Dagur - 10.10.1998, Page 10

Dagur - 10.10.1998, Page 10
 26 - LAUGARDAGUK 10. OKTÓBER 1998 LÍFIÐ í LANDINU í sýningarsatiuim eru langar ræmur þar sem hver myndin tekur við af annarri og ekki með gódu móti hægt að sjá hvar eini listamaður hættir og annar tekur við. Þar sem í gær vargrár og líf- laus veggurerí dag stórkost- leg litasinfónía. Úð- ararhafa látið til skararskríða ogfylla veggi borgarinnarlíf- legum litum stundum í óþökk eigenda og borgaryfirvalda en stundum meðgóðu leyfi, enda lífgar „graffiti“ upp á um- hverfið sé það vel unnið. Um helgina opnar „Hið reykvíska úðara- félag“ sýningu á úðabrúsaverkum eftir átta félagsmenn sína í Gallerí Geysi í Hinu húsinu. Félagið hefur ekki verið stofnað formlega en stefnt er að því og sýningin kemur til með að breyta áliti al- mennings sem á tíðum hefur heldur slæmar hugmyndir um úðabrúsamálverk, að þetta sé bara krot og sóðaskapur. Þarna sést hve listaverkin geta verið fal- leg og upplífgandi. Verkin eru misjöfn, litavalið allt frá skærgulu og æpandi rauðu og til þess að vera dempað grátt með smá þunglynd- istilhneigingu. Myndavalið ekki síður skemmtilega fjölbreytt, því pappalengjun- um hefur verið skipt upp í misstóra fleti, sem þó tengjast saman og þar koma myndirnar hver í aðra, ör í þrívídd, fólk og Iangur gangur með sterkri sól- blaðamanns sem gæti sett þau á blað og þar með tengt nöfnin við andlit. „Töggin okkar (listamannsnöfn) eru stutt og þægileg og við þekkjumst inn- byrðis á þeim,“ segir Baldur. „Við merkjum gjarnan myndirnar okk- ar með þessum nöfnum, en þar sem við höfum líklega allir á einn eða annan veg komið nálægt því að lita á veggi sem ekki mátti, þá er best að nöfnin séu geymd hjá okkur,“ og við það situr. Höfðar rneira til stráka Af einhverjum ástæðum virðist úðabrúsamenningin höfða meira til stráka en stelpna og sýnist það vera Hann heitir Hjaiti Kristjánsson þessi ungi maður sem á eitt verkið, þrívíðu örina. Baldur Björnsson er fyrir hópnum, leið- beinir og sameinar áhugamál þeirra allra. arbirtu í endann. „Flestir þeirra sem stunda úðamáln- ingu, graffiti, aðhyllast lífsstefnu hip hoppara," segir Baldur Björnsson semI 'mm er í forsvari fyrir hópinn sem starfar í og við Hitt húsið og leiðbeinir hon- um. Það má tíl sanns vegar færa því strákarnir sem inn koma eru allir með bakpoka, húfuna ofan í augum og heyrnartólin í eyrunum. „Svona erum við,“ segir einn úr hópnum. „Ann- ars eru ekkert allir klæddir eins, þó stefn- an sé sú sama," segir annar. Þeir eiga sér allir nöfn sem ekki má segja upphátt. Alla vega ekki í návist um allan heim. Hvort það er vegna þess að krakkar byrja á þessu á unglingsárum og skiptast í hópa, þar sem stelpum finnst þær ekki passa inní eða hvort það er vegna þess að það fylgir því ákveðin spenna að krota óleyfilega á veggi og strákar sæki frekar í þá spennu er ekki gott að segja. En hitt er staðreynd að mjög fáar stelpur stunda graffiti eða úða- brúsamálningu þó einhverjar séu í því. Baldur segist hafa verið með lista- manninum ILLI í sumar að vinna verk- efni með vinnuskólanum og þá var farið að ræða um stofnun félags sem þessa. „Mig langaði líka til að koma á tengingu við þennan hóp og við höfum upp á síðkastið hist vikulega og hálfsmánaðar- lega eftir atvikum," segir Baldur. „Svo var okkur boðið að fá sjmingaraðstöðu hér og við þáðum það, enda gaman að fá verkið inn, þetta eru verk sem að öllu jöfnu eru útivið og fólk sér þau kannski frekar sem krot en listaverk. Auðvitað eru líka til krotarar, en það er ekki alveg það saman. Þó krot- ið tengist listaverkunum, myndunum, þá eru flestir þeir sem í alvöru hafa áhuga á úðabrúsamenn- ingu að gera fallegar mynd- ir.“ í hópnum sem vann verk- ið eru þeir: Þorsteinn Dav- íðsson, Baldur Björnsson, Árni Grétarsson, Orri Freyr Finnbogason, Hjalti Krist- jánsson, Olafur Guðmunds- son, Þorgeir Frímann Óðins- son, Heiðar Kári Rannveigar- son og Sigurður Blöndal. Allir á aldrinum 16-22 ára. Baldur vill vekja athygli á því að þeir úðarar sem vilja komast í samband við hópinn geta hringt í Hitt húsið og fá þar allar upplýsingar. „Þessi menning er á uppleið hérlendis það er enginn vafi á því,“ segir hann að Iokum. -VS 1

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.