Dagur - 03.10.1998, Síða 8
=r^
24-LAUGAKDAGUR 3. OKTÓBER 199 8
LÍFIÐ í LANDINU
„Ég er hlédrægur og held mér frek-
1 ar tll baka. Mér er ekki vel við mikla
| athygli. Hitt er annað mál að ég geri
| mér grein fyrir því að sem rektor verð
f ég að koma fram útávið fyrir hönd
skólans til að vekja athygli á því sem
t við erum að gera. Ég reyni að vera
, virkur iþví en ég held alltaf dálítið
í aftur af mér í því hlutverki."
f ~
'
i
'
<
[
'
'
f.
f
t
Þorsteinn Gunnarsson
er rektorHáskólans á
Akureyri. Hann hefur
staðið í eldlínunni við
útbreiðslu háskóla-
náms á landsbyggð-
inni. Hann er
hlédræguren nýtur
starfsins, trúirá
framtíð skólans og vill
gera háskólanám að
almenningseign.
- Þtí ert ættaður lír Vopnafirði og
meðal annars af skúldum kom-
inn. Blundar í þér skáld?
„Nei, ekki þannig að ég setji
saman vísur en ég þarf mikið að
vinna við skriftir í mínu starfi og
þá hjálpar til að eiga létt með að
setja saman texta.“
„ - Engar vísur i skújfunni?
„Nei, því miður."
- Var gott að vera barn í Vopna-
firði?
„Við bjuggum þar með bland-
aðan búskap, sauðfé og kýr. Við
vorum fjögur systkinin sem ól-
umst þarna upp og ég er elstur.
Skólaganga mín byrjaði þegar ég
var níu ára, þá fór ég í heima-
vistarskóla. Var þá mánuð f
heimavist og svo annan heima
að Iæra. Síðan eftir að ég Iauk
barnaskóla fór ég að Laugum í
Þingeyjarsýslu og tók landspróf
þaðan. A sumrin vann ég heima
á búinu eða fékk mér sumar-
vinnu annarsstaðar."
Foreldrar Þorsteins eru Gunn-
ar Valdimarsson og Sólveig Ein-
arsdóttir.
tníirá háskólanámfyríralla
„Það var afskaplega gott að al-
ast upp í Vopnafirði. Þetta var
að vísu einangrað en við systkin-
in lékum oldíur saman og börn
komu alltaf til sumardvalar
þannig að félagsskapurinn var
nægur. Það var mikill gestagang-
ur á heimilinu á sumrin. Veiði-
menn víða að af landinu sem og
erlendir höfðu gjarnan bæki-
stöðvar þarna.“
- Þú fórst í Menntaskólann á
Akureyri og tókst þaðan stúdents-
próf. Er eitthvað sérstakt við MA
sem skapar stemmninguna á
meðal nemenda og fyrrverandi
nemenda eða þykir bara hverjum
sinn fugl fagu r?
„Jú, sjálfsagt er það en það
sem gerir MA töluvert sérstakan
er að þarna er stór heimavist þar
sem koma saman nemendur
allsstaðar að af Iandinu. Síðan
er ákveðinn og stór kjarni nem-
enda sem eru héðan frá Akur-
eyri. Ur þessu verður allminnis-
stæð blanda af nemendum með
ólíkan bakgrunn og heilmikil
gerjun í gangi. Þetta var auðvit-
að mikill umbrotatími í þjóðfé-
laginu. Ég var í MA 1969-’73, á
þeim árum sem ‘68 kynslóðin
var sem mögnuðust á Islandi."
- Tókstu þátt í uppreisnum?
„Nei, ég get nú ekki beint kall-
að það uppreisnir en ég var virkur
í félagslífi og pólitík á þeim tíma.
Ég var formaður hagsmunaráðs
nemenda á sínum tíma og tók
þátt í að skrifa í skólablaðið, var
virkur í Víetnam-hreyfingunni og
öðrum slíkum atburðum.“
Eiginkona Þorsteins er Arþóra
Ágústsdóttir. Börnin eru tvö,
Fluginn Freyr 19 ára og Sólveig
16 ára. Þorsteinn lauk BA-próf í
sálfræði frá Háskóla Islands og
masters- og doktorsprófi í uppeld-
is- og menntunarfræði frá Ohio
University í Bandaríkjunum.
„Það sem ég hef mestar mæt-
ur á er þegar mér gefst tækifæri
til að vera með fjölskyldunni á
ferðalögum eða gönguferðum.
Ég reyni að fara í sund öðru
hvoru þó það sé alltof sjaldan.
Ég hef gaman af að lesa bækur
og sjá góðar myndir í bíó.“
Að lirina samhljómiim
- Hvaða mann þarf góður rektor
að geyma?
„Ég er kannski ekki rétti mað-
urinn til að svara því. Góður
rektor þarf að hafa sterka fram-
tíðarsýn og sjá hver eru mark-
miðin með háskólanámi. Hann
þarf að vera tilbúinn að hlusta á
háskólasamfélagið, finna sam-
hljóminn og taka skjótar ákvarð-
anir á grundvelli þess sam-
hljóms.“
- Mér er sagt að þú sért hlé-
drægur og viljir helst láta lítið á
þér bera. Efsií lýsing er rétt, hef-
1 tr það haft áhrif á þitt starf sem
rektor?
„Já, ég held að þessi lýsing á
mér sé rétt. Mér er ekki vel við
mikla athygli. Hitt er annað mál
að ég geri mér grein fyrir því að
sem rektor verð ég að koma
fram útávið fyrir hönd skólans
til að vekja athygli á því sem við
erum að gera. Ég hef tamið mér
að fara ekki með ófrágengin mál
í fjölmiðla en ef maður hefur
vönduð og vel undirbúin verk til
að kynna þá yfirvinnur maður þá
hlédrægni sem að baki býr.“
MiMlvægt hlutverk
- Háskólinn á Akureyri hefur
þróast mikið, breyst og stækkað á
þeim árum sem þú hefur verið
rektor. Hann er orðinn tiltölu-
lega stór menntastofnun miðað
við íbiíafjölda svæðisins. Er hann
orðinn ofstór?
„Bakland skólans er ekki mjög
auðvelt. Hér er tiltölulega lítill
byggðarkjarni og svo dreifbýlt
svæði. Skólinn hefur þróast frá
því að vera með þrjátíu nemend-
ur þegar hann var stofnaður til
þess að vera með 530 nemendur
í dag. Staðsetningin á Háskólan-
um skiptir samt ekki höfuðmáli
heldur starfið sem þar er unnið.
Okkur hefur tekist á þessum tíu
árum að hasla okkur völl sem
góð menntastofnun sem laðar til
sín nemendur, ekki bara alls-
staðar að af landinu heldur
einnig að utan. Velvilji almennra
bæjarbúa til skólans er mjög