað um
samband Odds og Solveigar og
veit enginn hvað var raunveru-
Iega á milli þeirra,“ segir Ragn-
ar og hefur hann því þurft að
semja í eyðurnar því allur fyrri
hluti leikritsins er helgaður ást-
arsambandi þeirra Odds og Sól-
veigar. Seinni hlutinn gerist níu
árum síðar, að mestu daginn
sem Oddur hverfur.
Oddux birtist
á miðilsfundum
Grétar Reynisson, leikmynda-
og búningahönnuður uppfærsl-
unnar, vaknaði upp með
skrýtna tilfinningu á fimmtu-
dagsmorgun - sem reyndist eiga
sér skýringu. Dagatalið sýndi að
kominn var 1. október, það
voru nákvæmlega 212 ár frá því
séra Oddur hvarf. Það var því
viðeigandi að góma þá Grétar
og Þórhall Sigurðsson, leik-
stjóra, í stutt spjall þennan
merldsdag. „Þetta var náttúru-
lega skrautlegt tímabil í Is-
landssögunni," segir Þórhallur,
og vísar til þess að móðuharð-
indin urðu á þessum tíma („þau
gerast í hléi hjá okkur," skaut
Grétar inní), þegar fimmtungur
landsmanna dó og megnið af
kvikfénaði.
Arið 1937 var frásögnin enn
svo megn í hugum Skagfirðinga
að þeir fengu biskupsleyfi til að
grafa Sólveigu upp og leggja
hana í vígða mold. Oddur hafði
verið farinn að birtast þeim á
miðilsfundum og „þeim fannst
þeir eiga henni ógreidda skuld
að gjalda,“ segir Þórhallur. En
hvað gera þeir við alla þá heim-
ildavinnu og þekkingu sem þeir
hafa aflað sér um þessa sögu og
tímabilið? „Ja, þetta er náttúru-
lega engin þjóðháttafræði,
þetta er Ieikhús," segir Þórhall-
ur en bætir því við að nauðsyn-
legt sé að þekkja bakgrunninn
til að geta losað sig frá hinum
sögulega raunveruleika.
Nútfmaleikrit
Því verður þjóðminjunum ekki
hrúgað á sviðið til að endur-
skapa baðstofuna. Þetta er nú-
tímalegt leikrit, segir Þórhallur,
ekkert flúr og stíllinn er knapp-
ur. Þeir leitast við að ná
stemnningunni, þrúgandi and-
anum sem hvíldi yfir þjóðinni á
þessum niðurlægingartímum.
Þannig fór hópurinn t.d. norð-
ur í Skagafjörð, þar sem Vigdís
Gunnarsdóttir (Sólveig) reyndi
að drekka í sig afturgönguna
með því að Ieggjast á leiði Sól-
veigar en séra Odd leikur
Þröstur Leó Gunnarsson.
Fyrsta túlkunin sem skýtur
upp í kolli nútímamanns hlýtur
að vera að Oddur hafi fyrirfarið
sér - ella hefði líkið átt að finn-
ast en menn leituðu hans dög-
um saman eftir hvarfið. En
Oddur var sonur Hólabiskups
og sjálfsmorð, ef um það var að
ræða, hefði að sjálfsögðu ekki
mátt spyrjast út. Afturganga
fordæðunnar Solveigar hefði þá
getað þótt hentug til að hylma
yfir sjálfsmorðið.
„Menn sitja uppi með sam-
viskubit og ætli það hafi ekki
verið samviskubitið sem kallaði
fram drauginn. En hitt er nátt-
úrulega miklu betri saga,“ sagði
Þórhallur. Og er það efalaust
að margir hafa trúað drauga-
söguútgáfunni af hvarfinu.
Þeim hinum sömu hefði sjálf-
sagt einnig þótt eitthvað grun-
samlegt við það að hljóðið hvarf
af upptökutæki blaðamanns.
Þann 1. okt. 1998 í leikmynd
Miklabæjarkirkju á stóra sviði
Þjóðleikhússins. -LÓA
ÞJ ÓÐLEIKHIJ SIÐ
Sýnt á stóra sviði
ÓSKASTJARNAN
- Birgir Sigurðsson
í kvöld Id. - sud. 11/10.
Ath. takmarkaður sýningafjöldi.
SÓLVEIG
- Ragnar Arnalds
Frumsýning Id. 10/10 örfá sæti laus
- 2. sýn. fid. 15/10 örfá sæti laus
- 3. sýn. föd. 16/10 örfá sæti laus
BRÓÐIR MINN
LJÓNSHJARTA
- Astrid Lindgren
á morgun kl. 14:00 örfá sæti laus
- sud. 11/10 kl. 14:00
örfá sæti laus
Sýnt á litla sviði
kl. 20:30
GAMANSAMI
HARMLEIKURINN
- Hunstadt/Bonfanti
Id. 3/10 nokkur sæti laus
- föd. 9/10 örfá sæti laus - Id.
10/10.
Sýnt í Loftkastala
kl. 20:30
LISTAVERKIÐ
- Yasmina Reza
Id. 3/10-föd. 9/10
ath. takmarkaður sýningarfjöldi.
Sala áskriftarkorta
stendur yfir.
Innifalið í áskriftarkorti eru 6
sýningar.
Almennt verð áskriftarkorta
er kr. 8.700
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar
kr. 7.200
Miðasalan er opin mánud.
- þriðjud. 13-18, miðvikud.
- sunnud. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka
daga í síma 551-1200.
á&UÆIKFF.LAGlÉá
B^REYKJAVÍKURJ®
BORGARLEIKHÚSIÐ
KORTASALAN ER HAFIN
Stóra svið kl. 20:00
eftir Jim Jacobs og Warren
Casey
fös. 2/10, örfá sæti laus
lau. 3/10, kl. 14
sun. 4/10
Munið ósóttar pantanir
Stóra svið kl. 20:00
SEX f SVEIT
eftir Marc Camoletti
fim. 8/10
40. sýning fös. 9/10, uppselt
lau. 17/10, kl. 23.30
Stóra svið kl. 20:00
(SLENSKI
DANSFLOKKURINN
NIGHT, Jorma Uotinen
STOOLGAME, Jiri Kylián
LA CABINA 26, Jochen Ulrich
2. sýning lau. 3/10
3. sýning fim. 15/10
Takmarkaður sýningafjöldi.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13 - 18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383