Dagur - 03.10.1998, Blaðsíða 18
34- LAUGARDAGVR 3. OKTÓBER 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Eftir heimildum sem borist hafa ritara
Poppsíðunnar og teljast verða mjög áreið-
anlegar, er mjög líklegt að næstu upptökur
Bjarkar Guðmundsdóttur, poppstjörnunnar
okkar einu og sönnu, fari fram á Grænlandi
innan ekki langs tíma. Mun jafnvel svo fara að
öll næsta plata hennar verði tekin þar upp.
Þetta mun þó velta á því hversu hagkvæmt
fjárhagslega dæmið Iítur út, en nokkuð dýrt er
að flytja inn þá hjálparkokka sem til þarf við
upptökurnar. Ef af yrði gæti þetta reynst
grænlenskum ferðaiðnaði og landinu almennt
mikil lyftistöng, þannig að ekki mun loku fyrir
það skotið að yfirvöld þarlendis muni leggja
hönd á plóg. Þessi tíðindi eru ekki
ennþá svo vitað sé staðfest, en ef af
verður þá eru tæknilegar forsendur
fyrir hendi á Grænlandi. Þar eru
nefnilega danskir aðilar búnir að
koma upp einu fullkomnasta hljóð-
veri í Evrópu og jafnvel þó víðar
væri leitað. Eru þar á ferð engir
aukvisar, menn sem unnið hafa
með rokkrisum á borð við Metall-
ica, John Fogerty og mörgum fleiri.
Koma þessi tíðindi í kjölfar þess að
fregnaðist að Björk myndi þreyta
frumraun sína á hvíta tjaldinu í
næstu mynd danska leikstjórans
Lars Von Trier auk þess að sjá um
alia tónlist í myndinni og texta í
samvinnu við aldavin sinn, skáldið
Sjón, Sigurjón Sigurðsson.
Björk. Næsta plata tekin upp á Grænlandi?
(jleðitjja.Pi Pyrir fer3.fefe3.na.
au hjónin, Anna
Pálína Arnadóttir og
Aðalsteinn Asberg Sig-
urðsson, eru löngu orðin
landsmönnum kunn fyrir
verk sín á tónlistar-, rit-
listar- og fjölmiðlasviðun-
um. Barnadagskrá þeirra,
Berrössuð á tánum, á
rætur að rekja aftur til
ársins 1995 er þau hlutu
styrk úr Barnamenningar-
sjóði tíl verksins. Með
dagskrá undir þessu nafni
hafa þau svo farið í leik-
skóla og víðar og flutt lög,
ljóð og sögur er náð hafa
miklum vinsældum hjá
börnunum og þau tekið
ástfóstri við hinar ýmsu
persónur og viðfangsefni
er komið hafa við sögu.
Er nú þessi skemmtilega
dagskrá komin út á geisla-
plötu undir sama heiti,
Berrössuð á tánum. Eins
og við var að búast af
þeim hjónum, sem áður hafa sent frá sér þrjár mjög svo
góðar og skemmtilegar plötur, A einu máli 1992, Von og
vísa 1994 og síðast en ekki síst, Fjall og fjara 1996, sem
er með hugljúfari og rómantískari plötum seinni ára á ís-
landi, er þessi bamaplata
þeirra einstaklega smekk-
leg og vel unnin, en með
þeim hjónum \dð gerð
plötunnar unnu eðaltón-
íistarmennirnir Gunnar
Gunnarsson píanóleikari,
Gunnar Hrafnsson bassa-
Ieikari og Pétur Grétars-
son ásláttarleikari. Sem
fyrr er það góð blanda af
vísnatónlist, djassi og
blúsáhrifum, sem þau
bjóða fram með léttum
og aðgengilegum hætti.
Textarnir eru svo sem fyrr
mjög svo haglega ortir,
með stuðlum og höfuð-
stöfum er hljóma mæta-
vel í flutningi þeirra.
Lögin á plötunni eru
samtals 11, en auk þeirra
eru svo tvær litlar sögur
með hæfilegum umfjöll-
unarefnum fyrir börn á
aldrinum 2 til 8 ára. Fyrir
þá krakka og foreldra
þeirra sem kjósa góða og uppbyggilega söngva, lausa við
allt poppskrum sem vissulega er borið svo meir en nóg á
borð fyrir æsku landsins nú á tímum, er Berrössuð á tán-
um kærkomin plata og sannkallaður gleðigjafi.
.1
Rokkúr
norðri
Þegar hinar ýmsu tónlistarstefnur hafa náð há-
marki hylli sinnar og taka að dala, jafnvel hverfa
að mestu, hefur það verið viðleitni sumra tónlist-
argagnrýnenda í hinum vestræna heimi að tala
um að þar með sé viðkomandi stefna „dauð“.
Hver man til dæmis ekki eftir frösum á borð við
„Pönkið er dautt“, sem t.a.m. var gólað þegar Sex
pistols fóru í hundana og „Dauðarokkið er dautt“
sást líka víða fyrir nokkrum árum um 1994 eða
svo þegar draga fór verulega úr almennri hylli
þess í Ameríku, Þýskalandi og víðar, þar sem það
átti ekki hvað síst mestu fylgi að fagna. Stað-
reyndin er hins vegar sú, að þegar ein stefna hef-
ur einu sinni mótast og komið fram deyr hún
auðvitað aldrei. Hún getur það einfaldlega ekki,
heldur verður bara hluti af heild sem sífellt bætir
við sig, sem síðan er alltaf hægt að ganga í fyrr
eða síðar. I næsta mánuði er von á merkilegri
safnplötu er innihalda mun rokktónlist sveita frá
löndum hér á norðurhveli jarðar, íslandi, Græn-
Iandi Laplandi og Færeyjum, auk þess sem vest-
ur-íslensk/kanadísk sveit verður einnig með.
Sannast ofansagt á þessum sveitum flestum því
dauðarokkið á sér þar fulltrúa og það ferska frá
Grænlandi og gildir það raunar almennt um allar
skrifar
Marlyn Manson. Nýja platan komin.
sveitirnar, að þær eru í kraftmeiri kantinum með
nútímaáhrifum í bland. íslensku sveitirnar eru,
Bisund og Spitsign, sem báðar hafa vakið athygli
og fengið viðurkenningar í tveimur síðustu Mús-
íktilraunum og þriðja íslenska sveitin er svo gleði-
og baráttusveitin Alsæla, er vakti heldur betur at-
hygli 1996 með „Metalrapp" útgáfu sinni Þorra-
þrælnum, sem m.a. var valið eitt athyglisverðasta
Iag ársins á Rás 2 þetta árið. Með þessu framtaki
var svo Alsæla einnig, beinlínis með nafni sínu,
að reyna að þurrka sama nafn af óþverranum er
nú nefnist oftast í daglegu tali E-piIIan. Fulltrúi
Færeyja m.a. er þungamálmsrappsveitin
Hatespeech svo eitt nafn sé nefnt. Þá er foringi
vestur-íslensku/kanadísku sveitarinnar Arni
Ahronsson, en amma hans var Anna Isfeld er
fluttist til Vesturheims á síðustu öld. Bróðir Arna,
Kristján að nafni, hefur svo verið vinsæll útvarps-
plötusnúður í Kanada og Englandi. Hefur hann
m.a. kynnt Bellatrix/Kolrössu, Unun, Botnleðju
o.fl. Er vinnuheiti plötunnar, sem koma mun út á
alþjóðlegum markaði, Rock from the cold Sea, og
kemur út sem fyrr sagði í næsta mánuði.